Tíminn - 11.01.1984, Side 6
MIÐVIKUDAGUR II. JANUAR 1984
6
í spegli tímans
KLAMMVND MED „VKTOHU
PRWCK’AL" RENNUR ÚT
OG HBTAR LUMMUR
■ Nú hefur Vidoria Principal heldur betur
orðið fyrir áfalli. Á markaði í Amsterdam
er myndbandsspóla, sem geymir myndir af
Victoriu í vægast sagt djörfum leik, eða svo
segir verslunareigandinn, sem hefur þennan
eftirsótta varning á boðstólum.
Viðbrögð Victoriu urðu þau fyrst, þegar
henni voru sýndar kyrrmyndir úr kvikmynd-
inni, að bresta í grát. En þegar grátkastið
var liðið hjá.varð hún gripin ofsa reiði og
krafðist þess að öll eintök þessarar hræði-
legu kvikmyndar yrðu tekin úr umfcrð og
eyðilögð. Lögfræðingar beggja vegna At-
lantshafsins eru því önnum kafnir þessa
dagana að reyna að koma skikki á hlutina,
en í Ijós hefur komið að Alþjóðalögreglan,
Interpol, er valdalaus í þessu máli.
■ Victoria Principal. Stóra spurningin
þessa dagana er: Er það hún eða er það ekki
hún?
Nick Davis, Breti nokkur, er aðalsölu-
maður þessa dýrmætis. Hann heldur því
blákalt fram, að hér sé um ósvikna vöru að
ræða. Victoria hafi sjálf tekið að sér hlut-
verk í þessari mynd, sem nefnist „Open
Thighs“ (treystum okkur ekki til að þýða á
siðsamlegt mál), fyrir 12 árum eða úður en
stjarna hennar fór að skína í sjónvarpinu.
Og henni takist dável upp í hlutvrki sínu
sem þjónustustúlka í kynsvallsveislu fína
fólksins, þar sem hún tekur þátt í lesbískum
athöfnum og alls kyns öfuguggahætti.
Annar maður, sem kemur hér við sögu,
er þýski klámkóngurinn Karl Braun, sem
reyndar nefnir sig Charlie Brown á hinum
alþjóðlega markaði, heldur því hins vegar
fram, að Victoria komi sjálf hérhvergi nærri
Stúlkan, sem líkist henni svo mjög, sé í
rauninni óþekkt þýsk leikkona.
En hvcrnig sem málið er vaxið, er það
staðreynd, að Nick Davis hefur þarna
fundið hreina gullnámu. Nú flykkjast
bandarískir ferðalangar til Amsterdam og
festa kaup á spólunni, sem alla langar til að
sjá, og setja ekki fyrir sig verðið sem er 50
dollarar (um 1500 kr. ísl.) pr. stk.
ADAM ANT HUOP ISKARDIÐ
— þegar briidguminn mætti ekki í brúðkaupið
■ Jamie Lee Curtis var til
skamms tíma einungis þekkt
sem litla, sæta dóttir þcirra
Janet Leigh og Tony Curtis.
En hún hefur á síðari árum
sýnt fram á það, svo ó-
umdeilanlegt er, að hún
stendur sjálf undir nafni
sínu og vel það. Hún hefur
nefnilega þegar haslað sér
völl sem viðurkennd leik-
kona, bæði í sjónvarpi og
kvikmyndum. Það hefur
því virst svo, sem ekki væri
ský að sjá á hamingjuhimni
hennar.
En því miður dró nýlega
blikur á loft í lífí hennar,
sem að vísu virðist hafa
grciðst úr nú. Jamie Lee var
harðtrúlofuð Michael Riva,
dóttursyni Marlene Dietrich
og dagsetningin stóra hafði
verið ákveðin. En þegar
dagurinn rann upp, missti
brúðguminn kjarkinn og
Jamie Lee mætti ein að
altarinu.
Gömlum vini Jamie rann
til rifja umkomuleysi stúlk-
unnar og greip til sinna
ráða. Adam sjálfur Ant var
mættur á staðinn og tók
Jamic Lee að sér, til bráða-
birgða a.m.k. Reyndar
segja þeir, sem kunnugir
eru, að ekkert sé á milli
þcirra, enn sem komið er,
annað en vinátta - en það er
aldrei að vita.
■ Adam Ant greip til sinna
ráða, þegar brúðguminn mætti
ekki í brúðkaupið og iét Jantic
Lee Curtis bíða eftir sér árang-
urslaust.
viðtal dagsins
Sæmundur Guðvinsson, fréttafulltrúi Flugleiða
um erfiðleikana í innanlandsfluginu:
STARFSFOLKIÐ
VINNUR OFTÉ
ÞIEK VIRKI“
■ Eins og gefur að skilja
fer margt úr skorðum, þcgar
svo viðrar sem þessa dag-
ana, og eitt af því er að
sjálfsögðu innanlandsflug
flugfélaganna, sem þurfa að
endurskoða áætlanir sínar
margoft á dag, íljósi nýjustu
fregna af veðri og ástandi
flugvalla. Til að mynda átti
að fljúga fimintán ferðir í
fyrradag á vegum Flugleiða,
en ekki tókst að fljúga eina
cinustu ferð. I gær biðu því
eitthvað á annað þúsund
manns flugs víða á landinu,
en ekki tókst að fljúga
innanlands í gær, nema að
mjög takmörkuðu leyti.
Tíminn spurði í gærkveldi
Sæmund Guðvinsson,
fréttafulltrúa Flugleiða nán-
ari fregna af ástandinu í
innanlandsflugi þessa dagana:
„Það er rétt, ástandið í
innanlandsfluginu er heldur
bágt nú. Á sunnudaginn
gekk flugið mjög stirðlega
og ekki tókst að fljúga allar
ferðir sem fara átti. í gær,
mánudag, þá voru áætlaðar
15 ferðir til flestra staða á
landinu, en ekki tókst að
fara neina ferð. í dag hefur
þetta verið erfitt bæði vegna
veðurs og brautarskilyrða.
Þó náðist að fljúga í morgun
upp úr kl. 10 á Akureyri,
Húsavík, Egilsstaði og
Norðfjörð. Um hádegi var
ljóst að ekki tækist að fljúga
■ Sæmundur Guövinsson,
fréttafulltrúi Flugleiða