Tíminn - 04.01.1984, Síða 10
ÍO
MIÐVIKUDAGUR 4. JANUAR 1984
MIÐVIKUDAGUR 4. JANUAR 1984
15
umsjón: Samúel Örn Erlingsson
iþróttir
molar.
Borg slær
enn - en á
fleiri vegu...
■ Björn Borg, liinn heimsfrægi tennis-
leikari á árum áöur, er ekki hættur að slá
tennisbolta, þrátt fyrir að vera hættur
alvarlegri keppni. Borg keppir enn í
sýningarlcikjum, fyrir mikla pcninga.
Kappinn hcldur sér enn í þokkalegu
formi, segja þeir sem við hann keppa,
cnda tapa margir fyrir honum, þö þeir
æfi stíft. Þrátt fyrir þetta bólar ekkert á
því að þessi sterki tennisleikari komi til
með að byrja aftur á fullu, en hann slær
boltann.ogekkialltafmeðtennisspaða.
Fyrir skömmu stofnaði Björn Borg
golfklúbb, sem heitír golfklúbbur Björns
Borg, og cr hann sjálfur formaður. Borg
mun stunda golfið af kappi og hafa
gaman af, og hefur komist á síður
heimsblaðanna sem golfleikari, sem
slær tennisbolta með golfkylfu...
Daume skipu-
leggur áfram
Ólympíuleika...
■ Willi Daume, hinn sjötugi formaður
v-þýsku Ólympíunefndarinnar, sem var
maðurinn bak við skipulagningu Ólym-
píulcikanna í Munchen árið 1972, er
ekkert að hægja á. Hann var ckki alls
fyrir löngu, þrátt fyrir sinn háa aldur,
kjörinn formaður þýskrar nefndar, scm
vinnur að því að vetrarólympíulcikarnir
árið 1992 verði haldnir í Berchtesgaden
í V-Pýskalandi...
Atvinnumaður
íveggtennis...
■ í öllu er nú hægt að vera atvinnumað-
ur. Fyrsti Daninn til aö skrifa undir
atvinnumannasamning í íþróttinni squ-
ash (eins konar veggtennis) gerði svo um
daginn. Sá heitir Arthur Jakobscn, og
mun leika sem atvinnumaður á Eng-
landi, þar sem þessi íþrótt er mjög vel
þekkt. Jakobsen sagði við þetta tækifæri,
að liann hygðist verða meðal hinna bestu
100 í heiminum innan árs, og hefur æft
markvisst. Hann hefur æft stíft með
bestu badmintonleikurum Dana, og
þrek hefur hann æft með danska sigl-
ingamcistaranum Sven Carlsen.
Squash er teikið á einum stað á íslandi
að einhverju marki, eftir því sem Tím-
anum er kunnugast um. Það er í þrek-
miðstöðinni í Hafnarfirði, þar scm Páll
Ólafsson íþróttakennari heldur um
stjórnvölinn ásamt Geir Hallsteinssyni
handboltafrömuði. Páll kynntist íþrótt-
inni í námi sínu í Englandi á árum áður,
og mun íþróttin hafa náð talsverðum
vinsældum meðal gesta Prekmiðstöðvar-
innar...
ÞRÓTTARAR URÐU
REYKJAVIKURMEISTARAR
Valur hlutskarpastur í kvennaflokki
í innanhússknattspyrnunni
■ Þróttur Reykjavík varð Reykjavík-
urmeistari í innanhússknattspyrnu í
fyrrakvöld, sigraði KR 7-5 í framlengd-
um úrslitaleik. Valur sigraði í kvenna-
flokki, og lauk leik Vals og KR, sem
stóðu upp úr á mótinu 4-3 Val í hag.
Þróttarar léku betur en KR-ingar í
úrslitaleiknum í karjaflokki. Þeir komust
í 3-1, en KR-ingar náðu að jafna 4-4 fyrir
leikslok. Þá var framlengt, og Þróttarar
urðu sterkari á endasprettinum.
KR sigraði á Reykjavíkurmótinu í 4.
íslenskar
valkyrjur í
Svíaríki
■ Tvær landsliðskonur í knatt-
spyrnu, þær Magnea H. Magnús-
dóttir Breiðabliki og Brynja Guð-
jónsdóttir Víkingi hafa nú gengið
til liðs við sænska liðið Öxnabáck.
Öxnabáck er eitt sterkasta
kvennaknattspyrnulið Svía varð
meistari fyrir tveimur árum, og í
þriðja sæti þar í fyrra. Það var
fyrrum Breiðabliks og landsliðs-
þjálfarinn Sigurður Hannesson
sem annaöist milligöngu fyrir
stúlkurnar, og munu þær halda
áleiðis til Svíþjóðar í dag.
Upphaf tengsla Öxnabáck við
íslenska kvennaknattspyrnu var
sumarið 1982, þegar liðið gerði
tveimur íslenskum knattspyrnu-
konum, þcini Astu B. Gunnlaugs-
dóttur og Rósu Valdimarsdóttur
tilboð eftir landsleik Islands og
Svíþjóðar hér. Þær stöllur tóku og
litu á aðstæður, en tóku ekki
tilboði liðsins. liðið gerði síðan
Ástu B. Gunnlaugsdóttur annað
tilboð síðastaliðið sumar, sem hún
ekki gat tekið.
Samkvæmt upplýsingum Tím-
ans munu 6 nýir sænskir leikmenn
bætast við hjá Öxnabck fyrir næsta
keppnistímabil, auk þeirra Magn-
eu og Brynju. Því er hætt við að
róðurinn geti orðið erfiður hjá
þeim stöllum. Þær eiga þó góða
nröguleika, Magnea lék sitt besta
keppnistímabil síðastliðið sumar
með Breiðabliki, og Brynja stjórn-
aði liði sínu Víkingi af festu, þrátt
fyrir að vera ung að árum, aðeins
18 ára.
-SÖE
Sigurður P.
varð fyrstur
— í Gamlárshlaupi ÍR
■ Sigurður P Sigmundsson FH sigraði
í Gamlárshlaupi IR, síðasta víðavangs-
hlaupi ársins 1983. Hrönn Guðmunds-
og 6. flokki. Fram vann í 3. og 5. flokki,
en Þróttarar sigruðu í 2. flokki eins og í
mcistaraflokknum.
-SÖE
Nýárssund fatlaðra
■ Nýárssund fatlaðra barna og ung-
linga verður haldið 7. janúar næstkom-
andi í Sundhöll Reykjavíkur. Forseti
Islands, Vigdís Finnbogadóttir mun af-
henda verðlaun að mótinu loknu, sem
haldið verður með glæsibrag, hljóðfæra-
leikurum og ræðumönnum.
- ‘mé-
VID BERJUMST FYRIR
UFILYFTINGANNA”
— hér á landi — allt of lítil endurnýjun
segir Birgir Þór Borgþórsson
■ „Við erum eiginlega að berjast fyrir
lífi lyftinganna hér, endurnýjunin er
orðin svo rýr, og við erum að reyna að
byggja okkur hús þannig að við getum
boðið upp á almennilega aðstöðu til að
æfa keppnislyftingar“, sagði Birgir Þór
Borgþórsson lyftingamaður í samtali við
Tímann í gær. „Við KR-ingar erum
búnir að steypa plötu undir hús við
Frostaskjól, og stálgrindurnar fara von-
andi upp í vor“, bætti Birgir við.
Birgir sagði, að á þeim tímasem engin
■ Birgir Þór Borgþórsson: Endurnýjunin er alltof lítil í lyftingunum.
RsiBrfliir msf Fےr*0ii r
náðu lágmörkunum
— í sínum fl — en þeir v< ■ Þeir bræður, Baldur og Birgir Þór Borgþórssynir KR náðu báðir lág- mörkum, þcim sem Alþjóðalyftingasam- bandið hefur sett til þátttöku á Ólympí- uleikununt í Los Angeles í sumar, á Revkjavíkurmótinu í ólympískum lyft- ingum á gamlársdag. Þetta þýðir þó alls ekki að þeir bræður komist á leikana, þar eð Olympíunefnd íslands hefur sett sér það takmark að aðeins fari frá íslandi keppendur á Ólympiuleika sem eigi lokkum fyrir erða að geit raunhæfa möguleika að verða a.m.k. fyrir ofan miðju. Baldur sigraði í 90 kg flokki, og lyfti samanlagt 320 kg, sem hefði staðsett hann um miðju á síðustu Ólympíu- leikum. Birgir lyfti aftur aðeins 325 kg, en besti árangur hans, 345 kg í 100 kg flokki, hefði nægt honum til að vera um miðju á síðustu Ólympíuleikum. Baldur og Ingvar J. Ingvarsson reyndu OL í sumar i betur til að í síðasta sinn að bæta Norðurlandamet unglinga í sínum flokkum á mótinu, enda mótið þeirra síðasta í unglinga- flokki. Það tókst ekki, Ingvar var langt frá sínum besta í 110 kg flokknum, en Baldur átti sannfærandi tilraunir við 150,5 kg í snörun og 183,5 kg í jafn- höttun. Honum tókst þó ekki að klára lyfturnar. Baldur á nú þegar hann gengur upp úr unglingaflokki, Norðurlandamet unglinga í snörun í 82,5 kg flokki, í i komast snörun í 90 kg flokki (150 kg), og í samanlögðu í 90 kg flokki. Þorkell Þórisson Ármanni sigraði í 60 kg flokki, varð Reykjavíkurmeistari með 210 kg samanlagt. Hilmar V. Guðmundsson Ármanni sigraði í 75 kg flokki með 180 kg samanlagt, Helgi Auðunsson Ármanni sigraði í 82,5 kg flokki með 202,5 kg samanlagt, og Ingvar J. Ingvarsson KR sigraði í llOkg flokki með 325 kg samanlagt. -SÖE
■ Sigurður P. Sigmundsson, sigraði
i Gamlárshlaupinu.
dóttir ÍR hélt uppi heiðri mótshaldara í
kvennaflokknum, sigraði. Hlaupnir voru
10 kílómetrar. Þátttakendur voru 31 að
þessu sinni, næstflest sem orðið hefur,
flest í fyrra 36. Þessi 31 keppandi skiptist
í 26 karla og 5 konur.
Úrslit urðu þessi í hlaupinu:
1. SigurðurP.SigmundssonFH 32,57
2. Sigfús Jónsson ÍR 33,28
3. Hafsteinn Óskarsson ÍR 33,51
4. Steinar Friðgeirsson ÍR 34,00
5. Sighvatur D. Guðmundss ÍR 34,28
6. Garðar Sigurðsson ÍR 35,40
7. Gunnar Birgisson ÍR 36,52
8. Jóhann Heiðar Jóhannss ÍR 37,22
9. Magnús Haraldsson FH 37,50
10. Stefán Friðgeirsson ÍR 38,13
Konur:
1. Hrönn Guðmundsdóttir ÍR 44,31
2. Guðrún Eysteinsdóttir Fh 45,26
3. Rakel Gylfadóttir FH 46,12
Þrír efstu í hvorum flokki hlutu verð-
launapeninga að venju, og auk þess var
nafn sigurvegaranna skráð á Bertelsen-
skjöldinn, sem nú hefur verið tekinn í
notkun varðandi hlaupið, til minningar
um stofnanda og fyrsta formann ÍR. Þá
voru dregin út til handa þremur kepp-
enduin endurskinsbelti sem nýtt fyrir-
tæki, Gnýr hf framleiðir og gaf til hlaups-
ins, og hlutu þau Garðar Sigurðsson,
Stefán Friðgeirsson og Árni Kristjáns-
son.
-SÖE
Olga Korbut,
fyrrum fimleikastjarna:
Hefur meira
dálæti á
[ifandi
hestum
■ Hin 28 ára gamla iimleikastjarna,
Olga Korbut, sem stökk og dansaði inn
í hjörtu flmleikaaðdáenda um allan hcim
á Ölympíuleikunum í Munchen árið
1972, þar sem hún vann þrcnn gullvcrð-
laun, hefur nú hafið stífar æflngar í sinni
nýju íþróttagrein.
Áhugi hennar er nú mestur á lifandi
hestum, í stað dauðra fimleikahesta
áður, og hefur hún sökum þess mikla
metnaðar sem hún hefur til að bera,'
hafið æfingar í hestaíþróttum með
keppni fyrir augum. Þarna er ekkert
verið með neinn smákallahátt, enda skal
mikið til mikils vinna. Þjálfari hennar í
hestaíþróttunum er enginn annar en
sovéski hestamaðurinn Viktor Ugryum-
ow, sem vann bronsverðlaun í
einstaklingskeppni og gull í liðakeppni á
Ólympíuleikunum í Moskvu árið 1980...
-SÖE
■ Olga Korbut, á þeim dögum þegar hún var aðalflmleikastjarna Sovétríkjanna og
reyndar heimsins alls, ásamt þáverandi sterkasta manni heims, landa sínum, Vassili
Alexíjev. Þau eru dálítið misstór, en vel fer á með þcim. Nú er Olga mjög áhugasöm
í hestaíþróttunum, og stundar þar stífar æflngar undir stjórn frægs hestamanns.
aðstaða hefði verið til lyftingaæfinga að
ráði í Reykjavík, nema í Jakabóli. hefðu
þeir sem vildu hressa upp á skrokkinn
með lyftingum komið þangað, síðan
hefði alltaf ákveðin prósenta fengið
„bakteríuna", og hafið að æfa íþróttina
með keppni fyrir augum. - „En eftir að
allar líkamsræktarstöðvarnar komu til
sögunnar, fer fólk frekar þangað,
skiljanlega, þar sem bæði eru teppi og
speglar og annað sem ekki er í okkar
frumstæðu aðstöðu. Þar af leiðandi varð
streymið til okkar mun minna en áður,
þar sem keppnislyftingar og æfingar fyrir
þær koma ekki við slíkar stofnanir að
ráði. Með byggingu hússins getum við
boðið upp á viðunandi aðstöðu, og þá
vonum við að þetta lagist aftur", sagði
Birgir.
- Er jafnvægið milli ólympískrar tví-
þrautar og kraftlyftinga að jafnast?
„Já, eftir að fleiri þjóðir hófu að æfa
kraftlyftingar, og erfiðara varð að ná
langt þar, svo og ef(ir að sól þeirra Skúla
Óskarssonar og Jóns Páls Sigmarssonar
hætti að skína sem hún gerði, hefur
orðið meira jafnvægi í þessu."
Það kom fram hjá Birgi, að um 120
þjóðir væru meðlimir að Alþjóðalyft-
ingasambandinu, meðan ekki væru
nema á fjórða tug þjóða meðlimir í
Alþjóðakraftlyftingasambandinu. - Það
er því ljóst að Ólympískar lyftingar eru
mun alþjóðlegri grein, enda ekki keppt
í kraftlyftingum á Olympíuleikum. Þar
hafa reyndar Austur-Evrópuþjóðir
mikla yfirburði, og eiga jafnan Hesta
verðlaunahafa. -SÖE
■ Hér sést á bakið á Jurgen Hingsen og konu hans, í brúðkaupi þeirra
nýverið. Lengra frá sést urmull Ijósmyndara, enda vekur athygli þegar frægur
íþróttamaður á heimsmælikvarða og fegurðardrottning og ballettmær láta
pússa sig saman!
ALDREIER
NÚ FRIÐUR...
■ Frægar íþróttastjörnur mega,
ekki frekar en kvikmyndastjörnur
eða fegurðardísir, vart fingri lyfta,
eða öxlum yppa án þess að blaða-
menn og Ijósmyndarar séu mættir
á svæðið til að festa atburðinn á
filmu og þrykk.
Þannig var nú um daginn, þegar
athöfn nokkur fór fram í Lamb-
ertuskirkjunni í Dússeldorf. Þar
mættu hundruð Ijósmyndara,
blaðamanna og aðdáenda, þegar
tvær ungar sálir voru gefnar saman
með pomp og pragt. Frúin tilvon-
andi hél Jean Louise Purcell,
ballettdansmær og fcgurðar-
drottning frá Santa Barbara í
Kalifomíu í Bandaríkjunum, og
eiginmaðurinn tilvonandi var eng-
inn annar en hinn 25 ára gamli,
tveggja metra hái, og hundrað
kflóa þungi Júrgen Hingsen,
heimsmethafi í tugþraut, en hann
er eimitt frá Dússeldorf...
-SÖE
ATVINNUMENNSKA
í UNGVERJALANDI
■ Andstætt austurcvrópskum stjóm-
málahugmyndum, hefur nú veríð tekin
upp atvinnuknattspyrna í Ungverja-
landi. Var það gert aðallega til að spoma
við alls konar svindli og braski í ung-
verskri knattspyrnu. Félögin þar hafa
fengið ársfrest til að aðlaga sig þessum
nýju háttum, og flokkurínn hefur ákveð-
ið að laun hvers knattspyrnumanns skuli
ekki fara yfir 5500 krónur íslenskar á
mánuði...
-SÖE
moiar i
Mexíkanar æfa
markvisst...
■ Landsliðsþjálfari Mcxíkana í knatl-
spyrnu, Velibor Milutinovic, er þegar
byrjaður aö þjálfa lið sitt fyrir úrslita-
keppni Heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu, sem haldin verður árið
1986 í Mcxíkó.
Milutinovic hefur valið 16 manna hóp,
sem kemur saman að jafnaði einu sinni
í mánuði.ogerþáæftafkappi. Milutino-
vic útilokar að sjálfsögðu ckki að nýir
menn komi inn í hópinn fyrir aðra fyrir
úrslitakeppnina, hann ætlar $ér bara að
hafa tímann fyrir sér. Mikill undirbún-
ingur er mexíkanska liðinu nauðsyn-
legur. þar eð líklegt er að liðið þurfi á
brattann að sækja, enda ekki mjög hátt
skrifað í knattspyrnu í dag.
Stórsigrar
með 34 ára
millibili...
■ Arnold Palmer, 53 ára golfleikari,
hefur tapað því meti, sem hvað mesta
athygli hefur vakið á ferli hans. Palmer
átti það met að hafa verið lengst í
toppbaráttunni, hann sigraði á sínu
fyrsta stórmóti í golfi áriö 1954, þegar
liann varð Bandaríkjameistari áhuga-
manna í golfi. Siðasta stórmót vann hann
árið 1981, og liðu því 28 ár milli þessara
stórsigra.
Nú hefur bandaríska golfynjan Doro-
thy Porter slegið þetta met. Hún sigraði
á meistaramóti áhugamanna í Banda-
ríkjununt í fjórða sinn á síðasta ári, og
vann slíkt mót í fyrsta sinn árið 1949,34
árum áður. Porter er sextug á þessu ári.
Hver segir svo að allt sé ekki sextugum
fært...?
Andreotti
til Lolu
■■■
■ Fyrrum heiinsmeistari í Formúla 1
kappakstri, Mario Andretti, hcfur nú
skrifað undir samning við kappaksturs-
liðið Lolu, en það kappaksturslið hefur
unnið sér það meðal annars til frægðar,
að kvikmyndahetjan Paul Newman er
þar meðlimur...
Markverðirnir
með hjálm?
og knattspymuleikir af stað
með skammbyssuskoti?
■ Bandaríkjamenn eru frægir fyrir það
að þeir fara sínar eigin leiðir þegar
evrópsk knattspyrna er annars vegar.
Þeir leika mcðal annars með sérstaka
rangstöðulínu, og ef jafntefli verður
cftir venjulegan leiktíma hafa þeir
bráðabana. Til FIFA, Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins. hafa Bandaríkja-
menn scnt merkilcgar tillögur, eins og
þeirra cr vandi þegar slíkt er annars
vegar. Þar leggja þeir til að markverðir
í knattspyrnu skuli eftirleiðis leika með
hjálm á höfði.
Englendingar urðu lítt upprifnir yfir
þcssari tillögu, en fyrst risu þó hár
þeirra, þegar næsta tillaga var lesin.
Bandaríkjamennirnir lögðu sumsé til að
í staö flautu skuli knattspyrnuleikir hér
eftir verða settir af stað meö skamm-
byssuskoti, svo sem venja er þegar
frjálsíþróttamenn eru ræstir til kcppni.
En það má segja, svona til huggunar
Englendingum, sem eru stoltir af sinni
þjóðaríþrött, að í Bandaríkjunum þýðir
knattspyrna ekki það sama og í Evrópu.
Over there (þar yfirfrá) er knattspyrqan
ncfnilega eingöngu „show“, að því er
inargir evrópskir sparksérfræðingar
herma... _SqE