Tíminn - 22.05.1983, Síða 8

Tíminn - 22.05.1983, Síða 8
8 SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gisli Sigurösson. Augiýsingastjóri: Steingrímur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjóri: Siguriur Brynjólfsson. Rltstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjórar: Kristinn Haligrímsson og Atli Magnússon. Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Guðmundur Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik Indriðason, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (iþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristín Þorbjarnardóttir, María Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Síðumúia 1S, Reykjavík. Sími: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsimar: 86387 og 86392. Verð í lausasölu 15.00, en 18.00 um heigar. Áskrift á mánuði kr. 180.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Reiknað út í fenið ■ Halldór Ásgrímsson, varaformaður Framsóknarflokks- ins, fjallar um efnahagsmálin og stjórnarmyndunartilraunirn- ar, sem nú standa yfir, í grein, sem birtist í „Austra“ á fimmtudaginn. Far segir Halldór m.a: „Margar tilraunir hafa verið gerðar tij að draga úr þeirri verðbólgu, sem ógnað hefur atvinnulífi íslendinga á undan- förnum árum. Allar tilraunir eiga það sameiginlegt, aðdregið hefur verið úr sjálfvirkni verðlags og launa. Þeir, sem kynnt hafa sér vandamálin, eru sammála um, að ekki verður komist út úr verðbólgudansinum án slíkra aðgerða. Hefur þá venjulegast hafist mikið áróðursstríð, þar sem því er haldið fram, að með því sé kaupmáttur launa skertur svo, að öllum almenningi verði það óbærilegt. Nú hefur Þjóðviljinn byrjað að reikna á ný og fundið út, að tillögur í efnahagsmálum þýði skerðingu kaupmáttar um 20-25%, hvernig sem það er nú fundið. Hvað þýða þessir útreikningar ? Þýða þeir í reynd að það sé best fyrir heimilin að við búum við óbreytt ástand? Með útreikningunum er verið að halda því fram. En sannleikurinn er sá, að við munum ekki geta reiknað okkur út úr vandanum. Þótt réttir útreikningar séu ágætir til að styðjast við verður almenn skynsemi að ráða ferðinni. Þjóðviljinn reiknar vitlaust eins og oft áður. Ef verðbólgan gengur óheft áfram munu undirstöðu- atvinnuvegir þjóðarinnar lamast, og hver verður kaupmáttur- inn þá. Ef heldur áfram sem horfir munum við safna miklum skuldum erlendis, sem einhvern tíma verður að greiða. Eru það heilbrigð sjónarmið að halda uppi okkar eigin kaupmætti, og síðan skuli afkomendurnir greiða ? Þar að auki höfum við enga vissu fyrir því, að hægt sé að fá endalaus lán erlendis. Það er hins vegar engin ástæða til að vera með svartsýni. Við getum vel stöðvað þá verðbólguskrúfu, sem nú gengur hér á landi. Við getum vel tryggt sjálfum okkur og afkomendum okka'r góða afkomu, ef við höfum skynsemi til að halda rétt á málum og láta ekki stundarhagsmuni villa okkur sýn. Árið 1978 trúðu menn því, að kaupmáttur yrði best varinn með því að láta vísitölukerfið æða óheft áfram. Nú erum við reynslunni ríkari. Og það er mikilvægt, að sá róðursleikur verði ekki endurtekinn. Þeir sem fvrir slíku standa eru vonandi óafvitandi að reikna okkur út í fenið. Við þurfum ekkert á slíkum útreikningum að halda. íslendingar eru skynsöm þjóð, sem skilur að ekki dugar að eyða meiru en aflað er. Hins vegar er mönnum ljóst, að þegar dregið er úr verðbólgu er ekki sama, hvernig það er gert. Það má hvorki gera of hratt né of hægt, og meðalvegurinn er hér vandrataður sem annars staðar. Sumir eru betur undir það búnir að mæta - slíku tímabili en aðrir. Því er mikilvægt að það sé gert af fyllstu sanngirni. Fyrir þessu hefur Framsóknarflokkurinn barist. Það gerði hann fyrir síðustu kosningar og það gerði hann í síðustu ríkisstjórn. í þeim umræðum um stjórnarmyndun, sem þegar hafa farið fram, hefur Framsóknarflokkurinn lagt á það höfuð- áherslu, að gegn verðbólgunni yrði barist. Nú duga ekki lengur fögur fyrirheit, það verður að ná árangri. Vonandi bera menn gæfu til að mynda hér ríkisstjórn, sem getur tekist á við þessi mál. Við stöndum vissulega á vegamótum. Og nú reynir á, hvort stjórnmálamenn reynast vandanum vaxnir. - En mikilvægast af öllu er þó, að þeir hafi stuðning í viðleitni sinni og menn láti ekki glepjast af falskenningum reiknimeist- ara, er setja tölur á blað, sem ekki eiga sér stoð í veruleikanum. Þegar forfeður okkar voru að takast á við vandamál kreppunnar og hörð öfl náttúrunnar var ekki gripið til reiknivéla, þegar finna átti lausnina. Þeir beittu almennri skynsemi, létu sig litlu skipta úrtölur svartsýnismanna. Við eigum þeim skuld að gjalda. Vonandi verður það ávallt þannig, og það sama verði sagt um okkur sem nú byggjum landið. Til þess að svo megi verða er það skylda okkar að koma í veg fyrir frekari skuldasöfnun erlendis, stöðva verðbólguskrúfuna, varðveita þjóðlega menningu og byggja upp atvinnulíf, sem er þess megnugt að standa undir kröfum okkar til lífsgæöa," segir í grein Halldórs. - ESJ Að lokinni • •• sjo ára fang- elsis- martröð Breyten- bachs JKAÐ KOMST Á SÍÐUR DAGBLAÐA VÍÐA UM HEIM ÞEGAR SUÐUR-AFRÍSKA SKÁLDINU BREYT- EN BREYTENBACH VAR SLEPPT ÚR FANGELSI Á SÍÐASTLIÐNUM VETRI OG LEYFT AÐ FARA TIL FRAKKLANDS. Hann hafði þá dvalið í suður-afrísku fangelsi í sjö ár, því hann var handtekinn árið 1975 - þá 36 ára að aldri og viðurkenndasta nútímaskáldið, sem orti á afríkönsku - tungumáli Búanna, sem öllu ráða í Suður-Afríku. Áhrifamenn í Frakklandi þar á meðal Mitterrand forseti, höfðu lengi barist fyrir því, að Breytenbach yrði látinn laus, og að lokum báru þær tilraunir árangur og honum var hleypt til Frakklands í desember síðastliðinn, þar sem kona hans, Yolande, beið hans. Donald Woods, sem starfaði lengi sem blaðamaður í Suður-Afríku, en varð að lokum að flýja Iand vegna yfirgangs stjórnvalda, átti nýlega viðtal við Breyten Breytenbach í París. Viðtalið, ásamt nánari upplýsingum Woods, birtist fyrir skömmu og gefur nokkra hugmynd um, hversu erfitt ritfrelsi og skoðanafrelsi á uppdráttar í Suður-Afríku, jafnvel fyrir þá sem eru þó sjálfir af herraþjóðinni komnir. Woods segir að Breytenbach sé enn þyrnir í holdi suður-afrísku Afríkananna. Andúð þeirra á andstöðu hans við stefnu ríkisstjórnarinnar í kynþáttamálum blandast virðingu fyrir honum sem skáldi, en Breytenbach er í fararbroddi sinnar skáldskynslóðar og hefur hlotið viðurkenningu ekki aðeins í heimalandi sínu heldur einnig með öðrum þjóðum. Ljóð hans eru oft þrungin kaldhæðni og háði og fjalla einkum um stjórnmál, kynlíf og dauða. Breytenbach skrifar eins og áður sagði á afríkönsku, sem er eitt af nýrri tungumálum heimsins. t>að hefur þróast síðustu 300 árin úr hollenskunni, sem hvítu landnemarnir töluðu. Þetta er móðurmál Afríkananna, um þriggja milljóna hvítra manna í Suður-Afríku - þeirra sem stjórnað hafa landinu síðan 1948 -, og þetta er tungumál aðskilnaðarstefnunnar. Svertingjar í Suður-Afríku líta því á afríkönsku sem tungumál kúgunarinnar en Afrikanarnir líta hins vegar á málið sem tákn lífsbaráttu sinnar sem þjóðar og telja þá tiltölulega fáu Afríkana, sem snúast gegn stjórnarstefnunni, þjóðarsvikara. Donald Woods segir, að miðað við það, hversu fáir tali afrfkönskuna,, sé. það ótrúlega auðugt af bókmenntum, og að skáldin hafi haft mikil áhrif á þróun tungunnar. En mörg þeirra hafa farið illa í togstreitunni á milli þeirra krafna, sem skáldskapurinn gerir til þeirra, og hinna, sem felast í stefnu stjórnvalda. Sumir hafa hreinlega gefist upp við skáldskap sinn vegna þessara átaka, en ýmsir aðrir hafa lagst í drykkjuskap eða framið sjálfsmorð. Breytenbach er einn af þeim, sem hefur haldið áfram að yrkja og sem jafnframt hefur tekið upp virka andstöðu gegn stjórnarstefnunni. Hann er þó ekki vaxinn upp úr þeim jarðvegi, að slíkt hafi verið talið líklegt af hans hálfu á unga aldri, því hann er kominn af einni af elstu Afrikanaættum landsins. En þegar á unglingsaldri fékk hann mikinn áhuga á skáldskap og listum og fór því í enskumælandi háskóla í Höfðaborg í stað þess að sækja nám í Mekku Áfríkananna - Stellenbosch-háskólanum. Þegar hann hafði náð tvítugsaldri hélt hann til Evrópu - fyrst til Bretlands en síðan til meginlandsins, og árið 1962 settist hann að í París og fékkst þar við að mála, yrkja og kenna ensku, auk þess sem hann lærði frönsku. í París hitti hann Yolande Ngo Thi Hoang Lien og kvæntist henni. Hún var fædd í Víetnam en uppalin í frönsku höfuðborginni. Faðir hennar var fjármálaráðherra í ríkisstjórn Ngo Dinh Diem í Suður-Víetnam. Árið 1964 sendi Breytenbach frá sér fyrstu ljóðabók sína, og síðan fleiri Ijóðabækur, 1967,1969og 1970. En þegarhann vildi snúa heim til Suður-Afríku til þess að taka við bókmenntaverðlaunum, sem honum voru veitt - fyrst 1967 og síðan 1969 - var eiginkonu hans neitað um vegabréfsáritun vegna þess að hún er ekki „hvít“, og jafnframt var Breyten- bach tjáð, að hann ætti það á hættu sjálfur að verða handtekinn ef hann kæmi til Suður-Afríku, þar sem „blandað" hjónaband væri bannað þar samkvæmt aðskilnaðarlögunum. Loks var það svo 1973, að þau hjónin fengu bæði vegabréfs- áritun til að heimsækja Suður-Afríku í þrjá mánuði. Honum fannst föðurland sitt „paradís eitruð og menguð“, og eftir að hafa hafnað beiðni öryggislögreglunnar um áð gerast upp- ljóstrari þeirra, hélt hann aftur til Parísar ásamt konu sinni. Þar hafði hann starfað nokkuð með öðrum, sem andvígir voru aðskilnaðarstefnu Suður-Afríkustjórnar, og loks ákvað hann ásamt tveimur öðrum hvítum Suður-Afríkubúum að gera sitt til þess að aðstoða þá, sem berðust gegn þeirri stefnu í landinu sjálfu. Ákveðið var að Breytenbach færi undir dulnefni til Suður-Afríku og hefði þar samband við ýmsa, sem vitað var að ynnu gegn aðskilnaðarstefnunni, til þess að finna leiðir til að koma fjármagni frá evrópskum kirkjusamtökum til svartra verkalýðsleiðtoga, sem væru að reyna að byggja upp verka- lýðshreyfingu meðal svertingja. í ágúst 1975 hélt hann til Suður-Afríku á frönsku vegabréfi undir nafninu Christian Galazka. En njósnarar lögreglunnar í Suður-Afríku vissu allt um fyrirætlanir Breytenbachs, og eftir að hafa fylgst með honum nokkurn tíma í Suður-Afríku til þess að sjá, hvaða menn hann talaði við, handtók hún hann. Breytenbach var ákærður fyrir samsæri og dæmdur til níu ára fangelsisvistar - ekki fyrir það, sem hann hafði gert, heldur fyrir hitt, sem dómstóllinn taldi að hann hefði haft í huga að gera! Fyrstu tvö árin í fangelsinu var breyt- ENBACH í EINANGRUN. Hann var geymdur í litlum klefa, sem var aðeins 6 fet á breidd og 9 fet á lengd en hins vegar mjög hár - 22 fet frá gólfi til lofts. ;,Þetta var eins og að vera niðri í djúpum brunni. Hæðin jók á þrengslin. Það var hægt að snerta báðar hliðar með því að teygja út hendurnar, en það var hátt til lofts. Og efst uppi var op þar sem verðirnir gátu fylgst með allan tímann." I fangelsinu voru fjölmargir fangar teknir af lífi. „Venjulega voru um sjö hengdir á viku, og við heyrðum það allt saman - heyrðum þá ganga að gálganum, alltaf syngjandi, oftast á Zhoxa eða Zulu málum, og þeir stigu fast niður í hverju spori. Stundum heyrðum við unga rödd í hópnum - rödd sem skalf af ótta -, en hinar raddirnar héldu henni uppi. Og síðan heyrðist skellur þegar pallurinn opnaðist, dauðastundin. En söngurinn hélt áfram þar til allt var yfirstaðið." Oftast sungu fangarnir þjóðsöng svertingjanna - Nkosi Sikelele Afrika - eða þá sálma. Verstu stundir hans í fangelsinu voru á morgnana, þegar hann vaknaði. „Eftir að hafa notið frelsis draumanna opnarðu augun og sérð veruleika fangaklefans og þú gerir þér grein fyrir því, að þetta verður raunveruleiki þinn í mörg, mörg ár í viðbót“. Hann sá sýnir, dreymdi dagdrauma. Hann varð stundum viss um að Yolande væri að tala við hann, og hann svaraði henni upphátt. Hann átti sér ímyndaðan félaga í klefanum, Don Espejuelo, kaldhæðinn gamlan Spánverja, sem hann skapaði til þess að gagnrýna ljóð sín og andmæla skoðunum sínum á bókmenntum, málaralist, kvikmyndum og tónlist. „Og þegar ég hafði verið lengi f einangrun fékk ég Dostojevský í heimsókn. Það varfrábært. Ég kynntist honum vel og kallaði hann Fyodor“. Og viðbrigðin - að vera laus - voru mikil. „Ég átti erfitt með að venjast aftur hlutum á veggjum, málverkum og skrautgripum", segir hann, „eftir að hafa horft svo lengi á bera veggi klefanna. Ég var alltaf að opna dyr og skildi þær eftir opnar - það var svo ánægjulegt að opna dyr og ganga í gegnum þær hvenær sem ég vildi. Símar voru sérstæðir hlutir, sem ég hafði næstum því gleymt. Og litirnir voru yfirþyrmandi - skærir litir á fötum, blómum, bókum. Og raddir barna - ég hafði ekki heyrt barnsrödd í sjö ár. Að sjá stjörnurnar á nóttunni. Og tunglið. Og að aka í bifreið, og sjá aðra aka framhjá á fleygiferð. Og að hafa ekki hugmynd um gildí peninganna, vita ekkert hvað hlutirnir kostuðu eftir sjö ár.“ En martröðin lifir í draumum hans. „Hér um nóttina dreymdi mig að ég yrði að fara aftur í fangelsi, og helsta áhyggjuefni mitt í draumnum var, að ég hafði gefið öðrum diskinn minn og skeiðina og sápustykki. Gæti ég fengið það aftur?" -ESJ Elías Snæland Jónsson skrifar

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.