Tíminn - 11.01.1984, Page 20
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuveg* 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikið úrval
Sendum um land ailt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
&ANX3VAKA
ARMULA3 SIMI 81411
abriel
HÖGGDEYFAR
__ ii , ■ riamarshöfða 1
QJvarahlutir sími365io.
Ritstjorn 86300-Auglýsingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306
Úrslit dönsku þingkosninganna:
SIGUR SCHLUTERS
Á KOSTNAÐ HINNA
BORGARAFLOKKANNA
— jafnaðarmenn töpuðu tveim þingsætum
— Glistrup beið afhroð. Niðurstaðan
áframhaldandi pattstaða
■ Svo sem allar skoðanakannanir höfðu
gefíð til kynna var það forsætisráðherrann og
formaður íhaldsflokksins, Poul Schliiter sem
var sigurvegari þingkosninganna í Danmörku
í gær. íhaldsflokkurinn fékk 42 þingsæti, hafði
áður 26 og bætti því við sig 16 sætum. En þessi
sigur nægði engan veginn til að draga fram þær
hreinu línur sem kosningunum var ætlað að
gera. Miðdemókrataflokkur Erhards Jakob-
sens tapaði 7 þingsætum, hafði 15 en fær 8,
en það þýðir að minnihlutastjórn Schliiters
nægir ekki stuðningur Róttæka vinstri flokks-
ins til að koma málum í gegnum þingið.
Vinstri flokkurinn fékk 21 og
haföi 20, Kristilcgi þjóðarflokk-
urinn fékk 5 þingsæti en haföi 4.
Stjórnarflokkarnir fcngu því 76
þingsæti. í staö 65 áður.
Framíaraflokkur Glistrups tapaði
10 þingsætum af 16, cn Róttæki
vinstri flokkurinn sem helst hcf-
ur variö minnihlutastjórn
Glistrups falli vann 1 sæti og
fékk 10.
Jafnaöarmcnn töpuöu tveim
þingsætum, fékk 57, Sósíalíski
þjóöarflokkurinn fékk 21 þing-
sæti og stóö í stað, Vinstri sósíal-
istar stóðu einnig í stað, fengu
aftur sín 5 sæti. Stjórnarandstað-
an fékk þannig 85 sæti, og hefur
því bætt við sig ftá skoðana-
könnunum.
Niðurstöður kosninganna sýn-
ast því vera þær að áfram ríki
pattstaða í dönskum stjórnmál-
um, vinstri flokkarnir hafa hald-
ið sínu cn tilfærslur orðið innan
borgaraflokkanna. Minnihluta-
stjórn Schliiters sýnist eiga tvo
kosti og hvorugan góðan frá
hennar sjónarhóli séð, að taka
tillit til sjónarmiða jafnaðar-
manna í stórmálum eða leita á
náðir jarðneskra leifa Framfara-
flokksins, flokks hins dæmda
skattsvikara, Mogens Glistrups.
Þessar kosningar, sem talað var
um að myndu skera úr um fram-
tíðarstefnu dansks samfélags
virðast hclst leiða af sér að sú
stefna verði ákvörðuð með
flóknum samningum í ýmsar
pólitískar áttir. JGK
Þriðjudagur 10. janúar 1984
Útburðarmál-
id á Akureyri:
DAGSETNING
Poul Schlúter
EKKI AKVEÐIN
undirskriftar-
listar í gangi
■ Ekki hefur enn verið á-
kveðið hvenær útburöarkröf-
unni á hendur hjónunum í
Þingvallastræti 22 á Akureyrt
verður fullnægt, en eins og
kunnugt er hnekkti Hæstirétt-
ur fyrir skömmu þeim úrskurði
fulltrúa bæjarfógeta á Akur-
eyri að útburðurinn gæti ekki
farið frant þar sem dómhafi
fengi ekki umráðarétt húseign-
arinnar að honum loknum.
I samtali við Tímann sagði
Brynjólfur Kjartansson lög-
maður dómhafa að ekki hcfði
enn verið ákveðið af þeirra
hálfu hvaða dag útburðurinn
verður látinn fara fram. Og að
sögn Sigurðar Eírikssonar full-
trúa bæjarfógetans á Akureyri
mun embættið ckki fram-
kvæma útburðinn fyrr en form-
leg beiðni og dagsetning liggi
fyrir frá dömhafa.
Á Akureyri hefur undanfar-
ið staðið yfir undirskriftar-
söfnun undir beiðni til dóms-
málaráðherra um að hann beiti
sér fyrir aö lög þau sem upphaf-
legur dómur Hæstaréttar
byggðist á verði endurskoðuð.
- GSH.
Gæsluvardshaldsfanginn í
Karlsefnismálinu:
LÁTINN LAUS EFTIR AÐ HAFA
SETIÐINNIÁ ÞRIÐJAMÁNUÐ
Áætlunarbíllinn frá Ólafsvík:
■ Maðurinn, sem setið hefur
í gæsluvarðhaldi í tvo og hálfan
mánuð, vegna gruns um að
hann tengdist Karlsel'nisinálinu
svokailaða var látinn laus i gær.
Maðurinn var upphaflega
. úrskurðaður í gæsluvarðhald í
45 daga cftir að upp komst um
tilraun skipvcrja á togaranum
‘ Karlsefni til að smygla 11,3
kílóum af hassi tjl landsins.
Gæsluvarðhaldið var síðan
framlengt um 30 daga og rann
það út í gær.
í gær stóðu yfir yfirheyrslur
í Sakadómi í ávana og fíkni-
efnamálum til að sannprófa
framburð mannsins í nokkrum
atriðum. Að sögn Arngríms
ísberg fulltrúa lögrelgustjóra
þótti ekki ástæða til að krefjast
frekari framlengingar á gæslu-
varðhaldi yfir manninum, en
málið væri enn í rannsókn og
því ekki hægt að skýra frá því
frekar að svo stöddu. - GSH.
VAR TIU HMA A LEIB-
INNI TIL BORGARNESS
■ Færð á vegum á Vestur-
landi var mjög erfið í gær.
Vegurinn yfir Holtavörðu-
heiði var lokaður og menn
frá vegagerðinni, sem fóru í
gærmorgun í sæmilegu veðri
til að opna veginn þar, urðu
að snúa við vegna ófærðar.
Að sögn Bjarna Sigurðs-
sonar hjá Vegagerð ríkisins
í Borgarnesi var reynt að
halda vegum á Vesturlandi
opnum í gær en gekk það
illa. Kom þar ekki síst til
hvað skyggni var slæmt í
hryðjunum og var áætlunar-
bíll frá Ólafsvík m.a. 10
tfma á leiðinni til Borgarn-
ess þrátt fyrir að færðin
ísjálfu sér væri ekki svo
slæm.
Reynt verður að opna
norðurleiðina í dag ef veðr-
ið verður skaplegt. _ GSH.
dropar
Bilaðir bruna-
boðar á Akureyri
■ Það verður vandséð hversu
mikið gagn Slökkviliðið á Ak-
ureyri hefur af brunaboðum
þar í bæ miðað við það óhagræði
sem þeim l'ylgja. Þannig kemur
í Ijós samkvæmt skýrslu slökkvi-
liðsstjóra staðarins fyrir síð-
asta ár að útköll slökkviliðsins
í gegnum brunaboða námu alls
27, en á móti kemur að 22 af
þessum útköllum urðu vegna
bilunar í brunaboðum. Það er
því ekki nema fimmtungur sem
skilar sér í „alvöru“ útköllum,
og á þá eftir að taka tillit til
þess hvort eitthvert af þeim 5
sem eftir standa séu vegna
Fjargæslu-
hundur fjár-
málaráðherra
Hundahald í Reykjavík og
lögmætar aðgerðir dómstóla
og löggæslumanna til að
stemma stigu við því, enda
hundabann í orði kveðnu í
gildi, hafa mælst misjafnlega
fyrir. Ekkert virðist fara að
bóla á nýjum reglum um rýmk-
un á hundahaldi í borginni sem
borgarstjóri hafði þó gefið
undir fótinn með í blaðavið-
tölum.
Einn er þó sá hundaeigandi
sem að mestu hefur sloppið við
aðgerðir stjórnvalda gegn
hundahaldi, nefnilega sjálfur
fjármálaráðherra og fyrrver-
andi forseti borgarstjórnar, en
það er einmitt borgarstjórn
sem upphaflega setti reglurnar
um bann við hundahaldi í
borginni. Hallast kunnugir
helst að því að aðgerðarleysið
megi rekja til þess að lögmætt
sé að halda fjárhunda, og því
hljóti fjármálaráðherra að vera
heimilt að hafa fjárgæsluhund
til að gæta fjárins í ríkiskass-
kútana...!
Krummi...
...leggur til að Al-
bert fái sér umboð fyrir Sánkti
Bernharðs hundaromm-
kúta-...!