Tíminn - 11.01.1984, Blaðsíða 5

Tíminn - 11.01.1984, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 11. JANÚAR 1984 Hundaeigendur neita að greida sektir af hundum sínum: „HEF ALLS EKKI EFNI A Afi BORGA MARGAR SEKTIR A HVERIU ARI” — segir Þuríður Bergmann, skreytingamaður, sem kölluð hefur verið fyrir sakadóm í annað sinn á stuttum tíma fyrir hundahald Breimað á Borginni! — til styrktar hús- byggingarsjóði Kattavinafélagsins ■ Kattavinir ætla aö láta til skarar skríöa næsta fimmtudagskvöld á Hótel Borg, og halda tónleika, sem aflvsa varð vegna veðurs fvrir viku sföan. Tónleikarnir eru haldnir til að styrkja húsbyggingarsjóð Kattavinafclagsins. Þeir sem koma fram eru Róbert Arnfinnsson ásamt Skúla Halldórs- syni, Sönghópurinn Hálft í hvoru, Unnur Jensdóttir ásamt Guðna Guð- mundssyni, hljómsveitin „Aldrei aftur" ásamt Geir-Atle Johnsen. Kynnir verður Arnþrúöur Karlsdóttir. Verð aðgöngumiða er 190 kr. fyrir fullorðna og 90 kr. fyrir börn. „Tölvur og grunnskóli“ sýningar og fyrirlestrar fyrir kennara. ■ Námsgagnastofnun, í samvinnu við menntamálaráðuneytið, Kennara- háskóla íslands, skólarannsóknadeild, fyrirtæki og einstaklinga, gengst fyrir sérstakrí dagskrá undir yfirskriffinni „Tölvur og grunnskólinn" dagana 14.- 29. janúar næstkomandi. Efnt verður til sýninga, fyrirlestra og annars fræðslustarfs í húsakynnum Kennara- háskólans og Kennslumiðstöðvarinnar við I.augaveg. „Það er einlæg von okkar að sem flestir skólar geti sent einn eða tvo kennara á fræðsluerindin og að sem alira flestir kennarar sjái sér fært að sækja sýningarnar. Flugleiðir og Arnarflug veita afslátt af fargjaldi og gistingu fyrir þá sem sækja þessa kynningu. Er afsiátturinn veittur á tímabilinu 13. tii 30. janúar og þeir sem vilja nýta sér hann eru beðnir að snúa sér til umboðsmanna flugféiaganna á viðkomandi stöðum. -Sjó Borgarfulltrúar Framsóknar- f lokksins leggja til: Átak í endur- hotum á eldra húsnædi ■ Á fundi borgarstjórnar Reykjavík- ur fyrir helgina, þar sem fjallað var um frumvarp að ljárhagsáætlun Reykja- víkur, var samþykkt að vísa til borgar- ráðs áiyktungartiUögu frá borgarfuil- trúum Framsóknarílokksins um að borgarstjórn beiti sér fyrir sérstöku átaki varðandi viðhald og endurbætur eldra húsnæðis i Reykjavík. í tiilög- unni er gert ráð fyrir að sett verði á laggirnar sérstök nefnd til að vinna að þessu verkefni, og sitji í henni meðal unnars fulltrúar frá hinum ýmsu greiu- um byggingariðnaðarins, Húsnæðis- stofnun ríkisins, Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins, og Arkitektafé- lagi íslands. Sömuleiðis borgar.verk- fræðingur eða fulltrúi hans. Skuli verja 500 þúsund krónum til þessa verkcfnis á þessu árí. í greinargerð með tillögunni segirað búast megi við einhverjum samdrætti t' nýsmíði húsa á þessu ári, og því geti fylgt atvinnuleysi fyrir ýmsa starfshópa innan byggingariðnaðarins. Úr því megi e.t. v. bæta með áherslu á þá þætti sem tillagan fjalli um. í flestum tilvik- unt sé einnig um hagkvæma starfsemi að ræða þar eð mörg eldri húsa séu illa einangruð og með endurbótum megi spara orku. Samþykkt tillögunnar gæti því unnið gegn atvinnuleysi bygging- armanna. stuðlað að bættri nýtingu og orkusparnaði. Borgarstjórn vísaði hins vegar frá tillögu sömu borgarfuiltrúa þcss efnis áð þegar skuli hefjast handa við hönnun nýs skóla í vesturbæ. Meiri- hluti borgarstjórnar er þeirrar skoðun- ar aö hönnun skólahúss í Grafarvogi eigi að hafa forgang fram yfir skóla í vesturbænum. - JOK ■ „Mér Finnst þetta mál allt hið fárán- legasta. Þetta er dýr sem við þurfum á að halda og höfum tengst mjög sterkum böndum og það kemur ekki til greina að við látum það frá okkur. Og ég hef alls ekki efni á að borga margar sektir á ári fyrir það eitt að halda hund, sem ekki gerir nokkrum manni mein. Ef svo heldur áfram sem horfir og þeir kæra trekk í trekk má búast við að scktirnar verði upp undir 30 þúsund krónur á ári,“ sagði Þuríður Bergmann, skreytinga- maður, í samtali við Tímann í gær. Þuríður fékk nýlega kvaðningu frá sakadómi Reykjavíkur vegna hunds sem hún heldur og var hanni gert að mæta hjá stofnuninni í dag. Er þetta í annað ■ „Ef menn undirgangast að greiða tUtekna sekt geta menn ekki valið varð- haldsleiðina í staðinn þó dómari ákveði að ef sektin sé ekki greidd skuli vera varðhald til vara. Ef menn þrjóskast við að greiða sektina á að leita úrræða til að fá þá greiðslu innta af hendi eftir sem áður,“ sagði Olafur Walter Stefánsson, skrifstofustjórí dómsmálaráðunevtisins, í samtali við Tímann. TUefnið var að skiptið á nokkrum mánuðum, sem hún fær kvaðningu vegna hundsins. í fyrra skiptið féll dómur í málinu og var Þuríði gert að greiða 6.500 króna sekt eða sitja í tugthúsi í átta daga. Hún hefur hvorki borgað sektina né farið í tugthús til að sitja hana af sér. „Ég hef skrifað borgarráði bréf og sótt um leyfi til að halda hundinn vegna sérstakra heimilisástæðna. Við búum hérna þrjár: ég, móðir mín, sem er hátt á níræðisaldri, og dóttir mín, tólf ára. Húsið okkar er gamalt og áður en ég keypti það hafði það staðið autt í nokkur ár og voru útigangsmenn farnir að venja komur sínar í það. Þegar við fluttum inn urðum við ítrekað fyrir ónæði af þessum mönnum, þeir voru stundum komnir könan, sem ætlaði að sitja af sér 6500 króna sekt, vegna hundahalds í Reykja- vík, var látin laus samkvæmt fyrirmælum frá dómsmálaráðuneytinu þegar hún hafði set ið inni í 2 daga af þeim 8 sem dómurinn sagði til um. í 52. gr. almennra hegningarlaga segir að „Hafi greiðsla sektar ekki farið fram á tilskyldum tíma, skal þegar heimta hérna inn fyrirvaralaust, og þess vegna ákvað ég að fá mér hund af Labrador- kyni til að verja húsið - hann er okkar varðhundur og án hans getum við ekki verið, það hefur margoft sýnt sig. Borgarráð hefur ekki einu sinni sýnt þá kurteisi að svara bréfinusagði Þuríður. „Ég er alls ekki fylgjandi því að fólk fái að halda hunda nema það geti sýnt fram á að það fari vel með þá og sýni nágrönnum sínum og meðborgurum fyllstu tillitssemi. Ég fer til dæmis aldrei með hann út öðruvísi en í ól og hef alltaf meðferðis poka og hirði frá honum öll óþrif. Enda veit ég ekki til að neinn hafi haft nokkuð við mitt hundahald að athuga," sagði Þuríður. hana eða eftirstöðvar hennar með fjár- námi, ef unnt er, nema lögreglustjóri álíti að innheimtan muni hafa í för með sér tilfinnanlega röskun á högum söku- nauts eða manns sem hann framíærir. Annars kostar krefst lögreglustjóri fjár- náms og ber þá mat á högum sökunauts. undir dómsvaldið". -GSH -Sjó ■ Hundur Þuríðar er af margverðlaunaðri Labrador ætf og er að hennar sögn mjög gæfur. Hann heitir Míró Labbi, en seinna nafnið er ættamafn. Tímamynd Róbert Hundaeigendur sem gangast undir að greiða sekt: „Ekki hægt að velja varð- haldsleiðina í staðinn” Lestunar- áætlun Hull/Goole: Jan ... 23/1 Jan ... 6/2 Jan ... 20/ 2 Rotterdam: Jan .. . 12/1 Jan ... 24/1 Jan ... 7/2 Jan .. . 21/ 2 Antwerpen: Jan . . . 12/1 Jan .. . 25/1 Jan ... 8/2 Jan . . . 22/2 Hamborg: Jan . . . 13/1 Jan . . . 27/1 Jan ... 10/2 Jan . . . 24/2 Helsinki: Arnarfell . . . 12/1 Arnarfell . . . 12/2 Larvik: Hvassafell . . . 16/1 Hvassafell . . . 30/1 Hvassafell . . . 13/2 Hvassafell . . . 27/2 Gautaborg: Hvassafell . . 17/1 Hvassafell . . 31/1 Hvassafell . . 14/2 Hvassafell . . 28/2 Kaupmannahöfn: Hvassafell . . 18/1 Hvassafell .. 1/2 Hvassafell . . 15/2 Hvassafell . . 29/2 Svendborg: Hvassafell .. 19/1 Hvassafell .. 2/2 Hvassafell .. 16/2 Arnarfell . . 20/2 Árhus: Hvassafell . . 19/1 Hvassafell . . 2/2 Hvassafell . . 16/2 Arnariell . . 20/2 Falkenberg: Arnarfell . . 16/1 Mælifell . . 17/1 Gloucester Mass.: Skaftafell . . 17/1 Skaftafell . . 17/2 Halifax, Canada: 'Skaftafeil . . 18/1 Skaftafell . . 18/2 OLL ALMENN PRENTUN LITPRENTUN TÖLVUEYÐUBLÖÐ • Hönnun • Setning • Filmu- og plötugerð • Prentun • Bókband PRENTSMIÐJAN (^clclc Cl HF. SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR SÍMI 45000

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.