Tíminn - 07.08.1983, Side 10

Tíminn - 07.08.1983, Side 10
10 SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1983 ■ „Ætli fólk þurfi ekki, að vera smá kiikkað til að standa í þessu,“ segir Þóra Stefánsdóttir brosandi þegar hún leiðir blaða- menn Helgar-Tímans um hús sitt og sýnir heimilis- dýrin, tvær tíkur, einn högna og það sem mest kemur á óvart: apakött. Ekki eru þó öll kurl komin til grafar því tvö önnur dýr eru í pössun á heimilinu, karlkyns apaköttur af sama stofni og hinn fyrri og svart ur kjölturakki. Það var vitncskja um apaköttinn sem er tveggja ára gamall og heitir Mikkí sem leiddi okkur á fund Þóru Stetánsdóttur. Apakettir cru sannarlega ekki algengir á íslenskum heimilum. Mikkí reynist vcra hin mesta frið- semdarskepna, og unir hag sínum vel í sálufélagi við mannfólkið og hin húsdýr- in á heimilinu. Gesturinn, karlkynsapa- köttur, vekur þó mestan áhuga hennar þessar stundirnar, enda býr hann hjá henni í vinalegu trébúri í anddyri hússins. Hvcr veit nema einhver merki- leg uppskera verði af þeirri sambúð. „Ég eignaðist Mikkí fyrir rúmu ári,“ segir Þóra. „Hún hefur vcrið hér á landi í um það bil tvö ár og í eigu nokkurra aðila. Allir nenia ég hafa gefist upp á henni því hún þarf ntikla ummönnun og hirðu. Upphatlcga fékk ég hana í pössun en okkur leist svo vel á hana að við fengum því framgengt að hún varð hér áfram." Á hvaða fæði lifir Mikkí? spurðum við. „Ég gef henni ávcxti og grænmeti, hrísgrjón, jógúrt, cgg og ýmsa grauta, en hún fúlsar hins vegar við íslcnskum fiski og kjöti. Annars er hún ekki matfrek og mér finnst ekki dýrt að hafa hana í heimili hér. Sama gildir um tíkurnar tvær og högnann." Mikkí býr scm fyrr segir í trébúri í anddyri hússins, sem er notalegt einbýli. Hún fær þó oft að leika lausum hala um húsið, en út fer hún ekki nenta þar sé óvenjulegur hiti og þá í beisli. Mikkí semur vel við Þóru, sex ára dóttur hennar ogsextán ára son. Hún hefur t.d. fengið að sofa hjá syninum, og engin umgengisvandamál hafa þá komið upp. Dóttirin Helena var heima þegar við litum inn, og hún sagði að það væri æðislega gaman að eiga öll þcssi dýr. Krakkarnir í kring líta hana svolitlum öfundaraugum, og fá stundum að koma í heintsókn og lcika við dýrin. Helcna á dúkkurúm og því hefur Mikkí fengið að sofa í þegar sá gállinn er henni. „Einu sinni sofnaði hún í fanginu á tíkinni Heru í rúminu.en Hera hefur tekið alveg sérstöku ástfóstri við Mikkí," segir Þóra. Hvér skyldi vera ástæðan fyrir þessu dálæti? „Ég hcld að skýringin sé sú að Hera, sem cr þriggja ára, gaut hvolpum um sama leyti og Mikkí flutti hingað inn. Kannski heldur hún að Mikkí sé hennar eigið afkvæmi. Hún má helst ckki líta af henni, og dóttir hennar, Blíða, sem er á heimilinu, verður jafnvel stundum að mæta afgangi þegar eftirlit með Mikkí er annars vegar," segir Þóra. Þóra segist sjá þess merki að Mikkí sé orðin svolítið þreytt á allri þessari um- hyggju og frcistist nú orðið til að klípa í eyrun og lappirnar á Heru. Okkur sýndist Hera vera svolítið afbrýðisöm í garð apakattarins sem í heimsókn er, og í eitt skipti þegar hann var að káfa á Mikkí vældi hún svolítið. „Ég held að krakkar hafi mjög gott af því að alast upp með dýrunt," segir Þóra. „Þau læra að skilja ýmislegt um gang lífsins og það kennir þeim líka tillitssemi." Þóra Stefánsdóttir sagði að það væri talsvert fyrirtæki að sjá um dýrin en kvaðst sjálf hafa unun af því. „Það þarf að sýna dýrunum umhyggju og ástúð, en þau endurgjalda hana líka ríkulega." - GM ■ Helena með tíkurnar tvær, Heru og Blíðu. Að baki er trébúrið sem Mikkí apaköttur býr í. ■ Hera horfir aðdáunaraugum á Mikkí í stofunni heima hjá Þóru Stefánsdóttur. ■ Þora með Mikki á öxlinni. Apakötturinn Mikki var svolitið feiminn við blaðamenn Helgar-Tímans. Timamynd Róbert Apakett- ir á ís- lensku heimili

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.