Tíminn - 25.01.1984, Page 2
2
fréttirj
Spurningar vegna könnunar fæðudeildar RALA:
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1983
ERU ISLENSK EGG LELEGRI EN
ÖNNUR EM MEÐFERÐIN VERRI?
— MSprunguhlutfall auðvitað allt of hátt og ætti raunar að vera í núlli hjá
framleiðendum” segir Jón Óttar Ragnarsson
■ „Sprunguhlutfall það sem fram kom
í þessari könnun er auðvitað allt of hátt,
ætti raunar að vera í núlli frá framleið-
endunum, og mun lægra í verslunum en
fram kom í könnuninni. Hins vegar
vantar hér framhaldsrannsóknir til að
miða við og reyna að finna út hvernig á
þessu stendur. Spurning er t.d. hvort
einhver munur er á íslenskum eggjum og
öðrum eða hvort einungis er lélegri
meðferð um að kenna“, sagði Jón Ottar
Ragnarsson, forstöðumaður fæðudeild-
ar RALA, spurður hvort niðurstöður
hafí komið á óvart í könnun á ástandi
cggja scm sagt hefur verið frá.
Jón Öttar sagði ýtarlegri rannsóknir
þurfa að fara fram til að finna út hvar
helstu vandamálin liggja og reyna síðan
að draga úr þeim miðað við aðstæður hér
á landi. Margt sc að athuga í þessu
sambandi, svo scm fóðrið og hvort það
henti hænsnastofninum, stofninn sjálfur
og svo auðvitað kæligeymslur og ýmis-
legt annað. Margir þættir spili þarna
saman. Líta þurfi á þá hvern fyrir sig og
reyna að finna út hvar vandans er helst
að leita.
Varðandi geymsluþol eggja sagði Jón
Óttar miðað við að ósprungið egg eigi að
geta geymst í um 5 mánuði í kæli, þ.e.
við 4-5 'gráðu hita. Á sprungnum eggjum
sé engin leið að nota þá viðmiðun.
Bjarni Guðmundsson í landbúnaðar-
ráðuneytinu var spurður hvert framhald-
ið yrði varðandi gæðamálin. Hann kvað
þá frumkönnun sem farið hafi fram einn
lið í starfi nefndar sem nú er starfandi á
vegum ráðuneytisins varðandi þessi
gæðamál. Nú hafi verið lagt til við
fæðudeild RALA að rækilegri könnun
fari fram á gæðum eggja, svipað og
unnið hafi verið að varðandi mjólkur- og
kjötafurðir. Bjarni sagði mjög Iítið vitað
um ástand eggja hér á landi nema það
sem menn yrðu sjálfir varir við sem
neytendur eða heyrðu frá öðrum. Nauð-
synlegt sé því að bæta úr því þekkingar-
leysi.
Erlendis sagði Bjarni egg ekki einung-
is flokkuð í tæk eða ekki tæk, heldur í
ákveðna gæðaflokka þannig að fólk viti
hvað það er að kaupa. Hjá Bretum og
Norðmönnum sé t.d. miðað við 3 til 4
gæðaflokka og síðan í ákveðna stærðar-
flokka.
-HEI
■ Jón Óttar Ragnarsson.
Fyrirhuguð 25% hækkun á gjaldskrá
Hitaveitu Reykjavikur:
„BEITI MÉR EKKIFYRIR
AÐ STEINN VERÐI SETTUR
í GÖTll FYRIRTÆKISINS”
— segir Sverrir Hermannsson, iðnaðarráðherra
■ „Hitaveita Reykjavíkur hefur verið
svelt heilu hungri árum saman vegna
vitlausra vísitöluviðmiðuna - hún ein
hitaveitna var látin vigta inn á vísitölu.
Þannig má ekki fara með vel rekið
fyrirtæki og þess vcgna mun cg ekki
■ Framsóknarfélag Sauðár-
króks hélt aðalfund sinn mánu-
daginn 16. þ.m. og var hann
fjölsóttur. Stefán Pedersen,
Kvöld-
námskeið
í myndlist
í Vest-
manna-
eyjum
■ Kvöldnámskeið í myndlist eru um
þessar mundir að hefjast í Félagsheimili
Vestmannaeyjabæjar við Heiðarveg.
Jafnframt hefst um næstu mánaðamót
námskeið þar sem kennt verður annan
hvern laugardag í vetur.
Markmiðið með námskeiðum þessum
er að endurvekja Myndlistarskólann í
Vestmannaeyjum. Ætlunin er að sem
mest fjölbreytni verði höfð í huga við
uppbyggingu skólans. Kennarar við
Myndlistarskóla Vestmannaeyja verða:
Björgvin Björgvinsson og Sigurfinnur
Sigurfinnsson.
beita mér fyrir því að settur verði steinn
í götu fyrirtækisins. Enda er það yfirlýst
stcfna ríkisstjórnarinnar. að stjórnir
sveitarfélaga eigi sjálfar að ákveða verð-
lag á sinni þjónustu," sagði Sverrir
Hermannsson, iðnaðarráðherra, þegar
formaður félagsins flutti
skýrslu stjórnarinnar og ræddi
um málefni framsóknarfélagsins
og flokksins, í víðara samhengi,
í ýtarlegri og yfirgripsmikilli
ræðu. Stefán kvaðst ekki gefa
kost á sér til endurkjörs. Sama
gerði og Sæmundur Hermanns-
son, en þeir hafa báðir starfað í
stjórn framsóknarfélagsins um
árabil, voru þeim þökkuð góð
störf.
í stjórn félagsins voru kosnir: Jón
Eðvald Friðriksson, formaður, Ástvald-
ur Guðmundsson, ritari, Steinar Skarp-
héðinsson, endurkosinn gjaldkeri. í
trúnaðarráð félagsins voru kosnir: Mar-
teinn Friðriksson, Guðjón Ingimundar-
son, Stefán Pedersen, Sveinn Guð-
mundsson, Guttormur Óskarsson, Ólaf-
ur Friðriksson, Erla Einarsdóttir, Hall-
grímur Ingólfsson, Geirmundur Jónsson
og Sæmundur Hermannsson. Auk þess
eiga sæti í trúnaðarráði, bæjarfulltrúar
Framsóknarflokksins, aðal- og vara-
menn svo og alþ ngismaðurinn Stefán
Guðmundsson.
Stcfán Guðmundsson, alþingismaður
Outti erindi um stjórnmálaviðhorfið.
Kom hann víða við í ræðu sinni og var
góður rómur gerður að henni. Margir
fundarmanna tóku síðan til máls og
stóðu untræður fram yfir miðnætti.
-G.Ó
hann var spurður hvort hann hefði ekki
eitthvað að athuga við fyrirhugaða 25%
hækkun á þjónustu Hitaveitu Reykja-
víkur, sem á að taka gildi 1. febrúar
næstkomandi.
„Fólk verður að hafa það í huga að
gjöld Hitaveitu Reykjavíkur eru aðeins
20% af óniðurgreiddri olíu. Eftir hækk-
unina fara þau upp í 25%, sem mér
finnst alls ekki óeðlilegt hlutfall," sagði
Sverrir.
-Hefurðu engar áhyggjur af því hver
áhrif þetta hefur á vísitöluna?
„Auðvitað hefur maður alltaf áhyggj-
ur af því. En okkur hefur gengið vel í
áflogunum við verðbólguna en það verð-
ur ekki við öllu séð. Við megurn til
dæmis ekki missa niður eða rýra lífs-
nauðsynlega þjónustu. Tilfellið er, að
fyrirtækið þarf lífsnauðsynlega á hækk-
uninni að halda til að halda úti eðlilegri
þjónustu og geta ráðist í nauðsynlegar
framkvæmdir," sagði Sverrir. -Sjó
4% sam-
dráttur
sölu-
magns
hjá Cold-
water ár-
ið 1983
■ Sölumagn Coldwatcr í Banda-1
ríkjunum dróst á sl. ári saman um
4%, en það jafngildir um 2% sam-
drætti í dollurum.
Salan á liðnu ári nam í dollurutn
194 milljónum, sem jafngildir 5,7
milljörjfum króna, en árið 1982 var
salan í dollurum 197.5 milljónirdoll-
ara, sem jafngildir 5.8 milljörðum
króna. Samdrátturinn varö mestur í
flakasölu, en einnig varð nokkur,
samdráttur í verksmiðjufram-
leiddum vörum. -AB
Framsóknarfélag Saudárkróks:
JÓN EÐVALD
VAR KJÖRINN
FORMAÐUR
■ Sigurður Ólafsson tekur lagið,
Ný hátíð á Broadway:
„Allt á floti
allsstadar...”
■ Ný sönghátið eða sýning verður
frumsýnd á veitingahúsinu Broadway á
föstudagskvöldið, undir heitinu „í gegn-
um tíðina, MANSTU LAGIГ? en hún
er í framhaldi af fyrri sönghátíðum
staðarins. #
Blaðamönnum gafst kostur á að líta
inn á eina æfingu hjá hluta þeirra
skemmtikrafta sem fram munu koma en
þessi hátíð spannar tímabilið frá fyrstu
gróskunni í íslenskri plötugerð á miðjum
sjötta áratugnum og fram á þann sjöunda
og ekki er að efa, miðað við fyrri
reynslu, að um hclmingur gesta muni
vera í tárum mestan hluta kvöldsins og
„nostalgían" leka um hvern krók og
kima staðarins eða eins og Skapti Ólafs-
son syngur: „Það er allt á floti allsstað-
ar“....
Að sögn Björgvins Halldórssonar sem
umsjón hefur með uppsetningu sýning-
arinnar mun hún verða á dagskrá föstu-
dags- og laugardagskvöld næstu helgar
en síðan verður fljótlega farið í að setja
upp nýja rokkhátíð, svipaða þeirri sem
var í fyrra og mikla lukku vakti, en
ætlunin er að gera betur nú óg verður
meira lagt í uppsetninguna m.a. verða
dansarar með nú.
Þegar líður á veturinn er svo ætlunin
að nýja sönghátíðin og nýja rokkhátíðin
muni verða sitthvort kvöldið um helgar.
-FRI
■ .......allt á floti allsstaðar".. syngur Skapti Olafsson. Tímamyndir Róbert