Tíminn - 03.05.1983, Síða 10
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1983.
10
viðskiptalffið
umsjón: Skaftl Jónsson
Mætum erfiðleikum
með nýrri hönnun —
íslenskur húsgagnaframleiðandi
leitar fyrir sér á erlendum mörkuðum
■ „Til að mæta þeim erfiðleikum sem
nú ríkja í húsgagna- og innréttingaiðnaði
hér heima ákváðum við að snúa vörn í
sókn og hefja framleiðslu á nýjum teg-
undum húsgagna, sem við ætlum okkur
að koma á bæði innlendan og erlendan
markað.
Við leituðum samstarfs við
Pétur B. Lúthersson, húsgagnaarkitekt,
og fengum hann til að hanna fyrir okkur
nýjar tegundir, scm hægt er að framleiða
hér hjá okkur án þess að bæta þurfi við
vélakostinn sem fyrir er, en hann er með
þeim fullkomnustu sem til eru hér á
landi,“ sagði Eyjólfur Axelsson, fram-
kvæmdastjóri Axels Eyjólfssonar í
Kópavoginum, á fundi með blaða-
mönnum.
Árangurinn af samstarfinu við Pétur,
sem eins og kunnugt er hefur getið sér
orð fyrir hönnun sína bæði heima og
erlendis, nægir í því sambandi að nefna
Stacco-stólinn og Tabella skrifstofuhús-
gögnin, eru svokölluð AXIS húsgögn,
sem kynnt verða á Alþjóðlegu húsgagna-
sýningunni í Kaupmannahöfn 4.-8. maí
næstkomandi.
Húsgögnin sem hér um ræðir eru
svefnherbergishúsgögn sem heita Taxis,
og eru úr Ijósum aski, klæðaskápar sem
nefndir eru Rexis, sem hægt er að fá úr
dökkum viði og ljósum aski, Maxis
kallast hillu- og skápasamstæða og verð-
ur hún einnig framleidd úr Ijósum aski
og dökkum viði og loks er um að ræða
Ijós askhúsgögn, Praxis.
Við hönnun þessara húsgagna er haft
í huga að rýmið nýtist sem best, eining-
um er raðað saman eftir þörfum og eru
valkostirnir ótrúlega margir.
Húsgagnaverslun Axels Eyjólfssonar
var stofnuð fyrir fjörutíu og sjö árum, en
árið 1970 var fyrirtækinu breytt í hluta-
félag. Eftir stækkun og endurskipulagn-
ingu verksmiðjunnar 1981 er hún eitt
best búna framleiðslufyrirtæki hér á
landi.
■ Svefnherbergishúsgögnin sem fara á Alþjóðlegu húsgagnasýninguna í Kaupmannahöfn. I stað ónotaðs rýmis undir
rúminu er komið fyrir skúffum.
;
i
* i
Námstefna F.í.l. um flutningatækni og efnismeðferð:
„Má spara allt að
þrefaldri upphæð
fjárfestingarinnar"
■ „í rannsóknum sem gerðar hafa
verið meðal helstu nágrannaþjóða
okkar, hefur meðal annars komið fram
að á milli 40 og 60% af heildarrekstrar-
fjármagni iðnfyrirtækja er bundið í
hráefnum, vörum í vinnslu og fullunnum
vörum," sagði Gunnar J. Friðriksson,
formaður fragtnefndar Félags íslenskra
iðnrekenda, m.a. í kynningu sem hann
hélt á námstefnu um flutningatækni og
efnismeðferð (logistik) sem haldin var
fyrir skömmu.
Einnig sagði Gunnar, að komið hefði
í Ijós að kostnaður við efnismeðferð og
efnisflutninga nemi á milli 15 og 85 af
hundraði af framleiðslukostnaði (háð
magni, tegund efnis og vinnslu) og með
aukinni tæknivæðingu, sjálfvirkni, og
samhæfingu allra þátta flutningakeðj-
unnar mætti spara allt að helming af
heildarflutningskostnaði einstakra fyrir-
tækja, er þá átt við flutning innan sem
utan fyrirtækis.
Á námstefnunni kom fram, að arð-
semi fjárfestinga á sviði „logistikmála"
virðist nú almennt mun meiri en á öðrum
sviðum hagræðingarmála.
„Þannig er talið að með aðgerðum á
sviði „logistikmála" megi spara allt að
þrefaldri upphæð þeirra fjárfestinga sem
kunna að vera nauðsynlegar vegna slíkra
aðgerða," sagði einn fyrirlesari á nám-
stefnunni.
( umræðum í lok námstefnunnar kom
m.a. fram mikill áhugi þátttakenda á því
að FÍI kannaði nánar möguleika á
samræmdum aðgerðum á sviði „logistik-
mála“ meðal fyrirtækja félagsins, t.d.
með stofnun sérstaks „logistiksverkefn-
is“ á vegum félagsins.
■ Hlutfallshreyting á sölu íslcnskru osta 1981 og 1982.
Adalf undur Osta og sm jörsölunnar:
IVIikil söluaukning
á smjöri og ostum
8,3 kíló.en vár aðeins rúmlega 3 kíló
fyrir 25 árum, þegar Osta og smjör-
salan var stofnuð.
Útflutningur á ostum nam 1.061
tonnum, sem er um 200 tonnum
minna en árið 1981. Mest var selt til
Bandaríkjanna, en þar næst til Dan-
mcrkur og Hollands. Pá var nokkuð
af smurosti selt til Tékkóslóvakíu.
í nýútkomnum Sambandsfréttum
kcmur fram að fyrstu þrjá mánuði
þessa árs hefur sala á ostum verið
mjög góð. Hefur hún enn aukist, um
sem næst 12 af hundraði miðað við
sama tíma í fyrra.
ONN Sala Osta- og smjörsölunnar OSTUR SMJÖR
■ Mikil gróska var í sölu á ostum,
smjöri og smjörva á síðasta ári niiðað
við árið þar á undan.
Á aðalfundi Osta-og smjörsölunn-
ar, sem haldinn var fyrir skömmu,
kom fram að söluaukning á smjöri og
smjörva var 22,8 af hundraði. Einnig
kom fram að smjörbirgðir eru nú
með allra minnsta móti, voru aðcins
úm 70 tonn 1. apríl s.l. Ostasala I
landinu jókst uin 10,8 af hundraði á
síðasta ári, en hjá Osta og smjörsöl-
unni varð aukningin 13,6 af hundr-
aði.
Mcðalneysla osta á mann var um
ENDURSKIPULAGT FRÁ
GRUNNI HJÁ GEFJUN —
■ Fataverksmiðjan Gefjun í Reykja-
vík var endurskipulög frá grunni síðast
liðið sumar og sett upp í henni nýtt
færslukerfi til að auka vinnsluhraðann í
framleiðslunni. Jafnfram var unnið að
því að koma á nýju bónuskerfi, með það
að markmiði að ná niður launakostnað-
inum á hverja framleidda einingu.
Þessar upplýsingar fengum við hjá
Þorbirni Stcfánssyni framleiðslustjóra,
og hann skýrði okkur einnig frá því að
jafnhliða þessu væru nú komin fram tvö
ný vörumerki sem framleiðsluvörurnar
eru seldar undir. Annars vegar er það
vörumerkið „S1R„, en undir því eru seld
karlmannaföt, stakir jakkar og frakkar,
og er nú um þessar mundir veriö að hefja
kynningarherferð á því. Undir þessu
„SIR", merki verður framleiddur herra-
fatnaður fyrir flestalla aldurshópa, bæði
hefðbundin föt og tískufatnaður. Hins
vegar var tekiö upp vörumerkið „Jas“
fyrir stakar buxur, sem verksmiðjan
hefur lagt mikla áherslu á, og hefur hún
aukið mikið fjölbreytnina í framboði
sínu á þeim, jafnt í sniðum sem efnum.
Verður lögð áhersla á að kynna þetta
vörumcrki jafnframt hinu.
Samfara endurskipulagningunni hefur
framleiðslumagnið einnig verið aukið,
og í framtíðinni mun verksmiðjan leggja
aukna áherslú á að selja vörur sínar út
um allt land, og í því skyni hyggst hún
fyrst og fremst hagnýta sér sölukerfi
kaupfélagsbúðanna. í því sambandi tók
hún á síðasta ári í fyrsta skipti þátt í
samkaupafundum Innflutningsdeildar
og kaupfélaganna, og mun gera það
aftur í ár.
Fataverksmiðjan Gefjun framleiðir
auk þess svo til öll þau jakkaföt, staka
jakka og fínni stakar buxur, sem seld eru
í Herraríkisbúðunum og Torginu. Einn-
ig er hún frá fornu fari einn stærsti
framleiðandi landsins á hvers konar
einkennisfatnaði, jafnt fyrir herra og
dömur.
Til viðbótar þessu eru uppi hugmyndir
hjá verksmiðjunni um framleiðslu á
ýmsum gerðum af kvenfatnaði, sem
henta framleiðsluuppsetningu hennar,
svo sem á drögtum, buxum, kvenjökkum
og pilsum. Slík framleiðslulína myndi
auk þess falla vel inn í sölukerfið hjá
kaupfélögunum, svo að þar eru ýmsir
þjónustumöguleikarónýttir. Þáereinnig
áhugi hjá verksmiðjunni á auknum sér-
saumi á fötum, fyrir þá sem þurfa á
afbrigðilegum stærðum að halda.