Tíminn - 05.01.1984, Blaðsíða 8

Tíminn - 05.01.1984, Blaðsíða 8
en það bólar því miður alltof Tímamynd Róbert. ■ Hvarvetna í Breiðholti voru bílar fastir, og menn urðu varir við þessa merkilegu samkenndartilfinningu, þegar allir vilja hjálpa öllum sjaldan á þeirri kennd. Breiðholt: BÍOHÖLUN AÐALBÆKISTÖÐ BJÖRGUNARAÐGERÐA í GÆR ■ Seinni partinn í gær þeg- ar veðrinu var aðeins farið að slota hittu Tímamenn fjöldann allan af gangandi vegfarendum í Breiðholti, á leiðinni upp í efra Breið- holt. Flestir höfðu beðið á vinnustöðum, í stofnunum eða skólum eftir að drægi úr veðurhæðinni svo þeir gætu reynt að ná heim tU sín áður en hann ryki upp aftur. Voru menn misjafnlega vel útbúnir eins og gengur, en flestir voru þó þokkalega vel klæddir - helst var að sjá að eitthvað skorti á skóbúnaðinn, því hvarvetna á leið úr Breiðholti III niður í Breiðholt I voru djúpir skaflar, þannig að ekki veitti af góðum kuldaskóm. GreinUegt var, er Tíma- menn brutust niðureftir, að fjölmargir bUstjórar á litlum, vanbúnum fólksbU- um voru aðalorsökin fyrir þeim fjölmörgu flöskuháls- um sem höfðu myndast, enda sátu Reykvíkingar svo hundruðum skipti í bUum sínum klukkutímum saman í gær og biðu þess eins að hjálp bærist. Hjálpin barst líka, bara misjafnlega fljótt, þannig að sumir þurftu að sitja á bflum sínum í 4 tU 5 klukkustundir, áður en þeir voru aðstoðaðir inn í hlýrri húsakynni. Lögregla, hjálp- arsveitarmenn, björgunar- sveitarmenn og velviljaðir einstaklingar á góðum trukkum voru á þönum all- an daginn til þess að veita fólki aðstoð, og í mörgum tUvikum, hreinlega að bjarga fólki sem hætt var komið vegna kulda og vos- búðar. Tímamenn tóku nokkra vegfarendur tali á för sinni um Breiðholtið í gær, en Bíóhöllin í Mjódd- inni var í gær einskonar bækistöð fyrir björgunar- menn, lögreglu, hjálpar- sveitarmenn og hrakta ferðalanga, því snjóbflar, trukkar og jeppar sem unnu að hjálparstarflnu keyrðu þá sem á aðstoð þurftu að halda þangað, og þar biðu þeir, þar til hægt var að aðstoða þá heim á leið.-AB ■ Hðfuðstöðvar björgunarmanna í Breiðholti í gær, voru í Bíóhöllinni j Mjóddinni og var þar titt margt um manninn. Hér er einn „snjóbflsfarmur“ nýkominn í Bíóhöllina, og höfðu sumir ferðalanganna þurft að bíða klukkustundum saman í bflum sínum, áður en þeim barst aðstoð. A myndinni má þekkja Ómar Valdimarsson formann Blaðamannafélags Islands og blaðamann Morgunblaðsins, en hann var einmitt einn af mörgum sem leita varð skjóls í Bíóhöllinni. Tímamynd Róbert. Helgi Eyvinds, aðstoðaði fólk á Lapplandemum sínum í allan gærdag. Tímamynd - Róbert Páll Einar Kristinsson: „Þurfti að halda mér á Höfðabakkabrúnni” ■ Stór og stæðilegur ungur maður, með annan yngri á öxlunum gengur fram á okkur, - er að koma frá því að sækja son sinn á Fálkaborg. Faðirinn er Páll Einar Kristinsson og sonurinn er Atli Þór. Blaðamaður spyr Pál Einar hvort hann hafi lent í hrakningum á leiðinni á Fálkaborg, til þess að sækja soninn. „Nei, þetta er allt í lagi núna, en ég lenti hins vegar í kröppum dansi í morgun. Ég fórfrá Bíldshöfðanum fyrir hádegið fótgangandi og skildi bílinn eftir, því ófærð og veður var orðið slíkt. Veðrið var alveg snarvitlaust og þegar ég fór yfir Höfðabakkabrúna, þá þurfti ég bara að stoppa og halda mér með báðum höndum." -AB ■ „Ég er ekkert að flækjast. Ég ætla bara að koma bflnum inn á plan hjá bensínstöðinni, svo hann verði ekki fyrir,“ sagði Ásgrímur Grímsson er blaðamaður spurði hann hvað hann væri að flækjast svona illa útbúinn. Tímamynd Róbert. Lapplandereigandi með einkaframtaksaðstod: „Keyrði einn á slysavarðstofuna og tvo kransæðasjúklinga heim” Björgunarsveitin Ingólfur: „Björguðum hjarta- sjúklingi sem sat fastur í bíl sínum” ■ Er við þrömmum upp að Bíóhöllinni í Mjóddinni kemur einn heljar mikill snjóbíll frá Björgunarsveitinni Ingólfi að Bíóhöllinni fullur af fólki, sem björg- unarsveitarmenn hafa hirt upp á leið sinni. Einn björgunarsveitarmannanna er ísak Viggósson. Tíminn spurði hann hve mörgum hann og hans menn hefðu komið til hjálpar það sem af væri deginum: „Oh, heldurðu að maður hafi nú ekki eitthvað annað að gera en að telja þá? Þeir eru orðnir ansi margir, það sem af er deginum og eiga eftir að verða fleiri. Við erum búnir að vera á þönum í Seljahverfi og svo þurftum við að fara í Torfufell, en þar eru snjóþyngsli geysi- lega mikil. Það var nú skemmtilegast fyrir okkur að fara með hjartasjúkling hérna uppeftir, en hann sat fastur í bíl sínum hér úti á Breiðholtsbraut. Við fórum með hann upp í Torfufell. Svo þegar við vorum að koma niður eftir, eftir Seljabrautinni, þá sást til dæmis þara í loftnet á einum bíl sem við keyrðum fram á, þannig að það sést af þessu að margt er að varast, og bíla og annað hefur fennt eða öllu heldur skafið 'í kaf.“ ísak segir mér að þeir björgunarsveit- armenn hafi verið á ferðinni síðan um hádegi og sagðist hann allt eins reikna með að þeir þyrftu að halda áfram fram eftir kvöldi og jafnvel nóttu í gær. Hann sagði að það væri nú svo sem ekki mikið, því þeir hefðu lengst þurft að vera á férðinni í snjóbílnum hér í bænum í 32 tíma,ogenn værinúlangt íaðþaðnæðist -AB Ásgrímur Grímsson: „Nýja bílastödin baud öll um upp á kaffi og banana” er eiginlega hálfur undir bílnum sínum, að reyna að moka bílinn sinn út, sem er ■ Rétt hjá Olísbensínstöðinni í Mjóddinni göngum við fram á einn sem ■ „Heldur þú að maður hafi nú ekki eitthvað annað að gera en að telja þa sem maður hjálpar,“ sögðu þeir björgunarsveitarmenn úr Björgunarsveitinni Ingólfi allan dag, sem hafa venð ein heima hérna uppi í Austurbergi." Og þar með rýkur Ásta af stað á nýjan leik, til þess að flýta sér heim til barnanna sinna, sem hafa beðið eftir henni lungann úr degin- um. _AB Ásta Lárusdóttir, kennari í Breiðholtsskóla: „HEF HAFT ÁHYGGJUR AF BÖRNUNUM í ALLAN DAG ■ Ung kona, Asta Lárusdóttir, barðist móti vindinum upp Fálkabakkann síðdeg- is í gær, og blaðmaður spyr hvort hún komi langt að: „Nei, ég kem nú bara héðan úr Breiðholtsskóla, þar sem ég er kennari. Ég er búin að bíða í skólanum síðan í morgun, en það var útilokað að leggja í hann fyrr en núna að veðrinu slotaði aðeins.“ Aðspurð hvort mikið af börnum hefði þurft að bíða veðrið af sér í Breiðholts- skóla sagði Ásta: „Nei, sem betur fer komu þau ekki öll í skólann í morgun og þau sem komu, komust flest fljótt í burtu, að minnsta kosti þau sem áttu stutt heim. Það eru tvö börn sem bíða enn í skólanum eftir að komast heim.“ - Finnst þér þetta vera versta veður sem þú hefur lent í Ásta? „Nei, þetta er ósköp svipað og í fyrra, það er bara svo pirrandi núna, því ég er búin að vera með áhyggjur af börnunum mínum í ■ Asta Lárusdóttir kennari í Breiöholts skóla: „Sem betur fer komu ekki öll börnin í skólann í morgun.“ - Tímamynd Róbert. fólksbíll. Maðurinn er Ásgrímur Grímsson, og segir hann okkur að hann hafi fest sig í þessum skafl tíu mínútum áður eða svo. Aðspurður hvort þetta séu einu hrakningarnar sem hann hafi lent í á fólksbílnum í þessari slæmu færð, segir Ásgrímur: „Nei, síður en svo. Ég sat fastur í fjóra tíma í morgun, og þá komu þessir höfðingjar frá Nýju sendibílastöð- inni, en það var heil bílalest föst rétt hjá þeim, og þeir buðu bara öllum sem vildu að koma inn á stöð og fá hjá sér kaffi og banana. Það voru sko margir sem þáðu þetta, enda var þetta einkar elskulega boðið.“ - Hvað ertu þá að flækjast á bílnum núna, svona vanbúnum, fyrst þú slappst nú úr þessum hrakningum í morgun? „Ég er ekkert að flækjast. Ég bara þori ekki að skilja bílinn eftir hérna, og ætla því að reyna að koma honum inn á plan hjá bensínstöðinni og skilja hann þar eftir, þar sem hann er ekki fyrir og tefur ekki snjóruðning og þess háttar." _ AB. ■ Páll Einar og Atli Þór: „Veðrið var alveg snarvitlaust." Tímamynd - Róbert ■ Eigandi Volvo Lapplander trukks var á ferðinni um Breiðholtsbrautina undir kvöld í gær, og aumkaðist hann yfir tvo fótgangandi Tímamenn og bauð þeim far til „byggða'*. Maðurinn er Helgi Eyvinds, og þar sem hann gat ekki starfað úti við í gær, þá var hann á ferðinni á trukknum sínum góða í allan gærdag, og aðstoðaði fólk. „Ég hef nú einkum tekið upp í fólk, sem hefur verið fast í bílum, eða verið hrakið á gangi, og keyrt það heim,“ sagði Helgi, er blaða- maður spurði hverja hann hefði einkum aðstoðað. „Þá fór ég með tvo kransæða- sjúklinga, sem voru hálf illa á sig komnir heim til sín á Kleppsveg, og svo var einn að eiga við kapal, og tengja í bíl sinn sem var fastur, og þá tókst ekki betur til en svo að hann brákaðist á hönd eða fingrum og ég keyrði hann upp á slysavarðstofu. Þá hef ég aðstoðað nokkra jeppa, dregið þá útúr sköflum, en mest hef ég þó reynt að hjálpa fólki sem er illa statt.“ Helgi er svo elskulegur að skila okkur Tímamönnum upp að dyrum hér í Síðumúlanum, en áður er hann búinn að taka nokkra unga menn uppí, eða þeir fá öllu heldur að sitja á pallinum á Lapp- landernum, en þessir ungu menn voru einmitt að koma af kennarafundi í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Fund- urinn hófst kl. 9 í gærmorgun, en þegar honum var að Ijúka um kl. 16 í gær, þá var náttúrlega engin leið fær úr efra Breiðholti, nema fyrir gangandi vegfar- endur. -AB ■ Þessir ungu menn eru kennararnir í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti sem fengu að sitja á palli Lapplandersins hans Helga Eyvinds til „byggða“ frá „Gólanhæðum“. Tímamynd - Róbert

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.