Tíminn - 03.05.1983, Blaðsíða 3

Tíminn - 03.05.1983, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1983. 3 fréttir ISAL VISAR SKATTADEIUIM TIL ALÞJÚDLEGS GERÐARDÓMS ■ „Það er hægt, samkvæmt samningi að setja málið í annan farveg,“ sagði Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra í samtali við Tímann í gærkveldi, þegar blaðamaður spurði hann hvort iðnaðarráðuneytið og fjármálaráðuneytið myndu ekki samþykkja að SID, alþjóðlegi gerðardómurinn yrði valinn sem gerðardómur í deilu Alusuisse og íslensku ríkisstjórnarinnar varðandi skattheimtu af ISAL fyrir árin 1976 til 1980, en ISAL og Alusuisse hafa nú tilkynnt íslenskum stjórnvöldum að þau hafi notfært sér rétt sinn tU þess að legga deilumálin í alþjóðlega gerð. Hjörleifur sagði að báðir aðilar þyrftu að samþykkja valið á gerðardómnum, þannig að enn væri möguleiki, sam- kvæmt 47. grein aðalsamnings, að ef þessi stofnun ætti ekki við, varðandi deilumálin, þá gæti ríkisstjórnin eða Alusuisse leitað alþjóðlegrar gerðar, með tilkynningu til þeirra aðila sem þar greinir, þar sem gerð væri grein fyrir máli því, er gerðar væri beiðst um. „Slíka gerð framkvæmir þriggja manna gerðardómur," sagði iðnaðarráðherra, „og velur ríkisstjórn einn þeirra, Alus- uisse annan og ríkisstjórnin og Alusuisse sameiginlega hinn þriðja. Þannig að þessi möguleiki er enn fyrir hendi.“ Hjörleifur sagðist telja að íslendingar hefðu engu að kvíða í sambandi við meðferð þessa máls fyrir dómi. Álagn- ingin sem á væri byggt, væri bæði varfærin og traust af hálfu Coopers og Lybrant. Hér væri það Alusuisse sem þyrfti að höfða málið og sækja, og sagðist Hjörleifur vera bjartsýnn á að niðurstaða yrði íslendingum í hag. Hjörleifur sagði jafnframt að þetta mál ætti ekki að þurfa að trufla upptöku annarra þátta er yörðuðu samskipti að- ila, ss því að ná fram leiðréttingu á raforkuverðinu. Hann sagði einnig að iðnaðar- og fjármálaráðuneytin myndu hraða athugun sinni, varðandi það hvort þau samþykktu þann alþjóðlega gerðar- dóm sem Alusuisse stingur upp á í skeyti sínu til ráðuneytisins. - AB Jón og Sævar sigruðu í Portoroz bridge- mótinu ■ Um helgina héldu Samvinnuferðir og Bridgesamband íslands annað Porto- rozmótið í bridge í Menningarmiðstöð- inni við Gerðuberg. Alls spiluðu 36 pör á mótinu. segir Magnús Guðmundsson, skrifstofustjóri Sædýrasafnsins ■ „Við gerum okkur vonir um að ákvörðun ráðherrans sé ekki endanleg og búum okkur undir að opna safnið þrátt fyrir allt,“ sagði Magnús Guðmundsson, skrifstofustjóri Sædýrasafnsins, þegar blaðamenn Tímans voru þar á ferð í gær. - En hér eru miklar framkvæmdir í gangi - eru þær ekki unnar fyrir gýg ef safnið verður ekki opnað? „ Það má kannski segja það, en við bara trúum þessu.ekki alveg ennþá. Við föruin þó hægt í sakirnar og miðum við að það taki sem skemmstan tíma að Ijúka framkvæmdum ef leyfi fæst - við bíðum með það fjárfrekasta." - Hyggist þið reka safnið með sama sniði og áður? „Það er ekki endanlega ákveðið, fer nokkuð eftir aðstæðum. Ég held að hér sé tvímælalaust gott land fyrir svona starfsemi og við ætlum okkur að hafa þetta eins veglegt og unnt er. Þó gæti farið svo að dýrin yrðu eitthvað færri en þegar þau voru flest.Við förum kannski að ráðum kanadísks dýrateinjara sem hér var á ferð fyrir skömmu, en hann ráðlagði okkur að hafa fá dýr, en tegundir sem fólk vill sjá. Hann nefndi sérstaklega sæljón, en þau eru tiltölulega ódýr og ntjög vinsæl í dýragörðum erlendis." - Nú hefur safnið miklar tekjur af háhyrningaveiðum - á ekki reksturinn að vera á grænni grein? „Það eru margir sem dregið hafa í efa að upphaflega hafi safninu verið lokað vegna fjárskorts, en staðreyndin er samt sú. Tekjurnar af hvalaveiðunum eru jú nokkuð góðar, enda hafa þær fjármagn- að allar framkvæmdir hér á seinni árum, Pörunum var skipt í 3 riðla sem spiluðu þrefalda umferð. í síðustu um- ferðinni spiluðu 12 stigahæstu pörin í A-riðli og aðeins þau gátu unnið til aðalverðlaunanna. Eftir tvær umferðir voru Ragnar Björnsson og Jón Andrésson með 25 stiga forskot á Jón Baldursson og Sævar Þorbjörnsson. í síðustu umferðinni voru Jón og Sævar hinsvegar óstöðvandi. Þeir fengu þá 46 stigum meira en Ragnar og Jón og urðu örugglega í fyrsta sæti með 596 stig. Að launum fengu þeir 3ja vikna ferð til Portoroz í Júgóslavíu með Sam- vinnuferðum. Ragnar og Jón urðu í öðru sæti með 575 stig og fengu að launum ferð til Kaupmannahafnar með Sam- vinnuferðum. í þriðja sæti lentu Vil- hjálmur Þ. Pálsson ogÞórður Sigurðsson með 548 stig og fóru 4000 krónum ríkari heim. 4.verðlaun, 2500 krónur, fengu Ragnar Magnússon og Rúnar Magnús- son með 529 stig, og 5. verðlaun, 1200 krónur, hlutu Bragi Erlendsson og Rík- harður Steinbergsson með 525 stig. Einnig voru veitt 2500 króna verðlaun fyrir hæstu skor í síðustu umferð í B-og C-riðli. Þau hlutu Egill Guðjohnsen og Runólfur Pálsson í B-riðli og Aðalsteinn Jörgensen og Stefán Pálsson í C-riðli. Þeir Jón Baldursson og Sævar Þor- björnsson hafa verið sigursælir í kepp- num vetrarins og fyrir skömmu voru þeir valdir í landslið íslands í bridge sem mun keppa á Evrópumótinu í Þýskalandi í sumar. GSH ■ Nýlega er búið að yfirbyggja hvalalaugina í Sxdýrasafninu. ■ Þrír háhymingar em enn í safninu frá í haust. ■ Sjimpansinn horfir íhugandi út á milli rimlanna í búri sínu fram í óvissa framtíð sína og safnsins. Timamynd Róbert sem hafa verið mjög dýrar. Ég get í því sambandi nefnt hvalalaugina og sitthvað fleira. Einnig vill fólk gleyma að taka með í dæmið rekstur safnsins. Við höfum næstum allan tímann haft hér nokkra menn í vinnu, að meðaltali 9, og þeir þurfa náttúrlega að fá sitt kaup. Þá þarf að kaupa fóður handa dýrunum. Loks vil ég nefna skuldir safnsins, sem hafa hrannast upp í verðbólgunni - fjármagnskostnaður er alveg gífur- legur," sagði Magnús. í Sædýrasafninu er nú talsvert af dýrum, þótt þrjú ár séu liðin frá því safninu var lokað. Svo eitthvað sé nefnt eru þar 2 ísbirnir, ljónapar, 2 apar. 2 selir, nokkrar geitur, nokkrar ær. Tals- vert er af fuglum svo sem gæsir, uglur, hrafnar og fleiri tegundir. Þá eru tvær kengúrur og nokkrir refir. Sjó Nú er verið að leggja nýjar vatnslagnir í landi safnsins. ísbjamaþróin er með stærstu mannvirkjunum í safninu. UNMRBÚUM OPNUN þrAtt fyrir aiif

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.