Tíminn - 10.07.1983, Blaðsíða 15

Tíminn - 10.07.1983, Blaðsíða 15
14 SUNNUDAGUR 10. JÚLÍ 1983 ■ Það var fagurt veður að kvöldi níunda maí í Moskvu. Ósjáifrátt kom í hugann faliegt stef, sem fjailar einmitt um slíkt kvöid í. höfuðborg Sovétríkjanna. Ég stóð á tröppum Hotel Inturist i ásamt þeim Geir Haarde, formanni Sambands ungra sjáifstæðismanna og Gyifa Guðmundssyni, sem kom úr herbúðum Krata. Við horfðum á óendanlegan aragrúa fólks streyma framhjá. Fólkið var á leiðinni á Rauða torgið, en þar átti að fara fram flugeidasýning og fleira í tilefni þess að þann níunda maí 1945 lauk heimstyrjöldinni síðari. Gangan virtist endalaus og fólkið kallaði orð sem við skildum ekki. Ég laut að rússneskri konu, sem ég hafði átt við orðaskipti fyrr um kvöldið, og spúrði hvernig henni líkaði að búa í Sovétríkjunum. Hún horfði eitt andartak á ianda sína ganga framhjá og svaraði síðan: Þeim virðist líka það. - Svo mörg voru þau orð. ■ Víða í Sovétríkjunum eru fallegir skemmtigarðar. ELDSPÝTUR HEFÐU GERT SAMA GAGN! — Hugleiðingar úr ferð til Sovétríkjanna Aðeins það besta... Og hvernig líkaði þér dvölin? er sí- gild spurning sem hefur hljómað í eyr- um eftir að heim kom. Mér hefur vaf- ist tunga um tönn satt best að segja. Ég var einn af sex f sendinefnd á veg- um Æskulýðssambands Islands og við vorum borin á gullstól um landið, fengum aðeins það besta og sáum líka aðeins það besta. Hið síðarnefnda fékk ég staðfest í samtölum við inn- fædda, sem ekki tengdust leiðsögu- mönnunum hið minnsta. En það er best að kynna þátttakendurna í ferð- inni. Undirritaður fór fyrir hönd Sam- bands ungra framsóknarmanna, Geir Haarde fyrir Samband ungra sjálf- stæðismanna, Sölvi Ólafsson fyrir Æskulýðssamband íslands, Gylfi Guðmundsson fyrir Alþýðuflokkinn, Ingólfur Arnarson fyrir Iðnnemasam- bandið, Lára Þorsteinsdóttir fyrir Al- þýðubandalagið. Gestgjafinn var ung- liðahreyfing kommúnistaflokksins í Sovétríkjunum. Lciðsögumenn hópsins voru yfirleitt tveir, Slava, sem er ungur maður í sagnfræðinámi, og Olga, há- skólakennari í ensku. Ferðin hófst þann þriðja maí, en þann dag var haldið til Kaupmanna- hafnar. Fátt bar til tíðinda áður en við komum til Moskvu umrætt kvöld - þó það helst að undirritaður skcmmti sér bærilega við að hlusta á reykvískan verslunarmann ræða við bílstjórann í rútunni til Keflavíkur. Þeir félagar höföu greinilega unnið saman fyrir ein- uni 25 árum hjá bifreiðastöð og um sama leyti hafði verið þar rauðhærður kvenmaður við afgreiðslustörf, því verslunarmaðurinn sagði þegar við vor- um stödd hjá Straumsvík: - Manstu eftir rauðhærðu gellunni með hárið eins og flækt loftnet. Hún er víst í kvennaframboðinu núna. Elskulegt fólk Alls tók ferðin til Sovétríkjanna röska viku og var til skiptis dvalið í Moskvu og Litháen - nánar tiltekið í Vilnus, sem er höfuðborg Litháen. Dagskráin var ströng, svo ströng, að þátttakendurnir voru ætíð að þrotum komnir að kvöldi dags. Sumir höfðu á orði að það væri ætlun stjórnvalda að brjóta þátttakendurna niður á tvennan hátt: Líkamlega með miklum og góð- um mat og strangri dagskrá og andlega með stöðugum fundum með kommún- ístaleiðtogum. Já, hvernig líkaði þér dvölin? Ég held að mér sé óhætt að fullyrða að fólk í Sovétríkjunum sé afskaplega elskulegt - eða með öðrum orðum: Það er rétt eins og fólk er flest. Hins vegar verður hið sama ekki sagt utn al- menning og þann fámenna hóp sem stjórnar landinu. Auga stóra bróður er hvarvetna og fólk veit mæta vel að andspyrna hvaða nafni sem hún nefnist gengur ekki. - Hér eru aldrei verkföll, sagði fulltrúi flokksins í stórri verk- smiðju sem við sáum í Lithén. Hann hló líka og fannst spurningin heimsku- leg, en víst er að íslenskum verkalýðs- leiðtoga hefði ekki verið hlátur í huga hefði sá hinn sami séð aðbúnað verka- fólksins. Hann hefði vafalaust kallað saman fund í skyndi og hvatt til vinnu- stöðvunar þar til úrbætur hefðu verið gerðar í sölum verksmiðjunnar, þar til búið væri að hljóðeinangra vélar, koma öryggishlífum á opin hjól, sem snérust á ofsahraða, og þar til loftræst- ing væri komin í gott lag. Ætli Lenin hafi dottið í hug...? En við skulum byrja á byrjuninni. Moskva hefst í Kreml og þangað var farið með íslendingana á fyrsta degi heimsóknarinnar. Ég hafði lesið í bókum að yfirleitt væri biðröðin löng við grafhýsi Lenins og reyndist það vera rétt. Okkur var hins vegar stungið inn í miðja röðina við lítil fagnaðarlæti viðstaddra, en við vorum gestir hins opinbera og því varð lítið úr mótmæl- unum. Röðin silaðist áfram og brátt gaf að líta rauðbrúnt lágreist hús. Ljósmyndari frá APN var mættur á staðinn og hann smellti af okkur myndum í sífellu. Þegar íslenska sendinefndin var komin með blómsveig í hendur varö hávaðinn í myndavélinni líkastur vélbyssuskothríð. Ég og Sölvi Ólafsson, formaður sendinefndarinnar, bárum blómsveiginn sem var þungur og eftir því viðamikill. Ungur hermað- ur nálgaðist og hann bað okkur að gæta þess vandlega að það væru a.m.k. þrír metrar í næsta mann á undan blómsveignum. Eitthvað hefur honum fundist á skorta að kunnátta okkar Sölva í metramálinu væri nægjanlega góð, því hann kom tvisvar til viðbótar með svipaðar orðsendingar. Þegar sveigurinn var kominn á sinn stað við grafhýsið fengum við að ganga inn og líta á Lenin. Heimsóknin var stutt því það er stranglega bannað að stoppa og virða fyrir sér leiðtogann þar sem hann liggur undir glerhlíf. Guð má vita hvernig gengur að halda Lenin í því ásigkomulagi sem hann er, en mér er næst að halda að hann hefði í lifanda lífi ekki verið hrifinn af þeirri tilhugs- un að skrokkurinn yrði hafður til sýnis þegar hann væri allur. Lengi vel hafði Lenin félagsskap af Stalin sáluga, því þegar sá síðarnefndi lést 1953 var hann lagður í grafhýsið hjá Lenin. En þremur árum síðar var Stalin fluttur því þá var Khrushchev kominn til valda og glæpaverk Stalins gerð opinber. Ekki fékk Krushchev að hvíla við hlið Lenins frekar en Stalin því hann féll í ónáð og nú má sjá gröf Khrushcevs í Novodevitchy kirkjugarð- inum í Moskvu. Mikið um slagorð Myndir af Lenin prýddu Moskvu svo og aðrar borgir sem íslenska sendi- nefndin fékk að sjá. Og ekki má gleyma ýmiskonar slagorðum sem „prýddu“ hús og borða sem strengdir voru yfir breiðstræti. Að sögn kunnug- ra var óvenju mikið um slagorð í So- vétríkjunum en ástæðan var sú að fyrsti og níundi maí cru miklir hátíð- isdagar í landinu. Ákaflega víða var vitnað til 26. flokksþings kommúnista- flokksins og fólk hvatt til að leggja sitt af mörkum svo samþykktir þess yrðu að raunveruleika. - Það er engin hætta á að við verð- um sektuð í þessum bílum, sagði túlk- ■ Askell Þórisson, höfundur greinarinnar, og framkvæmdastjóri Sambands ungra framsóknar- manna. urinn Olga er við ókum frá grafhýsinu á feikna hraða. Og eflaust hefur hún haft lög að mæla. íslenska sendinefnd- in hafði tvær Volgur til umráða í Moskvu og það kom mönnum spánskt fyrir sjónir hve hratt var ekið. Einnig fannst ýmsum það skrýtið að öku- mennirnir tóku oft lítið tillit til þess hvort logaði rautt eða grænt Ijós á götuvitunum. En ökumennirnir kunnu sitt fag og við komumst slysalaust frá öllu saman. Að kvöldi fjórða maí var haldið af stað með lest í áttina til Litháen, sem liggur að Lettlandi í norðri, Hvíta- Rússlandi í austri og suðri, Rússneska sambandinu og Póllandi í suðvestri og Eystrasalti í vestri. Ferðinni sem tók um hálfan sólarhring, var heitið til Vilnus, sem er höfuðstaðurinn. Ibúa- tala um 500 þúsund. Vilnus stendur við ármót Neris og Vilna. Við fengum tvo fjögurra manna klefa til umráða, snyrtilega og í alla staði ágæta. Sovét- menn hafa tekið upp mikla baráttu gegn reykingum og það kom sér illa fyrir þá sem háðir eru þeim ósóma, að mega ekki reykja í klefunum. Þess í stað urðu þeir að hírast í inngangi vagnanna, rétt hjá þeim stað er mátti sjá kolakyntan vatnsketil sem úr mátti fá heitt vatn í te og kaffi. Öðru hvoru fóru lestarþjónarnir á stúfana og stungu kolum í eldhólfið og eitt sinn rakst ég á eldri konu, Iestarþjón, á hnjánum að kljúfa við, sem hún stakk í eldhólfið. Það var annars athyglisvert hve víða mátti sjá konur í óþrifalegum störfum sem oftar en hitt hafa verið talin séreign karlmanna. Og víst er það að kvenfrelsisbarátta í líkingu við það sem við þekkjum frá fslandi á ekki alltaf upp á pallborðið hjá Sovét- mönnum. Oft var rætt um það við okkur að þetta eða hitt starfið hentaði sérstaklega vel fyrir konur. í því samb- andi má geta þess að þeir telja að setj- arastarf í prentsmiðjum sé hentugt „kvenmannsstarf", sem erí hæsta máta undarlegt þegar það er haft í huga að enn virðist tölvutæknin ekki hafa lagt leið sína í prentiðn þeirra Sovétmanna og að það er þrælapúl að setja á gömlu tækin. Astuð og munarblíða Munurinn á Vilnus og Moskvu er hreint ótrúlegur. Moskva hefur á sér yfirbragð stórborgarinnar, allir virðast vera á hraðferð, mega ekki vera að því að tala við nokkurn mann en í Vilnus gengur lífið hægar og borgin minnir í mörgu á vestrænar systur sínar. Geir Haarde sagði t.a.m. að sér virtist Vilnus og Helsinki eiga margt sameiginlegt og er það eflaust rétt. Hér er hvorki stund né staður til að rekja sögu Litháa - við skulum láta nægja að segja að fáar þjóðir hafa ver- ið jafn mikið plagaðar af erlendri her- < setu og mannvígum. Litháen varð sjálf- stætt ríki árið 1918, en naut þess ekki lengi. Hrammur rússneska bjarnarins er þungur og hann lagðist yfir Litháen 1940 og varð Litháen eitt af sambands- lýðveldum Sovétríkjanna. Þess má til gamans geta að Kjartan Ólafsson (ekki ritstjóri Þjóðviljans eins og Mogginn hélt um árið) segir í bók sinni Sovét- ■ ri'kin: Hún (þ.e. Litháíska) er feikilega auðug af smækkunarendingum (er geta gefið hin margvíslegustu blæbrigði) og gæluendingum er gæða hana töfrum (ekki síst í Ijóðrænum þjóðlögum). Segja sumir að hvergi fái elskendur tjáð sig af slíkri ástúð og munarblíðu sem á litháísku. Orðaforði hennar er furðulegur og sköpunarmáttur virðist SUNNUDAGUR 10.JÚLÍ 1983 Bímmn 15 án enda. Engin orðabók mun nokkru sinni ná yfir öll litháísk orð. Ekki fengum við betur séð en tölu- vert sé gert til að halda í þetta fagra mál sem Kjartan lýsir svo skemmtilega og í stöku þorpum er en til fólk sem hvorki skilur né talar rússnesku. Hins- vegar er hún opinbert mál og mikið er um að íbúar úr öðrum hlutum So- vétríkjanna flytji til Litháen. Ríkisrekið vináttufélag í Vilnus var sendinefndinni boðið að heimsækja vináttufélag íslands. Raun- ar var heimsóknin ekki löng enda tím- inn knappur eins og oft áður, en þar tók á móti okkur rússnesk kona sem kunni íslensku furðu vel. Síðar kom í Ijós að hún hafði þýtt nokkrar bækur á rússnesku og a.m.k. eina - Egilssögu - á litháísku. í upphafi taldi ég að við hefðum hitt á félag sem eingögu hefði íslensk málefni á sinni könnu, að í því væri fólk sem væri á kafi í íslenskum litteratúr og fleiru en svo reyndist ekki vera. Við nánari athugun kom nefni- lega í ljós að þetta „vináttufélag" hef- ur samband við fjöldann allan af „vin- áttufélögum" í fjarlægum ríkjum og var ísland aðeins eitt þeirra. Að auki kom fram að hið opinbera studdi starf vináttufélagsins með fjárframlögum enda mun það telja sér hag í að koma á fót vinsamlegum samskiptum við sem flest ríki. Ég dreg það í efa að nokkrir einstaklingar gætu komið saman og hafið „vináttusamband" við samskonar félög í öðrum löndum án margfaldlegr- ar blessunar frá hinu opinbera. Ég tel það líka nokkuð Ijóst að þessi félög eru notuð af yfirvöldum í pólitískum tilgangi - og þarf tæplega nokkurn sér- fræðing til að draga þá ályktun. Tengsl umrædds vináttufélags við önnur félög í öðrum heimshlutum eru einkum á menningarsviðinu. Okkur var til dæmis sagt að innan fárra mán- aða væri að vænta listafólks frá Litháen til íslands. Af þeim iitlu kynnum sem við höfðum af menningu Litháa er óhætt að hvetja íslendinga að sjá það sem fram verður boðið - það verður síður en svo af lakari endanum ef að Iíkum lætur. Einhliða fréttir Já, við vorum að flýta okkur, svo heimsóknin til vináttufélagsins varð í styttra lagi. Okkar beið veislumáltíð og síðar um kvöldið var farið á ballett- sýningu. Uppáklædd héldum við í eitt- hvert það glæsilegasta samkomuhús sem ég hef nokkru sinni augum litið. Það má vera að sýningin hafi farið fyr- ir ofan garð og neðan hjá sumum okk- ar enda var þreyta farin að gera vart við sig, en þó er óhætt að fullyrða að sýningin hafi vakið almenna ánægju. í Vilnus var með okkur sérstakur leiðsögumaður, starfsmaður flokksins, þannig að í þá daga sem við dvöldum í borginni var einn leiðsögumaður á hverja tvo íslendinga. Við kusum að nefna þann innfædda „Vilmund“ þar sem hljómurinn í nafni hans á litháisku var ekki ósvipaður og í fyrrnefndu mannsnafni. Vilmundur var hreykinn af landi og þjóð - þ.e. Litháum - enda trúi ég að hann hafi haft til þess góðar og gildar ástæður. Að sögn leiðsögu - manna okkar eru íbúar á þessum slóðum á mun hærra menningarstigi en gerist og gengur í Sovétríkjunum og má sjá það á ýmsu. Annars vakti það eftirtekt að hvar sem við fórum tóku fulltrúar flokksins á móti okkur. Þeir voru í skólum og verksmiðjum og þegar sest var niður til að ræða málefni viðkomandi stofnunar urðu þeir líka fyrir svörum í flestum tilfellum. Það vakti líka athygli hve lít- ið þeir vissu um það sem á sér stað vestan járntjalds. M.ö.o. er fréttaflutn- ingur mjög við nögl skorinn og inn- fæddir fá aðeins að heyra það sem stjórnvöld telja að henti þeim. Hitt er líka rétt að vestrænn almenningur fær afskaplega einhliða fréttir af þróun mála í Sovétríkjunum en þá má jafn- framt bæta því við að þarlend stjórn- völd eru ekkert hrifin af því að erlend- ir fréttaritarar fari sjálfir um landið til að kynna sér hvað sé að gerast. Þá brosti Olga Hinn almenni borgari getur ekki far- ið á stúfana og keypt sér vestræn blöð til að sjá „hina hliðina". Það er sem sagt með öllu ómögulegt að fá keypt erlend blöð og tímarit - önnur en þau sem hafa svarið yfirvöldum trúnað. Málgagn breskra kommúnista fékkst á blaðsölustöðum og í hótelum, en þegar ég bað um að fá keypt eintak af The Guardian brosti Olga að fáfræði minni og sagði að það fengist aðeins í bóka- söfnum og eingöngu útvaldir fræði- menn fengju að renna augunum yfir dálkana. Að sögn þeirra sem við hitt- um í Vilnus verja opinber yfirvöld gíf- urlegum tíma, fé og fyrirhöfn í að POAMHA-MATb 3QBET! ■ Hér má sjá áróðursplagg, en á því eru menn hvattir til að ganga í herinn „berjast gegn kapítalískum áróðri" sem nær m.a. eyrum almennings í gegnum útvarp - og sjónvarp í stöku tilfellum. Um leið sögðu þeir að það kerfi sem boðið væri upp á í Sovétríkj- unum væri í raun það mannúðlegasta og besta sem hægt væri að finna á jarðarkringlunni - en þeirri spurningu er enn ósvarað af hverju erlendum dagblöðum er haldið frá almenningi, af hverju hann fær ekki að fara utan þeg- ar svo býður við að horfa, og af hverju það er nauðsynlegt að halda á floti öllu áróðursbákninu - úr því að kerfið er svona gott. Án efa myndi hver og einn einasti Sovétmaður sem stigi fæti á erlenda grund forða sér heim aftur úr því að skipulagið heima er mun betra. Bomull og eldspýtur Og þá komum við aftur að verk- smiðjunni sem vikið var að í upphafi. Það var dag nokkurn að okkur var ekið að gríðarstórri spunaverksmiðju í úthverfi Vilnus. Á tröppunum stóð fulltrúi flokksins og við vorum leidd inn í sali fabrikkunnar og sýnd fram- leiðslan. Þar gat að líta klæði af ýmsu tagi, sem gætu sómt sér vel í hvaða verslun sem væri á Vesturlöndum - ef hægt væri að kaupa... Ég þreifaði á hverjum klæðisstranganum á fætur öðrum og spurði svo hvort þeir væru ekki tilbúnir til að selja mér stranga fyrir eins og 500 þúsund dali - ef ég kæmi sem heildsali frá íslandi. Fulltrúa flokksins vafðist tunga um tönn. Hann ráðfærði sig við félaga sinn en sagði síðan að því miður væri það ekki hægt - þessi verksmiðja framleiddi eingöngu fyrir innanlandsmarkað. Kapítalistan- um sem blundar í mér fannst það nokkuð einkennilegt að hafna boði sem vel gat verið ákaflega hagstætt. Áður hefur verið minnst á vélasal- inn. Eftir að hafa gengið langan gang sem skreyttur var með myndum af starfsfólki - að ógleymdum hetjum vinnunnar - komum við inn í einn af þrettán sölum verksmiðjunnar, þar sem spunavélarnar drynja dag og nótt. Hávaðinn var ærandi. Við gátum ekki talað saman nema að æpa upp í eyrað á hvort öðru og annar leiðsögumann- anna frá Moskvu trúði mér fyrir því að hann hefði ekki að óreyndu trúað því að svona nokkuð væri til. Við spurðum hvort ekki væru til eyrnahlífar en feng- um ekki viðhlítandi svör - hinsvegar var okkur bent á að starfsfólkið træði bómull upp í eyrun. Af eigin reynslu í miklum hávaða veit ég mæta vel að bómull er álíka gagnleg, og eldspýtur í þessu tilfelli. Flokksfulltrúinn sagði okkur líka að vinnuslys væru fátíð og þakkaði hann það árvökulu starfsfólki. Eftir að hafa séð óbyrgðar vélar og reimskífur á óskaplegri ferð leyfi ég mér að draga fullyrðingu flokksfulltrú- ans í efa - einnig tel ég að flokkurinn ætti að sæma alla þá sem vinna í sölum umræddrar verksmiðju sæmdarheitinu: Hetja vinnunnar. Allir vilja fá bónus Og aftur í viðskiptamálin. Eftir að hluti verksmiðjunnar hafði verið skoð- aður var haldið í lítið leðurklætt fundar- herbergi, en þar biðu okkar girnilegar kræsingar og kaffi - og tækifæri til að spyrja um það sem okkur datt til hugar. Það kom fram hjá fulltrúanum að vel sé búið að verkafólkinu (fyrir utan aðbúnað í vinnslusölum) og nefndi hann í því sambandi heilsugæslustöð (læknar henn- ar hljóta að hafa mikla æfingu í að mæla skerta heyrn) bókasafn og leikfimisal. Mikið er unnið í að endurmennta starfs- fólkið og var svo að skilja á fulltrúanum að sú endurmenntun miðaði einkum að því að auka afköst hvers og eins. Þessi verksmiðja er að sjálfsögðu ríkisrekin og allar ákvarðanir um fram- leiðslu eru teknar af yfirvöldum. Þessi verksmiðja, eins og aðrar, þarf að fylla ■ Gamla kynslóðin á rabbþingi. Þessir menn muna vel þær fórnir sem þjóðin varð að færa i seinni heimsstyrjöldinni og það er Ijóst að almenningur vill gera allt sem í hans valdi stendur til þess að sá harmleikur endurtaki sig ekki. Hitt er svo aftur annað mál hver sé raunverulegur vilji ráðamanna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.