Tíminn - 19.10.1983, Qupperneq 2
Hrísey:
Traustara
síma-
samband
■ Nýverið hefur sex línum verið
aukið við-símstöðina á Dalvík. Þetta
er 27% aukning, sem kemur til góða
fyrir Hrísey, Árskógshrepp og Ólafs-
fjörð. Ennfremur hafa ný þráölaus
tæki veriðsettu uppfyrirsímanotendur
í Hrísey og mun það bæta símasam-
band til mikilla inuna frá því scm áður
var. Stöðin hé/er þó of lítil, eða aðeins
90 númer. Það mun líða nokkur tími
þar til hægt vcrður að bæta úr því, að
. sögn Ársæls Magnússonar, umdæmis-
stjóra Pósts og síma.’
Héðan rær nú einn bátur með lítiu,
en atli er tregur og frekar smár.
Togarinn gengur þolanlega og ólafur
Magnússon er á síldveiður. Af öðrum
þáttum héðan er lítið að frétta. Mann-
lífið gengur sinn vanagang og fólk er
að búa sig undir veturinn.
SA-Hrísey
Gamli kennara-
skólinn við
Laufásveg:
Friðaður
í B-flokki
■ Menntamálaráðuneytið hefur á-
kveðið að garnli kennaraskólinn við
Laufásveg skuli vcra friðaður í B-
flokki. Tiikynning um jietta frá
menntamálaráðuneytinu lá fyrir borg-
arráðsfundi í gær, cn það er mennta-
málaráðherra sem hefur ákvörðunar-
vald í málinu.
Friðun í B-flokki merkír að viðkom-
arfdi mannvirki er haldið við með
upprunalegum svip að utanverðu en
heimilt er að breyta þvf að innan.
Engar mótbárur komu fram gegn
friðuninniafhálfuReykjavíkurborgar.
JGK
Lúthers-
vaka
í kvöld
■ í tengslum við Kirkjuþing, er boðið
til almennrar kvöldvöku í Hallgríms-
kirkju í kvöld kl. 20.30. Verður 500
ára afmælis Marteins Lúthers minnst
með fjölbreyttri dagskrá.
Hjörtur Pálsson dagskrársjóri lcs
nýtt ljóð um Lúther eftir séra Bolla
Gústavsson í Laufási. Dr. Gunnar
Kristjánsson mun fjalla um Lúther, líf
hans og starf og sýnir athyglisverðar
iitskyggnur máli sínu til skýringar. Þá
mun Hörður Áskelsson fjalla unt sálm
Lúthers „Gef þinni kristni góðan frið“.
Vökunni lýkur með náttsöng.
BK
■ Björn R. Einarsson stjórnaði leik lúðrasveitarinnar. Tímamynd GE
■ í gær varð Flataskóli í Garðabæ 25
ára, en hann tók til starfa 18. október
1958. Þá var aðeins eitt lítið hús á
Flötunum og býlið Minkagerði. íbúar í
Garðahreppi voru þá um 800. Fyrsta
árið í skólanum voru nemendur 137 en
fjölgaði mjög ört með vaxandi byggð og
urðu flestir árið 1975, 782. í vetur eru
nemendur 443.
Saga skólans er samofin sögu Garða-
bæjar. Nær 2000 tólf ára börn hafa
stundað nám og kvatt skólann frá
upphafi. Skólinn á stærsta safn Ijós-
mynda sem til er af ungum Garðbæing-
um. Ljósmyndir og teikningar nemenda
munu prýða ganga skólans næstu vikur
og mánuði.
Nemendur og starfsfólk gerði sér
nokkurn dagamun í gær. Skátar drógu
fána að hún kl. 8 og um sama leyti hóf
hópur 9-11 ára nemenda boðhlaup til
Bessastaða, til þes að færa forseta sínum,
Vigdísi, bréf. Vigdís heimsótti síðan
skólann og tók með sér þær hetjur sem
hlaupið höfðu síðasta spölinn. Þá kom
menntamálaráðherra, Ragnhildur
Helgadóttir einnig í heimsókn. Lúðra-
sveit barna lék undir stjórn Björns R.
Einarssonar og skólakór Garðabæjar
söng undir stjórn Guðfinnu Dóru Ólafs-
■ Það voru fatlaðar stúlkur í hjólastólum sem færðu þeim Ranghildi og Vigdísi
blómvendi. Tímamynd GE
dóttur. Síðan fóru allir í afmæliskaffi.
Síðdegis var svo diskótek fyrir 10 og
11 ára börn í Félagsmiðstöð Garðabæj-
ar, og í gærkvöldi var flugeldasýning.
Föstudaginn 21. október verður svo
afmælishóf skólans fyrir gesti, starfsfólk,
foreldra, fyrrverandi kennara og nem-
endur úr eldri árgöngum.
Þess skal að lokum geta sem vel er
gert. Á þessum tímamótum hefur öll
aðstaða til stuðnings- og hjálparkennslu
verið stórbætt og ný og fullkomin lyfta
fyrir fötluð börn verður tekin í notkun.
Skólastjóri hefur frá upphafi verið
Vilbergur Júlíusson og yfirkennari er
Hallgrímur Sæmundsson. BK
■ Vigdís ávarpar nemendur, starfsfólk, bæjarfulltrúa o.fl. Hún heldur á útskornum tréhólk sem nemendur færðu henni í morgunsárið heim á hlað á Bessastöðum.
Tímamynd GE
Tuttugu og fimm ára afmæli Flataskóla:
NEMENDUR EFNDU TIL B0D-
HLAIIPS TIL BESSASTAÐA!
■ Nemendur færðu þeim Vigdísi og Ragnhildi blóm. Með þeim á myndinni er Vilberg Júlíusson skolastjon og Ltlja
Hallgrímsdóttir forseti bæjarstjórnar Garðabæjar. Tímamynd GE
Tímamynd GE
■ Vigdís fékk rós í hnappagatið.