Tíminn - 03.05.1983, Síða 2

Tíminn - 03.05.1983, Síða 2
■ „Framtið okkar er i reynd ógnað,“ sagði Halldór Ásgrímsson, formaður bankaráðs Seðlabankans m.a. í ræðu sinni á ársfundi Seðlabankans í gær, er hann ræddi verðbólguvandann. Halldór Ásgrímsson, formaður bankaráðs Seðlabankans á ársfundi Seðlabankans: „FRAMTID OKKAR f REYND ÖGNAÐ’’ „Verðum að slíðra sverðin um stund og nota kraftana til að brjótastúrþeimverðbólgufjötrumsem við erumf’ Rl „Aðalatriðið er að rjúfa verður þá sjálfvirkni sem ríkir á flestum sviðum. Ekki aðeins á sviði verðlags og kaup- gjalds, sjálfvirkni virðist oft ríkja í útþenslu opinberra stofnana, banka og annarra sem búa við þau skilyrði að geta luekkað tekjurnar á móti auknum út- gjöldum,“ sagði Halldór Asgrímsson, forinaöur bankaráðs Scðlabanka Is- lands m.a. á ársfundi Seðlabankans í gær í ræðu sinni, er liann ræddi hverjir kostir væru færir í efnahagsmálum, til þess að koma þeim í viðunandi horf. „Það þarf róttækar breytingar á flest- um sviðum,” sagði Halldór, „því vand- inn er djúpstæðari en margur hyggur.“ Halldór sagði jafnframt að það mætti deila um það með hvaða hætti skuli tekið á málunum endalaust, en það væri ljóst að það væri engin önnur leið til, en að þau stjórnmálaöfl, sem kosin eru lýð- ræðislegri kosningu í landinu, leiddu baráttuna og hagsmunaöflin í þjóðfélag- inu veittu þeim fuilt svigrúm og aðhalds- sama aðstoð til að framkvæma það sem gera þyrfti. „Það gerist ekki af sjálfu sér, að við náum tökum á cfnahagslífinu," sagði Halldór, „það gerist heldur ekki með þeim hætti, að menn kasti ábyrgðinni hver á annan. „Ef einhvern tíma hefur verið ástæða til að slíðra sverðin um stund og nota kraftana til að brjótast úr þeim verðbólgufjötrum, sem við erum í, þá er það nú. Ekki vegna þess, að það sé áhættulaust eða vegna þess að engar fórnir þurfi að færa, heldur vegna þess, að framtíð okkar er í reynd ógnað. Undirstöðurnar þola ekki það álag sem hefur myndast." Halldór gerði í síðari hluta máls síns grein fyrir afkomu Seðlabanka íslands á árinu 1982. Hann sagði m.a. „Afkoma Seðlabankans er mun betri í ár, en á síðastliðnu ári. Þá voru gjöld umfram tekjur 233.8 millj. kr. en nú var tekju- afgangur 106.5 millj. kr. Þessi útkoma skýrist að talsvcrðu leyti af lakari stöðu innlánsstofnana gagnvart Seðlabankan- um á árinu 1982 en á fyrra ári.“ Halldór greindi frá því hvernig eigið fé bankans hefur þróast undanfarin þrjú ár og kom þar fram að sem hlutfall af heildarfjármagni var eigið fé árið 1980 11.7%, árið 1981 var það 9.0% og árið 1982 var það 15.1%. Sem hlutfall af þjóðframleiðslu var eigið fé á þessum árum: 1980 2.1%, 1981 1.7% og 1982 3.3%. Þessar tölur sýna, að því er Halldór sagði, tiltölulega góða stöðu bankans. Halldór vék að nokkrum atriðum úr rekstrarreikningi bankans, og benti á, að vaxtatekjur bankans umfram vaxta- gjöld voru á árinu 1982 263 millj. kr. en á árinu 1981 voru vaxtagjöld umfram tekjur 158 millj. kr. Þá kemur frarn að á liðnu ári var gjaldfærður kostnaður vegna nýbygging- ar og húsnæðisbreytinga Seðlabankans 24.8 millj. kr. Halldór gerði einnig lítillega grein fyrir efnahagsreikningi ársskýrslu Seðla- bankans og vakti athygli á eftirfarandi atriðum: 1. Ef miðað er við gengi dollara hafa erlendar eignir í frjálsum gjaldeyri að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma lækkað úr206 millj. dollara í 114 millj. dollara. 2. Nettó staða innlánsstofnana var í árslok 1982 sú, að skuldir þeirra við Seðlabankann voru hærri en inni- stæður um 1.300 millj. króna, en árið áður var staða þeirra þannig, að innistæður voru 504 millj. kr. hærri en skuldir. 3. Þá er rétt að benda á, að nettó staða bankans við Alþjóðagjaldeyrissjóð- inn var skuld að fjárhæð 36.8 millj. SDR (Sérstök dráttarréttindi - inn- skot blm.) í árslok 1982, en nettó skuldinvar9.8miilj. SDRáriðáður. Lokaorð Halldórs Ásgrímssonar voru þessi: „Þrátt fyrir góða reikn- ingslega stöðu Seðlabankans endur- spegla þessar upplýsingar í reynd veika stöðu út á við og sýna glöggt að mikillar aðgæslu er þörf í stjórn peningamála á næstunni.“ -AB ■ Ársfundur Seðlabanka íslands var fjölmennur að vanda, og eins og sjá má af þessari mynd, þá eru konur eitthvað sem heyrir til aigerra undantekninga á ársfundi Seðlabankans, en þar eru samankomnir helstu ráðamenn þjóðfélagsins. Tímamyndir - G.E. ■ Dr. Jóhannes Nordal Seðlabankastjóri telur að algjört afnám verðbótakerfisins sé að verða lífsspursmál fyrir efnahagshfið í landinu. ■ „Af þróuninni að undan- förnu, þar sem saman hefur farið samdráttur í þjóðarframleiðslu, mikill viðskiptahalli og hraðvax- andi verðbólga, verður sú álykt- un ein dregin, að íslenskur þjóð- arbúskapur stefni í ógöngur, sem ekki verði komist út úr nema með víðtækum aðgerðum og stefnubreytingu í stjórn efna- hagsmála,“ sagði dr. Jóhannes Nordal Seðlabankastjóri m.a. í ræðu sinni á 22. ársfundi Seðia- banka íslands á Hótel Sögu í gær, en þar dró Seðlabankastjóri upp mjög svo dökka mynd af efnahagsþróun síðastliðins árs. Seðlabankastjóri sagði jafnframt: „Á næsta leiti.er ný stökkbreyting launa og verðlags vegna vísitölubóta og hækkunar á landbúnaðarverðlagi og fiskverði. Hætt er við því að allur frekari dráttur á því að takast á við vandann, muni gera hann erfiðari viðfangs og verða til þess eins að lausn hans kosti að lokum mun meiri fórnir í lífskjörum og atvinnu." Seðlabankastjóri sagði að augljóst væri að bót yrði ekki ráðin á þeim djúpstæðu vandamálum, sem nú væri við að fást, nema með samræmdri stefnu. „Ef takast á að tryggja að nýju viðunandi hagvöxt og koma í veg fyrir atvinnubrest, verður að gefa bættum skilyrðum atvinnuveganna forgang, jafnvel þótt það kosti tímabundna skerð- ingu lífskjara og frestun félagslegra um- bóta,“ sagði Seðlabankastjóri, og benti í því sambandi á að nauðsynlegt væri að bæta skilyrði fyrirtækja til aukningar á eigin fé, t.d. með sérstökum skattaíviln- unum, og benti á að á Norðurlöndunum hefðu slíkar skattalagabreytingar gefist vel, og hvatt til stofnunar nýrra fyrir- tækja. Seðlabankastjóri sagði að annar meg- invandinn í efnahagsmálum íslendinga væri tvímælalaust verðbólguþróunin, sem nú væri komin á hættulegra stig en nokkru sinni fyrr. Sagði hann engan vafa vera á því að árangursleysið í viðureign- inni við verðbólguna væri m.a. sprottið af því að almenningur í landinu hefði ekki gert sér grein fyrir því, hve mikill dragbítur verðbólgan gæti verið á heil- brigða efnahagsstjórn og framfarir í landinu. „Sú spurning hlýtur því að gerast sífellt áleitnari," sagði dr. Jóhannes NordaI,“ hvort það sé ekki að verða íslendingum lífsnauðsyn að brjótast út úr þessum vítahring með því að afnema með öllu hið vélgenga verðbótakerfi launa og verðlags, sem hér hefur verið við lýði í meira eða minna mæli um áratuga skeið.“ „Þótt afnám vísitölukerfisins kunni að hafa í för með sér tímabundnar fórnir í lífskjörum sagði Seðlabankastjóri jafnframt, „er ég sannfærður um, að þar er ekki um raunverulega fórn að ræða, a.m.k. ekki þegar til lengri tíma er litið. Þegar allt kemur til alls, ræðst hagur almennings og þjóða af sköpun raun- verulegra verðmæta, en ekki því þrátefli um skiptingu svikulla fjármuna, sem er inntak hagsmunabaráttu verðbólguþjóð- félagsins.11 -AB Dr. Jóhannes Nordal Seðlahankastjóri á ársfundi Sedlabankans í gæn afnAmverd- BÖTAKERFIS AÐVERÐA LfFSSPURSMAL

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.