Tíminn - 22.05.1983, Qupperneq 24

Tíminn - 22.05.1983, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 22. MAÍ1983 Össur Skarphéðinsson: Makalaus málaf ær sla dr. Arnóri Hannibalssyni svarað ■ Á hundrað ára dánarafmæli Karls Marx skrifaði dr. Arnór Hannibalsson heimspekingur og háskóladósent grein í Tímann þar sem hann hljóp við fót gegnum þau fræði sem um alllanga hríð hafa verið kennd við nafn Marx. Vænt- anlega til að hnykkja á áherslum höfund- ar voru sjö setningar teknar út úr efni greinarinnar og prentaðar til hliðar við hana með svo stóru letri að sæmilega séður maður gat á margra metra færi lcsið þær sjóntækjalaus. Ein þessara- setninga var svohljóðandi: „Marxistar telja sig hafa töfraformúlu fyrir því hvernig á að gera menn hamingjusama og eru reiðubúnir að myrða og drepa heilu þjóðirnar til að ná þessu göfuga marki“ Manndrápsstefnan Svona fráleitar alhæfingar eru auðvit- að fyrir neðan allar hellur og raunar er fremur sorglegt að sjá þær birtar undir nafni manns scm hefur framfærslu af því að kenna íslenskum háskólastúdentum að hugsa eftir skikkanlega rökrænum brautum. Jafnframt er það afar fágætt nú um stundir að stjórnmálaumræða á íslandi sökkvi niður á það stig að andstæðingar tiltekinna póltískra við- horfa snúi þeim upp í hreina manndráps- stefnu eins og gert er vafningalaust í ofangreindri tilvitnun. Það er engin ástæða til að taka með neinum silki- hönskum á svo óvandaðri málafærslu, hvort sem í hlut eigi heimspekingar eða aðrir. I fullri vinsend leyfði ég mér því að mótmæla þessum gæfulausa málabún- aði hér í Tímanum í síðasta mánuði. Nú hafa hins vegar blaðahnippingar okkar heimspekingsins tekið undarlega og næ'sta óvænta stefnu. í grein sem Arnór skrifar í Tímann á baráttudegi verkalýðsins neitar hann nefnilega bcisk- ■ Össur Skarphéðinsson lega að hafa nokkurn tímann skrifað hina umdeildu tilvitnun og gefur ekki til kynna í svargrein sinni að hann hafi nokkra hugmynd um hvaðan hún sé komin. Til að lesendur geti sjálfir gert sér grein fyrir þeirri heiðarlegu einurð sem felst í þessari fágætu málsvörn háskóladósentsins birti ég hér meðfylgj- andi úrklippu. Hún hefur að geyma ummælin sem Arnór veit ekki hvaðan eru, og birtist með grein eftir hann sjálfan undir titlinum: Hundrað ár liðin frá láti hugsuðarins sem breytti heimin- um: KARL MARX eftir dr. Arnór Hannibalsson dósent í heimspeki. Geta menn svo sjálfir dæmt hvor er að rugla, doktorinn eða ég. * I fótspor Ara Nú er mér ekki fullljóst hvort það er vani doktorsins að láta aðra og ónafn- greinda menn skrifa meiri eða minni hluta af því sem birt er undir hans nafni, og í sjálfu sér er það hans einkamál. En væri það ekki lesendum hans til nokkurr- ar þægðar ef slíkum greinum fylgdu framvegis upplýsingar þar sem þess er getið hvað hann hefur skrifað sjálfur - og hvað ekki? En gott og vel. Ég er reiðubúinn að taka það trúanlegt frá Arnóri Hannibals- syni að umrædd klausa sé ekki eftir hann heldur einhvern annan, þá væntanlega . starfsmenn Tímans, og samgleðst hon- um raunar innilega að vera ekki höf- undur þessarar vitleysu. En það breytir ekki hinu, að hún var birt undir hans nafni án þess hann sæi nokkra ástæðu til að leiðrétta það sérstaklega gagnvart lesendum fyrr en þessi vafasami mál- flutningur hafði komið honum í koll. Og hefði þá ekki verið heiðarlegra að gefa lesendum til kynna hvaðan ég hefði búið hana til sjálfur í því skyni að geta barið betur á andmælanda mínum? Ekki dett- ur mér í hug að ásaka Arnór um illan vilja en þó sýnist mér að löngun til að feta í fótspor Ara fróða hafi ekki verið doktornum til mikilla trafala í þessu máli. Hættuleg fullyrðing Þar með er sagan af Arnóri Hannibals- syni heldur ekki öll. Eftir að hafa af vandlætingu svarið af sér umgreind um- mæli, án þess að tilgreina hinn rétta höfund, þá kveðst hinn góði doktor þó hafa aðstoðarlaust skrifað eftirfarandi pistil sem einnig var birtur undir hans nafni í upphaflegu greininni um Marx: „Um allan heim eru mcnn sem kalla sig marxista og telja sig hafa töfraformúlu fyrir því hvcrnig á að gera menn hamingjusama og eru reiðubúnir að myrða og drepa heilu þjóðirnar til að ná þessu göfuga marki.“Ekki þykir mér nú ástandið batna mikið. Er það nema sanngjörn krafa þegar svona djúptækar fullyrðingar eru hafðar í frammi að höfundur þeirra afmarki sig við þann straum marxista sem með sögulegum rétti má gera slíkar sendingar? Er til of mikils mælst að menn sýni nokkra varúð þegar sakburðurinn er kominn á þetta stig? Dæmi hver fyrir sig. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að þessi fullyrðing dósentsins hafi að geyma hrapalega alhæfingu sem er gersamlega rúin rökstuðningi í báðum greinum hans, er enn jafn siðlaus og hin fyrri, og sem Arnór getur að öllum líkindum ekki staðið við. Tökum hið nærtækasta dæmi: Ef full- yrðing Arnórs er sönn eiga þá ekki samkvæmt henni að vera til íslenskir marxistar sem eru reiðubúnir „að myrða og drepa“ til að koma stefnu sinni í framkvæmd? Hvaða fólk cr þetta, félagi fræðimaður? Hverja vill það drepa? Hvaða heimildir .eru fyrir þessu? Hinum íslenska Sókrates verður vafa- laust ekki skotaskuld úr að svara þessu. Ef ekki, er þá ekki ofangreind fullyrðing hættulegt rugl, sem allir heiðarlegir menn myndu biðjast afsökunar á? Austur Anglíu 11. maí. Aths. ritstj. Klausan „Marxistar telja sig...“ o.s.frv. til hliðar við grein dr. Arnórs Hannibalssonar um Marx í Helg- ar-Tímanum 19.-20. mars s.l. er ekki höfundarverk hans heldur samin og birt á ábyrgð ritstj. án samráðs við höf. Er beðist velvirðingar á því að þetta skuli ekki hafa komið fram fyrr. ^ JARDTÆTARI KRONE I „TÆTUM OC TRYLLUM!" Þaö er óþarfi aö tryllast yfir ónýtum verkfærum, KRONE jarðtætari er sterkur og endingargóður. Verkin vinnast vel meö KRONE. Veldu þér vandaða vél. HAMAR HE Véladeild Húsbyggjendur! Ávallt fyrirliggjandi ★ Dönsk glerullareinangrun ★ Amerísk JM glerullareinangrun ★ Steinull ★ Glerullarhólkar ★ Álpappír ★ Spónaplötur og grindarefni ★ Milliveggjaplötur ★ Þakpappi og þakjárn ★ Mótatimbur og steypustyrktarjárn ★ Rör og fittings Tryggjum góða vöru á góðu verði Opið: Mánudaga - fimmtudaga frá kl. 8-18 föstudaga kl. 8-19 laugardaga 9-12 BYGGINGAVÖRUR HRINGBRAUT 120: Simar: Timburdeild 28-604 Byggingavörur 28-600 Malningarvörur og verkfæri 28-605 Golfteppadeild 28-603 Flisar og hreinlætistæki 28-430 Allt fyrir bygginguna á ótrúlega hagstæðum greiðslukjörum Eigum fyrirliggjandi CAV 12 volta startari: Bedford M. Ferguson Perkins Zetor L. RoverD. Ursusofl. CAV 24 volta startari: Perkings Scania JCB o.fl. Lucas 12 volta startari: M. Ferguson Ford Tractor ofl. CAV 24 volta alternator: 35 amper einangruð jörð 65 amper einangruð jörð Butec 24 volta alternator: 55 ampers einangruð jörð Einnig startarar og alternatorar fyrir allar gerðir af japönskum og enskum bifreiðum. Þyrill s.f. Hverfisgötu 84 101 Reykjavík Sími29080 Sími 22123. Pósthólf 1444. Tryggvagötu, Reykjavík. GM

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.