Tíminn - 11.01.1984, Page 11
10
MIÐVIKUDAGLR II. JANUAR 1984
MIÐVIKUDAGUR II. JANUAR 1984
Wmritm
15
íþróttir
Leikmenn Tatabanya:
Æfa tvisvar
á dag
■ „Þetta eru hreinir og klárir atvinnu-
menn, þó þeir þarna fyrir austan kalli
þetta áhugamcnnsku. Leikmenn Tata-
banya æfa tvisvar á dag t'imm daga
vikunnar, og spila svo á laugardögum",
sagði Geir Hallsteinsson, þjálfari FH í
samtali við Tímann.
„Þetta er enda vel samæft sóknarlið
hjá þeim, en cg tcl að við eigum þó
nokkra möguleika á að ná upp átta
marka forskotinu fyrir því“, sagði Geir
ennfremur.
Leikmenn stórliða eins og Tatabanya
í Ungvcrjalandi eru venjulega á launa-
skrá stórra fyrirtækja þar í landi, cða þá
í hernum. Til dæmis voru lcikmenn
Raba ETO Györ, sem léku við Víkinga
í Evrópukeppninni í knattspyrnu í haust,
allir skráðir vörubílstjórar hjá stóru
vöruflutningafyrirtæki i Györ. Ilvort
leikmenn Tatabanya eru skráðir kola-
mokarar eða .eitthvað annað skal ekki
um sagt hér, en kol eru mikil atvinnu-
uppspretta í Tatabanya.
- SÖE
Mörg góð
langstökk
- íslandsmetjöfnun hjá
Kristjáni
■ Mikið var og vel stokkið á innanfé-
lagsmóti hjá Ármanni í frjálsum íþrótt-
umumsíðustuhelgi. Kristján Harðarsþn
Ármanni stökk þar 7,52 metra, og
jafnaði ínnanhúsmet Jóns Oddssonar.
Ung og cfnileg stúlka, Fanncy Sigurð-
ardóttir setti á mótinu Islandsmct telpna
í langstökki, stökk 5,03 metra, og er það
geysigóður árangur miðað við að hún er
aðeins 11 ára. Þá stökk Hjördís
Bachmann, 12 ára gömul 5,00 metra, en
hún átti fýrra tclpnametið.
- SÖE
Ragnheiður
og Eggert
garpar FH
■ Ragnheiður Ólafsdóttir hlaupari og
Eggert Bogason kastari voru útnefnd
garpar FH 1983, og fengu að launum
verðlaunagripi, fagra bikara, nú eftir
áramótin. Garpar FH eru útnefndir þeir
einstaklingar scm ná besta árangri sam-
kvæmt alþjóðlcgri stigatöílu á árinu.
Ragnheiður hlaut 1003 stig fyrir árang-
ur sinn í 800 mctra hlaupi. 2:04,90
mínútur, og er það talinn mjög góður
árangur. Næst hcnni í kvennaflokknum
var Súsanna Helgadóttir. scm hlaut 844
stig fyrir 2:15,77 mín.í 800 metra hlaupi.
Eggcrt hlaut 950 stigfyrir árangur sinn
í kringlukasti, 54,52 metra. Næstur hon-
um í karlaflokki v;|r Magnús Haralds-
son, sem hlaut 840 stig fyrir tíma sinn
1:54,9 mín.í 800 metra hlaupi.
Þau Ragnheiöur og Eggert dveljast
nú við keppni og æfingar í Alabama í
Bandaríkjunum. Þar hefur Ragnhciður
tekið þátt í tveimur „Cross" hlaupum og
sigrað í báðum.
- SÖE
UMFS vann!
■ Skallagrímur í Borgarncsi vann sinn
fyrsta sigur í vetur á sunnudag. Léku
þcir við b-lið KR í Bikarkeppni Körfu-
knattleikssambandsins, og lauk með
sigri Borgnesinganna 84-64.
Tveir leikir áttu að vera aðrir í
körfuboltanum, fyrstu deildarleik
Grindvíkinga og Borgncsinga á föstudag
var frcstaö vegna dómaraleysis, og
bikarleik Snæfells og Fram á laugardag
vegna ófærðar.
- SÖE
Dregiö í ridla I Evrópukeppni
landslida í knattspyrnu:
DflNIR LENTII
ÍRIÐUMEÐ
HEIMAMÖNNUM
Evrópumeistararnir kljást
vid Rúmena og Portúgala
■ Dregið hefur verið í úrslitakeppni
F.vrópukeppni landsliða í knattspyrnu,
en keppnin fer fram í Frakklandi í
sumar. Upp gæti kmnið sú staða, að
V-Þjóðverjar ug Danir mundu leika til
úrslita i keppninni, þar eð liðin lentu í
sitt livorum riðli. Frakkar eru einnig
mjög vísir með að komast í úrslit, þeir
lentu í 4. sæti í síðustu HM, og eru á
heimavelli í úrslitunum. Að nokkru leyti
má segja að Danir hafi veriö óhcppnir,
því margir veöja á gott gcngi franska
landsliösins á EM.
Drátturinn fór þannig:
A-riöill
Belgía,
Danmörk,
Frakkland,
Tékkóslóvakía.
B-riðill:
Portúgal,
Rúmenía,
Spánn,
V-Þýskaland
I A-riðlinum verður áð.öllum líkind-
um mcst keppnin milli Frakka og Dana,
þó Belgar séu líklegir til að blanda sér
þar í. í B-riðli cru Evrópumeistararnir,
V-Þjóðverjar sigurstranglegir, en Rúm-
enar og Portúgalir eru ekki neinir aukvis-
ar. Drátturinn í riðla virðist þó hafa
komið heldur jafnt niður, ogerfitt um að
segja hvor riðillinn sé auðveldari.
Segjamáþó. aðþærþjóðirsem
margir Itafa spáð mestum frama í keppn-
inni, Frakkland og Danmörk, hafi verið
óheppnar að lenda í sama riðli. _§ÖE
■ Michcl Platini og Allan Simonsen mætast í Frakklandi í sumar.
Dregid í Skotlandi:
Motherwell-
Queens Park
■ Dregið hefur verið í 3. umferð
skosku bikarkcppninnar. Þessi lið
lentu sainan:
Hamilton-Alloa,
Falkirk-Clyde
Inverness Calcdonian - Arbroath/
Sterling Alliion,
Berwick - Celtic,
Dundee Utd - Ayr Utd.
Clydebank - Brechin City,
Morton - East Sterling,
Airdrie - St. Johnstone,
Cotvdenheath - Dundee,
Motherwcll - Queens Park,
Kangers - Dunfermline/Forfar,
Meadowhank - St. Mirren,
Aherdeen - Kilmarnock,
Hearts - Partick Thistle,
Hihcrnian - East Fife,
Kaith - Dumbarton.
Jóhannes Eðvaldsson og félagar
fá Queens Park á Fir Park. Það er
ineð Motherwell eins og flest úr-
valsdeildarliðin, að nióthcrjinn
virðist frekar léttur, og ekkert
þeirra ætti að lenda í verulegum
vandræðum, nema helst St. John-
stone, sem leikur við fyrstu deildar-
liðiö Airdrie, og Partick Thistle
gæli vafist fyrir Hearts, sem nú er í
töluvcröri lægö. Aberdcen fær
Rihnarnock, sem lék i úrvalsdeild-
inni í fyrra og er i fjúröa sæti í 1.
deild, en Evrópumeistarar bikar-
hafa ættu ekki að verða í vand-
ræöuni, unnu þeð með 4 og 5
mörkuin í fyrra.
Þessir leikir verða leiknir 28.
ianúar.
-SÖE
umsjón: SamueJ Örn Erlingsson
Ástbjörg Gunnarsdóttir formadur Trimmnefndar ÍSÍ:
„SIFELLT FLEIRI TIL
SJUKRAÞJALFARA FRA
HEILSURÆKTARSTOÐVUM
— heilsuræktarstöðvar settar upp eftirlitslaust
11
■ „Ég veit að sífellt fleiri koma til
sjúkraþjálfara, eftir mciðsli við æfingar
■ Arnór Guöjohnsen á fullri ferð
með landsliði íslands. Nú, eftir fjög-
urra mánaða baráttu við mciðsli er
hann hlaut í landsleik, má hann taka
fyrstu hlaupaskrefin á laugardag. Þá
má hann hlaupa í 15 mínútur, og
hæta síðan við sig 5 mínutum á
hverjum dcgi. Ef honum verður
gefið grænt Ijós í læknisrannsúkn
eftir viku, getur hann fariö að spretta
úr spori þá.
ÞAÐ ER UM
GERA
23
VERA NÖGU JAKVÆÐUR”
segir Arnór Guöjohnsen sem má taka fyrstu hlaupaskrefin á laugar-
dag eftir fjögurra mánaöa baráttu viö meiösli
■ „Svona erfiðleikar fylgja knattspyrn-
unni, og það er uin að gera að taka
hlutunum skynsamlega. Maður má ekki
brjóta sjálfan sig niður þó gangi erfið-
lega. Það er reyndar lítið hægt að gera
til að drepa tímann, maður er mest í því
að glápa á sjónvarpið,“ sagði Arnór
Guðjohnsen knattspyrnumaður hjá
Anderlecht í Belgíu í samtali við Tímann
í gær, en Amór meiddist sem kunnugt
er á lærvöðva í landsleik Islands og
írlands síðastliðið haust, og hefur átt í
baráttu við alvarleg meiðsli síðan. Liðnir
eru fjórir mánuðir frá áðurnefndum
landsleik. „Þetta gengur allt eftir áætlun
núna, ég byrja að hlaupa á laugardaginn,
og má þá hlaupa í um það bil 15 mínútur,
og bæti síðan við mig fimm mínútum á
hverjum degi, uns ég gengst undir
læknisrannsókn að nýju í lok næstu
viku. Ef það gengur allt að óskum, get
ég farið að spretta aðeins úr spori viku
síðar. „Ef það gengur vel get ég hyrjaö
æfingar með liðinu eftir það“, sagði
Amór.
Arnór var skorinn upp í endaðan
nóvember. Eftir að Arnór hafði reynt
hvíld, og sífellt reynt að hefja æfingar að
nýju eftir landsleikinn gegn írum, var
hann loks færður á skurðarborðið, rúm-
um tveimur mánuðum eftir að meiðslin
urðu til. „Þetta leit mjög illa út, þegar
þeir opnuðu meiðslin og það kom í Ijós
að festingar lærvöðvans við beinið höfðu
rifnað í landsleiknum, og eftir það fór að
grafa í þessu," sagði Arnór.
- Hefurðu trú á því að þetta sé að
komast í samt lag nú?
„Já , ég finn að vísu aðeins fyrir þessu
enn, er stífur, en það er ósköp eðlilegt.
Hvort þetta kemur alveg strax er ekki
gott um að segja, maður er vitanlega
dálítið smeykur við að byrja aftur, þetta
var svo sársaukafullt þegar þctta stóð
yfir. Þetta tekur sjálfsagt sinn tíma, og
áreiðanlega þrjár vikur a.m.k., sem líða
þar til ég get hafið æfingar fyrir alvöru."
- Hvernig hefur stuðningur Ander-
lecht verið við þig í þessum erfiðleikum?
„Þeir hafa reynst mér mjög vel.
Læknisrannsóknir allar hafa verið á
þeirra vegum, ég hef verið hjá frægasta
skurðlækni Belga í íþróttameiðslum, og
hann er yfirleitt með alla knattspyrnu-
menn hér. Þeir hjá Anderlecht hafa
verið mér hjálplegir í þessu“.
Það er vonandi að Arnór Guðjohnsen
nái sér sem fyrst á strik, Arnór er mjög
mikils metin knattspyrnumaður, sem
hefur getið sér einkar gott orð í Belgíu,
og leikið stórkostlega fyrir íslenska
landsliðið. Þegar hann meiddist var
hann orðin ein helsta máttarstoð liðsins,
auk þess' sem hann var búinn að vinna
sér góðan sess hjá stórliðinu Anderlecht.
Það er því mikils vert fyrir ísland og
íslenska knattspyrnu að Arnór nái sem
fyrst góðum bata, og að sjálfsögðu fyrir
hann sjálfan.
- SÖE.
Dregid í fjórdu umferd ensku bikarkeppninnar:
Nær Liverpool ad hefna
tapsins gegn Brighton?
B i TRAKTORSGRAFA 1 oniAaI/o+i ik
K 1 snjomoKsiur BJARNI KARVELSSON
i\ Stigahlíö 28. Sími 83762
■ í fyrrudag var dregið í ensku bikar-
keppninni. Það sein vakti mesta athygli
var að saman drógust Liverpooi og
Brighton, en það voru líkiega óvæntustu
úrslit bikarkeppninnar í fyrra, þegar
Brighton sló Liverpool út á Anficld
Road. Nú dragast liðin saman að nýju,
og eiga að leika á heimavelli Brighton,
Goldstone Ground. Spurningin er, hvort
Liverpool tekst að hefna ófaranna frá í
fvrra.
En drátturinn í bikarkcppnina fór
svona:
Brighton - Liverpool
Charlton - VVatford/Luton
Crystal Palace - West Ham
Derby County - Telford
Everton - Gillingham
Huddersfield - Notts Co/Bristol C.
Middlesboro - Bournemoiith
Newport/Plymouth - Darlington
Oxford /Burnley - Blackpool
Portsmouth - Southampton
Sheff. Wed. - Coventry / Wolves
Shrewsbury - Ipswich
Sunderland - Birm.ham/Sheffi Utd.
Swindon/Carlisle - Blackburn
Tottenham/Fulham - A. Villa/Norwich
WBA/Rotherham - Scunthorpe/Leeds
Ýmislegt er merkilegt í þessu. Til
dæmis drógust saman Ipswich og
Shrewsbury í þriðja sinn á fjórum árum.
Nágrannarnir Portsmouth ogSouthamp-
ton drógust saman, og er víst að þar er
urn stórleik að ræða.
I Lundúnum verður viðureign tveggja
liða þar úr borg, Chrystal Palace og
Wcst Ham.
Lægri deildaliöin voru frcmur óheppiú
í þessum drætti. Þannig fékk Bourne-
mouth, liðið sem sló út Manchester
United.ferð alla leið til Middlesborough,
sem er vægast sagt mjög langt, auk þess
sem annarrar deildarlið er að öllum
líkindum verra fyrir Bournemouth en
fyrstudeildarlið. Að auki sló Middles-
borough Arsenal út í síðustu umferð,
þannig að þar hittir skrattinn ömmu
sína. Þá má nefna að utandeildarliðið
Teleford fékk útileik við Derby County.
-SÖE
■ Tony Grealish, hinn ódrepandi
miðjuþjarkur Brighton og írska
landsliösins. - Ná hann og hans
menn að leggja Liverpool á ný?
á líkamsræktarstöövum á Norður-
löndum, enda staðreynd að líkamsrækt-
arstöðvar hafa skotið upp kollinum eins
og gorkúlur um öll Norðurlönd eftirlits-
laust", sagði Ástbjörg Gunnarsdóttir,
iþróttakennari og formaður trimm-
nefndar Iþróttasambands lslands, á
blaðamannafundi í gær. „Líkamsræktar-
stöðvar hafa því miður verið sétlar upp
víða með viöskiptasjónarmiö fvrst og
fremst í huga, og oft minna verið hugað
að því að leiðbeinendur þar hefðu við-
hiýtandi menntun", sagði Ástbjörg.
Á blaðamannafundinum, scm haldinn
var með fulltrúum Skíðasambands
Islands, Iþróttasambandsins og íþrótta-
bandalags Rcykjavíkur, kom fram að
ckki hefur verið mótuö nein heildar-
stefna varðandi heilsuræktárstöðvar.
Ekki komu fram beinar fullyrðingar um
að sjúklingum í meöferð hjá sjúkraþjálf-
um hefði fjölgað hér á landi vegna þessa.
En það er vitað mál, að ekki hefur verið
sett fram nein afgerandi stéfn'a hér á
landi í málinu, frekar en annars staðar á
Norðurlöndum.
Það kom fram. að Íþróttakennaraíé-
lag Islands hefur unnið í málinu. og
mælst til að íþróttakennarar og/eða
sjúkraþjálfarar störfuðu við slíkar
stöðvar. Vitað er að viö mjög margar
stöðvar starfar slíkt fólk, en þó ekki alls
staðar.
-SÖE
Hreggviður Jónsson form. SKÍ:
„ENGINN HEFUR
VERIÐ FORM-
LEGA VAUNN
11
— Ólympiunefnd velur
þátttakendur á ÓL
■ „Þaö hefur enginn verið form-
lega valinn í skíðalandslið til að
keppa á Ólympíuleikunum í Saraje-
vo“, sagði Hreggviður Jónsson
formaður Skíðasambands íslands í
samtali við Tímann í gær. „Það
rétta í þessu er aö Ólympíunefnd
Islands velur þá sem fara á leikanu,
en við einungis mælum með því að
ákveðnir skíðamenn fari,“ sagði
Hreggviður.
„Hins vegar er hægt að draga
ýnisar ályktanir um hverjir verði
valdir. Ólympíunefnd Islands hefur
gcfið það út, að það fari cin kona
og tveir karlar í alpagreinunt, tveir
kcppcndur í göngu. Þannig er aðeins-
ins cin kona í alpagreinahópnum,
sem fcr út til æfinga 15. janúar,
Nanna Leifsdóttir Akureyri og af
þeim gönguinönnum sem hófu
æfingar í haust, eru bara tveir eftir,
Einar Ólafsson ísafirði og Gottlieb
Konráðsson Ólafsfirði. Þá standa
eftir fjórir karlar í alpagreinahópn-
um, þeir Árni Þór Árnason
Reykjavík, Daníel Hilmarsson
Dalvík, Guðmundur Jóhannsson
Isafirði og Siguröur Jónsson ísa-
firöi.“ - Því má bæta hér við orð
Hreggviðar, að Tíminn hefur
lilerað, að SKÍ hafi ákveöiö að
mæla með Árna Þór, en óákveöiö
sé með hver af hinum þremur verði
valinn.
Hreggviður sagði, aö SKÍ mundi
senda Ólympíunefnd íslands til-
lögur sínar í febrúar, að afloknum
mótum sem landsliðshópurinn mun
taka þátt í á Norðurlöndunum í
janúar og febrúar.
-SÖE
1X2 1X2 1X2
18. leikvika - leikir 7. janúar 1984
Vinningsröð: X12 - X1X - 1X1 - 212
1. vinningur: 12 réttir- kr. 383.755.-
39.479 (V12,4/n)+ (Húsavík)
2. vinningur: 11 réttir - kr. 27.411.-
50394 86516+
Kærufrestur er til 30. janúar kl. 12. á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni
í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar
til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni eða senda
stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna
fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK
IR nú
eitt efst
- Haukar komu á
óvart í kvennakörfunni
■ Haukar úr Hafnarfirði komu ntjög á
övart um helgina í 1. deild kvenna í
körfubolta, er þær sigruðu ÍS 53-49 í
Hafnarfirði. 1S og ÍR voru fyrir helgi tvö
efst í deildinni. og talið að keppnin um
titilinn mundi vcrða rnilli þeirra.
ÍR er nú citt efst. sigraði KR 44-30 í
Hagaskólanum. En Haukastúlkurnar
eiga enn möguleika á að vinna deildina.
standi þær sig vel það sem cftir er.
Staðan er þe
ÍR........
ÍS ........
Haukar ...
Njarðvik . .
Snæfell ..
KR ........
11 9 2 532:424 18
11 8 3 498:429 16
10 6 4 456:321 12
10 4 6 339:419 8
.9 2 7 275:355 4
.9 1 8 301:412 2
Einar varð
fimmtándi
- í erfiðri göngu í Svíþjóð
■ Einar Ólafsson, göngumaðurinn
góðkunni frá ísafirði varð 15. á miklu
göngumóti sem haldiö var í Aas í
Svíþjóð um helgina. Einar keppti í 30
km göngu,ogvarö I5.af60-70keppend-
um. Einar varö meðal atinars á undan
heimsmeistaránum Thomas Eriksson í
þessari göngu. og landa hans Thomas
Wassberg. Þá varö Finninn frægi. Juan
Miato ellcfti í göngunní. Að sögn
Hreggviðar Jónssonar íormanns SKÍ. er
þetta mjög góður árangur hjá Einari.
Einar er nú við kcppni og æfingar í
Svíþjóð. og með honum er Gottlieb
Konráðsson Ira Ólafsfiröi. Þeir munu
báöir keppa á miklu göngumóti 15.
janúar, og verður þcirri keppni sjón-
varpað beint um Svíþjóö. -SÖE
Maradona
byrjaður
- skoraði tvö mörk gegn Sevilla
■ Dicgo Maradona, knattspyrnugoðið
argcntínská, lék sinn fyrsta leik á sunnu-
dag, cftir mciðslin slæmu se.m hann hlaut
í haust. Maradona kom, sá og sigraði,
því hann skoraöi tvö'af þrcmur mörkum
Barcclona.
Það kom mjög á óvart, aö Ccsar L.uis
Menotti, þjálfari Barcclona, og iandi
Maradona, lct Marádona spila á sunnu-
dag. Það er aðcins -tæp vika stðan
kappinn hóf að æfa á ný, það var á
þriðjudag, og það kom cnn mcira á óvart
hvc Maradona var frískur. Maradona
skoraði fyrsta markið á 17. mínútu með
þrumuskoti, og eftir að Barcelona hafði
komist í 2-0 fyrir lcikhlc. skoraði hann
aftur með þrumuflcyg um miðjan stðari
hálfleik. Þá skipti Menotti honum snar-
lcga útaf. og hcfur árciðanlega ekki
viljaö hætta á að ofrcyna goðið. -SÖE
Ingunn
skoraði mest
-13 mörk gegn Víkingi
■ Eins og Tíminn sk\+ði frá í gær,
unnu „stóru" fclögin í 1. dcild kvcnna
511 stórsigra um síðustu helgi. Ingunn
Bcrnödusdóttir ÍR var markahæst þeirra
„stóru" í „störu" liðunum, hún skoraði
hvorki meira nc minna en 1.3 mörk í
29-15 sigri ÍR á Víkingi. Mörk Víkings-
stúlknanna drcifðust alljafnt niður.
Guðríður Guðjónsdóttir var atkvæða-
mikil mcð Frarn gegn Fylki, skoraöi 11
mörk, og Sigrún Blomsterberg skoraði
6. Eva Baldursdóttir skoraði 6 rnörk
fyrir Fylki, og Rut systir hennar 5.
Kristjána Aradóttir skoraði 10 mörk
fyrir FH í 32-12 sigri FH á ÍA. Kristín
Pctursdóttir og Sigurbjörg Eyjólfsdóttir
skoruðu 5 hvor. Laufey knattspymukona
Sigurðardóttir skoraði 6 ntörk fyrir IA.
-SÖE
1 m • • ••