Tíminn - 11.01.1984, Side 13

Tíminn - 11.01.1984, Side 13
t 4 ■\/JM« MIÐVIKUDAGUR 11. JANUAR 1984 .11 i • I' Falleg blómaskál: Kaktusar í f jöru- steinum ■ Litlir kaktusar eru mjög vinsælir og fara vel með ný- tískuiegum húsgögnum,. sagði danskur innanhúss- arkitekt í viðtali í dönsku blaði nýlega. Heimilistíminn vill bæta því við, að kaktusar getai farið vel við hvers kyns hús- gögn og í gömlum gluggum jafnt sem nýjum, en svo getur hver og einn sett litlu kaktusana í potta og krukkur sem passa best í hverju til- viki. Hérna sjáum við eina út- gáfuna af blómaskál með litlum kaktusum. Slík skál með þremur litlum kaktus- um er skemmtileg gjöf, og ekki skemmir að hafa á botni skálarinnar fallega litla fjörusteina. Kaktusarnir eiga að vera hver í sínum potti, og má setja smásteina ofan á moldina til skrauts Hekluð gólfmotta úr efnisafgöngum ■ Þvermál u.þ.b. 90 cm - eða eftir vild. Efni 1.5 cm breiðar reimar úr efnisaf- göngum. Til að reimarnar verði sem lengstar samhangandi.e r berst að klippa þær í „gorm“. Heklunál nr. 7. Mottan. Byrjið í miðjunni. Heklið 4 loftlykkjur og myndið hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. 1. umf.: Heklið2fastalykkjur í hverja loftlykkju. Ath. - hver umferð byrjar á 1 loftlykkju sem kemur í stað fyrstu i fastalykkjunnar, og umferðinni lýkur með 1 keðjulykkju í loftlykkjuna. í öllum umferðum er fastalykkjan hekluð í gegnum aftari lykkjuna. 2. umf. Aukið út um eina lykkju (2 , fastalykkjur í sömu lykkju) í hverja lykkju = 16 fastalykkjur. 3. umferð Aukið út í aðra hverja lykkju = 24 fastalykkjur. 4. umferð. Aukið út í 3. hverja lykkju = 32 fastalykkjur. Haldið síðan áfram að auka út 8 sinnum í hverri umferð - í hverri umferð verður einni fastalykkju fleiri milli aukn- inganna. Gætið þess vel að ytri kanturinn verði hvorki of flár né of strengdur. Ef hann fláir, eru heklaðar ein eða tvær umferðir án aukninga, og sé kanturinn of strengdur eru heklaðar ein eða tvær umferðir með fleiri en 8 aukningar í umferðinni. Heklið rendur eftir vild, þar til mottan hefur náð þeirri stærð, sem óskað er. Endið með einni umferð af keðju- lykkjum. ■ Blómaskál fyrir steina- og kaktusa- safnara Skammstafanir — heklskýringar jpwp N • | fl. = fastalykkja. Byrjið með einal lykkju á heklunálinni, dragið nálina j í gegnum eina lykkju á umferðinni á | undan, dragið garnið í gegn = 21 lykkjur á nálinni, dragið garnið í gegnum þessar 2 lykkjur. ...... fl. = fastalykkjur. Haldið á heklu- nálinni eins og blýanti, búið til lykkju úr garninu og dragið heklu- nálina í gegn eins og sýnt er á teikningunni. 1 | st. = stuðuli. Byrjið með eina | lykkju á heklunálinni. Sláið garnið j upp á, dragið nálina í gegnum einaj JJ lykkju á umferðinni á undan. Drag- ið garnið í gegn = 3 lykkjur á I nálinni, dragið garnið í gegnum 2 fyrstu lykkkjurnar = 2 lykkjur eftir, dragið garnið í gegnum þessar 2 lykkjur. j kl. = keðjulykkja. Byrjið með eina lykkju á heklunálinni, dragið heklu- nálina í gegnum eina lykkju á j umferðinni á undan, dragið garnið í gegn og beinustu leið gegnum lykkj- una á heklunálinni. j tvf. st. = tvöfaldur stuðull. Byrjið j með 1 lykkju á heklunálinni, sláið j upp á tvisvar, heklið eins og stuðul = 4 lykkjur á nálinni, dragið gamið f í gegnum 2 og 2 lykkjur í einu x Notið helst það garn, sem gefið er upp í uppskriftinni, ef ákveðið gam er gcfið upp, og farið nákvæmlega eftir heklfestunni. xx Heklið helst pmfu og berið saman við uppskriftina. Ef hún verður stserri en uppskriftin reiknar með, skuluð þið skipta yfir í fínni (ef prafan er of stór) eða grófari (ef prufan er of lítil) heklunál. xxx Það er mikilvægt að strekkja vel hekiaða muni, ekki síður en prjónaða, ef þeir eiga að njóta sín. Breiðið stykkin vel út á deigan klút og strekkið þau, gjarna með títuprjónum. Leggið annan deigan klút ofan á. Bíðið eftir að klútarnir þorni. xxxx Ef þarf að sauma saman stykki, má gjarna gera það með fínni þræði. Gætið þess að sauma ailtaf saman þær lykkjur, scm eru andspænis hvor annarri. xxxxx Pressið að I okum stykkið létt frá röngunni. Þvoið hekluð stykki alltaf varlega í mildu sápuvatni, sem hvorki er of heitt né of kalt. Best er að þvo í höndunum. Eru augun orðin þreytt? ■ Það er ekki langt liðið á daginn, en samt eru augun farin að gefa frá sér þreytumerki. Til að hvfla þau aðeins er gott að setjast niður, styðja alnbogunum á borð, eða alveg eins skrifborðið, og halda fyrir augun. Teljið upp að 20. Takið hendumar frá augunum og starið beint áfram. Teljið upp að 6. Endurtakið alla æfinguna þrisvar. Ef þið þreytist í augunum dag eftir dag, er sjálfsagt að leita til augnlækni . Slakið á herðum og hálsi ■ Flest eigum við það til að fá spennuverki í herðar og háls. Hér eru tvær auðveldar æfingar, sem gera má af og til yfir daginn og létta vel á spennunni, ef hún hefur ekki náð að verða rótgróin. Komið ykkur þægilega fyrir í stól og spennið greipar aftur fyrir hnakka. Hafið alnbogana til hliðanna. Hallið nú höfðinu aftur og veitið mótspyrnu með spenntum greipunum. Teljið upp að 5. Slakið nú á og teljið upp að 5. Þrýstið nú höfðinu enn aftur og endurtakið æfinguna 8 sinnum. Látið þá handlcggina hanga slaka niður með hliðum og hristið þá. Setjið nú fingurgómana á axlirnar og hreyfið alnbogana í hringi, eins langt áfram og eins langt aftur og þið getið. Endurtakið alls 15 sinnum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.