Tíminn - 22.05.1983, Síða 18
18
SUNNUDAGUR 22. MAI1983
■ Dr. Björn Þórðarson veitti utan-
þingsstjórninni forsxti
■ Bjöm Ólafsson stórkaupmaður var
fjármálaráðherra
■ Einar Araórsson hæstaréttardómari
var dómsmálaráðherra
■ Vilhjálmur Þór bankastjóri var utan-
ríkis- og atvinnumálaráðherra
■ Jóhann Sæmundsson yfirlæknir var
félagsmálaráðherra
UTANÞINGSSTJÖRNIN
1942 - 1944
Ef alþingismenn geta ekki náð samstöðu um
myndun ríkisstjórnar hefur forseti íslands rétt til að
skipa stjórn manna utan þings. Að sjálfsögðu yrði
slíkt ekki gert nema sem algjört neyðarúrræði og
hún yrði að lúta vilja meirihluta alþingismanna.
Utanþingsstjórn hefur einu sinni setið á íslandi, það
var á árunum 1942-1944 og veitti Björn Þórðarson
henni forsæti, en það var Sveinn Björnsson,
þáverandi ríkisstjóri, sem skipaði stjórnina. Hug-
myndir um utanþingsstjórn skjóta alltaf upp kollin-
um af og til, einkum þegar erfíðlega gengur að
koma saman starfhæfri þingræðisstjórn og örðug-
leikar á stjórnarmyndun undanfarna daga hafa enn
kveikt hugmyndina. Hafa menn jafnvel farið að
velta fyrir sér hugsanlegum ráðherraefnum í siíkri
stjórn.
Yið ætlum að leyfa okkur að vona að þingleg
stjórn verði mynduð, en í tilefni umræðnanna að
undanförnu hyggjumst við rifja upp nokkra þætti úr
sögu utanþingsstjórnarinnar gömlu og rekja aðdrag-
anda þess að henni var komið á fót á sínum tíma.
Aðdragandi
■ Árið 1942 var all stormasamt í
íslenskum stjórnmálum. Tvennar kosn-
ingar fóru fram og þrjár ríkisstjórnir
sátu að völdum, fyrst þjóðstjórn, þá
minnihlutastjóm Ólafs Thors og loks
utanþingsstjórn Björns Þórðarsonar.
Óvægnar kjaradeilur settu einnig svip á
árið.
í ársbyrjun 1942 gaf ríkisstjórnin út
bráðabirgðalög, gerðardómslögin eða
„þrælalögin" eins og þau voru almennt
kölluð. Með þeim voru kauphækkanir
bannaðar og sömuleiðis verkföll. Þessi
lög gengu í berhögg við stefnu Alþýðu-
flokksins sem átt hafði ráðherra í þjóð-
stjórninni. Varð það til þess að Stefán
Jóh. Stefánsson félagsmálaráðherra
sagði af sér og Alþýðuflokkurinn sleit
stjórnarsamstarfinu við Framsóknar-
flokk og Sjálfstæðisflokk. Bráðabirgða-
lögin voru lögð fyrir Alþingi í febrúar-
mánuði 1942 og voru þar samþykkt með
atkvæðum stjórnarþingmanna.
Verkalýðshreyfingin snerist öndverð
gegn lögum þessum. Þau urðu til þess að
róttæku öflin í Verkamannafélaginu
Dagsbrún unnu mikinn sigur í ársbyrjun
1942 og ný stjórn undir forystu Sigurðar
Guðnasonar tók við stjórn. Verkamenn
h'ófunú mikinnskæruhcrnað. Þeirgerðu
með sér samtök á vinnustöðum og hættu
að mæta til vinnu. Varð það til þess að
atvinnurekendur neyddust víða til að
ganga að samningum. Atvinnurekendur
gerðu allt til að ná sér niðri á Dagsbrún.
Vinnuveitendafélagið gaf m.a. út lista
yfir 300 verkamenn hjá Eimskip og setti
þá í verkbann. En allt kom fyrir ekki.
Verkamenn sigruðu og samningar tókust
milli þeirra og atvinnurekenda í ágúst-
mánuði.
í tíð þjóðstjórnar kom fram frumvarp
sem hafði mikla þýðingu og varð að
lokum til þess að alveg slitnaði upp úr
stjórnarsamvinnunni. Alþýðuflokkurinn
bar fram tilíögu um breytingu á stjórn-
arskránni sem fól í sér nýja kjördæma-
skipun. Kjördæmaskipun var svo fyrir
komið að 20 þingmenn voru kjörnir í
einmenningskjördæmum og 12 í tví-
menningskjördæmum. í Reykjavík voru
6 þingmenn kosnir hlutfallskosningu en
11 uppbótarþingsæti voru til jöfnunar
milli þingflokka.
Tvennar kosningar
í kosningunum 1937 hafði komið í ljós
að mikið vantaði á að styrkleiki flokka á
Alþingi væri í samræmi við fylgi þeirra
meðal kjósenda. Alþýðuflokksmenn
töldu það réttlætismál að lagfæra þessa
kjördæmaskipan og báru því fram breyt-
ingartillögu þar að lútandi. Sjálfstæðis-
menn og Sósíalistar studdu breytingar-
tillöguna en Framsóknarmenn vildu alls
ekki fallast á breytingarnar sem aðallega
fólu í sér fjölgun þingmanna m.a. í
Reykjavík og hlutbundnar kosningar í
tvímenningskjördæmum. Ósamkomu-
lag stjórnmálaflokkanna um gerðar-
dómslögin og kjördæmaskipunina varð
svo til þess að endanlega slitnaði upp úr
þjóðstjórnarsamstarfinu í maí 1942.
Myndaði Ólafur Thors þá minnihluta-
stjórn Sjálfstæðisflokksins þann 16. maí.
Raðuneyti Ólafs Thors var fyrsta ríkis-
stjórnin undir forystu Sjálfstæðisflokks-
Saga þessar-
ar einstæðu
ríkisstjórnar
rifjuð npp í
tilefni hug-
mynda um
að ný utan-
þingsstjórn
verði skipuð
til að binda
endi á
stjórnar-
kreppuna
ins. Alþýðuflokkurinn og Sósíalista-
flokkurinn hétu því að verja stjórnina
vantrausti, þar til kjördæmamálið væri
komið í höfn. Eins og búist var við bar
Framsóknarflokkurinn fram vantrausts-
tillögu jafnskjótt og nýja stjórnin tók
við. Vantrauststillögunni var vísað frá á
þeim forsendum að hún væri borin fram
í þeim tilgangi einum að koma í veg fyrir
lausn kjördæmamálsins og sæi Alþingi
því ekki ástæðu til að láta fara fram
atkvæðagreiðslu um hana. Frávísunartil-
lagan var samþykkt með atkvæðum
Sósíalistaflokks, Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks.
Ráðuneyti Ólafs Thors sat milli kosn-
inga því að tvennar kosningar urðu að
fara fram vegna kjördæmabreytingar-
innar. Á meðan eyddust áhrif gerðar-
dómsins í kaupgjalds og verðlagsmálum
sem þjóðstjórnin lét gefa út í ársbyrjun.
Grunnkaup var hækkað og dýrtíð óx.
Þess má geta að vísitalan var talin 100
stig í janúar 1939. Hún var komin í 177
stig undir árslok 1941 en mest hækkaði
hún þó á árinu 1942 er hún fór í 272 stig.
Árið 1942 mætti e.t.v. kalla ár hækkandi
talna, því tímakaup verkamanna hækk-
aði úr 2,54 krónum í 5,46 krónur og
útgjöld fjárlaga hækkuðu úr um 32
milljónum í um 76 milljónir.
Kosningar fóru svo fram 5.júlí um
sumarið. Úrslit þeirra urðu þau að
Sjálfstæðismenn hlutu 17 þingsæti,
Framsóknarmenn 20 þingsæti, Alþýðu-
flokkur 6 og Sameiningarflokkur alþýðu
- Sósíalistaflokkurinn 6 þingsæti.
Þann 27. ágúst varsvo kjördæmamálið
samþykkt við 3. umræðu í efri deild og
þar með endanlega afgreitt. Jafnframt
var samþykkt tillaga þess efnis , að
kjördagar skuli vera tveir í sveitum
landsins í væntanlegum kosningum um
haustið. Með endanlegri samþykkt
stjórnarskrárinnar var hlutleysi Alþýðu-
flokks við ráðuneyti Ólafs Thors lokið.
Ákveðið var að kosningar færu fram
dagana 18. og 19. október.
Kjördæmaskipan varð nú með þeim
hætti að hlutfallskosningar voru teknar
upp í öllum tvímenningskjördæmum,
þingmönnum Reykjavíkur var fjölgað
um 2 og Siglufjörður var gerður að
kjördæmi út af fyrir sig. Þingmenn voru
því 52 frá 1942 og fram til ársins 1959 er
gerð var breyting á kjördæmaskipaninni
aftur.
Haustkosningar fóru fram dagana 18.
og 19. október. eins og ráðgert hafði
verið en Alþingi kom saman 14. nóvem-
ber. Kosningarnar fóru þannig að Sjálf-
stæðisflokkurinn fékk 20 þingmenn
kosna, Framsóknarflokkurinn 15, Sósí-1
alistar 10 og Alþýðuflokkurinn 7.
Nú verða umtalsverðar breytingar á
styrkleika flokkanna á Alþingi. Fram-
sóknarmenn missa stjórnarforystu þá
sem þeir höfðu haft nærri óslitið frá
1927. Sósíalistar vinna aftur á móti mjög I
á. Þess skal getið að fimmti flokkurinn
bauð fram bæði í sumar og haustkosning-
unum 1942. Það var svokallaður Þjóð-
veldisflokkur og bauð hann fram lista í
Reykjavík. Var þar fyrst og fremst um
að ræða klofningslista úr Sjálfstæðis-
flokknum. Þjóðveldismenn fengu aðeins
1,1% og 2,2% greiddra atkvæða í
hvorum kosningum og engan mann á
þing og var flokkurinn þar með úr
sögunni.
Á ríkisráðsfundi sem haldinn var sama
dag og haustþingið var sett (þ.e. 14.
nóv.), baðst Ólafur Thors lausnar fyrir
sig og ráðuneyti sitt samkvæmt því sem
hann hafði sagt ríkisstjóra hinn 3. nó-1
vember að hann myndi gera eftir að
Alþingi kæmi saman. Ríkisstjóri veitti
ráðuneytinu lausn frá embætti, en bað
ráðherra að gegna áfram störfum þangað
til ný stjórn hefði verið mynduð. Féllust
þeir á það og fóru síðan frá er ráðuneyti
Björns Þórðarsonar tók við völdum 16.
desember.
Viðræður um nýja stjórn
Samkvæmt ósk Sveins Björnssonar
ríkisstjóra tilnefndu þingflokkarnir 2
menn hver í sameiginlega nefnd til að
ræða um myndun ríkisstjórnar er nyti
stuðnings allra flokka. í nefndinni áttu
sæti: Jónas Jónsson og Eysteinn Jónsson
fyrir hönd Framsóknarflokksins, Emil
Jónsson og Stefán Jóhann Stefánsson
fyrir Alþýðuflokkinn, Brynjólfur
Bjarnason og Einar Olgeirsson fyrir
Sósíalista og Jakob Möller og Ólafur
Thors fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Nefndin
kom nokkrum sinnum .saman en lítið
gekk með stjórnarmyndun. Sú hugmynd
kom fram meðan nefndin sat að störfum
að ríkisstjóri skipaði ópólitíska stjórn
embættismanna er færi með völd og
ákvarðanir Alþingis meðan verið væri
að athuga möguleikana á skipun þing-
ræðislegrar stjórnar. Sósíalistar komu
fram með hugmynd þessa og tóku Fram-
sóknarmenn henni líklega. Alþýðu-
flokkurinn og Sjálfstæðisflokkur vildu
aftur á móti alls ekki fallast á slíka
skipun.
Þann 7. desember tjáði nefndin svo
ríkisstjóra að hún teldi ekki mögulegt að
mynda samstjórn allra flokka. Ríkis-
stjóri hélt þá fund með formönnum
flokkanna og tjáði þeim að hann myndi
reyna aðrar leiðir til myndunar nýrrar
stjórnar. Nú virtist sem allt væri komið
í strand en þá ákváðu Sjálfstæðismenn
að gera eina tilraun enn til myndunar
þingræðisstjórnar. Þeir höfðu því sam-
band við ríkisstjóra og báðu hann um
frest þar sem flokkurinn vildi reyna að
mynda þingræðisstjórn. Ríkisstjóri gaf
Sjálfstæðisflokknum frest til 15. des. í
þessu skyni. Þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins sendi nú bréf til hinna flokk-
anna og tilkynnti að vitað væri að
ríkisstjóri mundi leita út fyrir þingið um
myndun ríkisstjórnar ef það tækist ekki
nú. Þar sem flokkurinn teldi það neyðar-
úrræði vildi hann reyna einu sinni enn
myndun fjögurra flokka stjórnar. Hinir
flokkarnir sendu Sjálfstæðisflokknum
svarbréf hver fyrir sig. Enginn þeirra
treysti sér til að mynda fjögurra flokka
stjórn á svo stuttum tíma sem fresturinn
væri. Þann 15. desember tilkynnti Sjálf-
stæðisflokkurinn síðan ríkisstjóra að
þessi síðasta tilraun hefði farið út um
þúfur.
Utanþingsstjórn skipuð
Ríkisstjóri mun nú hafa talið, að
þrautreynt væri af hálfu Alþingis um
myndun þingræðisstjórnar og að ófor-
svaranlegt væri að láta þetta ástand
haida svona áfram. Um kvöldiðþann 15.
desember var því tilkynnt frá skrifstofu
ríkisstjóra, að hann hefði ákveðið skipun
utanþingsstjórnar. Daginn eftir var
stjórnin síðan skipuð á ríkisráðsfundi.
Stjórnina skipuðu eftirtaldir: For-
sætisráðherra dr. juris Björn Þórðarson,
fjármálaráðherra Björn Ólafsson stór-
kaupmaður, dómsmálaráðherra Einar
Arnórsson hæstaréttardómari og utan-
ríkis- og atvinnumálaráðherra Vilhjálm-
ur Þór bankastjóri Landsbanka íslands.
Á ríkisráðsfundi 7 dögum síðar var dr.
Jóhann Sæmundsson yfirlæknir skipaður
fimmti ráðherrann í stjórninni og fór
hann með félagsmál.
Hverjir sátu í
utanþingsstjórninni?
Dr. Björn Þórðarson fæddist 1879.
Hann ólst upp í Móum á Kjalarnesi. Að
loknu lögfræðiprófi 1908 gengdi hann í
nokkur ár ýmsum sýslumannsembættum
jafnframt störfum í Stjórnarráðinu. Árið
1920 varð hann hæstaréttarritari. Björn
var skipaður lögmaður í Reykjavík 1928
og gengdi hann því starfi þar til hann
varð forsætisráðherra.
Vilhjálmur Þórarinsson Þór fæddist
1899 á Æsustóðum í Eyjafirði. Hann
fluttist til Akureyrar með foreldrum
sínum 1904. 12 ára gamail byrjar hann