Tíminn - 29.01.1984, Side 4
J.i; i4.r l*f.\ ,t>; j : !/ ' V
SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 1983
Hve vel þekkir þú sjálfan þig?
■ Hefur það nokkru sinni hvarflað að þér að
spyrjast fyrir um það í sálartetrinu, hvernig foreldri
þú ert? Já, þú sjáifur? Hér gefst þér tækifæri til
þess. Auðvitað er þetta ekki annað en leikur hér á
síðunni, þar sem þú leitar að sjálfum þér. Ert þú
strangt foreldri, siðavandt eða jafnvel meðal hinna
frjálslyndu?
I leiknum felst þó ofurlítil alvara. Hóparnir hér
eru nefnilega smíðaðir út frá allmerkri könnun, sem
gerð var á viðhorfum foreldra í Frakklandi. Eflaust
reynist þér ekki erfítt að finna hvar línurnar liggja
eða þar um bil. Og þá er bara að taka því eða breyta
því, ef þér líkar illa félagsskapurinn.
Þér til fróðleiks, má geta þess að samkvæmt
niðurstöðum könnunarinnar, reyndust „verndar-
arnir“ alls um 28% úrtaksins. Hinir „ströngu“ voru
heldur færri eða um 23%, „siðavöndu“ voru
svipaðir að fjölda og frjálslyndir um 18%. Hinir
eftirlátu ráku svo lestina - náðu aðeins 8% af
heildarfjöldanum í könnunini.
Og þá er að reyna að finna sér samastað.
Hvers konar foreldri ertu?
siða-
• 0
vondu
Þú ert þokkalega ánægður með þá
menntun og uppeldi, sem þú hefur
fengið í æsku og þú ert reiðubúinn til að
beita sömu aðferðum á þín eigin börn.
Þér líður vel, fjarri skarkala borgarlífs-
ins, vinnur t.d. í landbúnaði eða við
stjórnunarstörf í fyrirtæki. Þú ert viss
um, að nægilegt sé að sýna börnum
þínum og öðrum gott fordæmi, þá muni
þau ganga í sporin. En þú ert ungur og
óreyndur. Aldrei hefur reynt á það í
raun og veru, hvernig skoðanir þínar
ganga upp. Að öllum líkindum eru börn
á þín ekki komin unglingsár enn, þannig
að þú hefur ekki þurft að standa við
skoðanir þínar frammi fyrir þeim kröfu-
harða hópi.
Þú fylgist mjög vel með krökkunum
þínum, hvert þau fara og með hverjum
þau eru, hvað þau eru að gera. Þú vilt,
að þau velji sér góða kunningja og þú
talar mikið við krakkana þína. Um allt
milli himins og jarðar. Þú ert skilnings-
rík, lætur oft undan að því tilskildu að
börnin þín fylgi venjulegum umgengnis-
reglum heimilisins og þeim siðum, sem
þið foreldrarnir hafið komið ykkur sam-
an um á heimilinu. Þú leggur t.d. mikið
upp úr því, að barnið fylgi ákveðnum
kurteisisreglum við matarborðið, bíði
þolinmótt eftir drykknum og ljúki við
matinn af disknum.
En þú ert mikið bundinn við hefðir og
siði, sem þér hafa verið innprentaðir í
æsku. Þetta eru þau meginatriði, sem
lífið snýst um að þínu mati. Og það er
vegna þessa viðhorfs, sem eitthvað
skortir á, að þú sért nógu sveigjanlegur
við barnið þegar þörf er á.
Samt sem áður verður að geta þess, að
þú ert ekki mikið fyrir refsingar. Þú
notar næstum aldrei harðar refsingar,
enda eru ekki mörg tilefni til slíks á þínu
heimili. Þú ert líka að jafnaði nokkuð
ánægður með lífið og allmiklar líkur eru
á að barnið þitt muni líkjast þér þegar
fram líða stundir.
■ Ef að líkum lætur, þá ert þú vinstri
sinnaður, kannski skilinn og hefur til-
hneigingu til að að berjast gegn siðalög-
málum þjóðfélagsins. Þú telur, að hlut-
verk uppalandans sé ekkert stórmál og
gerir þér ekki rellu út af öllum gömlu
formúlunum, sem foreldrar allra tíma
hafa látið börnum sínum í arf. Kannski
byggist þetta viðhorf þitt á því að þú
hefur nokkuð góða mynd af þinni eigin
persónu. Þú ert fullur sjálfstrausts, þú
ert sjálfstæður og býrð yfir miklum
eldmóði. Hvílíkur brunnur fyrir barnið
þitt að eiga þig að.
Þess vegna æxlast það svo, að barnið
þitt fer fljótlega að setja saman eigin
stundatöflu lífsins. Síðar verður hann/
hún lyklabarn. Smám saman skiptir þú
þér ekki mikið af því hvar barnið heldur
sig. Það borðar það sem verkast vill,
horfir á hvað sem er í sjónvarpinu, eyðir
vasapeningunum að eigin vild og kaupir
sín eigin föt, þegar þar að kemur -
hjálparlaust.
Þú hjálpar barninu þínu í skólanum.
þegar þar að kemur. Jafnvel áttu það til
að gera æfingarnar fyrir hann/hana. Þú
leitar að bókum, sem kynnu að vekja
áhuga hans/hennar og kemur því svo
fyrir, að barnið hafi nóg að gera í
íþróttum og hvers kyns félagsstarfsemi
eða listum. Þú vilt gjarnan eyða löngum
stundum í samræðum við unglinginn;
stjórnmál eru þér hugleikin samræðuefni
í því sambandi. Að því leyti líkist þú
ekki neinum í öðrum hópum hér að
framan. Þú gerir þér sérstakt far um, að
börnin þín fylgist með því, hvað þú ert
að gera úti í samfélaginu.
Þú býrð ekki yfir neinni sérstakri
blíðu, en vinnur þó hugi og hjörtu með
rólyndi þínu, bjartsýni og tröllatrú á
sjálfum þér, sem þú að sjálfsögðu veitir
áfram í arf til barnanna þinna.
Og allar athugasemdir tcngdámömmu
eða hnýsinna nágranna, þar sem þetta
fólk er að gagnrýna uppeldi þitt -
(vitaskuld af miklu þekkingarleysi) lætur
þú að sjálfsögðu lönd og leið. Þú ert
auðvitað yfir allt slíkt raus hafinn.
Þú hefur ekkert út á uppeldi þitt að
setja. Foreldrar þínir voru hinir full-
komnu uppalendur. Því er um að gera
að endurtaka visku forfeðranna á börn-
unum þínum. En þetta gengur ekki
átaklaust! Þú veist líka, að'þetta verður
ekki tekið út með sældinni; þýðir ekkert
að þrefa um það. Þú bannar börnunum
að sitja iengi á kvöldin yfir sjónvarpinu.
Þú leggur það á þig að segja þeim sögur.
Og síðar meir reynir þú að koma í veg
fyrir, að þau séu of mikið úti á lífinu.
Ekki of oft í kvikmyndahús, takk!
Þú fylgist vel með náminu. Svo vel, að
þú veist hvað barnið á að læra á hverjum
degi. Þú sérð um innkaupin á bókasafn
barnanna og þú hjálpar þeim að gera
heimaverkefni sín í skólanum. En þú vilt
líka sjá almenniiegar einkunnir, ekkert
múður það! Þú leggur mikið upp úr því,
að þau sýni árangur í skólanum, „standi
sig“. Annað dugir ekki.
Þú krefst mikils af börnunum, en þú
leggur líka mikið á þig til að kröfur þínar
standist. T.d. á alltaf að vera einhver
heima til að hjálpa þeim, hlusta á þau,
þegar þau koma heim úr skólanum, ef
mögulegt er. Þú ert ekki sérlega hrifin af
því að taka þau á hné þér við matarborð-
ið, þegar þau eiga að vera að borða.
Strax og þau hafa aldur til eru þau
leidd í allan sanleikann um fjárhag
fjölskyldunnarog þú skýrir fyrir þeim
hinn kalda veruleika lífsins. Þar eru sko
staðreyndir, sem barnið þitt þarf að fá
inn á gráu sellurnar. Því fyrr því betra.
Hinir ströngu fá með tímanum sinn
skammt af uppreisnargjörnum ungl-
ingum. Þú kemur að öllum líkindum úr
miðstéttarfjölskyldu. Þér er efnaleg vel-
ferð fjölskyldunnar mikils virði og þú
leggur mikið upp úr því að skara fram
úr, verða eitthvað í samfélaginu. Þú ert
þeirrar skoðunar, að ákveðin staðfesta í
lífinu og skólanum sé besta uppskriftin
til að ná þessum markmiðum í framtíð-
inni.