Tíminn - 29.01.1984, Side 2

Tíminn - 29.01.1984, Side 2
SUNNUDAGUR 29. JANUAR 1983 Þessi mynd birtist í öðru tölubiaði Tímans eftir að Elías Snæland Jónsson tók við ritstjórn, fyrir tæpum þremur árum. Tímamynd G.E. „I GOBSEMI VEGUR ÞAR HVER ANNAN” ■ Það er víðar en í pólitíkinni sem menn vega hver annan í hinu mesta bróðerni. Til að mynda teljast siík víg vart til tíðinda í fjölmiðlaheiminum, - og þó. Hver man ekki eftir aðför þeirra Sveins og Harðar að Vísismönnum og Dagblaðsmönnum, fyrir rúmum tveimur árum, þar sem Dagblaðinu og Vísi var steypt saman í eina sæng á einni nóttu án þess að nokkur almennur starfsmaður blaðanna hefði minnstu hugmynd um að sameining stæði fyrir dyrum? Voru nokkrir biaðamenn reknir eftir þessa sameiningu, og afleiðing þessarar sam- einingar varð sú, að það skárra af síðdegisblöðunum tveimur, Vísir, var ekki til lengur, því Dagblaðið kokgleypti Vísi, tók í engu breytingum til batnaðar, en heitir eftir kokgleypinguna Dagblaðið Vísir, eða DV. Þá gerðust tíðindi hjá Alþýðublaðinu nú fyrir skömmu - öllum starfsmönnum blaðsins var sagt upp, og ríkir nú hin mesta óvissa með framhald á útgáfu blaðsins, þó ég hafi hlerað að þeir alþýðuflokksmenn hyggist eindreg- ið halda áfram útgáfu blaðsins, a.m.k. í einhverju formi. Þá hefur ekki svo lítið verið fjallað um fyrirhugaðar breytingar hér á Tímanum, að undanförnu. Við starfsmenn Tímans höfum vitað það í a.m.k. eitt ár, að fyrir dyrum stæðu verulegar breytingar á rekstrarformi blaðsins, en ekki höfum við vitað með hvaða hætti þær breytingar ættu að verða, fyrr en nú nýverið. Við fengum uppsagnarbréf okkar um síðustu ára- mót, sem við höfum reyndar beðið eftir í allt haust, þar sem við vissum að þau væru undanfari þeirrar breytingar sem fer í hönd 1. apríl n.k., þegar nýr rekstraraðili, Nútíminn hf. yfirtekur rekstur blaðsins. Þegar uppsagnir þessar voru undirbúnar, héldu núverandi for- maður stjórnar Nútímans, Hákon Sigur- grímsson og einn stjórnarmanna Nútím- ans, Haukur Ingibergsson rjómatertu- fund með starfsmönnum blaðsins í ein- um kaffitímanum, þar sem þeir skýrðu frá þeim breytingum sem í vændum væru. Aðspurðir um uppsagnirnar, sögðu þeir heldur lítið, en létu þó mjög í veðri vaka að þær væru einungis „pro forma“. Þetta er rifjað hér upp, vegna þess að þau tíðindi hafa nú gerst, sem ekkert okkar á ritstjórn Tímans uggði að gætu gerst - þar á ég við þá ákvörðun stjórnar Nútímans hf, sem mér er sagt að hafi verið einróma, að endurráða ekki ritstjóra okkar, Elías Snæland Jónsson. Málið horfir einfaldlega þannig við frá mínum bæjardyrum séð, og reyndar fleiri hér á ritstjórn, að Elías hefur verið úrskurðaður bakarinn af stjórn Nútímans, sem skyldi hengjast fyrir alla smiðina, sem starfa við blaðið. Að vísu er Elías ekki eini maðurinn sem er látinn fara, en líklega er hann sá eini sem er látinn fjúka, án þess að nokkur haldbær ástæða búi þar að baki. Auðvit- að er vinnuveitanda heimilt að segja upp starfsmönnum, og ráða aðra í staðinn, rétt eins og launþega er heimilt að segja upp störfum, og ráða sig í vinnu annars staðar. Samt sem áður held ég að það geti verið fróðlegt að rekja aðkomu Elíasar hingað að blaðinu, og hvað hefur gerst á blaðinu, þau ár sem hann hefur stýrt því í fréttalegu tilliti, til þess að menn geti gert upp hug sinn hvort hér var réttmæt ákvörðun tekin, þegar ákveðið var að endurráða ekki Elías. Ráðinn hingað sem kraftaiferkamaður Það eru um þrjú ár síðan að okkur á ritstjórninni var sagt að ráðinn hefði verið nýr ritstjóri í stað Jóns Sigurðsson- ar, og hann væri Elías Snæland Jónsson, fréttastjóri á Vísi. Var okkur greint frá því að hér væri mikill fréttahaukur á ferð, sem myndi einkum hafa með daglega fréttaritstjórn á blaðinu að gera og það talið líklegt að Elías myndi gera kraftaverk á blaðinu. Elías kom með fríðu föruneyti frá Vísi, en honum fylgdu þeir Gunnar Trausti Guðbjarts- son, „lay-outmaður“, undragóður sem slíkur, Páll Magnússon, fréttamaður, sem varð hörkufréttastjóri Tímans, og Illugi Jökulsson einn liprasti og flínkasti penni blaðamannastéttarinnar, sem tók að sér að stýra Helgar-Tímanum. Þessir menn, ásamt okkur sem fyrir vorum, gerðu mikið átak hvað varðar efni, útlit og fréttir blaðsins. Um það eru allir sammála, enda hefur Tíminn fengið það orð á sig, að hann hafi nokkra sérstöðu á meðal íslenskra blaða, fyrir það að vera gott innlent fréttablað. Meira að segja Morgunblaðsmenn hafa viður- kennt það, þegar vel hefur á þeim legið! Hverjum er það svo að þakka? Sjálfsagt okkur öllum sem höfum unnið að frétta- öflun fyrir blaðið. En það höfum við gert undir öruggri leiðsögn og stjórn Elíasar Snæland Jónssonar. Hann veitti okkur mörgum fyrstu leiðsögn í fréttaskrifum, þótt sum hver hefðu þá þegar nokkra starfsreynslu. Hann kom að blaðinu með fítonskraft, staðráðinn í því að átak það sem gera átti, til þess að bæta hag blaðsins, auka útbreiðslu og efla á allan hátt, skyldi takast. Það tókst líka, a.m.k. hvað Elíasar þátt varðaði. Hann dreif samstarfsmenn sína áfram - oft af hörku - þannig að hljóð eins og „djöf.. karlinn" og þess háttar heyrðúst stöku sinnum úr strokki, að vísu lágt, en það heyrði þó til undantekninga að slíkt heyrðist, enda menn sáttir við að láta reka sig grimmt áfram, þegar þeir sáu að sá sem stjórnaði ferðinni, þrælaði engu minna en þeir sem létu stjórnast. Hvað fór úrskeiðis? Nú er það staðreynd, að þótt við sem blaðið höfum unnið undir stjórn Elíasar, teljum að blaðið hafi farið batnandi, þá hefur vegur þess ekki vaxið að sama skapi, og því má spyrja hvað hefur farið úrskeiðis? Þar má sjálfsagt tilgreina margt, en ég ætla aðeins að drepa á örfá atriði, sem gætu varpað einhverju ljósi á málið. Fyrir tveimur árum eða svo var ráðinn nýr framkvæmdastjóri að blaðinu, Gísli Sigurðsson. Gísli hafði ekki komið ná- lægt blaðarekstri áður, er símvirki að mennt, og starfaði sem slíkur hjá Sjón- varpinu áður en hann kom hingað. An þess að vilja hallmæla Gísla í nokkru, hygg ég að vanráðið hafi verið af þáver- andi blaðstjórnarformanni, Halldóri Ás- grímssyni, að leggja til að mágur hans Gísli yrði ráðinn að blaðinu sem fram- kvæmdastjóri. Það er erfitt að reka dagblað - það vita allir, og til þess að gera það eins vel og hægt er, hlýtur viðkomandi að þurfa að hafa einhverja innsýn í viðskiptahætti og framkvæmda- stjórn. Mér er til efs að Gísli hafi haft yfir slíkri þekkingu að ráða þegar hann hóf störf við Tímann, þótt hann kunni að búa yfir henni nú að einhveriu leyti. Þá hefur það lengi verið vitað mál að dreifing Tímans hefur verið í molum. Hvað eftir annað hefur átt að gera stórátak, en einhvern veginn hefur minna orðið úr, en efni stóðu til. Þá hafa framsóknarmenn af flokksskrifstofunni og úr ungliðastarfinu flykkst hingað inn á ritstjórn svona með ársmillibili eða svo, sest við símann og byrjað að safna nýjum áskrifendum. Þetta hefur tekist um stundarsakir, því í herferð sem farin var í fyrra, man ég að einir 900 nýir áskrifendur söfnuðust, en þeir hurfu bara jafnóðum aftur. Blaðið höfðaði ekki til þeirra - blaðið barst ekki til þeirra - blaðið var ekki nógu fjölbreytt - blaðið var ekki nógu líflegt. Aldrei var kvörtunin á þá vegu, að fréttirnar væru ekki nógu góðar. Það var sem sagt aldrei kvartað yfir því að Elías skilaði ekki sínu hlutverki nógu vel. Auðvitað hefur verið kvartað yfir því af þeim sem við nefnum gjarnan „genatíska framsóknarmenn" að fréttirnar skiluðu ekki flokkslínunni nógu vel, en við á ritstjórninni, sem höfum verið ábyrg fyrir fréttaskrifunum höfum jafnan litið á slíka gagnrýni, sem hin bestu meðmæli. Ég get því ekki ályktað á annan hátt en þann, að Elías hafi verið hengdur fyrir alla flöskuhálsana sem gert hafa aukna útbreiðslu blaðsins ómögulega. Hugsanlega spila einhverjar pólitískar ástæður inn í þessa ákvörðun einnig, sem mér eru þó með öllu ókunnar, en meginorsökin hlýtur að vera sú, að menn þeir sem nú tóku þá ákvörðun að losa blaðið við einn sinn besta starfskraft, til þess að hrinda af stað einni kraftaverkabreytingunni enn, þekkja ekki til blaðareksturs, hæfra fréttamanna, hæfra ritstjóra og hæfra ritstjórna sem skyldi. Þeir drógu þá ályktun, að til þess að hægt væri að hrinda þeim hugmyndum sem þeir hafa í huga, í framkvæmd, þá þyrftu allir toppar blaðsins að endurnýjast. Það var að mínu mati röng ályktun, en tíminn á eftir að leiða í ljós hvort það mat mitt er rétt. Það sem getur hugsanlega átt eftir að hjálpa upp á sakirnar, hjá þeim Nútímamönnum, er að fyrir valinu í ritstjórastól Elíasar, varð maður sem öllum á Tímanum er vel til, og allir þekkja af góðu einu. Maðurinn er Magnús Ólafsson, og verður sjálfsagt ætlast til þess að hann haldi áfram kraftaverkasmíðinni, þar sem Elías var Iátinn frá hverfa. Ég vona bara að Magnús sleppi ekki frá Glæsivöllum Nútímans kalinn á hjarta, eins og mér býður í grun, að forveri hans á ritstjóra- stól Tímans muni gera.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.