Tíminn - 10.04.1983, Side 5
SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1983
5
mikill andstæðingur kapítalisma í hverju
formi sem hann birtist. En ég er líka
mikill andstæðingur hins þrælkerfaða
sósíalisma, sem mér sýnist að þegar
verst lætur geti leitt til bæði andlegrar og
líkamlegrar kúgunar. Flokkur eins og
Framsóknarflokkurinn, sem hafnar bæði
kapítalisma og sósíalisma, virtist mér
vera besta leiðin ef ég á annað borð færi
að skipta mér af •stjórnmálum. Ég hafði
nokkurn hug á slíkum afskiptum því mér
fannst það vera skylda mín að leggja
mitt lóð á vogarskálarnar. Pólitískt starf
er mjög mikilvægt. Það er fátt sem
lýðræði og þingræði er hættulegra en ef
menn neita að taka þátt í því. Þá er oft
skammur vegur í að önnur öfl, sem
kannski eru áhdvíg bæði lýðræði og
þingræði, nái yfirhöndinni.
Óvæntur sigur í
prófkjöri
Framsóknarflokksins
- Þú fórst ekki í framboð fyrir Fram-
sóknarflokkinn strax.
„Nei, þing var rofið skyndilega haustið
1979 og efnt til kosninga í desember. Þá
ákvað ég nánast einn með sjálfum mér
að tilkynna framboð í prófkjöri Fratn-
sóknarflokksins í Reykjavík. Ég ráðgað-
ist ekki við ncma einn eða tvo menn um
þetta. Niðurstaðan varð þó sú, að ég
hlaut þriðja sætið á listanum og það kom
mér mjög á óvart. Ég varð varaþingmað-
ur flokksins og hef setið nokkrum sinn-
um á þingi í fjarveru Ólafs Jóhannesson-
ar."
- Voru viðbrigði að koma í þingsali?
„Ég get ekki sagt það. Ég þekkti
fjölda manns sem þar sátu og hafði
unnið með þeim á öðrum sviðum.'
Starf að utanríkis-
og menningarmálum
- Hefurðu sérhæft þig í sérstökum
málaflokkum á vegum þingflokksins?
„Ég hef sem varaþingmaður haft lítil
afskipti af ýmsum þingstörfum þar sem
ég var varamaður Ólafs Jóhannessonar
og hann sem ráðherra situr ekki í
þingnefndum. Eins er þess að gæta, að
varaþingmaður kemur ekki til starfa
nema í svo sem hálfan mánuð í senn og
því ekki um samhangandi starf að ræða.
Innan flokksins eru það nú samt ákveðin
. mál, sem ég hef fengist við meira en
önnur.
Vorið 1980 var ég skipaður í Öryggis-
málanefnd á vegum flokksins og hef
starfað þar síðan. Þetta er merkileg
stofnun sem þegar hefur byrjað nokkra
útgáfustarfseini og þar fer fram að mínu
- Haraldur ásamt dótturinni Sigríði, 18 ára gömlum nemanda í Menntaskólanum í Revkjavík. Sonurinn Gunnar, sem er 14
ára, var í körfubolta þegar myndin var tekin.
viðhorf þín í varnarmálum og um skoðun
þína á þeirri umræðu um öryggismál
íslendinga, sem frani fer á opinberum
vettvangi, s.s. í fjölmiðlum?
„Já. ég held að það sé kannski margt
við umræðuna að athuga. Ég held t.d að
menn einblíni um of á það að íslendingar
raunverulega geti upp á eigin spýtur gert
ýmislegt sem þeir ráða alls ekki við. Ég
held að í fyrsta lagi höfum við ekki
nægilega góða ráðgjöf um öryggismál,
upplýsingasöfnun hefur verið ábótavant.
Ég tel að við eigum tvímælalaust,sjálfir
að geta mctið bæði hernaðaraðstöðu
íslands og stöðu landsins almennt í
utanríkis- ogöryggismálum. Við verðum
að hafa í huga að við ráðum yfir
gífurlegum svæðum á norðurhveli jarðar
eftir að við fengum viðurkennda 200
sjómílna efnahagslögsögu. Það verður
ekkert gert hér í Norðaustur-Atlantshafi
nema íslendingar séu með í ráðum, og
við eigunt að láta þetta allt okkur varða.
Við eigum líka að hafa mjög nákvæmar
upplýsingar um þann herbúnað, sem er
hér á Iandi og í kringum landið, og þann
Frakkar eða Rússar, sem ógna öryggis-
stöðu okkar á einhvern hátt.
Ég hef alla tíð haft ímugust á veru
erlends herliðs á íslandi. Ég tel að við
fyrsta tækifæri eigi herinn að hverfa
héðan á brott og við eigum að vera lausir
við herstöðina. En ég geri mér fyllilega
ljóst að þetta verður ekki gert nema í
tengslum við fjölmargt annað, og þ.a.m.
margt sem við ráðum ekki við sjálfir.
Herstöðin hér verður að mínu mati ekki
lögð niður nema í sambandi við víðtækar
ráðstafanir annars staðar á þessu svæði.
Ákvörðun um brottför hersins verður að
taka í tengslum við fjölmargt annað.
Hins vegar ber okkur skylda til að hafa
umsvif hersins hér sem minnst. Það
hefur komið í Ijós að hlutverk herstöðv-
arinnar hefur breyst. Hún er orðin liður
í miklu víðtækara fjarskiptakerfi en var
og við vitum að í kringum landið og milli
íslands og Noregs eru kjarnorkukafbát-
ar. Við eigum að vinna að því að ná
samkomulagi við þjóðir, sem hlut eiga
að máli, að sem allra minnst hernaðar-
umsvif séu hér á svæðinu á norðaustur-
- Ég tel það lífsspursmál fyrir Framsókn-
arflokkinn að eflast í Reykjavík og á
Reykjanesi.
Við vitum að þetta er hægt og við vitum
líka að margt af þessu er bókstaflega
nauðsynlegt vegna þess hve þjóðarfram-
leiðslan hefur dregist saman."
Fullan jöfnuð
atkvæðisréttar
- Nú er óiíklegt að Framsóknarflokk-
urinn fái kjörfylgi til að hrinda þessum
stefnumáium í framkvæmd einn síns
liðs. Með hvaða öðrum stjórnmálaflokk-
um getið þið helst hugsað ykkur að
starfa?
„Ég get ekki séð annaö en að það ætti
að vera hægt að ná þessu markmiði mcð
öllum stjórnmálaflokkunum. Ég vil alls
ekki nefna einn flokk öðrum fremur. Ég
held að æskilegast væri að mjög víðtæk
samstaða, jafnvel þjóðstjórn, tækist til
að hrinda þessu í framkvæmd."
- Hver er afstaða þín sem þingmanns-
efnis Framsóknarflokksins i þéttbýli til
ágreinings um jöfnun atkvæðisréttar við
dreifbýlið?
„Ég tel, að það samkomulag, sem
• náðist ntilli flokkanna í vetur, sé langt
frá því að vera hið æskilegasta. Það er
þó spor í rétta átt. Ég tel að atkvæðisrétt-
ur manna eigi að Vera fullkomlega jafn
hvar sem þeir búa á landinu, en ég geri
mér grein fyrir því að því takmarki
verðurekki náðnemaá nokkrum tíma."
- Eru ekki skiptar skoðanir um þessi
efni í Framsöknarflokknum?
„Jú, rnjög."
- Heldurðu að til þess komi að ágrein-
ingur dreifbýlis- og þéttbýlisviðhorfa í
flokknum eigi eftir að skerpast?
„Ég held, að það sé ákaflega mikið
undir því komið, hvort flokknum tekst
að auka fylgi sitt hér í Reykjavík og á
Reykjanesi. Ef við höldum áfram að
vera rneð einn til þrjá þingmenn í
þessum kjördæmum þá er líklegt og
rcyndar augljóst að þá vilji framsóknar-
ntenn halda hlut dreifbýlisins sem
mestum. Ég tel hinsvegar að það sé
lífsspursntál fyrir flokkinn að eflast
hér, því ef að hann koðnar hér niður þá
mun ekki líða á löngu þar til líka fer að
halla undan •fasti fyrir honum úti á landi."
„Ákaflega
þingræöissinnaöur“
- Hver er afstaða þín til hugmynda
um aukið vald forseta eða forsætisráð-
hcrra?
„Ég er ákaflega þingræðissinnaður og
tcl að þingræði sé undirstaða okkar
FRAMSOKNARFLOKK-
SERKENNUM SINUM”
skipar annað sætið á framboðslista framsóknarmanna í Reykjavík
viti einna umfangsmest heimildaöflun
og urnræða um íslensk utanríkis- og
öryggismál. Það er alveg ómetanlegt að
hafa tekið þátt í því starfi og ég held að
fátt hafi gefið ntér betri innsýn í pólitíska
stöðu íslands en starfið þar.
Ég var einnig í fyrravetur stjórnandi
hóps karla og kvenna sem undirbjuggu
menntamálaályktun flokksþings Fram-
sóknarflokksins. Það var mikið starf. Ég
held að sú ályktun sé ágæt og ef við
getum staðið við hana mun það hafa góð
áhrif á íslensk menntamál og menning-
armál.
Einnig hafði ég um hríð afskipti af
fjölskyldupólitík flokksins og hef flutt
þingsályktunartillögur um þau efni
ásamt öðrum.
En þau svið, sem mestan áhuga minn
vekja eru mennta- og menningarmál og
utanríkis- og öryggismál. Það má
kannski geta þess að þegar árið 1978 var
ég skipaður af hálfu flokksins í Þjóðleik-
húsráð og hef nú verið formaður þess um
tveggja og hálfs árs skeið."
Eigum að afla sjálfstæðra
uppiýsinga um öryggismál
- Mig langar til að forvitnast uni
fjarskiptabúnað sem hér er. Ég held að
það sé lífsnauðsyn fyrir okkur að við
gerum okkurgrein fyrireðli Keflavíkur-
stöðvarinnar og annarra stöðva sem
Bandaríkjamenn hafa hér samkvæmt
samningi. Við verðunt líka að fylgjast
náið með stefnu og aðgerðum nágranna-
þjóðanna í þessum efnum bæði hvað
varðar herbúnað og fjarskiptatækni og
við verðum að þekkja eins vel og unnt
er af eigin rannsóknum, ekki láta mata
okkur, hvern búnað stórveldin hafa hér
í kringum okkur.
„Hef alltaf haft ímugust
á veru erlends
hers á íslandi“
Það er stundum talað um að láta
herinn fara eða herinn vera. Mér finnst
þetta ekki vera sþurning um það, heldur
á hvern hátt íslendingar geti af eigin
frumkvæði og með samningum við aðra,
tryggt öryggi landsins bæði í eiginlegri
og óeiginlegri merkingu. Við verðum að
geta metið það á hverri stundu hvort
tilteknar athafnir nágrannaríkja, hvort
sem það eru Bandaríkjamenn, Bretar,
hveli jarðar. Auðvitað getum við ekki
komið í vcg fyrir öll slík Umsvif, en við
eigum að vinna að því að draga sem mest
við megum úr þeim. Eins eigum við að
reyna að stefna að því að gera Keflavík-
urstöðina ekki eins mikilvægan lið í
fjarskiptakerfi Bandaríkjanna cins og
hún er nú."
Halda fram sérkennum
Framsóknarflokksins
- Hver eru stefnumál þín í kosning-
um, sem nú eru framundan?
„Ég held að það skipti mjög miklu
máli fyrir okkur framsóknarmenn að
halda fram sérkennum Framsóknar-
flokksins. Við erum ekki sósíalískur
flokkur eins og mér finnst stundum látið
að liggja og við erum mjög andvígir
auðvaldshyggju og frjálshyggju Sjálf-
stæðisflokksins, eða afla innan hans. Við
erum frjálslyndur miðflokkur, þar sem
við teljum að blandað hagkerfi sé hið
heppilegasta form. Slíkt hagkerfi gerir
ráð fyrir að hið hentugasta á hverjum
tíma og hverjum stað ráði hvort það er
einkarekstur, samvinnurekstur eða
ríkisrekstur á tilteknu sviði. Ég held, að
þetta sé okkar mcsta sérstaða, að við
erum ekki kreddufullir í þessum efnum.
Annað sem við eigum að leggja höfuð-
áherslu á, er að við komum fram eins og
við erum klæddir, skýrum greinilega frá
því, sem við teljum að gera þurfi og
biðjum þjóðina um stuðning til þess að
fá þessu framgengt. Það, sent við viljum
fá fram í efnahagsmálum, er fyrst og
fremst að hægja á verðbólgunni, sem
sannarlega er að grafa undan öllunt
atvinnurekstri í landinu. Við verðum að
kippa vísitölunni úr sambandi um hríð
þannig að verðbætur og verðhækkanir
fari ekki saman og draga úr opinberri
fjárfestingu. Erlendar skuldir okkar eru
orðnar það miklar að þær geta gert
okkur erfitt fyrir um ýmsar framkvæmdir
á næstu árum ef ekki er gripið í taumana
núna strax.
Þessu takmarki okkar, að vinna bug á
verðbólgunni teljum við að verði ekki
náð nema með nokkurs konar þjóðar-
samningi, samkomulagi milli hagsmuna-
aðila. Við þurfum að koma á bæði
verðstöðvun og stöðvun kauphækkana,
og hindra hækkun búvöru og fiskverðs,
og koma á jafnvægi í peningamálum.
lýðræðis og að ríkisstjórn eigi að vera
ábyrg gagnvart þinginu. Ég er þess
vegna eindregið andvígur hugmyndunt
Vilmundar Gylfasonar um þessi efni.
Það á að mínu mati að gera Alþingi enn
öflugra og færa til þess aukin völd til að
hafa eftirlit með framkvæmdavaldinu.
Eins vil ég að tengsl þjóðar og þings
aukist.
- Viltu spá einhverju um úrslit kosn-
inganna?
„Nei, ég vil engu spá. Ég held aðýmsu
leyti hafi þetta stjórnarsamstarf sem
framsóknarmenn eru nú í verið nokkuð
erfitt. Flokkurinn hefur ekki komið
fram ýmsu því, sem hann barðist fyrir í
kosningunum 1979. Ég var og er þeirrar
skoðunar að þessu samstarfi hefði átt að
ljúka þegar á síðasta hausti og þá hefði
átt að efna til kosninga.
Ég hef alltaf verið bjartsýnismaður og
hef trú á því að okkur takist að halda.
okkar tveimur ntönnum hér í Reykjavík,
enda skiptir það miklu að Framsóknar-
flokkurinn haldi áfram að vera öflugt
stjórnmálaafl hér í borg, og á landinu
öllu.“
-GM