Tíminn - 22.10.1983, Síða 4
Idnadarrádherra boðar skýrslur:
fllilR SAMMÍLfl AÐ ORKU-
VERÐK) SÉ ALLTOF Hfln
— en hins vegar greinir þingmenn á um hverjar orsakirnar eru
■ í umræðum um orkuverð í samein-
uðu þingi á fimmtud. voru allir sem til
máls tóku á einu máli um að orkuverð til
almennings væri óeðlilega hátt og að
leita yrði skýringá á hvers vegna innlend
orka væri eins dýr og raun ber vitni.
Eiður Guðnason mælti fyrir þingsá-
lyktunartillögu sem þingmenn Alþýðu-
flokksins flytja um að skipuð verði nefnd
þriggja óháðra sérfræðnga til að kanna
hið háa raforkuverð til almennings og
gera tillögur til úrbóta. Flutningsmaður
sagði að það væri vissulega mjög alvar-
legt mál ef raforka framleidd með afli
íslenskra fallvatna væri ekki lengursam-
keppnisfær við innflutta orku svo sem
olíuoggas. Spurðihann hvortorsakanna
væri að leita í óhóflegri skattlagningu
orkunnar, er virkjunarkostnaður óeðli-
lega hár? Er yfirbygging orkufyrirtækj-
anna, Orkustofnunar, Landsvirkjunar
og Rarik of mikil? Er þar gætt aðhalds
og hagsýni í rekstri? Er dreifingarkostn-
aður orkunnar óeðlilega hátt hlutfall
þess verðs sem almenningur greiðir?
Meðal þess sem Eið langar til að vita er
t.d. hvað laxveiði kostar Landsvirkjun á
ári.
Hann spurði einnig hvort gert hafi
verið ráð fyrir að hliðarráðstafanir í
sambandi við Blönduvirkjun færu upp í
10% af heildarvirkjunarkostnaði og er
samt eftir að semja unt vatnsréttindi. Ef
tala ætti um vatnsorkuna sem auðlind
yrði hún að fást á samkeppnishæfu verði.
Eiður tók dæmi af fjölskyldu sem
kyndir 110 fermetra hús sitt með raf-
magni og mun greiða 46 þúsund kr.
rafmagnsreikning á þessu ári. Eru það
2-3 mánaða laun húsbónda á því heimili.
Hjörleifur Guttormsson sagðist taka
undir það að full ástæða væri til að fara
ofan í saumana á jafngildum þætti í
þjóðarbúskapnum og orkuverðið er.
Hann minnti á að á undanförnum árum
hafi verið tilreiddar skýrslur um þetta
efni fyrir Alþingi ogalmenning. En hann
kvaðst sakna þess í framsögu þingsálykt-
unartillögunnar og greinargerð með
henni, að ekki væri þar minnst á þann
þátt í orkuverðinu sem augljósastur væri
og ætti mestan þátt í háu orkuverði
til almennings, en það er orkuverðið til
stóriðjufyrirtæja í landinu.
Bókasafn Nor
ræna hússins:
Nýjar norræn-
ar bokmenntir
■ í bókasafni Norræna hússins er
jafnan að finna nýjar norrænar bók-
menntir á frummáiinu auk ýmis konar
tímarita um bókmenntir. t>ar eru einnig
til hljómplötur og snældur með upplestri
norrænna rithöfunda, sem og videóband
með 11 dönskum nútímahöfundum. Allt
er þetta efni til útlána um lengri eða
skemmri tíma og á það við um landið
allt, en ekki einungis Stór-Reykjavíkur-
svæðið.
Ennfremur er hægt að fá lánaðar tvær
veggspjaldasýningar, sem unnar hafa
verið á vegum norrænu menningarmála-
skrifstofunnar í Kaupmannahöfn, og
sýnir önnur ýmsar staðreyndir tengdar
bókmenntaverðlaunum Norðurlandar-
áðs, en hin er um bókmenntir og bók-
menntahefð Færeyinga, Grænlendinga
og Sama. Eru textarnir á þessum vegg-
ipjöldum á íslensku.
-BK
■ Eiður ■ Hjörleifur
Um umframkostnað við Blöndu-
virkjun sagði Hjörleifur, að alþingis-
mönnum ætti ekki að koma hann á óvart
þar sem samningar lágu fyrir við þá
heimaaðila þegar Alþingi tók ákvörðun
um virkjunina. Væri rangt að kalla þetta
umframkostnað því mestur hluti hans
tengdist virkjunarframkvæmdunum svo
sem vegagerð o.fl. Hjörleifur benti á að
sjálfsagt væri að bæta heimamönnum
þann skaða sem þeir verða fyrir vegna
virkjunarframkvæmdanna.
Um síðustu áramót námu erlendar
skuldir 1200 milljónum dollara og þar af
var um helmingur vegna orkufram-
kvæmda. Kvað Hjörleifur mikilvægt að
fjárfestingin skili sér. En aðatriðið er að
það verður að jafna þann hrikalega
mismun sem er á orkuverði til stóriðju-
fyrirtækja og almenningsnota.
Sverrir Hermannsson iðnaðarráð-
herra boðaði framlagningu skýrslna í
sinni ræðu. Hann endurtók það sem
komið hefur fram í fjölmiðlum, að það
hafi komið sér á óvart að umframkostn-
aðurinn vegna Blönduvirkjunar stefni í
257 millj. kr. Auðvitað verður að bæta
tjón sem verður af völdum virkjunar-
framkvæmda, sagði iðnaðarráðherra, en
þetta þykir honum fullmikið. Hann sagði
að í næstu viku verði dreift á Alþingi
álitsgerð um samningagerð við Alu-
suisse. Orkustofnun vinnur að skýrslu um
innlenda orkugjafa og þýðingu þeirra.
Þá fer fram úttekt á starfsemi og rekstri
risanna, Orkustofnunar og Landsvirkj-
unar, og verður sú skýrsla tilbúin um
áramót. En iðnaðarráðherrasagðistekki
vera neitt á móti því að nefnd verði
skipuð til að fjalla um þetta mikilvæga
efni.
Páll Pétursson sagði þessa umræðu
tímabæra og að einskis ætti að láta
ófrestað til að ráða bót í því ófremdará-
standi sem orkumálin eru í. Hann taldi
■ Um næstu helgi, þann 28. og 29.
október mun Kiwanishreyfingin gangast
fyrir sölu á K-lyklinum undir kjörorðinu
„Gleymið ekki geðsjúkum", og rennur
ágóði af sölunni fyrst og fremst til
■ Sverrir ■ Páll
vandfundna þrjá sérfræðinga sem ekki
hefðu á einn hátt eða annan vera viðriðn-
ir orkuframkvæmdir. Hann sagðist ekki
skilja þá gleymsku flutningsmanna til-
lögunnar, að líta ekki á þátt stóriðjunnar
í orkuverði.
Rafmagnsmálasaga okkar á undan-
förnum árum er sorgarsaga, sagði Páll,
og þar hefur ríkt mikil óheillaþróun. Að
sumu leyti hefur þetta verið óviðráðan-
legt af okkur Islendingum, en að sumu
leyti er þetta sjálfskaparvíti vegna þess
að vitlausar ákvarðanir hafa verið
teknar.
Sú auðlind sem við héldum að við
ættum í vatnsafli hefur orðið með einum
og öðrum hætti okkur að tjóni. Það
hefur kostað of mikið að beisla orkuna
og að forvalta hana og orkunni hefur
verið ráðstafað að sumu leyti óskynsam-
lega til fyrirtækja sem hafa keypt mikið
af orku en ekki greitt nægilega fyrir. Og
sumum af þeim fyrirtækjum sem stofnuð
voru beinlínis til þess að nýta orkuna,
hefur síðan þurft að gefa með.
Um samningana um Blönduvirkjun
sagði Páll, að þeir væru bæði óhagkvæm-
ir fyrir landeigendur og virkjunaraðiia,
og væri það meistarastykki út af fyrir sig.
Minnti hann á að hann hefði oftlega bent
á vankanta þessara samninga og hafi á
sínum tíma lagt til að önnur leið væri
farin við virkjunina, en það varð ofan á
að fara þá leið er valin var.
Páll sagði að sér fyndist iðnaðarráð-
herra tala nokkuð glannalega um um-
framkostnaðinn, og tölurnar sem upp
eru gefnar vera háar og líklega orðum
auknar. Það væri eitthvað á skjön í þeim
útrekningum. Hann kvaðst óttast að ef
áætlanir hafi reynst svona rangar um
þetta atriði þá kunni þær að vera það
víðar í sambandi við virkjunina alla og
fleira eigi eftir að hækka pn hinn svokall-
aði umframkostnaður.
uppbyggingar endurhæfingarheimilis
fyrir geðsjúka staðsettu í Reykjavík,en
einnig til ýmissa verkefna fyrir geðsjúka
víðs vegar um landið. Er þetta í fjórða
sinnið sem K-lykillinn er seldur, og
■ Ólafur Þ. ■ Kari Steinar
Ólafur Þ. Þórðarson sagði að aðal-
atriðið fyrir hinu háa raforkuverði vera
hulið í tillögunni og sé því ekki seinna
vænna að sérfræðingar fjalli um þetta
mál og veiti þá nauðsynlegustu grunn-
fræðslu sem eðlilegt er að þingmenn hafi
á þessu sviði miðað við þá miklu um-
fjöllun og það mikla lestrarefni sem
fyrrverandi iðnaðarráðherra afhenti
þinginu. Staða þessara mála er mjög
alvarleg og sennilega er ekkert eitt, sem
stuðlar meira að byggðaröskun en hvern-
ig er komið í raforkumálum. En það eru
fyrst og fremst sölumál raforkunnar sem
hafa brugðist. Hitt er svo alvarlegt
umhugsunarefni að ef til vill hafa
þingmenn, með því að afhenda Lands-
virkjun virkjunarréttinn yfir Blöndu og
yfir Fljótsdalsvirkjun verið að bjarga
gjaldþrota fyrirtæki ef það væri látið
standa uppi með sína samninga.
Ólafur kvað athugandi að athuga
hvort það dæmi gengi upp að láta
sjálfstætt virkjunarfyrirtæki virkja
Blöndu og á Fljótsdal og selja þá orku
á eðlilegu verði. Þá er hætt við að kurr
yrði í því Iiði sem greiðir kostnaðinn af
þeim misheppnuðu samningum sem
gerðir hafa verið.
Karl Steinar Guðnason kastaði fram
spurningum um hvað lekinn í Sigöldu
kostaði og hvers vegna ekki væri fram-
leidd sú orka í Hrauneyjafossvirkjun
sem reiknað var með og hver er kostnað-
ur við Kvíslaveitu og fleira. Hann sagði
orkumálin hafa verið látin vaða á súðum,
vaðið hafi verið í of miklar orkufram-
kvæmdir án þess að hyggja að hver
kostnaðurinn yrði og til hvers ætti að
nýta orkuna.
Eiður Guðnason gerði lítið úr því að
orkuverðið til ísal væri ekki með í
myndinni, þar sem Alusuisse stæði undir
kostnaðinum við Búrfellsvirkjun.
OÓ
hefur hann ávallt verið seldur undir
sama kjörorðinu. Er hér um að ræða
sameiginlegt verkefni allra Kiwanis-
klúbba landsins og er það unnið í nánu
samstarfi við Geðverndarfélag íslands.
-AB
Tímamynd - G.E.
„Gleymid ekki geðsjúkum”
Kiwanismenn um land allt selja K-lykilinn
Málfreyjur
hefja
vetrarstarfið
■ Fyrsti fundur íslenskra málfreyja
á þessum vetri verður haldinn í kvöld
í Félagsheimili Stykkishólms, en þar
munu fulltrúar úr öllum deildum fé-
lagsins hittast. Nú eru starfandi 12
Málfreyjudeildir á landinu, og það er
Embla í Stykkishóimi sem er gestgjaf-
inn að þessu sinni. Forseti 1. ráðs
Málfreyja á íslandi er nú Kristjana
Milla Thorsteinsson.
Fyrsti fundur
í kvöld hjá
Kvæða-
mannafélag-
inu Iðunn
■ Vetrarstarf Kvæðamannafélagsins.
Iðunn er nú að hefjast og verður það
með hefðbundnum hætti. Fjórða laug-
ardag hvers mánaðar verða félagsfund-
ir og er sá fyrsti í dag að Hallveigar-
stöðum og hefst hann kl. 20.00. Verður
ýmislegt til skemmtunar að venju, ss.
vfsur, kvæði, söguþættiro.fl. Áfundin-
um í kvöld verða t.a.m. kvcðnar 140
lausavísur sem voru ortar í sumar-
ferðalagi félagsins. Áhugamenn um
þjóðlega hefð í vísnagerð og kveðskap
eru velkomnir, sem og félagsmenn.
-AB
Nýtt sambýli
fyrir
vangefna
■ Um síðustu mánaðamót varform-
lega tekið í notkun nýtt sambýli fyrir
vangefna við Háteigsveg í Reykjayfk.
Heimilismenn verða sjö taisins og
starfa þeir ýmist á almennum vinnu-
markaði, eða eru í þjálfun og vinnu á
vemduðum vinnustöðum. Þetta er
þriðja sambýlið sem Styrktarfélag van-
gefinna kemur upp hér í borginni, en
samtals dvelja á þeim 22 heimiiismenn
víðsvegar að af iandinu.
Við opnun hcimilisins gat formaður
félagsins, Magnús Kristinsson, góðra
gjafa sem heimilinu hafa borist. Lions-
klúbburinn Freyr gaf sjónvarp, hljóm-
flutningstæki, útvarp og ýmis önnur
heimilistæki og Kiwanisklúbburinn
Elliði gaf húsgögn í borðstofu og í
vaktherbergi, en báðir þessir þjónustu-
klúbbar hafa margoft áður gefið
rausnarlegar gjafi r til stofnana félags-
jns. Þá gaf Mæðrafélagið 125 þús. kr.
til kaupa á búnaði og húsgögnum.
Sú ákvörðun að koma á fót Ðerri
sambýlum er mjög t' anda þeirrar
stefnu sem hæst ber í þeim löndum þar
sem mál þessi eru lengst komin.
Markmið sambýlanna er að aðlaga
hinn vangefna því þjóðfélagi sem
hann lifir í, m.a. með því að búa í
venjulegu íbúðahverfi, en það er stórt
stökk að flytjast úr vernduðu umhverfi
þegar á fullorðinsár er komið.
Hlutverk sambýlanna er fyrst og
fremst það að skapa heimilisfólki hlý-
legt og gott heintili, þar sem það getur
jafnframt notið þeirrar aðstoðar, sem
því er nauðsynleg. -BK
Stofnfundur
Þroskahjálpar
á Reykjanesi
■ Á öllum starfssvæðum landsins
nema á Reykjanesi, eru nú starfandi
öflug félög, scm vinna mikið starf í
þágu þroskaheftra. Og nú er ætlunin
að skella í síðasta hlekknum og stofna
félag sem nær yfir Reykjaneskjör-
dæmi. í frétt frá undirbúningsaðilum
segir að markmið væntanlegs félags
vcrði m.a. að efla tengsl milli foreldra
og áhugafólks á svæðinu sem sameinast
vilja um þá stefnu að tryggja þroska-
heftum fullt jafnrétti á við aðra þjóð-
félagsþegna. Það erskoðun undirbún-
ingsaðila að gera þurfi sérstakt átak á
allra næstu árum í uppbyggingu þjón-
ustustofnana og skipulagningu þjón-
ustu á Reykjanessvæðinu. Skorað er á
foreldra og áhugafólk að mæta á
fyrirhugaðan stofnfund Þroskahjálpar
á Reykjanesi sem verður n.k. laugar-
dag 22. okt. í J.C. heimilinu Dals-
hrauni 5, Hafnarfirði kl. 14:00. -BK