Tíminn - 01.05.1983, Page 23

Tíminn - 01.05.1983, Page 23
SUNNUDAGUR 1. MAÍ1983 23 nútíminn hana, þá fannst manni að hún væri dálítið dæmd á þeim forsendum að þetta var kvennasvcit og maður gæti því gefið þeim tækifæri. G: Auðvitað má gera ráð fyrir því. Þetta var tekið öðruvísi af því þetta hefur ekki verið áður. ímyndið ykkur karl í flugfreyjustörfum fyrst, Var ekki tekið eftir því af því þetta var karl. Þetta er þó allt að breytást. Við erum byrjunin. Það eru til fleiri kvennabönd inn í bílskúrum hér, bæði út á landi og í bænum. NT: Eru þau til? G: Jelly-systur og Toffies í Kópavogi og örugglega fleiri. Sokkabandið á Isa- firði. Guð þær eru svo skemmtilegar. Þær komu í heimsókn þegar þær voru í þessari Satt-keppni. Bönkuðu upp á æfingu hjá okkur: „Hæ“. Ein þeirra var kennari við einhvern tónlistarskóla og mátti ekki láta skólastjórann vita að hún var í rafmagninu. Þær voru þroskaðar konur og við vorum eins og smábörn í sambandi við þeirra lífsviðhorf. Voru alveg inn í bæklingum eins og maður segir. NT: Ef við förum aðeins yfir nýjustu plötuna ykkar, Mávastellið, þá er ekkert efni á henni sem er nýrra en 4-6 mánaða. Hvernig víkur því við? R: Sko, gerið ykkur grein fyrir því að það eru ekki allir sem vita það að platan er tekin upp í miðjum janúar s.l. Við erum svo búnar að vera mjög duglegar við að kynna hana, Utkoman á henni dregst en við spilum og spilum og allir kynnast henni að segja svo þegar þeir heyra plötuna? ég bara skil ekkert í þessu þetta er allt gamalt efni. Maður gerir sér ekki grein fyrir því ■ Inga Rún setur upp „línumar“ fyrir kvöldið. og fríð...“ og allur salurinn var pakkaður af gömlu gengi, þið vitið gömludansa og fjöldasöngsstemmningin alveg í há- marki, og það sat og hélt fyrir eyrun á sér. R: Svo kom eitthvað lið upp til mín og sagði HEYRÐU Á ÞETTA AÐ VERA SVONA í ALLT KVÖLD EÐA HVAÐ?, á maður bara að ærast yfir þessu djöfulsins ógeði. Þá byrjuðum við G: Það varð svo mikil hamingja á svæðinu að þú trúir því ekki. Við tókum þetta allt í C-dúr og textalaust því við kunnum þá ekki. R:Tókum líka „Lóa litla á brú..ra la la la“ og allir dönsuðu með, svo kom „Kokkurinn" þið vitið dírriríley eða eitthvað...“ en þegar þetta kvöld var búið sór ég þess dýran eið að spila aldrei fyrir eyrun þegar maður var búinn að skrúfa allt niður... jesús minn“. G: En þetta gekk allt vel og liðið alveg elskaði okkur eftir þetta, fengum fullt af boðum í sumarbústaði og dinnera og maður veit ekki hvað. NT: Spiluðuð þið þá ekki eigin lög? G: Jú, jú við sögðum í miðju dúdírall- ýreyinu að núna ætluðum við að leika fyrir unga fólkið. Krakkarnir voru alveg KOMA MED MER Dll STÍGVÉLIN” þeim ■ „Lopasexið, maður“ hvað maður er búinn að kynna plötuna hryllilega vel. Töfin á plötunni varð vegna mynda- tökunnar. Við vorum eiginlega allann marzmánuð úti í Bandaríkjunum að spila á Scandinavia Today og við fleiri tækifæri. NT: Hvað voru það margir tónleikar? G: Þeir voru einir átta talsins. Einir útitónleikar þar sem liðið mætti í hjóla- stólum m.a., var að vefa og prjóna, danskur bjór og íslenskur kavíar var seldur, sænskar pulsur, margir í þjóð- búningum, Guð það var gaman, þótt að megnið af liðinu hefði verið með puttana í eyrunum. Það „fílaði“ þetta bara mjög vel. Þá urðum við tískusýningarundirspils- band í fyrsta sinn. R: Þá fyrst voru þær góðar. G: Það mátti ekkert stoppa og á milli atriða spurðum við hver aðra hvað éigum við að taka næst? R: Bara áfram í sama takti og byrjum aftur á laginu mikill hlátur. NT: Var það á einhverri íslandskynn- ingu: G: Já lopasexið maður. Allt í mórauð- um og gráu maður... NT: Þið lékuð bæði í New York og Los Angeles ekki satt? G: Jú fyrst í New York. Eitt ballið þar byrjuðum við á laginu Grátkonan, og þið vitið: „Ég man þá tíð að ég var ung ■ „Þá spiluðum við fyrst undir tískusýningu“ bara að spila „Nú er frost á Fróni frýs í æðum blóð...“ G: Og hækkuðum í græjunum í leiðinni... R: Tók líka Kátir voru karlar, Jósep, Jósep, Allir dansa Kónga, Óli Skans... ■ „Þáð er þetta með grúpíuvandamálið...“ aftur fyrir íslendinga í New York“ bætir Herdís við og segir svo: „Maður var að spila á lægsta mögulega „tjúni“ og heyrði akkúrat ekki neitt nema í trommunum því hún getur ekki lækkað sig og þessi lög og þessa tónlist fyrir fólk sem svo hélt að verða brjáluð á þessu. Við skiptum þessu niður á diplómatískan hátt, klukkutíma fyrir gamla settið, klukku- tíma fyrir unga liðið... og Herdís bætir við: „Sko spurning kvöldsins var; spilið þið þá bara boom boom boom músík?" Karlinn sem ég talaði við fyrst þegar ég kom þarna á hótelið. Ég kom og sá þetta „fansý" hótel, fór upp, sá tómt fimmtugt lið og fæ þessa spurningu; hvernig músík spilið þið? „Rokk“ segi ég. „Spiliði engin lög sem ég kann?“ spyr hann. „Nei, ja hvenær varstu síðast á ís- landi?“ spyr ég. ■ Herdís: „Sko spurning kvöldsins var hvort við spiluðum bara boom boom boom músík. „Fyrir um 15 árum“ segir hann. „Við erum bara tveggja ára“ segi ég. „Afhverju er verið að ráða svona band?“ spyr hann. „Ef menn vilja ekki rokk þá á bara að ráða eitthvað dinner band“ segi ég. „Nú jæja, en spilið þið bara svona boom boom boom músík?,, Þetta var leiðinlegasti skarfur kvöldsins. R: Djöfulli varð maður'oft að passa sig á að slá fólk ekki utan undir, það var svo neikvætt og leiðinlegt... NT: Var fólk almennt svona íhalds- samt þarna? G: Þetta var bara eins og við hefðum slegið upp hljóðfærunum okkar á Hótel Sögu þar sem fólkið er vant að hafa Ragga Bjarna... nei það er verra, miklu verra... gæti verið hægt að líkja því við að spila í líkhúsi... eða elliheimili... nei, ' það hefði „fílað“ það... kirkju kannski? En svo var okkur óvænt boðið þarna til L.A. Djöfull vorunt við fegnar því. NT: Hvar spiluðuð þið þar? G: Meðal annars auk Þorrablóta á Music Machine og Paso Robles en það var svona kántrý-staður og það var alveg æðislegt því þar var á staðnum liðið sem Kobbi Magg er að gera myndina með. Þar vilja allir að Mondale vinni næstu forsetakosningar því dóttir hans fer með annað aðalhlutverkið í myndinni. NT: Hvað haldið þið að útlitið sé stór þáttur í að trekkja að ykkur? Eða hvað haldið þið að „sexið“ sé stór þáttur í þessu? G: Þú verður að spyrja strákana sem koma að því. Það eru örugglega til þeir sem koma og hafa ekki áhuga á tónlist- inni heldur okkur. ..EN HVERJIR ERU ÞAÐ? NT: En fáið þið einhverjar mótbárur út af klæðnaði? G: Bæði og. Ég man alltaf eftir einum manni út á Paso RobleSihonum fannst þetta svo mikil nauðgun á kvennímynd- inni að hann átti varla orð til yfir þetta ógeð. Þetta var svona þrítugur gæi, hann gretti sig og var bara með viðbjóð í augnaráðinu. En liðið þar almennt var mjög hresst og okkur voru boðin glös í hrönnum af hinu og þessu borðinu í salnum. NT: Þarna út í L.A. vöktuð þið athygli sem kvennaband þar? G: Það má segja það.því í rauninni er ekki svo mikið til af kvennaböndum úti. Go’Go’s koma að vísu frá L.A. en þróunin er sú ,að fleiri og fleiri koma frant. R: Mér finnst atriðið vera að búa til bönd sem eru bæði karla- og kvenna- bönd. Það sé ekkert mál ef okkur vantar t.d. bassaleikara að það sé karltnaður eða þá öfugt hjá öðrum böndum. Bara ef persónan er góð, hafi hæfileika ogfalli vel inn í bandið. NT: En er ekki satt að þið talið svoldið illa um karlmenn í tcxtum? G: Nei. Það var þetta eina lag þarna í myndinni en hún var um rembu milli kvenna og karla og þetta lag var samið sérstaklega fyrir hana. Við viljum benda ykkur á lagið „Djásnið" á nýju plötunni. Það er óður til ykkar karlanna. (laginu umsvifalaut smellt á fóninn og spilað hátt). En við hlustunina segir bara af einhverjum ástæðum að Grafík hafi einnig verið með eitt svona „sæðisbanka- lag“ á prógrammi sínu á Borginni, instrumental að vísu. NT: Kvennaframboðið leitaði ekkert til ykkar með tónleika í kosningabarátt- unni nú, var það? G: Nei. NT: Ekkert? G: í fyrra í borgarstjórnarkosningun- um. En þær tóku því þá, af einhverjum ástæðum, eins og við værum að gefa skít í þær og þessvegna vorum við sennilega ekki beðnar um þetta aftur. Kjúklingurinn er tilbúinn og meðan þær hesthúsa hann forvitnumst við um hvort þær telji að bandið eigi framtíð fyrir sér, sem slíkt. G: Maður getur aldrei ákveðið neitt langt fram í tímann hvað maður ætlar að gera. Málin verða bara að þróast. Við erum bara að gefa af okkur og meðan ■ einhver tekur á móti þá er þetta í lagi. En um leið og við hættum því dettur þetta uppfyrir þ.e.a.s. menn taka ekki á móti því sem ekkert er.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.