Tíminn - 25.01.1984, Síða 6
■ Þó að sjónvarpsþætt-
irnir vinsælu Dynasty séu
einkum þekktir fyrir eins-
takt safn af andstyggi-
legum illmennum, má þó
finna innan um venjulegar
og heiðarlegar persónur.
Með hlutverk einnar þeirr-
ar fer John James, en
hann leikur tengdason,
sem álpast inn í olíuauð-
kýfingafjölskylduna, sem
allt snýst um í þáttunum.
Með hlutverki sínu hef-
ur John aflað sér fádæma
vinsæida, en hann hefur
þegar komist að því, að
frægðin getur verið erfiður
fylginautur og jafnvel
hreint og beint hættuleg.
Fyrst rann upp fyrir John Ijós
um þær hættur, sem væru vin-
sæidunum samfar, þegar hann
var staddur á bar fyrir nokkrum
mánuðum ásamt vinkonu sinni.
I’á lagði stúlka ein, sem var í
fylgd með risavöxnum og sterk-
legum karlmanni, lykkju á leið
sína til að komast í nánd við
Jolin, og þóttist óvart hella ór
glasi sínu yfír hann. Uppnámið,
sem varð, notaði hún til að
gauka að honum snepli með
símanúmeri sínu, en var svo
klaufsk, að ekki fór fram hjá
neinum viðstöddum, hvað hún
■ Nú er allt fallið í Ijúfa löð milli Marciu Wolf og Johns James og
framtíðin virðist brosa við þeim, bein og breið, nema...
John James, góði strákurinn í Dynasty;
FALL VAR FARARHQLL
ÞEGAR HANN HITTI
KAERUSnJNA SÍNA FYRST
var að aðhafast. Afleiðingin varð
sú, að John átti fótum fjör að
launa, þegar fylgisveinn stúlk-
unnar hugðist jafna um John.
I annað skipti komst John í
hann krappan sökum vinsæld-
anna. Einhver náungi, sem líkir
vel eftir rödd hans, tók upp á
því, að hringja í hinar og þessar
vinkonur kærustunnar hans,
fyrirsætunnar Marcia Wolf, og
bjóða þeim út. Þær sýndu Mar-
ciu þá hollustu að láta hana óðar
vita, að eitthvað væri John laus
á kostunum. Það gekk ekki auð-
veldlega fyrir John að sannfæra
Marciu sína um, að hérna væri
um eftirhermu að ræða og hann
sjálfur væri alls saklaus af því að
vera að taka vinkonur hennar á
löpp. Það dugði ekki minna en
að hann tilkynnti alþjóð í sjón-
varpsþætti, þar sem hann kom
fram, að hér með opinberaði
hann trúlofun sína og Marciu, til
að hún blíðkaðist.
Marcia hefur nú flust búferlum
frá New York til Hollywood til
að hafa hönd í bagga með John,
sem kann sér ekki hóf á sumum
sviðum. Hann hefur nefnilega
oftar en einu sinni fundið til
verkja í brjóstholi, sem sumir
óttast að kunni að vera alvarlegs
eðlis, þó að John sé ekki nema
27 ára. Vinir hans hafa ráðlagt
honum að fara í læknisrannsókn
til að ganga úr skugga um hvað
sé hér á seyði, en til þess er John
ófáanlegur, þar sem hann óttast
úrskurð læknisins, en föðurbróð-
ir hans dó úr hjartasjúkdómi
aðeins 37 ára gamall. Öðrum
ráðleggingum vina sinna, og þá
einkum Marciu, hefur hann tek-
ið betur. Hann hefur t.d. iagt
reykingar á hilluna og hyggst
minnka við sig vinnu. Og Marcia
styður hann með ráðum og dáð.
Reyndar má segja, að fall hafí
verið fararheill, þegar fundum
þeirra Johns og Marciu bar
saman. Það var fyrir 18 mánuð-
um, að þau voru bæði stödd á
sama hjólaskautadiskótekinu í
New York, að þeim fataðist
eitthvað báðum stjórnin, með
þeim afleiðingum, að áður en
þau vissu lágu þau í bendu á
gólfínu. Það var upphafið að því
lukkulega lífí, sem þeim virðist
nú vera að takast að byggja upp,
þrátt fyrir ýmsan mótbyr.
■ Það er skiljanlegt að jafn
myndarlegur maður og John
James gangi í augun á kvenfólk-
inu, en hann hefur þegar fengið
að reka sig óþyrmilega á það, að
það er ekki alltaf tekið út með
sitjandi sældinni að vera bæði
frægur og vinsæll.
■ Ennþá falla karlavígin
hvcrt um annað þvert. Nú er
m.a.s. kona tekin við hlutverki
Tarzans apabróður, og þykir
þá ýmsum, sem fokið sé í flest
skjól!
Bandaríska leikkonan Tan-
ya Roberts hefur tekið að sér
að feta í fótspor Johnnys
Weissmuller, I.ex Rarker o.fl.
og túlka Tarzan á hvíta tjaldinu
sem stúlkan Shecna.
Augljóst er, að það er ekki
fvrir hvern sem er að sýna
lávarðssoninn, sem alinn er
upp af öpum í frumskóginum
og eru allar leiðir færar i þeim
heimkynnum. Hingað til liefur
Tanya verið hagvanari á öðrum
vettvangi. sem e.t.v. á eilthvað
skylt við frumskóg að vísu.
Hún hefur nefnilega að undan-
förnu farið með hlutvcrk einn-
ar glæsipiunnar í sjónvarps-
þáttunum Englar Kalla (Char-
lie’s Angels), sem vinsælda
hafa notið beggja vegna At-
lantshafsins á undanförnum
árum, þó að við höfum ekki
fengið að njóta þeirra enn og
eigum kannski aldrei eftir að
gera. Þar fást þær stöllur við
lausn ýmiss konar glæpamála í
frumskógum stórborgarinnar.
Leikstjóri mvndarinnar er
John Guillermin, sem leik-
stýrði King Kong á sínum tíma.
Hann er ákaflega hrifínn af
Tanya.- Hún er hreint náttúru-
undur, segir hann. Þó að hún
sé allsendis óförðuð, er hún
samt faileg, alveg dýrðlega
falleg. Og það er cinmitt það.
sem hun þarf að vera i hlut-
verki Shecna, því að eitt aðal-
einkenni drottningar frum-
skógarins er einmitt kynþokki
hennar, hætir hann við.
Hafí allt farið samkvæmt
áætlun, hefur myndatökum á
þessari merku mynd iokið nú
um miðjan janúar.
viðtal dagsins
„ÞETTAER LANDSLAG,
SEM HEFUR OREMÐ T1L
í MÍNUM EKIN HUG-
— rætt við Sævar Daníeísson,
sem sýnir um þessar mundir í
Ásmundarsal við Freyjugötu
■ „Ég hef ekki verðlagt þessar til 15000 krónur. Ég er þeirrar eigi helst að hafa ráð á að kaupa En kannski er þetta full ódýrt,
myndir hátt, þær kosta frá 6000 skoðunar að þeir sem áhuga hafa málverk, ekki bara auðmenn. margir reyna að verðleggja
■ Sævar Danielsson