Tíminn - 03.05.1983, Qupperneq 13

Tíminn - 03.05.1983, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 3. MAÍ 1983. 17 ■ Jane Fonda og Kris Kristofferson í hlutverkum sínum í Rollover. menningarmál I heljargreipum olíugróða Araba ROLLOVER. Leikstjóri: Alan A. Pakula. Handrit: David Shaber. Aðalhlutverk: Jane Fonda (Lee Winters), Kris Kristoffersson (Hub Smith), Hume Cronyn (Maxwell Emery). Myndataka: Giuseppe Rotunno. Framleiðandi: Bruce Gilbert fyrir IPC Films, 1982. Sýnd í Austurbæjarbíó. ■ Kvikmyndafyrirtæki Jane Fonda og Bruce Gilbert - IPC Films — hefur gert röð kvikmynda um viðfangsefni „sem skipta máli“, ef nota má svo útjaskað hugtak. Þetta eru myndirnar „Coming Home“, sem fjallaði um Víetnamstríðið og hina fötluðu hermenn, sem komu heim til fjölskyldna sinna eftir að hafa særst illa í stríðinu, The China Syn- drome, þar sem flett er ofan af þeim hættum, sem fylgja kjarnorkuverum, gamanmyndin Nine to Five, þar sem fjallað er um misrétti kynjanna á vinnu- stað, og On Golden Pond um samskipti kynslóðanna og ævikvöldið. Jane Fonda hefur leikið í öllum þessum myndum, og það gerir hún einnig í fimmtu kvikmynd IPC-fyrirtækisins: Rollover, sem nú er sýnd í Austurbæjarbíó. Og þar er enn tekið til meðferðar mál, sem skiptir miklu; hina gífurlegu peningaeign Ar- abaríkjanna í vestrænum bankastofnun- um og þær hættur, sem olíugróði þessara ríkja hefur í för með sér fyrir efnahagslíf iðnþróaðra ríkja. Rollover er hnyttilegt sambland ástar- drama og fjármálaþrillers. Höfuðpers- ónurnar eru Lee Winters, ekkja ungs kaupsýslumanns, sem er ráðinn af dögum, og Hub Smith, ungur sérfræð- ingur í bankamálum, sem hefur orð á sér fyrir að redda málum þegar í óefni er komið. Ekkjan erfði eignarhlut manns síns í alþjóðlegum auðhring, sem hann stjórnaði, og hefur hug á að ná tökum á fyrirtækinu- Hub Smith er hins vegar fenginn til þess að taka við banka, sem stendur mjög illa, og reyna að koma honum á réttan kjöl. Bankinn á í miklum viðskiptum við áðurnefndan auðhring, og þannig hefjast kynni þeirra Smith og Winters, sem dragast fljótt hvort að öðru og hafa jafnframt það sameiginlega áhugamál að ná árangri í viðskiptalífinu. En ástarsagan er þó ekki meginvið- fangsefni myndarinnar, heldur banka- kerfi Vesturlanda, og það ægivald sem Arabaríkin hafaíbönkunum. Innstæður Arabaríkjanna í vestrænum bönkum - olíugróði síðustu ára - eru svo gífurleg- ar, að ef ákveðið væri að draga þá peninga út úr bönkunum og kaupa fyrir þá t.d. gull, þá myndi bankakerfið sennilega hrynja og við taka kreppa sem gera myndi kreppuna miklu að barnaleik í samanburði. Pað er í það minnsta sú aðvörun, sem Rollover vill koma á framfæri. Alan J. Pakula sýndi heim blaða- mennskunnar í Bandaríkjunum með áhrifamiklum hætti í „All the Presidents Men“, þar sem fjallað var um þátt Washington Post í afhjúpun Watergate- hneykslisins. í þessari mynd sýnir hann okkur inn í lokaðan kuldalegan heim bankavaldsins vestra; við kynnumst því hvernig alþjóðaviðskipti stórs banka í Bandarikjunum ganga fyrir sig. Mynd- ræn úrvinnsla efnisins er vel heppnuð og oft áhrifamikil, enda enginn aukvisi við stjórn myndatökunnar (Rotunno annað- ist m.a. myndatökuna í All That Jazz og í nokkrum kvikmynda Fellinis). Jane Fonda og Kris Kristofferson eru mjög trúverðug í hlutverkum sínum, og kemur það kannski á óvart með Kristofferson, sem hér leikur gjörólíkt hlutverk frá því sem hann hefur áður gert, og gerir það mjög sannfærandi. Það er vissulega hægt að mæla með þessari mynd, því hún er bæði skemmti- leg og spennandi og fjallar þar að auki um viðfangsefni, sem ætti að vera öllum tilefni til umhugsunar - því ef svo skyldi fara, sem gert er ráð fyrir í myndinni, að Arabarnir kippi peningum sínum út úr vestræna bankakerfinu, þá munu af- leiðingar þess dynja á okkur sem og öllum öðrum þjóðum í hinum vestræna heimi. -ESJ Rollover r" ..... ........ ..........— — VIÐ HÖNNUM, TÖLVUSETJUM OG PRENTUM SKÝRSLU- OG REIKNINGSEYÐUBLÖÐ FYRIR TÖLVUR. TÖLVUPAPPÍR Á LAGER. NÝ, FULLKOMIN LEISER-LJÓSSETNINGARVÉL OG PRENTVÉLASAMSTÆÐA. REYNIÐ VIÐSKIPTIN. PRENTSMIDJAN £JLL F. Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur, sími 45000 RÍKISSPITALARNIR lausar stöður Landspítalinn SÉRFRÆÐINGUR í geislagreiningu óskast við rönt- gendeild. Umsækjandi þarf að hafa reynslu í hjarta- og æðaþræðingum einkum með tilliti til kransæða- skoðana. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist stjórnarnefnd ríkisspítalanna fyrir 15. júní n.k. á þartil gerðum eyðublöðum. Upplýsingar veita yfirlæknar röntgendeildar í síma 29000. AÐSTOÐARLÆKNAR (2) óskast við geislalækninga- deild til 6 mánaða frá 15ffjúní n.k. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist skrifstofu ríkisspítalanna fyrir 30. maí n.k. ásérstökum umsóknareyðublöðum lækna. Upplýsingar veita yfirlæknar röntgendeildar í síma 29000. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast við lyflækninga- deildir HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast við blóðskilunar- deild HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast við taugalækn- ingadeild. Upplýsingar um ofangreindar stöður veitir hjúkrunar- forstjóri í síma 29000. LJÓSMÓÐIR óskast til afleysinga á Kvennadeild Landspítalans. Upplýsingar veitir yfirljósmóðir í síma 29000. STARFSMAÐUR óskast strax til afleysinga í birgða- stöð ríkisspítalanna aö Tunguhálsi 2. Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma 29000. Geðdeildir Ríkisspítalanna HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast á dagdeild geðdeildar Barnaspítala Hringsins. HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast við geðdeild Landspítalans 32C frá 1. júlí n.k. eða eftir samkomu- lagi. FÓSTRAóskastviðgeðdeild Barnaspítala Hringsins. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast til sumarafleys- inga á ýmsar deildir. Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkrunarfor- stjóri Kleppsspítala í síma 38160. Skrifstofa Ríkisspítalanna KERFISFRÆÐINGUR óskast til frambúðar við tölvu- deild ríkisspítalanna fyrir 20. maí n.k. Upplýsingar veitir forstöðumaður tölvudeildar í síma 29000. RÍKISSPÍTALAR Reykjavík, 1. maí 1983. Þú færð allt fyrir gæludýrin hjá okkur. Sendum í póstkröfu. AMASON Laugavegi 30 - sími 91-16611. Meltaway Snjóbræðslukerfi í bílastæði, tröppur, götur, gangstíga torg og íþróttavelli. Síminn er: 77400 Þú nærð sambandi hvort sem er að nóttu eða degi. PÍPULAGNIR sf. Smiðjuvegur 28 — BOX 116 202 Kópavogur

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.