Tíminn - 10.07.1983, Qupperneq 7
SUNNUDAGUR10. JULI1983
7
Ég skal ekki fjölyrða um það rit hér,
enda stutt síðan sagt var frá því í
Helgartímanum. Guðmundur boðar
meritókratí í.bókinni og vill láta gefa
embættismönnum einkunn fyrir frammi-
stöðuna og þeir sístu fái reisupassann.
Guðmundur skrifaði reyndar einnig
grein í tímaritið Vöku 1929 um framtíð
mannanna og vísindin, og boðar hann
þar þróun í stað byltingar og mannakyn-
bætur, eins og víða annars staðar í ritum
sínum. Mannakynbótaste&ian fól í sér að
auðvelda ætti gáfumönnum að eignast
mörg afkvæmi en torvelda það hinum.
Guðmundur og margir samtímamenn
hans, sem einnig voru á hægrikanti
stjórnmálanna, litu ríkisvaldið já-
kvæðum augum. Þetta gildir t.d. um
hópinn sem stóð einmitt að vöku á
árunum 1927-29. Þessir menn vildu hafa
ríkisforlag og niðurgreiðslu á menning-
arstarfsemi m.m. og margir þeirra voru
sjálfir ríkisstarfsmenn. í íhaldsflokknum
voru hins vegar á þessum tíma margir
frjálshyggjumenn (réttar nefndir mark-
aðshyggjumenn, enda hefur stefna
þeirra ekki meira með frelsið að gera en
t.d. jafnaðarstefnan), og nægir að minn-
ast á Jón Þorláksson. Jón var hins vegar
andvígur ágangi erlendrar stóriðju í
landinu, eins og sást afafstöðu hans í
Fossanefndinni 1917, og hefði áreiðan-
lega verið nefndur landráðamaður á
sínum tíma að öðrum kosti, og það
réttilega. En nú er öldin önnur með
flokksbræðrum hans, sem eru nógu kald-
hæðnir til að kalla sig sjálfstæðismenn.
Nafni Jóns er nú flíkað mest af þeim sem
æstastir eru í að gefa útlendingum foss-
ana. Markaðshyggjumennirnir eru í
mörgum tilfellum opinberir starfsmenn,
þannig að drottinhollustu þeirra er á-
bótavant í tveim megingreinum: gagn-
vart atvinnuveitanda sínum og gagnvart
þjóð sinni.
Nú hafa einnig heyrst raddir hér í
Svíþjóð um ofvöxt ríkisins og um að hið
opinbera hafi teygt sig óeðlilega mikið
inn á svið einkalífsins. Sumir óttast
jafnvel að Svíþjóð sé að líkjast Austur-
evrópuríkjum, sem ég fyrir mitt leyti tel
ólíklegt. Hafa staðið blaðadeilur um
þetta mál að undanförnu. Upphaf þeirra
var að tveir jafnaðarmenn vöruðu við
vaxandi áhrifum ríkisins. Nú hafa jafn-
aðarmenn frekar verið frægir fyrir hitt:
að vilja færa út kvíar hins opinbera í
andstöðu við hægriöflin. Enda var tví-
menningum þessum óðara svarað af
sósíaldemókrötum, sem álíta að vöxtur
ríkisins hafi frekar verið til góðs en ills,
jafnvel þótt aukning skriffinnsku og
miðstýringar hafi ótvíræða galla. Helsti
talsmaður þessarar skoðunar, Walter
Korpi að nafni, hefur bent á að á sviði
ríkisins og stjórnmálalýðræðisins hefur
nú hver maður eitt atkvæði í kosningum
- nokkuð sem kostaði langa baráttu að
fá framgengt - en á sviði fyrirtækjanna
ríkja fáeinar fyrirtækjasamsteypur þar
sem nokkrir tugir manna hafa milljónir
atkvæða hver (í formi hlutabréfa).
Kafka, Orwell, Huxley og margir
fleiri höfundar hafa gerla lýst áhyggjum
sínum af vaxandi firringu þar sem opin-
ber umsvif aukast og samfélagið er orðið
flóknara en áður. Þessi vandamál eru
alvarleg og þarfnast umfjöllunar og að-
gerða. Lýðræðið (eða skortur þess) í
verkalýðshreyfingunni er ein mikilvæg
hlið málsins. Og önnur er spurningin um
vald kosinna fulltrúa yfir ríkisstofnunum
(ráða t.d. bankastjórar yfir ráðherrum
efnahagsmála eða öfugt?).
í Svíþjóð eins og á íslandi geta menn
bent á hátt þátttökuhlutfall í kosningum,
sem bendir væntanlega til að menn finni
ekki til algers valdleysis gagnvart stjórn-
málastofnunum. Mikilvægt er að gera
sér grein fyrir að ríkið hefur bætt hag
almennings á sviði skólamála, sjúkra-
þjónustu, samgangna o.s.frv. Hitt er
aftur á móti ljóst að hið opinbera setur
einstaklingunum hömlur um leið. En þó
að auðmenn (og stöku menntamaður)
telji sig geta snúið baki við ríkinu og
barist gegn því með slagorðum markaðs-
hyggjumanna, er ekki þar með sagt að
t.d. verkalýðshreyfingin hafi efni á því
sama. í slíku Ijósi hef ég tilhneigingu til
að réttlæta ríkið þrátt fyrir skriffinnsku'
þess. Valkosturinn við opinber umsvif er
líka á næstu grösum, nú þegar hægriöflin
hér stefna að því að læknisþjónusta
verði forréttindi efnamanna. Meðan hið
opinbera tryggir fátæklingum heilsu-
gæslu getur það varla kallast skrímsli,
hvað svo sem bölsýnum framtíðarskáld-
skap líður. AS.
SLÁTTUORFIÐ
LEYSIR VANDANN
Þú slærð blettinn með blaðinu,
og í kringumtré,
runna og fl.með
spóttanum.
^SHINGU
HOMELITE
ÍEKI
Tapast hefur
frá Króki í Holtum vindrauður hestur, ómarkaður,
stjörnóttur, aljárnaður 4 vetra gamall.
Samband óskast haft að Króki eða í síma 76217
Reykjavík.
Odýrar
skjalamöppuhillur
fyrir skrifstofur
Viður: Eik, Teak og Fura
Húsgögn og
. , 'r. Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar simi se 900
dráttaivélamar
DEUTZ
07 gerð
driffjöður
framkvæmda
og afkasta
☆ AFL ☆ AFKOST ☆ARÐSEMI
Það eru síðustu
traktorarnir að keyra út
á gamla verðinu
HAMAR HE
Véladeild
KHD
Sími 22123. Pósthólf 1444! Tryggvagötu, Reykjavík.