Tíminn - 16.07.1983, Síða 6

Tíminn - 16.07.1983, Síða 6
■ Við höfum áður birt í Spegli Tímans mynd af þessum fallega dökkhærða pilti, hon- um John Stamos. Það var þeg- ar verið var að kynna hann sem fastan meðlim í framhaldsþátt- unum General Hospital, sem er vinsæll bandarískur sjón- varpsþáttur. John átti í fyrstu aðeins að fá smáhlutverk í einum eða tvcimur þáttum. Hann var óþekktur leikari, cn passaði þarna í hlutverk. Keyndar varð hann að breyta næstu þáttum á eftir, því það var alls ekki hægt að láta hann detta út úr söguþræðinum cins og áætlað var, því aðdácnda- bréfin streymdu til framleið- anda GH, eins og þættirnir eru oft kallaðir. Þeir sáu þá, að þarna höfðu þeir hreppt „gulldreng", sem best væri að halda í, og sjá hvað framtíðin bæri í skauti sér. Síðan hcfur stjarna Johns Stamos farið síhækkandi, og ekki minnkuðu vinsældir hans, þcgar hann kynnti hljómsveit- ina sína „Bad Boyz“, en þeir höfðu æft lcngi saman, aðal- lega sér til skemmtunar. John leikur á trommur og er foringi þeirra. Þegar hann sá birt við- tal við sig í blaði nýlega, þar sem blaðamaðurínn notaði þá titla, sem við hér í Spegli Tímans höfum notað í fyrír- sögninni (leikarí og hljómsveit- arstjóri) sagði hann hlæjandi: „Ollu má nú nafn gefa!“ I viðtalinu var hann spurður um fyrirætlanir hans. fyrir sumarið. Þar sagði hann, að það yrði haldið áfram á virkum dögum að vinna að sjónvarps- þáttunum GH, en um helgar myndi hann áreiðanlega fara á ströndina eða synda hjá kunn- ingjum sínum, sem ættu góðar laugar. -1 fríinu ætlum við í hljómsveitinni að ferðast og skemmta öðrum og skemmta okkur, en við höfum ekki gert ferðaáætlun ennþá, sagði hann í lokin. Það flykkjast áreiðanlega ungar stúlkur á hljómleika hjá þeim, hvar sem þeir fara um Bandaríkin, því að það má segja að þar gangi yfir John Stamos-æði. ■ Upp á síðkastið hefur John Stamos æft söng, og nú er hann aðalsöngvari hljómsveitarinn- ar, auk þess að vera trommu- leikari hennar. John Stamos, leikari og hljómsveitarstjóri: - HUOMSVEmN MÍN HEIHR „RAD BOYZ”, EN VH) ERUM EKKI SLÆMIR STRAKAR! Nú kemst Shirley að því af hverju allar konur eru vitlausar ÍWarren! ■ - Aldrei hef ég getað skilið, hvað konum finnst svona sérstakt við Warren, seg- ir Shirley MacLaine, en hún er sem kunnugt er systir kvcnna- gullsins eflirsótta og leikarans fræga Warrens Beatty. Nú benda allar líkur til, að ■ Shirley MacLaine, sem orðin er 39 ára, leikur nú í fyrsta sinn á inóti... Shiriey fái lækifæri til að kom- ast að raun um það, hvað það er í fari bróður hennar, scm öðrum konum finnst svo ómót- stæðilegt. Þau systkinin leika nefnilega saman í kvikmynd um þcssar mundir, í fyrsta skipli á löngum kvikmyndaferli beggja. Og það, sem meira er, í myndinni, sem er eindregin ástarmynd, fara þau systkinin með hlutverk elskendanna! Kannski gefa umrnæli Warr- ens um systur sína ofurlitla vísbendingu um, hvað það er við hann, sem konur lalla fyrír. Hann sleppti ncfnilega öllum kvikindislegum athugasemd- um, en sagði einfáldlega: - Mig hefur alltaf langað til að leika á múti Shirley. ■ ...bróður sínum Warren Beatty, cn hann er þrem árum yngri. viðtal dagsins Gallerí Grjót opnar: ,4JNURHAREKM ENN FDUMÓTAÐAR" — segir Magnús Tómasson myndlistarmaður ■ I gær 15. júlí opnuðu nokkrir listamenn sýningarsal við Skólavörðu- stíg 4a og hlaut staðurinn nafnið Gallerí Grjót. Listamenn þessir sem eru alls 7, munu hafa þar á boðstólum muni sem þeir hafa sjálfir gert. Um er að ræða muni eins og skartgripi, leirmuni, handprjónaðar flíkur, grafík, máiverk, skúlptúr og fjölva (multiple). Einn af stofnendum hins nýja gallerís er hinn þekkti myndlistamaður Magnús Tómasson og á hann nokkur verk sem sýnd eru nú í galleríinu. í tilefni opnunarinnar náðum við tali af Magnúsi og spurðum hann nánar út í þetta nýja gallerí og starfsemi þess. ■ Magnús Tómasson myndlistamaður.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.