Tíminn - 03.01.1984, Qupperneq 13

Tíminn - 03.01.1984, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1984 13 umsjón: Skafti Jónsson vidskiptalífid nmuGu LANDARKVNNA SÉRBNREKST- URÍASÍU — ferðast um Japan, Hong Kong og Singapore ■ Intæknistofnun íslands hefur skipu- lagt kynnisferö til Singapore, Hong Kong og Japans dagana 13. til 29. janúar næst komandi. Þátttakendur í ferðinni verða um það bil 20, fulltrúar iðnfyrir- tækja, samtaka og stofnana iðnaðarins. Tilgangurinn er að kynnast aðferðum, bæði á sviði tækni og stjórnunar, sem hafa gert það kleift að ná fram háu framleiðnistigi og miklum gæðum í iðnaði. Sérstök áhersla verður lögð á eftirtalin atriði: Gæðahringi, heildar- gæðaeftirlit, framleiðniaukandi aðgerð- ir, samskipti stjórnenda og samstarfs- manna, sjálfvirkni og iðnróbóta, jap- anskar stjórnunaraðferðir, iðnþróunar- stefnu stjórnvalda, iðnaðarumhverfi og hvata til iðnþróunar. „Tækniþróun víða um heim hefur orðið fyrir miklum áhrifum frá Japan og öðrum löndum SA-Asíu á síðustu árum. Framleiðniaukning er meiri í Japan en nokkru öðru landi og gæði japanskrar iðnaðarvöru eru heimsþekkt. Efnahags- leg staða Japans er nú alger andhverfa ástandsins þar fyrir 20 árum, þegar framleiðsluvörur Japana nálguðust að vera rusl. Þrátt fyrir takmarkaðar auð- lindir og lítið landrými hafa Japanir sannað, að unnt er að auka bæði fram- leiðni og gæði stórkostlega á tiltölulega stuttum fi'ma ef beitt er virkum aðferðum við stjórnun. Þetta hefur bætt sam- keppnisstöðu iðnaðarins þannig, að Jap- anir eru nú með fremstu iðnaðarþjóðum heims. Hong Kong og Singapore byggja einnig hratt upp nýtískulegan iðnað og stefna að gæðum og hárri framleiðni á sama hátt og Japanir," segir í frétt frá Iðntæknistofnun. Þá segir að helstu iðnaðarþjóðir á Vesturlöndum hafi á undanförnum árum tekið upp japanskar stjórnunaraðferðir með einum eða öðrum hætti. Á sama tíma hafi viðskipti við SA-Asíu stórauk- ist, sérstaklega hjá Norðurlandþjóðum. ■ ATR 42 skrúfuþoturnar eru með sæti fyrir 42 til 50 farþega - nokkru minni en Fokker vélamar. Flugleiðir huga að flugvélakaupum á innanlandsleiðir: Aætub verb velar UM 200 MIIUÓNIR HH| \ i ImlHÍ' í " «1 '' 4 © íV j|§§ — en félagið hefur einkum tvær tegundir í huga Hafskip opnar í Rotterdam ■ Fimmta svæðisskrifstofa Hafskips hf. erlendis tekur fljótlega til starfa í Rotterdam í Hollandi, en hún verður rekin af dótturfyrirtæki félagsins, Haf- skip Nederland BV. Þegar hafa verið ráðnir tveir menn til að undirbúa stofnun skrifstofunnar, en þeir munu síðan veita henni forstöðu. Bragi Ragnarsson verður fram- kvæmdastjóri áætlanaflutningadeildar, en Wim Van der Aa, framkvæmdastjóri miðstöðvar Evrópuviðskipta fyrir Cos- mos Shipping co Incorp., sem er dóttur- fyrirtæki Hafskips í Bandaríkjunum. ■ Flugleiðir huga nú að kaupum á hagkvæmum flugvélum til að reka á innanlandsleiðum félagsins í stað Fokker Friendship vélanna, sem notaðar hafa verið um langt árabil. í viðtali við Leif Magnússon, fram- kvæmdastjóra flugrekstrarsviðs Flug- leiða, sem birtist í nýjasta hefti Við sem fljúgum, kemur fram, að athyglin beinist einkum að tveim gerðum flugvéla, það- er að segja endurbættri gerð af Fokker Friendship, sem heitir Fokkcr 50, svo og nýrri fransk-ítalskri skrúfuþotu sem heit- ir ATR 42. Báðar þessar flugvélar verða búnar nýrri gerð skrúfuhreyflasem fram- leiddir verða hjá Pratt & Witney í Kanada, og eru milli 30 og 40% spar- neytnari en hreyflar Fokkeranna sem nú eru í notkun, og að auki verulega hljóðlátari. Fokker 50 vélin hefur sömu skrokk- stærð og þeir sem nú eru notaðir, og verður sætafjöldi væntanlega 54 til 56. ATR 42 flugvélin er heldur breiðari en styttri og rúmar 46 til 50 í sæti. Leifur upplýsir í viðtalinu, að áætlað kaupverð ATR vélanna sé um 200 milljónir króna miðað við núverandi gengi. „Meginávinningurinn í rekstri hinna nýju véla yrði verulega minni eldsneyt- iskostnaður og minni viðhaldskostnað- ur. Hins vegar yrði fjármagnskostnaður, þ.e. afskriftir og vextir, miklu hærra en á þeim flugvélum sem nú eru notaðar. Þyrftu því leyfð far- og flutningsgjöld að taka raunhæft mið af þeirri staðreynd", segir Leifur í viðtalinu. Guðjón B. Ólafsson, framkvæmdastjori lceland Seafood: Kosinn í stjórn bandarískra mat- vælaframleiðenda ■ Bandarísk fyrirtæki sem fást við framleiðslu, sölu og dreifingu á frystum matvælum, hafa með sér samtök er ná til allra Bandaríkjanna. Nefnast þau Nat- ional Frozen Food Association og skipta aðildarfyrirtæki þeirra þúsundum. Á þingi þessara samtaka, sem haldið var fyrir nokkru, var Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Iceland Seafood Corporation, kosinn í stjórn samtakanna. Jafnframt var hann kosinn til setu í framkvæmda- nefnd og kjörinn formaður sérstaks ráðs sem fer með málefni veitingahúsa. Eimskip stofnar saltsölufyrirtæki ■ Eimskip hefur nýlega hafið dreifingu og sölu á sjávarsalti til saltfiskverkunar. Salt þetta er fram- leitt skammt frá bænum Santa Pola á Sen Pedro Del Pinitar á sólar- strönd Spánar. Hefur salt frá þessu svæði mikið verið notað til saltfisk- verkunar hérlendis undanfarin ár. í fréttabréfi Eimskips, segir að tilefnið að þessari starfsemi sé, að útflutningur frá íslandi til Miðjarð- arhafslanda hafi mjög aukist að undanförnu. í því sambandi eru nendir flutningar ÍSAL til Ítalíu, mjöl til suðurstrandar Spánar, auk saltfiskflutninga til Ítalíu og Grikklands. „Mjög hagkvæmt er að nýta þau skip félagsins sem annast þessa flutninga til að flytja salt til Islands á heimleið", segir í fréttabréfinu. Rekstur Eimsalt, en svo hefur saltsölufyrirtækið verið nefnt, verður í umsjá Jóhanns Guð- mundssonar, afgreiðslumanns Eimskips í Hafnarfirði, en með honum mun starfa Guðmundur Vigfússon, starfsmaður Hafnar- fjarðarafgreiðslu. Nýr framkvæmdastjóri hjá FÍB. ■ Stjórn Félags íslenskra bifreiðaeig- enda hefur ráðið Jónas Bjarnason í stöðu framkvæmdastjóra FÍB, en Haf- steinn Vilhelmsson lét af því starfi nú um áramótin og tók við framkvæmdastjóra- starfi hjá DHL Hraðflutningum. Jónas Bjarnason lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla íslands árið 1975. Hann hóf nám við heimspekideild Há- skóla íslands, en hvarf frá námi og setti á stofn eigið fyrirtæki, Hljóðtæki. Árið 1980 réðist hann sem framkvæmdastjóri til Félags farstöðvaeigcnda á íslandi og var í því starfi þar til fyrir tveimur mánuðum. ■ Jónas Bjarnasun, framkvæmdastjóri FÍB.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.