Tíminn - 15.05.1983, Side 25

Tíminn - 15.05.1983, Side 25
SUNNUDAGUR 15. MAI 1983 25 í mjS ÍÆP u .3- f-n 1 J Mí: á f Frábærustu lýsingu á glæpamanni gerði James A. Brussel, sálfræðingur í Greenwich Village á ofanverðum sjötta áratugnum, til. aðstoðar lögreglunni í New York, sem þá leitaði Brjálaða sprengjumannsins í New York. Sprengju- maðurinn reyndist vera George Met- esky, ógæfusamur atvinnuleysingi. Met- esky hafði sprengt 32 sprengjur á átta ára tímabili. Eftir að hafa legið yfir bréfum frá sprengjumanninum og grannskoðað myndir af sprengjustöðun- um gat Brussel sér þess til að glæpamað- urinn væri frá Austur-Evrópu, 40 til 50 Þegar Metesky var handtekinn skömmu síðar í Waterbury í Connecticut átti Iýsingin einstaklega vel við hann að öllu leyti, allt niður í klæðaburðinn. (Metesky bjó reyndar með tveimur ógift- um systrum sínum). En aðrar lýsingar sjálfstæðra sálfræðinga og geðlækna hafa oft brugðist, andstætt lýsingum sérfræð- inga FBI. Sumar hafa verið svo óljósar að þær hafa getað átt við hvern sem er. Sálrænar lýsingar geta í versta falli hindrað rannsóknir með því að leiða lögregluna á ranga slóð. Á sjöunda áratugnum ætlaði hópur sálfræðinga og „ Ég held að sálfræðingar og geðlæknar eigi ekkert erindi í lögregluna og það er tilgangslaust fyrir þá að þykjast vera einhverjir sérfræðingar í því að semja lýsingar á afbrotamönnum," segir Park Elliott Dietz prófessor við háskólann í Virginíu og aðal sálfræðingurinn í réttar- höldunum yfir John W. Hinckley Jr. „Það sem skilur á milli er það að starfsmenn FBI hafa mikla reynslu í að rannsaka og leysa ráðgátur og þeir geta sett glæpinn á svið með þjálfuðum heilum sínum.“ Eru mcrki um mikla barsmíð á andlit- inu? Almenna reglan er sú að ruddaleg árás á andlitið, eins og á líkinu í Bronx, merki það að morðinginn hafi þekkt fórnarlambið; því harkalegri sem bar- smíðin var, því nánara var samband þeirra. Var fórnarlambið drepið undir- eins með skyndiárás? Sé svo bendir það tii þess að morðinginn sé ungur að árum, rétt um tvítugt í mesta lagi, finnist fórnarlambið ógna sér og þurfi að gera það skaðlaust eins fljótt og auðið er. Hafi morðinginn á hinn bóginn haft aðstæður í hendi sér, ef hann drap hægt, N Starfsmenn Atferlisrannsóknar- stoðvar FBI, sitjandi frá vinstri, við borð þakið myndum frá morðstöðum: Richard Ault, Roger Depue, Robert Roessler, John Douglas. Standandi frá vinstri: Roy Hazelwood, Jim Reese, Swanson Carter, Robert Scliaefer, Ken Lanning. David Berkowitz, „Sonur Sáms“ - þau kvöld sem hann fann enga til að myrða, fór hann eitthvert þangað sem hann haf ði áður myrt eitt af fórnarlömbum sínum - til þess að endurskapa atburðinn i huga sér. ára gamall og byggi með ógiftri frænku sinni eða systur í einhverri borg í Connecticut. Hann hataði föður sinn, en elskaði móður sína, en þá ályktun dró Brussel af því hvernig Metesky rúnnaði af skörp homin þegar hann skrifaði bókstafinn W, þannig að þau líktust skopteikningum af brjóstum kvenna. Greining Brussels var sú að Metesky væri haldinn ofsóknaræði og væri yfir- máta smámunasamur í háttum. Brussel sagði ennfremur að þegar hann næðist yrði hann klæddur vesti innan undir jakkanum, og yrði hvort tveggja vand- iega hneppt að honum. geðlækna að aðstoða lögregluna við að hafa hendur í hári morðingjans í Boston sem kyrkti konur. Sálfræðingahópurinn áleit að hann væri ekki einn og sami maðurinn, heldur tveir sem báðir byggj u einir og störfuðu sennilega sem kennar- ar. Annar þeirra væri kynvilltur, sögðu sálfræðingarnir og geðlæknarnir. Síðar viðurkenndi einn maður morðin í Boston, Albert DeSalvo. Hann bjó með konu sinni og tveimur börnum og vann sem byggingarverkamaður. Þeir lög- reglumenn sem áttu að leita morðingjans á meðal kynvilltra Bostonbúa hefðu aldrei fundið hann. Meðferð fórnarlambsins afhjúpar morðingjann Pegar starfsmenn FBI semja lýsingar sínar rannsaka þeir vandlega hvert smá- atriði sem fram kemur í líkskoðunar- skýrslunum og þeir skoða einnig sérhvert smáatriði þeirra korta sem gerð eru af morðstaðnum. Einnig rannsaka þeir Ijósmyndirnar mjög nákvæmlega. Með- ferð fórnarlambsins segir mjög mikið um morðingjann. „Maður sem breiðir föt eða dúk yfir líkið, eða felur það, er- að segja það að verknaðurinn valdi honum vanlíðan,“ segir Douglas sem vinnur fyrir FBI, en hann hefur meistara gráðu í sálarfræði menntunar frá háskól- anum í Wisconsin og hefur samið lýsing- ar á 450 morðingjum. „Ef hann flytur Iíkið þangað sem víst er að það muni finnast getur verið að hann beri einhverjar tilfinningar til fórnarlambs- ins. Þá kærir hann sig ekki um að það verði veðri og vindum að bráð heldur vill hann að það verði jarðsett með tilheyr- andi viðhöfn". Þegar lýsingarnar eru unnar er sér- staklega athugað á hvern hátt manneskj- an var myrt, hvers konar vopn var notað og hvað morðinginn gerði við fórnar- lambið eftir að það var látið. Það sem einkennir kynferðis morð er það að fórnarlambið er stungið, kyrkt, eða barið í hel, en yfirleitt ekki skotið. Ef morðinginn kom með sitt eigið vopn bendir það til þess að hann sé fremur skipulegur, jafnvel kænn, komi úr öðrum borgarhluta og hafi sennilega verið akandi. Ef morðinginn notaði hvaða vopn sem var við höndina - eldhúshníf eða lampasnúru - bendir það til tilviljunarkenndari athafnar eða stundaræðis, óskipulegs persónuleika. Það bendir einnig til þess að morðinginn hafi verið gangandi og búi í nágrenninu. Hafið þér ónæði af flugum? Flugnafælan sér við því. SHELLTOX OG VAPONA FLUGNA FÆLAN Lyktarlausu flugnafælurnar fást á afgreiölustööv- um Skeljungs og í fjölda verslana um land allt. Fáanlegar í tveimur stærðum og endast í að minnsta kosti fjóra mánuði SKELJUNGUR HF. Smávörudeild Sími: 81722

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.