Tíminn - 15.05.1983, Qupperneq 9

Tíminn - 15.05.1983, Qupperneq 9
Stjornmalamenn verða að þora að fást við vandann Allur þingheimur berðist ■ Egill Skallagrímsson dvaldi síðustu æviár sín hjá Þórdísi Þórólfsdóttur, bróðurdóttur og stjúpdóttur sinni. og manni hennar Grími Svertingssyni lög- sögumanni og miklum höfðingja, sem bjó á Mosfelli fyrir neðan Heiði. í Egilssögu segir m.a. frá dvöl hans þar á eftirfarandi hátt: „Þat var á dögum Hákonar ins ríka öndverðum, þá var Egill Skalla-Gríms- son á níunda tigi, ok var hann þá hress maðr fyrir annars sakar en sjónleysis. Þat var um sumarit, er menn bjugg- ust til þings, þá beiddi Egill Grím að ríða til þings með honum. Grímr tók því seinliga. Ok er þau Grímr ok Þórdís töluðust við, þá sagði Grímr henni, hvers Egill hafði beitt. „Vil ek, at þú forvitnist, hvat undir mun búa bæn þessi." Þórdís gekk til máls við Égil, frænda sinn. Var þá mest gaman Egils at ræða við hana. Ok er hon hitti hann, þá spurði hon: „Er þat satt, frændi. er þú vill til þings ríða? Vilda ek, at þú segðir mér, hvat væri í ráðagerð þinni." „Ek skal segja þér," kvað hann. „hvat ek hefi hugsat. Ek ætla at hafa til þings með mér kistur þær tvær. er Aðalsteinn konungr gaf mér, er hvar- tveggja er full af ensku silfi. Ætla ek at láta bera kisturnar til Lögbergs, þá er þar er fjölmennast. Síðan ætla ek at sá silfrinu, ok þykkir mér undarligt, ef allir skipta vel sín í milli. Ætla ek, at þar myndi vera þá hrundningar eða pústrar, eða bærist at um síðir. at allr þingheimrinn berðist." Þórdís segir: „Þetta þykkir me'r þjóðráð, ok mun uppi, meðan landit er byggt." Síðan gekk Þórdís til tals við Gríni ok sagði honum ráðagerð Egils. „Þat skal aldri verða. at hann komi þessu fram, svá miklum firnum." Ok er Egill kom á ræður við Grím um þingferðina, þá taldi Grímr þat allt af, ok sat Egill heima um þingit. Eigi líkaði honum þat vel. Var hann heldr ófrýnn." íslenzk heimsmet Það er ekkert undarlegt, þótt mönnum komi framangreind frásögn Egilssögu í hug, þegar leiftursóknar- stefnu Sjálfstæðisflokks og Bandalags jafnaðarmanna ber á góma. Báðir virðast þessir flokkar sammála um það sem aðal.úrræði í efnahagsmál- um að fella úr lögum vísitölubætur á kaup og láta stéttirnar síðan berjast um hvað eigi að koma í staðinn. Þær verði síðan að bera ábyrgð á þeim samningum, sem upp úr þessu koma. Raunverulega er hér verið að efna til stórfelldra átaka, sem endað gætu með því, eins og var óskhyggja Egils, að „allur þingheimur berðist." Stórfellt tjón að slíkum átökum myndi gera stöðu þjóðarbúsins enn verri. Það myndi síðan bitna á þegnun- um á margvíslegan hátt. Þessi leið hefur áður verið farin á Islandi. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks- ins og Alþýðuflokksins greip til hennar á árunum 1968-1970. Hún felldi úr gildi lög, sem hún hafði sjálf sett um vísitölubætur á laun. og lýsti yfir því, að það ætti að vera mál stéttasamtak- anna að semja um þetta. Stéttasamtökin hófu viðræður og náðu ekki samkomulagi. í kjölfarið fylgdu á árunum 1968-1970 stórfelldari verkföll en hér hafa nokkru sinni verið. Samkvæmt alþjóðlegum skýrsl- um átti ísland heimsmetið í verkföllum á þessum árum, þegar miðað var við mannfjölda og tapaða vinnudaga vegna verkfalla. Verkföllin höfðu í för með sér stórfellda tekjuskerðingu fyrir megin- þorra launafólks. Þau veiktu einnig stórlega efnahagsstöðu atvinnuveg- anna. Afleiðingarnar urðu stórfellt atvinnuleysi. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum setti ísland heimsmet í at- vinnuleysi á þessum árum. cn yfirleitt var þá næg atvinna í flestum löndum heims. Menn eru yfirleitt fljótir að gleyma nú til dags. Furðulegt væri þó, ef menn væru búnir að gleyma verkföllunum, atvinnuleysinu og landflóttanum, sem einkenndi þessi ár á íslandi. Vilja losna við ábyrgðina Því skal síður en svo haldið fram, að það sé ásetningur leiftursóknarflokk- anna að koma á ófriðarástandi í þjóðfélaginu, svipuðu því, scm Egill Skallagrímsson vildi efna til á Lög- bergi. Fjarri fer því. Egill Skallagrímsson lét stjórnast af hugarfari víkings, sem vildi énn einu sinni heyra stríðsóp og vopnagný, áður en hann félli frá. Sumir hafa einnig fært Agli þaö til afsökunar, að hann hafi vcrið orðinn elliær, þegar hér var komið sögu. Fyrir talsmönnum lciftursóknar- stefnunnar vakir það ekki að valda ófriði. Þeir eru lieldur ekki clliærir. Hins vegar skortir þá kjark til að grípa þannig í taumana, að ófriði verði afstýrt. Þcir víkja vandanum og ábyrgðinni frá sér. Aðilar vinnumark- aðsins verða að leysa þetta mál fyrir þá, þótt því geti fylgt mikill ófriður og stórfellt tjón fyrir alla. Skylda Alþingis Þegar árferði er sæmilegt og cfna- hagsástand viðunandi, er eðlilcgt, að aðilar vinnumarkaðarins leysi sjálfir ágrciningsmál sín, því að þá er meiri mögulcik i til þess, að þessi mál lcysist friðsamlega og á þann hátt, sem flestir geta unað við. Þetta gegnir hins vcgar öðru máli, þegar það, sem til skiptanna er, fcr síminnkandi. Þá verður erfiðara að skipta og átökin því mciri. Þá er ekki sízt hætta á, að vcrst fari út úr átökunum þeir, sem sízt skyldi, bág- stöddustu atvinnugreinarnar og tckju- lægsta launafólkið. Það er vegna framangreindra á- stæðna, sem Framsóknarflokkurinn liefur lagt áherzlu á bæði fyrir alþingis- 'kosningarnar og eftir þær, að málum sé nú orðið þannig háttað, að Alþingi verði að grípa í taumana og lögbinda vissar tímabundnar aðgerðir, sem tryggi hjöðnun verðbólgunnar í áföng- um, án þess að það leiði til vcrkfalla, atvinnuleysis og kjaraskerðingar, eins og hvarvetna hefur orðið, þar sem leiftursóknarleiðin hefur verið farin, þegar aðstæður hafa veriö svipaðar og þær eru hér nú. Samkvæmt spám sérfræðinga stefnir verðbólgan nú í 100% og jafnvel meira. Sumir hafa nefnt 110%. Það þarf snögg handtök til- að afstýra þessu. Það er ekki hægt að ætlast til þess af stéttasamtökunum, að þau geti leyst þetta, eins og allt er í pottinn búið, á stuttum tíma. Slíkt myndi enda með átökum eins og 1968-1970. Engin stofnun og engin samtök hafa völd og myndugleika til að grípa hér nægilega í taumana önnur en Alþingi. Slíkt vald hefur það samkvæmt stjórn- skipunarlögunum. í raun réttri hefur það ekki aðeins þetta vald, heldur ber því öll skylda til að beita því undir þeim kringumstæðum, sem nú eru. Rothöggin Miðstjóm Alþýðusambands íslands og stjórn BSRB hafa sent frá sér athyglisvcrða ályktun í tilefni af þcim efnhagsvanda, scm nú cr fcngizt við. Oftast hefur þaö veriö hljóðið í slíkum ályktunum frá þcssufn aðilum að frekar lítið hefur verið gert úr vandanum og því krafizt hækkana á grunnkaupi cða kjarabóta í öðru formi. Þetta er ekki gert nú. Þvert á móti er viðurkennt, aö þjóðinni sé mikill vandi á höndum og stórfcllt atvinnuleysi yfirvofandi, cf ekki verði beitt réttum aðferöum til að koma í veg fyrir það. í framhaldi ályktunarinnar segir svo á þessa leið: „Verkalýðshreyfingin lítur svo á, að frumskylda stjórnvalda á sviöi efna- hagsstjórnar sé' að tryggja fulla at- vinnu. Ánauö atvinnuleysis er böl, scm bægja verður frá. Miðstjórn Al- þýðusambands íslands og stjórn BSRB lcggur þunga áhcrzlu á, að lausn þcssa vanda gctur í höfuðatriöum farið sam- an viö lausn þess almcnna vanda, sem viö cr aö glíma í efnahagsstjórn. Vcrðbólagn vcrður ekki læknuð mcð rothöggi 1. júní cða I. scptcmbcr. Hún vcröur ckki læknuö meö aðgcrð- arlcysi atvinnulcysis. Gegn vandanum vcrður að ráöast mcð virkri atvinnu- uppbyggingu scm kjarna nýrrar efna- hagsstcfnu. Þjóðin vcröur að vinna sig út úr vandanum, en hörfa ckki á vit samdráttar, langvinnrar lífskjara- skcrðingar og atvinnulevsis." Allt cr þctta hárrétt.Yfiratvinnuvcg- unum og atvinnuörygginu vofir rot- högg 1. júní og I. september. Hækki kaupið um 20% 1. júní næstkomandi og aftur um önnur 20% 1. september, veröa þau atvinnufyrirtæki ckki mörg, scnt cftir standa. Hér verður þá komið bullandi atvinnuleysi, þegar haustið gengur í garð. Fjöldi launafólks mun þá sjá fram á einn erfiðsta vetur í manna minnum. Hvernig verður rothöggunum afstýrt? Viðræður þær, sem hafa íarið fram undanfarið um stjórnarmyndun Fram- sóknarflokksins og Sjálfstæðisflokks- ins, hafa snúizt um þetta fyrst og fremst og raunar ekki annað: Hvernig veröur því afstýrt aö atvinnuvegirnir og atvinnuöryggið fái rothögg næstu mánuði vegna víxlhækkana núgildandi vísitölukerfis, sem jafnframt mun þó hafa verulega kjaraskeröingu i för meö sér. Þetta er aðalverkefnið, scm nú bíður íslenskra stjórnmálamanna. Illu heilli hefur Alþýðuflokkurinn skorizt úr leik í þessum viðræðum vegna þess að hann setur það á oddinn að fá forsætisráðhcrrann. Alþýöu- bandalagið hefur einnig staðið utan við og er ástæöan sögð sú, að þaö setur meira á oddinn að stöðva tlugstöðvar- hygginguna en að bjarga titvinnuörygg- inu. í lok ályktunar Alþýðusambandsins og BSRB er rætt um nokkur framtíð- arverkefni, sem þátt í því að tryggja hér blómlegt atvinnulíf í framtíðinni. Flest, sem þar er talið upp, er rcttmætt og æskilegt. En þessi verkefni eiga það yfirlcitt sameiginlcgt, aö þau, vcrða ekki leyst nema á lengri tíma. Þau geta ekki komið í gagnið fyrir 1. júní eða I. scptemhcr. Verði því ekki afstýrt áöur að atvinnuvegirnir og atvinnuöryggið fái rothöggiö, mun það reynast miklu erfiðara en clla að fást við umrædd verkefni í framtíöinni. Vandinn hefur oft verið meiri Þótt cfnahagsvandinn, sem nú er glímt við, sé mikill, hefur þjóðin oft þurft að fást viö miklu stærri vandamál og tekizt að vinna bug á þeim. Þaö er góð hvatning að minnast þess nú. Þannig var t.d. ástatt, þcgar ný ríkisstjórn kom til valda á miðju ári 1971, að afloknu liinu svonefnda viö- reisnartímabili. Þá haföi um skeið veriö mikiö at- vinnulcysi og veruleg kjararýrnun. Vcrðbólga var hér miklu mciri en annars staðar. FiskiskipastólIinn var að mcstu oroinn úreltur og sama gilti um frystihúsin. Fiskveiöilandhclgin var ekki nema tólf mílur. Erlend fiskiskip rányrktu fiskimiöin utan 12 mílna markanna. Hin nýja ríkisstjórn brcytti vörn í sókn. Fiskvciðilandhclgin var færð út í 60 mílur og það gerði síðar mögulcgt að færa hana út í 200 mílur. Fiski- skipastóllinn var endurnýjaður og frystihúsin endurbætt og búin nýjunt tækjum. Þannig mætti halda upptaln- ingunni áfram, því að framfarasóknin náöi til flcstra sviða þjóðfélagsins. Síöár syrti nokkuð á álinn, þegar olíukreppan kom til sögunnar og olli mikilli veröbólgu og efnahagsvanda hér cins og annars staðar. Samt var kaupmáttur verkamannalauna þriðj- ungi meiri í lok áratugarins en upphafi hans. Þetta sýnir, að þjóðin getur sigrazt á miklum vanda og búið sér batnandi lífskjör, ef rösklega er á málum tekið. Það er engin ástæða lil svartsýni nú, ef forustumcnnirnir gera skyldu sína og þjóðin gerir sér Ijóst, að hún þarf að axla nokkrar byrðar um stund til að geta tryggt bctur framtíð sína. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.