Tíminn - 10.07.1983, Blaðsíða 8

Tíminn - 10.07.1983, Blaðsíða 8
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gisli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv. Hermannsson, Guðmundur Magnússon, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir, Þorvaldur Bragason. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristín Þorbjarnardóttir, María Anna Þorsteinsdóttlr, Slgurður Jónsson. Ritstjórn skrif stofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavík. Simi: 86300. Auglýsingasími 18300, Kvöldsímar: 86387 og 86306. Verð í iausasölu 18.00, en 20.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 230.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Friður án ótta er brýn- asta úrlausnaref nið ■ Mannkynið lifir nú í stöðugum ótta og kvíða í skugga hrikalegri vígbúnaðar en dæmi eru um í sögunni. Sú ógn sem yfir vofir er af mannavöldum og stafar af óbilgirni og valdahroka þeirra aðila, sem telja sig þess umkomna að hóta allsherjar útrýmingu sé völdum þeirra og drottnunar- girni ógnað. En það er einnig á valdi ráðamanna og þjóða að aflétta ógninni. Stöðvun vígbúnaðarkapphlaupsins og afvopnun er brýnasta úrlausnarefnið sem þjóðir heims standa frammi fyrir í dag. Pað þolir enga bið að ráðamenn stórþjóðanna semji um að stöðva brjálæðið og í kjölfar þess verði öllum kjarnorkuvopnum útrýmt. Friður sem byggist á ótta er ekki raunverulegur friður, sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra, er hann ávarpaði varaforseta Bandaríkjanna fyrir nokkrum dögum. Með því að útrýma ógninni hverfur óttinn og þá loks fæst sá friður sem allir þrá. En friður er litils virði án frelsisins. Forsætisráðherra minnti á boðskap Roosevelts Bandaríkjaforseta um frelsið árið 1941, en þá stóðu þjóðir heims frammi fyrir öflugu ofbeldi og kúgunarhötunum. En því miður búa ekki nema tiltölulega fáar þjóðir heims við það frelsi, sem svo miklu var fórnað fyrir á árunum eftir að Roosevelt forseti flutti boðskap sinn. Steingrímur rakti, að þrátt fyrir gífurlegar framfarir í tækni- og efnahagsmálum hafi skammt miðað. Hann sagði: „Málfrelsi er enn skert í fjölda landa víða um heim. Éví fer einnig fjarri að frelsi til guðsdýrkunar ríki hvarvetna. Frelsi undan skorti hefur síður en svo áunnist, og er hörmulegt til þess að vita, að á tímum allsnægta hefur bilið milli fátækra og ríkra breikkað. Og loks er frelsið undan ótta fjarlægara en nokkru sinni. Öldum saman nutu land yðar og land mitt verndar af fjarlægð og víðáttu hafsins. Sú er ekki raunin lengur. Fjarlægðir eru í rauninni úr sögunni og vopnabúnaðurinn hefur margfaldast og eyðingarmátturinn magnast geigvæn- lega. I rauninni veltur friður á áhættusömu jafnvægi, svo aojíkast er línudansi án öryggisnets. Ég er þess fullviss, að með sjálfum okkur erum við öll sammála um, að friður sem byggist á ótta er ekki raunverulegur friður. Við verðum að keppa að breytingu til batnaðar. Ég efast um að raunverulegur friður náist án trausts þjóða á milli. Fví trausti verður helst komið á með opinskáum skoðanaskiptum, víðtækum skilningi á skoð- unum og vandamálum hvers annars og efnahagslegu samstarfi í einlægri viðleitni til að tryggja öllum lífvænleg kjör í friði. Ég tel víst að slíkt myndi brjóta niður öll járntjöld. Ég er þess fullviss, að ég mæli fyrir íslendinga alla, þegar ég legg áherslu á von okkar um að úr vopnabúnaði dragi um allan heim, svo engir þurfi að búa í ótta við hernaðarárásir, svo ekki sé minnst á tortímingu á heimsmælikvarða.“ Friður og frelsi eru háleit markmið að keppa að. Forystumenn íslensku þjóðarinnar eiga ekki að láta neitt tækifæri ónotað til að koma á framfæri þeim skoðunum, að afvopnun og bannfæring kjarnorkuvopna séu algjör forsenda þess að mannkynið geti lifað í friði án ótta. Smáþjóðir eru ekki mikils megnugar ef mið er tekið af vopnabúrum og ægivaldi stórþjóðanna, en þær geta lagt sitt lóð á vogarskálarnar og komið sínum sjónarmiðum á framfæri. Það er illt að búa við það til lengdar að risaveldin auki í sífellu vígbúnað sinn, metist á um hvort þeirra hafi yfir meiri eyðingarmætti að ráða og haldi áfram að magna ógnarjafnvægið. Þessu verður að linna, eyða tortryggninni og setja einlægan vilja um frelsi og frið í öndvegi. Ágreiningurinn um ágæti hagkerfa er ekki þess virði að hann réttlæti ógnina miklu. - O.Ó. ■ HELDUR ólánlegur illhæruhnökri hefur hlaupið á rétt- lætisþráðinn sem ríkisstjórnin situr við að spinna í viðureign- inni við verðbólguna. f þann mund sem mestu brimgarðablök- in höfðu riðið yfir Landeyjarsand þjóðarinnar í dýrtíðinni eftir kjaraskerðinguna og gengisföllin, og menn tóku að búast við lagi, reis einn boðinn enn - síðastur og mestur. Það iá aílt í einu á borðum heimilanna að lánskjaravísitala hafði komist undan svipunni og birtist nú eins og forynja sem alin hefur verið á mannablóði. í hana hafði hlaupið ofvöxtur sem enginn virtist hafa tekið eftir-jafnvel ekki alsjáandi auga ríkisstjórn- arinnar eða seðlabankastjórans. Þar fór sá glaðningurinn RÍKISSTJÓRNIN sem ber hag ungra hjóna, sem eru að byggja eða nýbúin að því, öllu öðru fremur fyrir brjósti og hafði af gæsku sinni og réttsýni heimilað að geyma svo sem fjórðung afgjalda og vaxta af lánum til betri tíma og klökknað í sjálfsgæðamati yfir slíku örlæti, vaknaði allt í einu við vondan draum engu síður en ungu hjónin, þegar þau heyrðu fréttina um að lánskjaravísitalan hefði tútnað rúmlega 20% meira en dýrtíðaruppbótin á launum þeirra, og þau sáu í hendi sér - eins og ríkisstjórnin - að þarna hvarf öll morgungjöf ríkisstjórnarinnar í lánamálum ungs fólks niður í ginnunga- gap> sem allir virtust hafa gleymt. Ungu hjónin sem höfðu séð þarna ofurlitla hjálp til þess að klóra í bakkann stóðu núá enn verra flæðiskeri en áður. Þau verða að borga því sem næst jafnmikið og þau gerðu ráð fyrir áður en söltunin kom til. Stendiir björgunarsveitin ráðþrota? Því er ekki klippt á tafarlaust? RÍKISSTJÓRNIN var auðvitað ekki svo skyni skroppin eða siðvillt að hún sæi ekki að hér var ekki til neins að þræta. Ráðherrar játuðu því að þetta væri alveg rétt, það gengi auðvitað ekki að láta lánskjaravísitöluna fara eins og loga yfir þann akur, sem sáinn hafði verið til uppskeru. Ríkisstjórnin settist á rökstóla, skipaði nefndir og ráð, heimtaði skýrslu af þjóðhagsstofnun, og gott ef Jóhannes Nordal var ekki til kvaddur líka - aldrei þessu vant. En málið reyndist nokkuð örðugt viðgangs - eins og engisprettuplága eða skógarmaðkur sem lagt hefur undir sig fagurlaufgað tré áður en menn gáðu að. Og ríkisstjórnin er ekki enn farin að eitra fyrir vágestinn. Dagarnir líða, lánin falla í gjalddaga og ungu hjónin komast í vanskil, dráttarvextir hlaðast upp og enginn veit hvenær veðri slotar. Það heyrist helst úr stjórnarherbúðum, að von sé á tillögum eftir nokkrar vikur, þá er eftir að skoða þær betur og leiða alla aðila saman til framkvæmda. Líklegt er að þá verði farið að hausta á þessu réttlætissumri íslensku ríkisstjórnarinnar. Örðugt um afturverkun BLÖÐ sem spurt hafa vitringa í stjórnarráðinu hafa þær fregnir helstar að færa af svörum þeirra, að mjög örðugt muni verða að láta ráðstafanir, sem kunni að verða gerðar til þess að höggva af vísitölunni, verka aftur fyrir sig - þ.e.a.s. til líknar þeim sem á þessum sumardögum verða að sveitast blóðinu við að greiða af lánum samkvæmt háu vísitölunni, eða taka á sig himinháa dráttarvexti eða önnur og verri áföll vegna vanskila. Það er helst svo að sjá, að huga eigi að breytingum á grundvelli þessarar vísitölu, þoka honum síðan til með hægðinni og reyna að láta næsta stig hennar eftir vikur eða mánuði verða í ofurlítið meira samræmi við kaupgjaldsskattinn til verðbólgustríðsins. En hvað hefur þá gerst? Sumir hafa orðið að greiða af lánum eftir háu lánskjaravísitölunni eða ekki getað það og fá það líklega lítt eða ekki bætt. Hinir sem eru svo heppnir að gjalddagar þeirra eru á öðrum árstíma, geta notið úrbótanna. Ekki stígur réttlætisloftvog ríkisstjórn- arinnar við það, og væri þó ekki vanþörf á eins og hún féll við þessa dembu. Hnífinn á loft þegar í stað MISTÖKIN við hönnun verðbólguráðstafananna á burðar- dögum ríkisstjórnarinnar eru auðvitað hrapalleg og hörmuleg, en ekki til neins að fást um það héðan af. Hitt er þó enn níðangurslegra, að ríkisstjórnin skuli nú láta daga og vikur líða án þess að skera á þann naflastreng sem hún gleymdi við eigin fæðingu. Jafnskjótt og hún varð þess vör hvert slys hafði orðið, hefði hún átt að reiða hnífinn umsvifalaust. Ef til vill má segja, að málið þurfi ofurlúillar athugunar við, og ráðrúm í nokkra daga eða eina eða tvær vikur að gefast til þess. En það ráðrúm hefði átt að geta fengist og stöðva um leið boðann sem að fór á meðan. Til þess lá auðvitað í augum uppi ofur einfalt ráð. Hægt var að setja bönkum oog öðrum lánastofnunum þá sömu reglu og beitt er við sölu gjaldeyris þá daga sem ekkert gengi er skráð vegna yfirvofandi gengislækk- unar - með ákvæði um endurgreiðslu eða viðbót þegar nýtt gengi tekur gildi - nema nú yrði þessi tryggingarráðstöfun í þágu lántakenda í stað bankanna. 1 svona tilvikum kemur nefnilega til álita sú sanngirni sem kallast gagnkvæmur réttur, jafnræði fyrir lögum, reglum og ráðstöfunum. Síðan gat ríkisstjórnin hagrætt lánskjaravísitölunni til betri þjónustu gegn verðbólgunni og bankarnir síðan gert upp afborgunar- reikninginn við lántakendur. Svo sem ein bráðabirgðalög í þessu skyni hefðu nú verið vel afsakanleg. Sumir kunna ef til vill að segja, að þá hefði verið farið að láta lög og reglur verka aftur fyrir sig, og það sé ekkert lýðræði. Sú lánskjaravísitala sem nú hafi birst samkvæmt gildandi lögum sé óraskanleg sitt kjörtímabil. En hefði ríkisstjórnin verið nógu snör í snúningum þurfti varla til þess að koma. Hún hefði getað gefið út bráðabirgðalög sem giltu frá 1. júlí eða miðjum júní, þegar slysið var komið í Ijós, og bjargað málinu að mestu leyti inn í réttlætisskjaldborg sína. Jafnframt því sem dagar og vikur líða án þess að viðnám sé veitt af stjórnvöldum tala ráðherrar alldrjúglega um það að nú eigi að fara að stjórna. Mæli þeir heilir, en þetta heitir samt ekki að stjórna heldur að láta reka á reiðanum. Það er að standa klumsa og horfa á slys án þess að reyna að bjarga því sem bjargað verður. Það þætti ekki vel af sér vikið hjá björgunarsveit - og kallar ríkisstjórnin sig ekki björgunar- sveit? Þeir eiga líka að leggja sitt til ÞAÐ virðist augljóst, að fangaráð ríkisstjórnarinnar gegn ofvextinum í lánskjaravísitölunni hljóti að verða það að reisa henni svipaðar hækkunarskorður og kaupgjaldinu. Annað væri varla viðunandi. Það hefði líklega í för með sér einhverja skerðingu á tekjum útlánastofnana og banka - en eiga þeir ekki að leggja svolítið í stríðssjóðinn líka? Þeir gætu ef til vill bætt sér tapið með því að fresta svo sem einu útibúi. En sparifjáreigendur, spyrja menn? Yrði þeim ekki látið blæða, ef lánskjaravísitalan væri skert? Getur verið, en er ekki réttmætt að þeir leggi líka smáskatt í stríðssjóðinn? Verðtrygg- ing sparifjár er auðvitað réttmæt en varla fram yfir verðtrygg- ingu launa. Þetta tvennt ætti að fylgjast nokkurn veginn að. Þegar mikils þarf við til björgunar er engin goðgá að ætlast til framlags af þeim til jafns við þá sem ekkert sparifé eiga. Slysfarir eins og hækkun lánskjaravísitölunnar eru satt að segja eins konar próf fyrir rikistjórnina. Hvernig og hve fljótt bregst björgunarsveitin við? í þetta sinn hefur hún fallið til hálfs, en vonandi réttir hún sig við og stenst betur næstu próf, sem varla verður langt að bíða. - A.K. Andrés Kristjánsson skrifar L-I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.