Tíminn - 03.05.1983, Side 12
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1983.
Eftirlit er haft með nítríti í kjötvörum í verslunum:
,^STANDH> VÍDAST GOTT
OG ALLTAF AÐ BATNA“
Eru tengsl milli
N-nítroso-sambanda og
magakrabbameins og
sykursýki?
En hvers vegna er nú svo mikill áhugi
á nítrötum og nítrítum í matvælum?
Þessi áhugi beinist að tvíþættu rann-
sóknastarfi.
Um langt skeið hafa ýmsir vísinda-
menn haldið því fram, að samband geti
verið á milli neyslu fæðu, sem inniheldur
svokölluð N-nítroso-sambönd og vissra,
tegunda krabbameins, svo sem maga-
krabbameins. Þessi efnasambönd geta
myndast frá nítríti í matvælum (nítröt
geta breytst í nítrít), ekki síst í unnum
kjötvörum.
Auk áhuga vísindamanna á hugsan-
legum tengslum milli nítríts í kjötvörum
og krabbameins, þá hefur Þórir Helga-
son læknir komið fram með þá tilgátu að
N-nítroso-sambönd í matvælum gcti
cinnig átt sök á „meðfæddri"' sykursýki,
jafnvel þótt þessarar fæðu hafi verið
neytt fyrir getnað. Unnið er að frekari
rannsóknum í þeim efnum.
Heilbrigðiseftirlitið hefur
eftirlit með kjötvörum
í verslunum
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar
sér um að framfylgja efti'rliti í kjötvöru-
verslunum í Reykjavík.
Blaðamaður Heimilistímans hafði
samband við Guðmund Ingólfsson hjá
Heilbrigðiseftirlitinu, en hann sér nú um
væri það alls ekki nauðsynlegt í soðnar
kjötvörur, svo sem pylsur, sem seldar
eru soðnar, þá væri nítrítið einungis
litarefni.
Nítrat fínnst í sumu
grænmeti en C-vítamínið
er vörn gegn nítríti
Nú fara matvælarannsóknir og athug-
anir á nítríti í íslenskum matvælum fram
hjá Rannsóknadeild landbúnaðarins,
eða Fæðudeild RALA. f þeim rannsókn-
um hefur m.a. grænmeti verið tekið til
athugunar.
Talsvert nítrat hefur fundist í sumu
grænmeti. Næsta skref er því að sjá
að fylgjast með kjötvörum í verslunum
í borginni. Hann sagði, að ástandið í
þessum málum væri miklu betra en það
hefði verið. Kjötvöruframleiðendur hafa
kynnt sér þessi mál og farið eftir ábend-
ingum. Yfirleitt væri undantekning ef
óleyfilegt magn af nítríti finnst nú orðið
í kjötvörum, sagði hann.
Sérstaklega sagði Guðmundur, að
áhersla væri lögð á að athuga saltkjöt,
t.d. í kring um sprengidaginn, þegar
óvenjulega mikil sala er í saltkjöti. Það
væri sama að segja um það og aðrar
unnar kjötvörur, að ástandið væri bara
gott - og alltaf batnandi.
- Ef það kemur fyrir að of mikið nítrít
finnst í kjötvörum hjá einhverju fyrir-
tæki, þá reynum við að fylgjast sérstak-
lega vel með framleiðslunni, þar til
öruggt er að hún er komin í lag, en eins
og áður segir, þá er slíkt algjör undan-
tekning nú orðið, sagði Guðmundur
Ingólfsson.
Breyting til hins betra
á sl. 10 árum
Þegar rannsóknirnar hófust kom í ljós
að saltpétur (nítrat) var mikið notað í
kjötvörur hér á landi. T.d. var allt upp í
1 gr. af nítrati í kílói af saltkjöti. Nitrat
er notað sem rotvarnarefni og litur og
getur myndað krabbameinsvaldandi
efni.
Jón Óttar sagði, að nítrít væri víða að
finna í matvælum, sérstaklega í unnum
kjötvörum, - en magnið væri mun minna
nú en það hefði verið fyrir 10 árum. Þó
þyrfti enn að draga úr notkun þess, t.d.
■ Sérstök áhersla er lögð á að athuga saltkjöt t.d. í kringum sprengidaginn en þar er sama sagan og með aðrar unnar
kjötvörur, ástandið er gott og fer batnandi.
hvort ekki sé nauðsynlegt að draga úr
notkun tilbúins áburðar í sumum tilvik-
um. Þetta þarf að athuga betur, að sögn
Jóns Óttars.
Jón Óttar vill brýna fyrir fólki, að
borða grænmeti helst hrátt, eða matreitt
þannig, að C-vítamínið eyðist sem
minnst. Sjóða það hið minnsta og þá
helst gufusjóða grænmetið. C-vítamínið
spornar mikið gegn eituráhrifum nítrits,
svo nauðsynlegt er að vernda það í
matnum.
Fólk með magabólgur ætti sérstaklega
að varast að nota reyktan og/eða saltað-
an mat nema hið minnsta, og fylgjast vel
með því að nóg C-vítamín sé í fæðunni.
Gott er að venja sig á að borða alltaf
■ Jón Óttar Ragnarsson hefur um 10
ára skeið unnið að sérstökum rannsókn-
um á matvælum og umhveifi íslendinga.
eitthvað af fersku grænmeti eða ávöxtum
á degi hverjum og þá einkum ef á
borðum er reyktur eða saltaður matur.
Annars ættu þeir, sem hafa magabólgur
eða viðkvæman maga, að draga sem
mest úr neyslu á slíkum mat, að sögn dr.
Jóns Óttars Ragnarssonar.
■ Á síðari árum hefur áhugi alls almennings
vaknað á hollustuháttum í mataræði og á rann-
sóknastarfí, sem unnið hefur verið í þeim málum.
Fyrír réttum tíu árum hófust rannsóknir við
matvæladeild Raunvísindastofnunar Háskólans á
nítrötum og nítrítum í matvælum, - en nítrítið er hinn
virki undanfarí hinna varasömu N-nítróso sam-
banda. Rannsóknin var unnin undir stjórn Jóns
Óttars Ragnarssonar og Sigmundar Guðbjarnason-
ar. Þær leiddu í ljós, að í vissum afurðum, þ.á.m.
saltkjöti, beikoni og hangikjöti, var magn nítríts
mun meira en búist hafði verið við. Jafnvel allt að
einu grammi í kílói af kjöti.
Jón Óttar Ragnarsson gaf blaðamanni Heimilis-
tímans ýmsar upplýsingar um rannsóknarstarfíð og
árangur þess.
■ Sóllampar eru vinsælir og gera húðina faUega brúna, en áríðandi er að fara eftir varúðarregl
um, t.d. að nota vamargleraugu, en því hefur stúlkan á myndinni gleymt.
Notkun sóllampa:
Hollustuvernd ríkisins
sendir út viðvaranir
■ Hollustuvernd ríkisins í Reykjavík hefur sent frá sér
fréttatilkynningu til fjölmiðla. Þetta dreifibréf er sent til
heilbrigðisnefnda vegna fjölda fyrirspurna sem borist
hafa til Hollustuverndar.
Fréttatilkynningin er á þessa leið:
Notkun sóllampa hefur aukist mjög hérlendis hin
síðari ár og sólbaðsstofum fjölgar ört.
Notkun sóllampa getur fylgt nokkur áhætta. Af þeim
sökum og vegna fjölda fyrirspurna hefur Hollustuvemd
ríkisins sent út dreifibréf til heilbrigðisnefnda með
upplýsingum og leiðbeiningum um slíka starfsemi.
Geislar lampanna geta skaðað augun, ef ekki eru
notuð þar til ætluð varnargleraugu og vitað er að
langvarandi útfjólublá geislun getur valdið varanlegum
breytingum á húð. Gestum sólbaðsstofa skal ennfremur
bent á að leita ráða læknis noti þeir lyf t.d. fúkalyf eða
geðlyf. Þá er vitað að viss fegrunarlyf geta valdið ofnæmi
og ber því að hreinsa húðina vandlega fyrir sólböð.
Persónulegt hreinlæti og góð þrif alls búnaðar eru
mikilvæg.
Aðeins er heimilt að nota sóllampa sem viðurkenndir
hafa verið af Hollustuvernd ríkisins og þess gætt að farið
sé eftir þeim reglum er um slíka lampa gilda og notkun
þeirra.
Eftirfarandi leiðheiningar skulu hanga uppi á sólbaðs-
stofum:
1. Notið hlífðargleraugu.
2. Baðið yður að Iokinni geislun.
3. Hafið samráð við lækni yðar, ef þér notið lyf.
4. Viss fegrunarlyf geta valdið ofnæmi, hreinsið því
húðina vandlega fyrir sólböð.
5. Búnaður sé hreinsaður eftir hverja notkun.
6. Fylgið leiðbeiningunum um lengd og tíðni sólbaða.