Tíminn - 07.08.1983, Blaðsíða 26
26
SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1983
■ Jóscfína t'ellur meðvitundarlaus í arma elskhuga síns þann 30. novembcr i809, þegar Napuieon segisi viija skilja við hana. (Samtíma koparstunga).
„GERÐU ÞER
VÆNGI OG
KOMDU, KOMDU....”
-skrifaði ungi hershöfðinginn til konu sinnar, meðan hann var á leið í bardagaá Ítalíu
■ Napóleon situr í vagninum sínum, hallar sér aftur á
bak og brosir. Svo þýtur penninn yfir blaðið sem hvflir
á knjám bans. Hann sendir „þúsund kossa“ til sinnar
„dolce amour.“ Hann biður hina „yndislegu vinu“ sína
að fara vel með hinn dásamlega líkama sinn. Hann
andvarpar og þjáist af ástarkvöl í fögrum orðavendingum,
brýtur bréfin saman og innsiglar þau og réttir þau loks út
um vagngluggann. Þar taka sendiboðar við þeim, snúa
hestinum hið snarasta við og flengríða til Rue Chanter-
eine þar sem hin nýgifta Jósefína situr og bíður, þessi
stúlka af borgarstigum, áður Beauharnais, - nú orðin frú
Bonaparte.
Þannig lýsir Abel Ganche í ódauðlegri
kvikmynd sinni „Napóleon," sem gerð
var árið 1927 á dögum þöglu myndanna,
hinum ástsjúka keisara.
Þetta atriði er kátbroslegt og all yfir-
drifið, en aðstæðurnar voru það ekki.
Þann 9. mars árið 1796 kvæntist Napó-
leon ekkju Beauharnais hershöfðingja
og tveimur dögum síðar varð hann að
yfirgefa hana. Hann stjo'rnaði þá frönsku
hersveitunum á Ítalíu og vildi freista
þess að láta hina hröktu og illa á sig
komnu menn sína ná yfirtökunum að
nýju.
I augum Napóleons, sem um þetta
leyti var 26 ára gamall, var hin 32ja ára
gamla Jósefína hin reynda og aðlaðandi
heimskona, sem kunni á ölium lysti-
semdum skil, - en á því sviði var hann
óreyndur. Hann tilbiður hana. Hann
líkir henni við gyðju. En þcssi tilbeiðsla
verður að eiga sér stað brétlciöis, því
eftir brúðkaupið hélt Napóleon í herför
um Evrópu.
Astarbréf hans til Jósefínu voru gefin
út árið 1833 af dóttur hennar Hortense,
en auðvitað stytt. Efnið einskorðaðist
við sögur af hernaði og sverðaglamm.
Keisari mátti ekki stíga ofan af tróni
virðuleikans. Einkum mátti keisarinn
ekki brjóta góða siðu með því að gerast
innilegur og mjög persónulegur.
Jean Tulard, forseti „Napóleons-
stofnunarinnar" í París hefur nú gefið út
öll 269 ástarbréf Napóleons til Jósefínu,
- óstytt. „Hér er nýjum þætti bætt inn í
sögu Napóleons," segirTulard í formála.
Ekki var þó þörf á að bæta við þá sögu.
Napóleon, þessi mikli herstjóri, batt að
sönnu enda á byltingarástandið, það
sem kom í staðinn var hernaðareinræði.
Hann vann Róm ogToscana, og Austur-
íki og gleypti Prússland og Rússland.
hernam Pólland, Portúgal og Spán,
ásamt Hollandi og Norð-vestur Þýska-
landi. Hann flutti dauða og torrtímingu
yfir allt meginlandið.
Þegar hann er í herförinni til Ítalíu
hefjast ástarbréfaskrifin. „Með hverju
augnabliki sem líður færist ég fjær þér,
dásamlega vinkona, og hvert augna-