Tíminn - 15.06.1983, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1983
5
fréttir
Komum erlendra ferðamanna hingað til lands fjölgar í maí:
RðSKLEGA ÞRKUUNGI
FLEIRI EN í FYRRA!
■ Komur erlendra ferðamanna hingað Alls komu 6.292 útlendingar hingað alls 17.209 útlendingar hingað til lands á 1932. Alls höfðu nú 21.167 íslendingar
til lands í maí voru rösklega þriðjungi til lands í mai á móti 4.684 í maí 1982, móti 15.878 á sama tíma í fyrra. komið til landsins í maílok, sem er 1.415
fleiri en í sama mánuði í fyrra. íslenskum samkvæmt upplýsingum útlendingaeftir- Komur íslendinga til landsins í maí- færra en á sama tíma í fyrra.
ferðamönnum til útlanda virðist hins litsins. Frá áramótum til matloka komu mánuði voru nú 5.237 á móti 5.532 í maí -HEI.
vegar heldur hafa fækkað.
■ Þessi skipa hljómsveit Gunnars Þórðarsonar í sumar. Frá vinstri: Sigurður Karlsson, Sigurður Long, Gunnar Þórðarson,
Bjarni Svcinbjörnsson, Sverrir Guðjónsson, Ásgeir Sverrisson og Ásgeir Guðjónsson, Á myndina vantar Helgu Möller.
Tímamynd: Róbert
Gunnar Þórðarson og hljómsveit á Bróadway í sumar
„Ég býst vid miklu
af hljómsveitinni”
— segir Ólafur Laufdal
Geysis-
gos
kosta
5000
kr
í sumar
■ Geysisnefnd hefur samþykkt að ef
ferðahópar eða ferðaskrifstofur óski eft-
ir gosi úr Geysi í Haukadal verði því
komið af stað gegn 5000 króna gjaldi.
Fjárhæðin greiðist til Ferðaskrifstofu
ríkisins sem tekur á móti beiðnum í
umboði Geysisnefndar og ákveður hvort
hægt sé að verða við þeim. Þó verður
ekki leyft að setja sápu í hverinn oftar
en á fjögurra daga fresti.
Fyrir nokkru var lokið við að setja upp
girðingu umhverfis Geysi, bæði af öryggis-
ástæðum og eins til að hlífa Geysishóln-
um við átroðningi. Athygli er vakin á að
fara verður mjög varlega um Geysis-
svæðið.
Upplýsingar og fyrirgreiðjlu um Geysis-
gos annast Kjartan Lárusson forstjóri
Ferðaskrifstofu ríkisins og Tryggvi
Guðmundsson starfsmaður skrifstofunn-
ar en Þórir Sigurðsson í Haukadal hefur
umsjón með Geysissvæðinu og gosum.
Vestur-
íslenskur
kór
væntanlegur
til íslands
■ í dag er væntanlegur hingað til lands
vestur-íslenski karlakórinn „Vestur-
bræður" (Western Brothers). Þeir munu
halda tónleika víðsvegar um landið seinni
hluta júnímánaðar.
Kórinn er frá Seattle og nær allir
kórmeðlimirnir eru af íslenskum ættum.
Sumir tala íslensku og allmargir hafa
komið hingað til lands áður. Þar má til
dæmis nefna Sr. Harald Sigmar en hann
kenndi við guðfræðideild Háskóla ís-
lands 1957-1959.
Kórinn hefur undanfarin tvö ár haldið
tónleika og sungið á skemmtunum í
Seattle og nágrenni. Kórinn söng fyrir
forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur,
þegar hún heimsótti Seattle á síðastliðnu
hausti og fyrirhugað er að kórinn heim-
sæki forsetann á Bessastöðum í íslands-
ferðinni.
Á íslandi mun kórinn meðal annars
taka þátt í hátíðahöldunum 17. júní.
Einnig verða tónleikar í Hveragerði,
Bústaðakirkju, Logalandi í Reykholts-
dal, Skálholtskirkju, Aratungu og Akur-
eyrarkirkju en þar verða síðustu tónleik-
ar kórsins hérlendis, þann 27. júní.
Stjórnandi kórsins er Ernest Ander-
son. Undirleikari hérlendis verður Agnes
Löve píanóleikari.
■ Kötturinn hefur níu líf og Gunnar
Þórðarson líka að því er virðist. Gunnar
er enn á ný mættur til leiks með dans-
hljómsveit og nú eftir 9 ára hlé frá
ballbransanum. Gunnar hefur fengið til
liðs við sig 7 manns og saman myndar
þetta fólk hljómsveit þá sem mun eiga
að skemmta gestum í Broadway, næstu
4 mánuðina. Hljómsveitin er blanda af
„gömlum refurn" og „yrðlingum“.
Hljómsveitina skipa eftirtaldir tónlistar-
menn: Söngvarar eru þeir Sverrir Guð-
jónsson og Helga Möller, trommuleik-
ari er Sigurður Karlsson, bassaleikari
Bjarni Sveinbjörnsson, hljómborðsleik-
■ „Það er afskaplega líklegt að þetta
gat í vegaáætluninni verði fjármagnað
með erlendum lánum,“ sagði Albert
Guðmundsson, fjármálaráðherra er
Tíminn spurði hann í gær hvort það væri
frágengið með hvaða hætti þær 130
milljónir króna verði útvegaðar, sem
vantar til þess að hægt verði að fram-
kvæma vegaáætlun þessa árs.
Fjármálaráðherra sagði að hann og
samgönguráðherra myndu ákveða þetta
í sameiningu innan skamms.
„Það er öruggt mál, að þessir peningar
verða ekki fengnir með sköttum,“ sagði
fjármálaráðherra og er blaðamaður
Tímans spurði hann hvort erlend lán
væru ekki skattar framtíðarinnar svaraði
hann: „Það fer allt eftir því hvort um
arðbærar framkvæmdir er að ræða, eða
ekki. Þetta er ekki rekstrarlán sem
ari Ásgeir Guðjónsson, á trompet er
Ásgeir Sverrisson, saxófónleikari Sig-
urður Long og gítarleikari er að sjálf-
sögðu Gunnar Þórðarson. Ekki er búið
að ákveða nafn hljómsveitarinnar er
þetta er ritað en líklega verður Dans-
hljómsveit Gunnars Þórðarsonar ofan á.
Að sögn þeirra Ólafs Laufdal og
Gunnars Þórðarsonar var Gunnar farinn
að hugsa sér til hreyfings og þegar
Ólafur bað hann að setja saman sveit
fyrir Broadway sló hann til.
„Hús eins og Broadway þarf að hafa
hljómsveit með númerum eins og Gunna
Þórðar. Þessi hljómsveit verður með
verður étið upp, heldur er þetta arðbær
framkvæmd, það að vegavæða landið
með varanlegum vegum. Framkvæmdir
■ Ýmsir áhugamenn um húsnæðismál
halda nú reglulega fundi í félagsheimil-
inu að Hamragörðum til að ræða stofnun
nýrra samtaka eða byggingafélags, sem
leysi húsnæðisvanda leigjenda með þeim
hætti að þeir kaupi sér búseturétt í
íbúðum sem félagið byggi, en sá háttur
hefur náð mikilli útbreiðslu í Svíþjóð,
þar sem slík byggingasamvinnufélög
leigjenda starfa innan sænsku samvinnu-
hreyfingarinnar. Fulltrúar leigjenda-
mjög fjölbreytta tónlist, fyrsta klukkutínt-
ann í tónleikaformi og allir í hljómsveit-
arbúningi. Þannig að fólk á að vita
daginn eftir ballið hvaða hljómsveit var
að spila.“ Ég býst við miklu frá þessari
hljómsveit," sagði Ólafur Laufdal.
„Öll lög eru útsett af mér og skrifuð
fyrir hljómsveitina. Við ættum að geta
boðið upp á fjölbreytni því hljóðfæra-
skipanin býður upp á það. Svö tökum
við lög eftir mig sem hafa náð vinsældum
Við byrjum nú á fimmtudag og verðum
á Broadway út septembermánuð", sagði
Gunnar Þórðarson að lokum.
við rafvæðingu og vegavæðingu eru það
arðbærar, að þær réttlæta erlendar lán-
samtakanna eru nýkomnir frá Stokk-
hólmi þar sem þeir kynntu sér starfsemi
þessara félaga.
Þeir sem nú búast til þessarar félags-
stofnunar hér koma úr ýmsum áttum,
m.a. frá Leigjendasamtökunum og úr
samvinnuhreyfingunni. Menn úrþessum
hópi munu ganga á fund Alexanders
Stefánssonar félagsmálaráðherra t' næstu
viku og kynna honum sjónarmið sín.
JGK
-Jól
VEGAÁÆTLUN BRÚUÐ
MEÐ ERLENDU LÁNI
tökur.“ - AB.
Leigjendur undirbúa eig-
ið Byggingasamvinnufélag
Stólalyftan
i Bláf jöllum -
opin í sumar
■ Stólalyftan í Bláfjöilum verður
notuð í sumar til að flytja ferðamenn
upp á fjall svo þeir geti notið útsýnis-
ins. Að þessu sinni er um tilraun að
ræða en ef vel tekst verður framhald
á þessari starfsemi.
Bláfjallanefnd hefur lengi haft
áhuga á að nýta aðstöðuna á svæðinu
til lengri tíma en skíðatímabilið nær
yfir. Samstarfsnefnd um ferðamál
tók þetta mál upp og sendi bréf til
Bláfjallanefndar sem samþykkti til-
löguna. Þessi tilraun er gerð í sam-
vinnu við Kynnisferðir sem sjá um að
flytja ferðamenn á svæðið. Einnig
verður skíðaskálinn opinn og þar
seldar veitingar.
Fyrirhugað er að lyftan verði opin
tvö kvöld í viku í surnar.
- GSH
Arnarflug:
Apex-fargjöldin
fjórðungi ódýrari
■ Amarflug hefúr fengið samþykki
stjómvaida fyrir nýjum Apex-fargjádum
til Dússeldorf og Ámsterdam, um fjórð-
ungi lægri en þeim sem áður voru á
boðstólum. Fargjaldið á Amsterdamleið-
inni er nú 8.851 króna fnun pg til baka.
Skilmálar eru i meginatriðum þeir, að
farbökun og útgáfa fatseðils verða að
eiga sér stað saintímis, í síðasta lagi 14
dögum fyrir ferð.
Þá er ekki unm að breyta farbókunum
og ekki unnt að fá endurgreiöslu fyrir
ónotaðan farseðil eftir að fcrð er hafin.
í fréttabréfi Amarflugs kemur frarn að
framboð á sætum á þessu fargjaldi er
takmarkað, og aö það gildi aðeins í einni
ferð í viku hvcrri á sumaráætlun.
Fargjaldiö á Dösseldorfleiðinni er
10.086 krónur fmm og til baka og em
skilmálar þeir sömu og á Apex-fargjöld-
ttnum til Amsterdam
- Sjó
Félag um vest-
ræna samvinnu
stofnað
■ Varðberg, félag um vestræna
samvinnu var stofnað á Akureyri,
laugardaginn 4. júní. Um 30 manns
gerðust félagar á stofnfundinum og
var þar kjörin stjórn. Formaður er
Guðmundur H. Frímannsson,
menntaskólakennari.
í lögum félagsins segir að tilgangur
þess sc aðéfla skilning fólks á íslandi
á gildi lýðræðislegra stjórnarhátta,
að vinna gegn öfgaöflum og að skapa
aukinn skilning á mikilvægi samstarfs
lýðræðisþjóðanna til vcrndar friði í
heiminum.
Markmiðum sínum hyggst félagið
ná m.a. með útgáfustarfscmi, fund-
um og ráöstefnum, þar scm sér-
fræðingar verða fengnir til aö flytja
fyrirlestra um málefni þau er félagið
vinnur að.
Varðbcrg á Akureyri vinnur að
sömu markmiðum og Varðberg og
Samtök um vestræna samvinnu í
Reykjavtk.
-Jól
Leidrétting
■ í frétt Tímans um skipulagsbreyt-
ingu hjá Ríkisskip féllu því miður
niður tvær-þrjár línur þar sem sagt
var frá þeim þrem meginsviðum sem
rckstur Skipaútgerðarinnar skiptist
nú t, sem ruglaði frásögnina. Það
rétta er að hin þrjú meginsvið eru:
Tæknisvið með Hjört Emilsson að
framkvæmdastjóra, viðskipta- og (
áætlanasvið undir framkvæmda-
stjóm Þóris Sveinssonar og rekstjrar-
og skrifstofusvið undir framkvæmda-
stjórn Tómasar Óskarssonar, sem
stjórnað hefur Rekstra'rdeild ríkis-
skipa. Eru viðkomandi beðnir vel-
virðingar á mistökunum.
- HEI