Tíminn - 05.01.1984, Blaðsíða 16

Tíminn - 05.01.1984, Blaðsíða 16
Opiö virka daga / 9-19 V. Laugardaga 10-16 HEDD" . Skemmuvegi 20 Kopavogi ( Stmar (91)775-51 4 7-80-30 V Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á öllu \ Kaupum nýlega ' bíla til niðurrifs SAMVINNUr^f'l tryggingarLtxJ & ANDVAKA LTVX J ARMULA3 SIMI81411 /yK ^ Cælabriel - pHÖGGDEYFAR iH u QJvarahlutir ,s“aa1y. K Sb'JOG ; ■ • " ^uglvsing ihrrí* SE300 Kvoldiimar-S63S7 ö£ H6T06 (fo FímnHudagur 5. januar 1984 Álftanesskóli: Forsetinn lét færa skólaböm- unum mat- föng ■ Börn í Alftanesskóla uröu innlvksa þar meiri hluta dags- ins í gær vegna óveðursins. Þegar Ijóst var að þau kæmust ekki heim eftir hádegið lét' Vigdís Finnbogadóttir forseti senda matföng til barnanna frá Bessastöðum. „Við gátum nú ekki sent þangað hcitan mat því hér varð allt rafmagnslaust“, sagði Sigrún Pétursdóttir ráðskona á Bessastöðum. „Hér fer raf- magnið strax og eitthvað verð- ur að veðri og við höfum setið við kertaljós í dag. Síðan gekk nú ekkert of vel að komast héðan með matföngin. Við höfum hér stóran jeppa en jeppinn sat fastur hérna heima heillengi, en þetta hafðist nú að lokurn”. Þcgar Tíminn talaði við Sig- rúnu undir kvöldmat. sagði hún að verið væri að opna vegi á Álftancsinu og stóð þá til að koma bömunum í Álftanes- skóla heim til sín. -GSH Rafmagns- laust á Suö- urlandi og Reykjanesi ■ Miklar rafmagnstruflanir urðu viða á landinu sunnan- og vestanverðu í óveðrinu sem gekk yfir síðdegis í gær. Ein- staka staðir urðu algjöriega raf- magnslausir um lengri eða skemmri tíma. Verst var ástandið á ein- stöku stöðum á Suðurlandi, en þar brotnuðu staurar og voru starfsmenn RARIK enn að gera við síðast þegar fréttist í gær- kvöldi.’Var þá rafmagnslaust á Stokkseyri, Eyrarbakka og í Þorlákshöfn. Síðdegis var rafmagnslaust á Suðurnesjum. Því olli ísing á Suðurnesjalínum, sem veita rafmagni til • allra bæja á Reykjanesi nema Grindavík- ur, sem fær rafmagn frá Svarts- engi. Hafnfirðingar urðu fyrir barðinu á rafmagnsleysinu. Bilun varð á línu og var ékki búið að gera við hana þegar Tíminn spurðist fyrir í gær- kvöldi. Hins vegar fengu Hafn- firðingar rafmagn af Suður- nesjalínu um kl. 18. -Sjó. Fjölmargir leituöu til lögreglunnar f óveörinu: LÖGREGLUSTÖD- IN YFIRFYLLT- IST AF FÓLKI ■ llluti þess l'ólks sem kom á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Tímamyndir Ámi Sæberg. — „Veittum þá aðstoð og húsaskjól sem við gátum’% segir Rudolf Axelsson varðstjóri ■ Þau Sigríður Snævarr fulltrúi í utanríkisráðuneytinu og Pétur Thorsteinsson sendiherra voru meðal þeirra sem biðu fyrir utan lögreglustöðina. Pétur sagði í samtali við Tímann að hann hefði ekki lent í neinum vandræðum vegna veðursins, það var gott er hann keyrði til vinnu í morgun en hinsvegar hefði hann ekki komist á fund í hádeginu vegna þess. Sigríður sagði að þau hefðu beðið nokkuð lengi eftir fari en ...,,viö erum nú hér í byggingunni og því stutt að fara. Það komust flestir hingað til vinnu í morgun, enda veðrið þá ekki skollið á en síðan hefur fólkið haldið sig þar innandyra"... ■ Margir leituðu ásjár lögreglunnar í veðurofsanum og síðdegis lá stöðugur straumur fólks inn á lögreglustöðina á Hverfisgötu þannig að hún yfirfylltist. Þegar Tímamenn komu þar um fjögur- leytið var þröng á þingi og margir áhyggjufullir um hvernig þeir kæmust heim til sín. ■ Lögreglustöðin yfirfylltist af fólki eins og sjá má og stóðu nokkrir því fyrir utan andyrið. „Straumurinn af fólki hingað hefur stöðugt verið að aukast, Við höfum þegar farið með rjokkra hópa af fólki héðan í ‘’nítum en við hvetjum fólkeinnig ' tjl að labba núna eftir að veðrinu hefur slotað“ sagði Rudolf Ax- ',dsson varðstjóri í samtali við * íímann er við hittum hann að ; máli í mannþrönginni. „Við höfum veitt þá aðstoð og húsa- skjól sem við höfum getað en stöðin er alveg yfirfull þrátt fyrir að við höfum losað allmikið". Hvað daginn almennt varðaði hjá löreglunni sagði Rudolf: „Þetta hefur verið vandræðaá- stand hér, umferð stöðvaðist fljótlega um Breiðholtið og Ár- bæinn og raunar um allar götur bæjarins. Höfuðvandamálið var það að svo mikill fjöldi bíla varð stopp um allt að það tafði og gerði nær ómögulegt að ryðja göturnar en Véladeildin reyndi að gera sitt besta í þeim efnum. “ Þá kom einnig fram í máli Rudolfs að annað vandamál var að þeir lögreglumenn sem áttu að leysa af kl. 16 höfðu ekki komist á stöðina.nema lítill hluti þeirra. „Við erum ekki tilbúnir að taka á móti svona miklum vanda“ sagði Rudolf. „Við höfum ágætan tækjakost til að sinna þessum daglegu störfum á eðlilegum dögum en ekki þegar svona óvenjulegt ástand skapast. Við þurfum að sjálfsögðu einnig að sinna neyðarköllum nú á barna-ogelliheimilum. Hinsveg- ar hafa engin stórvandræði skapast, fólk verður bara að taka þessu rólega, þetta leysist í róleg- heitum“ sagði han. -FRI dropar Ásamatímaaðári ■ Tilviljanir geta oft orðið furðulegar svo ekki sé meira sagt, og svei mér þá ef Dropar fara bara ekki að gerast for- lagatrúar. Nákvæmlega fyrir tólf mánuðum varð veður brjálað í Reykjavík, þó dreif- býlismenn reyndar hlási á slík „þéttbýlis-óveður" í saman- burði við sínar veðurþrengingar, og hvað gerist nú. Jú, á sama degi verður veðrið brjálað, og í Reykjavík myndast ein sú mesta umferðarsulta sem um getur í marga áratugi. Veðurfræðingar eru búnir að læra á þetta, því þeir höfðu allan vara á og höfðu boðað óveðrið með góðum fyrirvara í von um að sagan endurtæki sig frá fyrra ári. En það eru ýmsir aðilar sem verða að fara að aðlaga starfsemi sína með tilliti til þessa árlega óveðurs. Þann- ig væri ráð fyrír grunnskóla í þéttbýli að fresta fyrsta skóla- degi eftir jólafrí um einn dag til að firra skjólstæðinga sína vandræðum. Og sama ættu bridgespilarar að gera, en fresta hefur orðið upphafi Reykjavíkurmótsins í bridge tvö ár í röð þar sem það hefur borið upp á óveðursdaginn. Sömu sögu er að segja með Happdrætti Háskóla íslands sem venjulega hefur haldið blaðamannafund til að kynna starfsemi sína á árinu á þessum degi, en hefur orðið að fresta honum tvö ár í röð. Er ekki rétt að þessir aðilar og fleiri fari að taka tillit til þessarar væntanlegu staðreyndar um ár- legan óveðursdag í Reykjavík. Fjörutíu dagar í viðbót og... ■ En óveðrið kemur illa við fleiri en fyrrnefnda aðila, þar sem borgarsjóður finnur glögg- lega fyrír því. í gær eyddust slíkir dagar fylgja í kjölfarið á næstu vikum þarf ekki að spyrja að leikslokum. Þá þarf Davíð annaðhvort að bæta við upphæðina, eða bjóða borgar- búum að taka fram gönguskíð- upp heil 2.5% af öllu því fé sem ætlað hefur verið til snjó- ruðnings á höfuðborgarsvæð- inu á þessu ári. Dagurínn fór með hálfa milljón króna enda verkefni nóg fyrir öll snjóruðn- ingstæki borgarinnar. Ef 39 Krummi.. . ... biður Vetur kóng að hætta að sýna ýtutennurnar... ‘IHIWTWTrifUfi Mimiffirf

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.