Tíminn - 11.01.1984, Qupperneq 1

Tíminn - 11.01.1984, Qupperneq 1
íslendingaþættir fylgja blaðinu í dag FJÖLBREYTTARA OG BETTtA BLAÐ! Miðvikudagur 11. janúar 1984 9. tölublað - 68. árgangur Siðumúla 15—PosthoH370 Reykjavik—Ritstjorn86300—Auglysingar 18300— Afgreiðsla og askrift 86300 — Kvöidsimar 86387 og 86306 Reykjavíkurbórg neitar að greiða umsaminn kostnað og rifíar samningum við Heilsuræktina f Glæsibæ: THUR HEILSURÆKTINA EKKI HAFA STADKJ VH» SAMNINGA . ■ Borgarráð Rcykjavíkur sam- þykkti í gær að Reykjavíkurborg myndi ekki greiða reikninga, sem Heilsuræktin í Glæsibæ bef- ur sent borginni vegna heim- sókna aldraðra, en samkomulag hefur verið við lýði milli borgar- innar og Heilsuræktarinnar um að borgin grciddi að bluta fyrir aldraða, enda væri þar um mikil- væga þjónustu við þá að ræða. Ástæðan fyrir neitun borgarinn- ar er sú að Heilsuræktin hefur ekki staðið við sinn liluta samn- ingsins, en í honum fólst m.a. að sjúkraþjálfarar skyldu vera starf- andi við Heilsuræktina. Heilsuræktin sendi borginni yfirlit yfir mætingar aldraðra á síðasta ári. og samkvæmt bréfi Bergs Tómassonar, borgarend- urskoðanda, næmi kostnaður borgarinnar ef greiddur yrði í krónum 229.172 krónum. Svipuð staða kom raunar upp við síðustu áramót. cn þá var ákvcðið að sjá í gegnum fingur við eiganda Heilsuræktarinnar, Jóhönnu Tryggvadóttur, og greiða kostnað vegna aldraðra, þótt sjúkraþjálfarar hefðu ekki starfað árið 1982, fremur en síðasta ár, við Heilsuræktina. Erjur liafa staðið milli eigandans og Sjúkraþjálfarafclagsins, Fjárhagur Hcilsuræktarinnar stendur afar tæpt, en tap á rekstrinum á tímabilinu 1. janúar til 31, októbcr s.l. nam 7.37.77ó krónum. Þá hefurkomið fram krafa um aö fyrirtækinu verði gert að rýma húsnæðið í Glæsibæ, vegna fyrirhugaðnyr læknamiöstöðvar. JGK Blindbylur í borginni ■ Bálhvasst var i Reykjavik i gær og sá oft varla út úr augum fyrir skafrenningi. Menn geta reynt að giska á hvar Róbert Ijósmyndari var staddur þegar þessi bylur reið yfir. Húsnæðissamvinnufélagid Búseti leggur fram lóðaumsókn: BB VILL REISA FJOLBYU MEB 150—200 ÍBllÐUM ■ Húsnæðissamvinnufé- lagið Búseti, sem stofnað var í Reykjavík í nóvember síðastliðnum, hefur nú sótt um byggingarlóðir til Reykjavíkurborgar fyrir 150-200 íbúðir í fjölbýli í fyrsta áfanga. Búseti hyggst, sem kunnugt er, byggja leiguíbúðir fyrir félagsmenn sína og reka með búsetu- réttarsniði, en þetta eignar- form á húsnæði vinnur sí- fellt á í nágrannalöndunum um þessar mundir. Sam- kvæmt frumvarpi, sem nú liggur fyrir Alþingi, er gert ráð fyrir að félagasamtök eins og Búseti fái um 80% byggingakostnaðar að láni til 31 árs. Lóðarumsókn Búseta var vísað til skrifstofustjóra borgarverkfræðings til um- fjöllunar. Stofnfélagar Bú- seta eru um 2100. - JGK Færeysk sendinefnd ræðir við stjórnvöld um hugsan- lega framlengingu á fisk- veiðisamningnum: ÓLÍKLEGT AÐ ÞEIR FÁI VIL- YRÐI FYRIR VEIÐUM ■ Færeyingar sækja það nú fast að f'á framlcngdan veiði- samning þann sem þeir haFa við íslendinga Fram til 13. júní n.k. en íslensk stjórnvöld sögðu samningnum.eins ug kunnugt er, upp í byrjun desember sl. m.a. vegna þess hve horfur varðandi veiðar okkar landsmanna eru slæmar á þessu ári. Færeysk sendinefnd kom hingað til lands í gær í þeim tilgangi að ræða við íslensk stjórnvöld um hugsan- lega endurnýjun eða framleng- ingu samningsins, og fara í dag viðræður frani á milli Færcying- anna annars vegar og fulltrúa sjávarútvegsráðuneytis og utan- ríkisráðuneytis hins vegar. Tím- inn hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því, að Færcyingar muni fara bónieiðir héðan, því ekki þykir stætt á því að veita þeim nokkur vilyrði fyrir veiðum í íslenskri landhelgi á meðan horf- ur eru ekki betri en raun ber vitni. Færeyingar höfðu á liðnu ári leyfi fyrir 17 þúsund lestum og veiddu þeir leyfilegt magn. Óttast menn nú helst að þeir veiði fyrri hluta ársins af fullum þunga, til þess að ná sem mestu af leyfðum afla, áður en veiðileyfi þeirra í íslenskri landhelgi rennur út. Uppsögn samningsins er Færeyingum að sjálfsögðu gífur- legt áhyggjuefni, þar sem þeir byggja efnahagslíf sitt mjög svo á fiskveiðum. Heimildarmenn Tímans telja að þrátt fyrir áhyggjur þeirra sé ekkert hægt fyrir þá að gera, þar sem aflasam- dráttur íslendinga verði geysi- lcgur á þessu ári. -AB Erfitt ad fá nýjan fisk í höfuðborginni ■ „I*aö hefur verið mjög erf- itt að fá nýjan fi.sk undanfarna daga. Mér er kunnugt um að rtsksalinn, sem við skiptum við, hefur reynt að fá fisk frá Snælellsnesi og kannski fieiri stöðum úti á landi en það hefur ekki gcngið. Þetta verður að teljast mjög óvenjulegt," sagði Vignir Kristjánsson, mat- sveinn i mötuneyti Landshank- ans við Laugaveg, í samtali við Tímann. Vignir sagði að sér væri kunnugt um að flcst stærstu mötuneyti bæjarins hefðu átt í erfiðleikuin með að fá nýjan Fisk, allt frá áramótum, því að í Reykjavík og nágrenni, að minnsta kosti, virtist algjört fiskleysi. Þeir í mötuneyti Landsbankans hefðu fengið eitthvað af frosnum fiski, sem fisksali þeirra hefði átt á iager, en það væri líka það eina sem á boðstólum væri. „Ég býst við að ástandið sé svona vegna þess að flestir bátar voru inni yfir hátíðarnar og eftir þær heíur ckki gcfið almcnnilega á sjó vegna ótíð- ar,‘‘ sagði Vignir. - Sjó Sjá nánar bls.3

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.