Tíminn - 10.04.1983, Side 19
SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1983
■ Jerzy Kosinski - alla sína reynslu hefur hann oflð inn í skáldsögur sinar.
Ótrúlegar ásakanir á Jerzy Kosinski:
SKRIFAR HANN
EKKI BÆK-
URNAR SÍNAR?
■ Menn finna sér ýmislegt til að þrasa
um og í bandarískum biöðum er nú deilt
harkalega um það sem kallað er „skand-
all ársins í bókmenntaheiminum", nefni-
lega,hvort Jerzy Kosinski hafi í rauninni
skrifað bækurnar sínar tíu - átta skáld-
sögur og tvær bækur um stjórnmála-
fræði. Á íslandi er Kosinski sjálfsagt
kunnastur sem höfundur bókarinnar Be-
ing There sem var kvikmynduð með
Peter Sellers í aðalhlutverkinu, en kvik-
myndin hefur verið sýnd hérlendis í
meira en ár.
„Ég er höfundur bóka minna, það er
allt sem ég veit um þetta mál“, segir
Koskinski. „Enginn annar getur haldið
því fram að hafa skrifað einn einasta
hluta af þeim," segir Kosinski en sumir
þykjast vita betur. í júnímánuði síðast-
liðnum birtist grein á forsíðu dagblaðsins
The Village Voice í New York sem
staðhæfði að Kosinski leigði sér próf-
arkalesara sem í rauninni skrifuðu skáld-
sögur hans fyrir hann. í greininni sagði
ennfremur að bandaríska leyniþjónust-
an CIA „léki augljóslega leynilegt
hlutverk" í útgáfu bókanna tveggja um
stjórnmálafræði, en þær ritaði Kosinski
undir dulnefninu Joseph Novak.
„Við stöndum við sögu okkar“, sagði
Geoffrey Stokes, annar af tveimur höf-
undum greinarinrtar: „Það er augljóst að
hún stenst. Síðan í júní hefur fleira fólk
komið til okkar með nýjar sannanir.“
Kosinski neitar aðdróttununum stað-
fastlega: „Þau skrifa sínar skáldsögur,
ég mínar,“ en hefur þó ekki í hyggju að
stefna greinarhöfundunum. „Það sem
fyrst og fremst dró mig til Bandaríkjanna
var frelsi blaðanna. Blaðamenn The
Village Voice verða að hafa fullkomið
frelsi til að skrifa það sem þeir vilja. Ég
mundi aldrei nokkurn tíma ógna rétti
þeirra til þess“.
í The New York Times birtist svar við
gróusögunum í The Village Voice sem
svaraði svo aftur. Síðan þá hafa birst
greinar i öllum helstu dagblöðunum í
Bandaríkjunum, með og á móti aðdrótt-
unum The Village Voice undir fyrir-
sögnum eins og: „Hreinsið mannorð
Kosinskis“, „Hver er Kosinski“ o.s.frv.
The New York Times hafði eftir
Kosinski að nú þyrfti hann meira að
segja að sanna tilveru sína: „Þegar hann
vaknar á morgnana galar hann.“ En nú
er Kosinski orðinn heimspekilegri: „Líf
mitt er það sem ég geri. Það er algjörlega
óháð því sem aðrir gera, hugsa eða
segja.-“
Kosinski sem fæddist í Póllandi fyrir
fimmtíu árum flúði til Bandaríkjanna árið
1957, þá 24ra ára gamall og auralaus
'flóttamaður sem aðeins kunni örfá orð í
ensku: „Það var eins og að vera ósýni-
legur“. Hann vakti athygli þegar bók
hans The Painted Bird kom út árið 1965.
Sú bók er byggð á reynslu höfundar, er
hann var barn í Austur-Evrópu undir
járnhæl nasismans, en bókin er álitin
sígilt bókmenntaverk - þeirrar tegundar
sem fjallar um hörmungar nasistatím-
ans. Næsta bók Kosinskis, Steps, aflaði
honum verðlauna og síðari bækur hans
hafa einnig hlotið góða dóma þótt ein-
hverjar fjandsamlegar raddir hafi einnig
kveðið sér hljóðs.
Skáldsögur Kosinskis eru íronískar,
glettnar, ofsafengnar og berorðar. „Ef
ég væri málari“, segir hann, „mundi ég
mála eins og Bosch - ég mundi mála
heiminn eins og börn sjá hann. Mannleg-
ar verur sem eru skrímsli og skrímsli
sem eru afskaplega mannleg."
Ævi Kosinskis hefur að mörgu leyti
verið eins undarleg og skáldskapur hans:
hryllileg r'eynsla í bernsku sem leiddi til
þess að hann var mállaus í sex ár;
ævintýralegur flótti til Ameríku; þá
giftist hann ríkri ekkju sem síðar dó úr
krabbameini; breytt áætlun á síðustu
stundu kom í veg fyrir að hann færi í
veislu á heimili æskuvinar sfns Roman
Polanskis og bjargaði honum þar með
frá bráðum bana af völdum Charles
Manson og félaga. Hann ferðast mikið,
á íbúðir í Los Angeles og New York og
er ofstækisfullur skíðamaður og póló-
leikari. Alla sína reynslu hefur hann ofið
inn í skáldsögur sínar og samsuðan af
æviatriðum hans og skáldskapnum hefur
dregið persónu hans fram í dagsljósið.
Kosinski segir að pólsku blöðin hafi
allt frá 1966 haldið því fram að CIA
stæði á bak við útgáfu bóka hans. „Mér
er spurn: Hvernig er hægt að sanna að
maður hafi skrifað eitthvað? Eg horfi á
bækurnar mínar og velti því fyrir mér
hvernig ég eigi að sýna klukkustundirnar
sem ég hef eytt í þær, hvernig á ég að
fara að því að flytja þær stundir inn í
réttarsalinn - í ferðatösku? í rauninni er
þetta bara spurning um skoðun."
Hann heldur því statt og stöðugt fram
að hann noti prófarkalesarana sína ein-
ungis til þess að fara yfir prófarkir og
handrit, aðallega vegna þess að hann
endurskoðar og breytir handritunum oft
og mörgum sinnum áður en þau eru
tilbúin til prentunar. Svo mörg uppköst
eru vélrituð upp aftur og aftur að
nauðsynlegt er að einhver utanaðkom-
andi aðili fari yfir þau til þess að tryggja
að samhcngið rofni ekki.
Og samtvinnun listar og lífs heldur
áfram. Kosinski vinnur nú að skáldsögu
um rithöfund sem sakaður er um að hafa
ekki skrifað bækur sínar sjálfur: „Auto-
focus fjallar um gjörspilltan mann, sem j
aðeins hefur eina óflekkaða ætlun -
rithöfundarstarfið sem nú verður fyrir
aðkasti, og sagan greinir frá því hvernig
hann bregst við því.“
„Ég hef af fúsum vilja valið að lifa
lífinu svo að eftir mér yrði tekið. Ráð
föður mins, sem var fornfræðingur, voru
svohljóðandi: „Lestu Stóumenn, lifðu
lífinu án þess að vekja athygli á þér vegna
þess að á þeirri stundu sem þú kýst að
vekja á þér athygli verðurðu í sviðsljós-
inu. Og frá þeirri stundu er ekki víst að
þú óskir þess að lifa slíku lífi.“ Kannski
hefði ég átt að hlusta á hann.“
19
neyslu
vatns
HITARAR
Nýju Rafha-neysluvatnshitararmr eru hannaðir með orku-
sparnað i huga. Þessar nýju gerðir spara allt að 45% í
orkunotkun miðað við hefðbundnar gerðir. Ástæðan er
meðal annars mjög fullkomin einangrun sem skilar sér i
óvenju lágu tómganstapi. Þar við bætist nýtt hitald sem
minnkar rafmagnsnotkun verulega.
Rafha-neysluvalnshilarmn er gæðavara með ymsa goða eiginleika.
- Nylonhúðaður (rilsonhuðaður) kútur að innan. Nylon-
húðin er sterk, hoggvarin og góð vorn gegn tæringu.
- Yfirhitavar sem hægt er að stilla inn aftur.
- Termostat sem er auðvelt og nákvæmt i stillingu, stig-
laust frá 5 -85lJC.
Sérstakt frostöryggi.
- Barnaöryggi á termostatrofa.
- Tenging fyrir allar röragerðir.
- Engin bragð- eða lyktaróþægindi. '
- Auðveldur að setja á vegg/sökkul eða standandi
- Góð þjónusta
Verslunm Ralha. Auslurven Haaleilisbraul 68 Rvik Simi 84445
Ralha Hafnarfirði. simar 50022, 50023. 50322
Notaðir iyftarar
í mikiu úrvali
Getum afgreitt eftirtalda lyftara nú þegar:
Jfl
Rafmangs Dísil
1,51. 2,5t.m./húsi.
2t. 3.51. m/húsi.
2,5t.m/snúningi. 4t.
3tm/snúningi
Skiptum og tökum í umboðssölu
rp
u
UÁ
K. JÓNSSON & CO. HF.
Vitastig 3
Sími 91-26455
Raflagnir
Fyrsta flokks
þjónusta
Ef þú þarft að endurnýja, gera við, bæta við
eða breyta raflögnum, minnir Samvirki
á þjónustu sína með harðsnúnu liði rafvirkja,
sem ávallt eru tilbúnir til hjálpar.
samvirki
SKEMMUVEGI 30 - KÓPAVOGI - SÍMI 44t5S6