Tíminn - 03.05.1983, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1983.
ItBÉm
5
■ I Laugardalshollinni gat folk tyllt ser mður og hlytt a 1. maí dagskrána án þess að skjálfa úr kulda.
(Tímamyndir Árni Sæberg)
1. maí dagskráin flutt innan húss:
„Þátttakan hefði
mátt vera meiri”
— segir Magnús L. Sveinsson, formaður V.R.
■ „Mér finnst þetta ágæt breyt-
ing og held að það sé rétt stefna
að hafa 1. maí hátíðarhöldin
innan húss í framtíðinni. Veður-
farið er nú oft þannig um þetta
leyti árs, að fólki finnst betra að
vera innan dyra en utan. Hún
hefur oft verið köld golan á
Lækjartorgi og fólk illa haldist
við“ sagði Magnús L. Sveinsson,
formaður Verslunarmannafélags
Reykjavíkur.
Breytt .var um form á 1. maí
hátíðarhöldum verkalýðsfélag-
anna í Reykjavík að þessu sinni,
sem kunngligt er. Kröfugangan
var frá skrifstofum Alþýðusam-
bandsins við Grensásveg og að
Laugardalshöll, þar sem 1. maí
dagskráin var flutt. Talið er að 2
til 3 þús. manns hafi tekið þátt í
hátíðarhöldunum í Höllinni. „Ég
verð að segja eins og er, að mér
fannst þátttakan heldur lítil -
hefði mátt vera meiri“, sagði
Magnús.
Hann kvaðst þó vera ánægður
með 1. maí, því hátt í 2 þús.
félagar í V.R. hafi komið í kaffi
í húsnæði félagsins í Húsi versl-
unarinnar. V.R. hafi boðið fólki
þangað að loknum hátíðarhöld-
unum í Laugardalshöllinni.
Húsnæði V.R. hafi verið troð-
fullt af fólki alveg frá því kl. þrjú
og til kl. sex í eftirmiðdaginn.
- HEI
■ SnQldarverk meistaranna Þórbergs og Halldórs Kiljans hafa löngum þótt
notadrjúg í verkalýðsbaráttunni. Meðal upplesara var Jón Júlíusson, leikari.
Upprennandi verkalýður vildi líka fá yfirsýn yfir hátíðina.
■ Verndnm kaupmáttinn - stóð m.a. á kröfuspjöldunum
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík:
Fundur
verður haldinn í fulltrúaráði Framsóknarfélaganna í Reykjavík, að Rauðarárstíg
18, þriðjudaginn 3. maí n.k. og hefst kL 20.30.
Fundarefni:
Úrslit alþingiskosninganna 1983
Skorað er á alla meðlimi fulltrúaráðsins að mæta.
Stjórn fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjavík
n
,NIEMEYER sláttuþyrlur meö eöa
knosara. Veitum allar nánari
upplýsingar í síma 22123.
Veldu þér vandaða vél.
Sími 22123. Pósthólf 1444. Tryggvagötu, Reykjavík
Kennara vantar
Kennara vantar að Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
n.k. skólaár. Æskilegar kennslugreinar: íþróttir,
handmennt, danska og kennsla yngri barna.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 97-5224 og
97-5159.
Skólanefnd Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
hnakkaH
Vönduð vinargjöf
Allt til reiðbúnaðar
Þoivaldur msnKR
Guðjonsson íhnakkar
.Söðlasmiðameistari, Einholti 2 - inngangur trá Stórholti - simi 24180.