Tíminn - 15.05.1983, Síða 7
SUNNUDAGUR 15. MAÍ1983
Hver var þessi Edouard Manet?
Hann var fæddur í Paris árið 1832 og
tilheyrði stétt efnaðra borgara. Faðir
hans var embættismaður ríkisins og
riddari Heiðursfylkingarinnar. Móðir
hans var dóttir fransks ræðismanns í
Svíþjþð. Uppvaxtarár hans voru því vel
skipulögð, og menntun hans miðuð við
framtíðarstarfið sem átti að verða lög-
fræði eða opinbert embætti. En Manet
teiknaði fremur en að lesa og þegar
námstímanum í Collége Rollin lauk
1848, vildi hann verða málari, fjölskyldu
sinni til mikillar skelfingar. Eftir að hafa
farið eina ferð til Brasilíu sem sjóliðsfor-
ingjaefni tókst honum að hafa sitt fram
og fara á vinnustofu málarans Coutures.
Sundurþykkjan milli hans og kennar-
ans varð brátt mikil. „Ég veit ekki hvers
vegna ég er hér,“ sagði hann. „Allt það
sem við sjáum er hlægilegt. Birtan er
röng, skuggarnir eru rangir. Þegar ég
kem inn í vinnustofuna finnst mér ég
koma í dauðs manns gröf. Ég veit vel að
fyrirsæta getur ekki afklætt sig úti á götu,
en það eru þó til opin svæði og á sumrin
að minnsta kosti væri hægt að mála eftir
nöktum fyrirmyndum úti á landi, því
mannslíkaminn virðist vera mikilvæg-
asta viðfangsefni listarinnar."
Árið 1856 yfirgaf Manet vinnustofu
lærimeistara síns, leigði sér vinnustofu í
Rue Lavoisier. Fyrstu myndirnar, sem
vitað er um, urðu þar til. Hann fór í
ferðalög og heimsótti listasöfn í Þýska-
landi og á Ítalíu. Eftir Parísarsýninguna
1865 fór hann til Spánar og varð fyrir
talsverðum áhrifum af spænskri myndlist
og aðdáun hans á málaranum Velazques
leynir sér ekki.
„Komið og sjáið
heiðarleg verk“
Árið 1867 stóð Heimssýningin yfir í
París. {tilefni af því var mikil listsýning
ráðgerð og lagði Manet fram nokkrar
myndir, en þeim var hafnað. Hann hélt
þá sérsýningu til að missa ekki af hinu
einstæða tækifæri og sýna verk sín fólki
víðsvegar að úr heiminum. Formálinn
að sýningarskránni, sennilega saminn af
Manet sjálfum, þykir mjög athyglisverð-
ur. „Listamaður nú á dögum segir ekki:
komið og sjáið gallalaus verk, heldur:
komið og sjáið heiðarleg verk. Heiðar-
leikinn hefur það í för með sér að verkin
orka líkt og mótmæli, enda þótt lista-
maðurinn hugsi ekki um annað en að
lýsa reynslu sinni. Herra Manet ætlaði
sér aldrei að mótmæla. Honum hefur
aftur á móti verið hafnað fullkomlega
grandalausum, vegna þess að til eru
hefðbundnar kenningar um eðli og áhrif
málverka og vegna þess að þeir sem aldir
eru upp við slíkar reglur viðurkenna
engar aðrar. Af þessu verða þeir barna-
lega umburðarlausir. AHt það sem er
ekki samkvæmt þeirra reglum er einskis
virði og þeir gerast ekki aðeins gagnrýn-
endur heldur einnig andstæðingar, virkir
andstæðingar."
Ekki viðurkenning
í lifanda lífí.
Á næstu árum sneri Manet sér að gerð
nýrrar tegundar raunsæisverka með
sögulegri skírskotun, en þar sem sagn-
fræðileg nákvæmni einstakra atriða var
látin lönd og leið. Hin opinbera afstaða
gagnvart honum breyttist þó ekkert að
ráði. Honum hlotnaðist minniháttar
viðurkenning, einkum fyrir hversdags-
legustu myndirnar; meiriháttar, varan-
lega viðurkenningu hlaut hann aftur á
móti ekki meðan hann lifði. Þó var
honum veitt merki Heiðursfylkingarinn-
ar árið 1881. Það var fyrst og fremst
kurteisisvottur, en ekki til marks um
aukinn skilning á verkum listamannsins.
Árið 1877 lagði Manet fram mynd
sína „Nönu“ og var þá enn einu sinni
vfsað frá hinni opinberu listsýningu. Á
þessum árum varð Manet málari Parísar-
lífsins. Fyrir utan hinar mörgu og merku
mannamyndir sínar málaði hann myndir
frá kaffihúsum og skemmtistöðum, en
þó einkum Parísarkonuna. Hann málaði
garðveislur, knattleik eða skemmti-
göngu á bökkum Signu, siglingu, atvik
frá sumarleyfi út við ströndina eða frá
veðreiðum í Longchamp og margar
þessara mynda voru málaðar undir beru
lofti.
Edouard Manet lést 30.apríl 1883.
„Hann var meiri en við héldum", sagði
málarinn Degas eftir jarðarför Manets
og þau orð fóru um alla París.
(Byggt á:Edouard Manet.Heinrich Trost
sá um útgáfuna. Mál ogmenning 1962.)
SIS
W
/?/Kl
Sjúkrahús á Akureyri
Tilboð óskast í innanhússfrágang í hluta kjallara í þjónustubyggingu
sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða nálægt 675 m2 rými fyrir
lyfjabúr og aðalgeymslu sjúkrahússins.
Verktaki skal setja upp innveggi, hurðir og hengiloft, mála, ganga frá
gólfum og smíða innréttingar. Auk þess skal leggja loftræsi-, raf-,
vatns- og skolplagnir ásamt kælibúnaði.
Verkinu skal að fullu lokið 1. okt. 1983
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík
og á skrifstofu sjúkrahússins gegn 2.500 kr. skilatryggingu.
Tilboö verða opnuð hjá Innkaupastofnun ríkisins þriðjudaginn 31.
mai 1983 kl. 11.00
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
ÆSKULÝÐSRÁÐ REYKJAVÍKUR
Sölutjöld
17. júní í Reykjavík
Þeir sem óska eftir leyfi til sölu úr tjöldum á þjóðhátíöar-
daginn vinsamlegast vitjið umsóknareyðublaða að Frí-
kirkjuvegi 11, opið kl. 08.20-16.15
Athygli söluhafa er vakin á því, að þeir þurfa að afla
viðurkenningar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkursvæðis á
sölutjöldum og leyfi þess til sölu á viðkvæmum neyslu-
vörum.
Umsóknum sé skilað í síðasta lagi miðvikudaginn 1.
júní.
Æskulýðsráð Reykjavíkur
Staðarval fyrir orkufrekan iðnað
Forval
Nýútkomin skýrsla Staðarvalsnefndar „Staðarval fyrir
orkufrekan iðnað - Forval" er til sölu í bókabúð Máls og
menningar, bókabúð Sigfúsar Eymundssonar og bók-
sölu stúdenta. Verð bókarinnar er 385 kr.
Staðarvalsnefnd um iðnrekstur
Almennu verkfræðistofunni
Fellsmúla 26
sími38590
Massey Ferguson
7
MF 240-8
MF 265-8
MF265-4WD
MF 675-8
MF675-4WD
(Verft pr. 22.04 1983)
47 hö
63 hö
63 hö
69 hö
69 hö
268. þús.
346. þús.
456. þús.
408. þús.
494. þús.
Varanleg vél á góðu verði
Kaupfélögin
Z)AóL££a>tiAéla/t A/
Suðurlandsbraut 32 - Sími 86500
Reykjavík
Símaskráin 1983
Afhending símaskrárinnar 1983 hefst mánudaginn 16.
maí til símnotenda.
í Reykjavík verður símaskráin afgreidd á Aðalpósthús-
inu, gengið inn frá Austurstræti, mánudag til föstudags
kl. 9-17.
í Hafnarfirði verður símaskráin afhent á Póst- og
símstöðinni Strandgötu 24.
í Kópavogi verður símaskráin afhent á Póst- og
símstöðinni, Digranesvegi 9.
Varmá í Mosfellssveit verður símaskráin afhent á Póst-
og símstöðinni.
Þeir notendur, sem eiga rétt á 10 símaskrám eða
fleirum, fá skrárnar sendar heim.
Símaskráin verður aðeins afhent gegn afhendingar-
seðlum, sem póstlagðir hafa verið til símnotenda.
Athygli skal vakin á því að símaskráin 1983 gengur
í gildi frá og með miðvikudeginum 1. júní 1983.
Frá sama tíma fellur úr gildi símaskráin 1982 vegna
fjölda breytinga, sem orðið hafa frá því hún var gefin út.
Póst og símamálastofnunin.
OLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIDJAN
Œ HF.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 45000
NOTAR^I
ÞÚ n.
FAHR Sláttuþyrlur til afgreiðslu strax á gamla verðinu.
Tvær stærðir: KM-22 vinnslubreidd 1,65m og KM-24 vinnslubreidd 1,85m.
Hafiðsamband strax og tryggið ykkur vél á þessu hagstæða verði.
F= ÁRMÚLA11 SfMI 81500
■