Tíminn - 29.01.1984, Side 8

Tíminn - 29.01.1984, Side 8
8 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gislason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúl: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaður Helgar-Timans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv . Hermannsson, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir, Þorvaldur Bragason. Utlitstoiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristín Þorbjarnardóttir, Sigurður Jónsson. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 15, Reykjavík. Simi: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsimar: 86387 og 86306. Verð i lausasölu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 250.00. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Blaðaprent hf. mm—mmmmm—m*mmm^mm^^mmmmmmmmm*im Að veiða hæfilegt magn á sem ódýrastan hátt ■ Sjávarútvegsnefndir Alþingis hafa nú til athugunar ábendingar ráðgjafanefndar um sjávarútvegsmál, sem Hall- dór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra skipaði til að gera tilllögur um kvótaskiptingu fiskveiða. í ítarlegri og vel unninni skýrslu hefur nefndin einkum bent á tvær leiðir sem vænlegustu kostina. Það er svokölluð aflamarksleið og sóknarmarksleið. í stórum dráttum er höfuðmismunurinn sá að samkvæmt fyrrnefndu leiðinni er hverju skipi skammtað ákveðið hámarksaflamagn sem veiða má á árinu, en hin leiðin gerir ráð fyrir að skip fái úthlutað tilteknum fjölda sóknar- daga og fiski þá hver sem betur getur. Hvor leiðin sem valin verður er takmarkið hið sama, að stjórna fiskveiðum á þann hátt að veitt verði hæfilegt magn af fiski af æskilegri stærðargráðu á sem ódýrastan hátt. í ráðgjafanefndinni sitja fulltrúar helstu hagsmunasamtaka sjávarútvegs og fiksvinnslu ásamt sérfróðum mönnum um þessi efni og efnahagsmál. Það eru ótalmörg atriði sem taka verður tilllit til þegar gera þarf svo gagngerar breytingar á þeim umfangsmikla og mikilvæga atvinnuvegi sem sjávarút- vegur er. Af ástæðum sem ekki þarf að skýra ber brýna nauösyn til að taka fiskveiðistefnuna föstum tökum og vondar aflahorfur og slæm afkoma útgerðar um þessar mundir krefjast þess að gripið verði til róttækra aðgerða. Stjórnun fiskveiða og þar með kvótakerfið hlýtur að takmarkast og miðast við það heildaraflamagn sem ákveðið er að veitt verði á árinu. Það er einkum slæmt ástand þorskstofnsins sem athyglin beinist að og þar er einna brýnast að koma við kvótakerfi sem við verði unað. Enginn ætlar sér þá dul að koma á kvótakerfi sem allir geti við unað. Sjávarútvegsráðherra hefur margítrekað að ágrein- ingur hljóti að rísa um fiskveiðistefnuna hvernig svo sem hún verður framkvæmd, en skömmtun á sjávarafla sé gerð af illri nauðsyn. Taka verður fullt tillit til ástands fiskistofna en jafnframt að hafa í huga afkomu útgerðar og allra hagsmuna- aðila. En fyrst og fremst verður að taka tillit til sjálfs þjóðarbúsins, sem á svo mikið undir þeirri auðlind sem fiskimiðin eru. Mikil og góð reynsla hefur fengist af stjórnun margs konar veiða og kvótakerfi í sambandi við margar tegundir sjávar afla, sem tekið hefur verið upp þegar sýnt var að gengið var of nærri einstökum tegundum. Svo hefur lengi verió um síldveiðar, humar- og rækjuveiðar, loðnu, ogskelfisk. Ávallt þegar veiðar á tiltekinni tegund hafa verið takmarkaðar og kvótakerfi sett á hafa slíkar ráðstafanir mætt mótbyr einstakra aðila, en þegar.fram í sækir þykja þær sjálfsagðar og eðlilegar. Með þessu móti er hægt að koma í veg fyrir rányrkju og ofníðslu á einstökum stofnum og veiðislóðum og slíkt launar sig þegar fram í sækir. Þær hugmyndir sem nú hafa verið fram settar ná einkum til veiða nytjafiska sem áður hafa ekki verið háðar strangri skömmtun nema hvað áhrærir heildaraflamagn, en sjómenn hafa veitt eftir vild og getu. Það er fyrst og fremst þorskurinn sem athyglin beinist að í sambandi við þá mótun fiskveiði- stefnu sem nú er unnið að. En þorskurinn er mikilvægasta tekjulind íslendinga og mikið er í húfi að ekki verði gengið of nærri stofninum, eins og allt bendir til að gert hafi verið, og má einskis láta ófreistað til að halda ásókninni í hann innan þeirra marka að eðlileg endurnýjun stofnsins geti átt sér stað. Sjávarútvegsnefndir munu láta sitt álit í ljósi um hvaða valkostir þykja vænlegastir en endanlega mun sjávarútvegs- ráðherra ákveða hvaða leið verður farin. En hvor leiðin sem valin verður er takmarkið hið sama, að veiða hæfilegt magn af fiski með æskilegri stærðardreifingu á sem ódýrastan hátt. Nú í lok vikunnar mun ákvörðun verða tekin um kvótaskipt- inguna og er það ekki vandalaust verk, eða eins og Halldór Ásgrímsson lýsir því, það er mjög erfitt að segja að eitt sé rétt og annað rangt í þessu sambandi. Þetta er allt saman ‘álitamál og úr vöndu að ráða. -OÓ. Wtmtm horft í straumirm SUNNUDAGUR 29. JANUAR 1983 Land hækkar, skjálftar aukast, og ríkisstjórnin er í miðju Gjástykki þar sem eldsprungurnar eru að opnast ■ Land hefur hækkað ískyggilega á Kröflusvæði íslenskra stjórnmála síðustu vikurnar, og jarðskjálftar gerast stærri og tíðari. Ymsir eru farnir að óttast gos, en flestir vona þó enn, að þetta verði aðeins. kvikuhlaup. Það er nokkurn veginn augljóst, að ríkisstjórnin er nú stödd í Gjástykki lífslciðar sinnar á vandrataðri vegferð sinni frá óðaverðbólgu til jafnvægis, og nú brennur sú spurning á vörum flestra, hvort hcnni muni auðnast að komast með aflafeng sinn yflr eldvörpin, þar sem sprungurnar virðast í þann veginn að opnast. Það má líka líkja ríkisstjúrninni þessa dagana við inann, sem situr með sprengju í liöndum og kann ekki enn ncin ráð til þess að gera hana óvirka eða draga úr sprengiaflinu. Menn bíða með öndina í hálsinum. Ráðherrar finna hitann oghoppa Það virðist að því komið að loga upp úr á einstaka stað, og viðkvæmustu ráðherrarnir eru farnir að finna hitann og hoppa. Það er ekki björgulegt fyrir mann sem heldur á sprengju. Sverrir hoppaði fyrstur með svigurmæli á vörum, hótaði öllu illu, og kvaðst mundi beita hvaða ráðum sem væri til þess að hindra að launaskriða brysti fram, en þótt hann segði margt og kvæði fast að lá lausnarorðið honum ekki á tungu. Albert þoldi heldur ekki hitann lengur og hoppaði á hæla Sverri, en hann hafði lausnarorðið eins og hans var von og vísa. Hann sagði: Við kjósum bara tafarlaust, ef stíflan brestur. Hins vegar fylgdi engin skýring á því, hvernig kosningar gætu bætt hag launafólks eða skilað ríkisstjórninni og þjóðinnLyfir gjástykkið. Það verður að segjast í fullri alvöru, að það er heldur óheppilegt, að ráðherrar skuli ekki kunna sér meiri orðstill- ingu á hættustund, jafnvel þótt þeim finnist jörðin vera farin að brenna undir fótum þeirra. Svona svigurmæli eru til þess fallin að bera neista að tundri og æsa til óbilgirni sem um fram allt verður að forðast. Þá er nú skörin farin að færast upp í bekkinn, þegar sáttasemjari ríkisins kvartar undan fleipri ráðherra!! Upphrópun Alberts um kosningar, ef launastífla brestur, er harla girnilegt, sálfræðilegt rannsóknarefni. Maður.hlýtur að spyrja í sakleysi sínu hvað mundi breytast til batnaðar í launadeilunum við að kjósa eins og ástatt er nú. Menn sjá ekki betur en stjórnarflokkarnir hafi þingstyrk til þess að gera það sem þeim sýnist viturlegast nú þegar, og jafnvel þótt þeir bættu hlut sinn í kosningum, styrkist aðstaða þeirra ekkert til þess að gera sprengjuna óvirka. En meðan kosningahríðin er háð getur ýmislegt gerst-til óþurftar þegar allt leikur lausum hala. Öðru máli gegndi ef til vill, ef meirihluti stjórnarinnar væri naumur, og farið að líða á kjörtímabilið. Ætlar stjórnin að verða klumsa í Gjástykki? Þessi mál eru satt að segja ákaflega augljós, þótt varla séu þau auðleyst að sama skapi. Skylduverkefni sem ríkisstjórnin hefur sjálf lagt sér á herðar er deginum ljósara. Hún þrýsti verðbólgunni niður með því að láta launþega borga brúsann. Þar var mest lagt á láglaunafólkið og svo að því þjarmað að segja má að það hafi verið slegið til jarðar. Þessu andmælir engin sála í landinu. Stórlækkun verðbólgunnar með þessum hætti var A ríkisstjórnarinnar, en á eftir verður B að fylgja - að standa í skilum, koma árangrinum af verðbólguhjöðnun- inni til þeirra sem lögðu fram herkostnaðinn, láglaunafólksins fyrst og síðan til þeirra sem eru lítið eitt ofar í stiganum. Ef ríkisstjórnin springur alveg á B-limminu, verður hún klumsa í miðju gjástykkinu með sprengjuna í höndum. Og þannig er að minnsta kosti statt núna. Það er allljóst, að verðbólguhjöðnunin er þegar farin að skila árangri sem gætu orðið kjarabætur, ef ríkisstjórnin stæði ekki klumsa á þessari hættuleið. Ríkisstjórnin virðist ófær um að koma til skila í vöruverði lækkun kostnaðar í verslunar rekstri. Hún er ófær enn um að finna ráð til að bæta hag láglaunafólks. Og það er vegna þessa seinlætisog úrræðaleysis, að senn er að því kemið að upp úr logi á launamarkaði. Ef stjórnin hefði haft manndóm til þess að lögleiða lágmarkstíma- kaup eða finna leið til að rétta láglaunafólkinu aðra hjálpar- hönd væri hún nú betur í stakk búin. Það er engin afsökun fyrir ríkisstjórnina þótt verkalýðsforystan hafi sífellt brugðist og bregðist við að rétta hlut láglaunafólks í samningum. Stjórnin lifir ekki á því að skríða í slíkt skálkaskjól. Það er siðvæðingin sem brást Sannleikurinn er sá, að það er siðvæðingarbrestur ríkis- stjórnarinnar sjálfrar sem er henni nú hættulegast fótakefli. Ef hún hefði byrjað á því að greiða öllum sömu dýrf iðaruppbót en ekki prósentur, haldið síðan áfram og komið á réttmætum láglaunabótum um áramót og tekið þennan einboðna þátt út úr samningum í tíma, hefði hún styrkt mjög siðferðilega stöðu sína til þess að standa gegn verulegum launahækkunum upp allan stigann. Þetta hefði þjóðin virt. En með því að láta þetta dragast von úr viti og þar með inn í hringiðu almennra launasamninga, stefnir hún sjálfri sér og árangrinum af verðbólguhjöðnuninni í bráða hættu. Með þessu úrræðaleysi hefur stjórnin veikt mjög fótfestu sína. Og þennan siðvæðingargrundvöll hefði stjórnin getað styrkt enn betur, ef ráðherrarnir hefðu sýnt í verki að þeir vildu bera sínar byrðar persónulega eins og þeir ætluðust til af launafólk- inu. Með því að afsala sér fríðindum í bifreiðum, neita sér um aðstoðarmenn um leið og þeir ætlast til að aðrar ríkisstofnanir dragi saman segl og fækki stöðugildum, hefðu þeir styrkt og réttlætt kröfur til annarra. En þarna brást persónuleg réttlætiskennd. Og svo koma ráðherrar, jafnt aflóga sem ásettir, og réttlæta sjálfsgjöfina með því að þetta sé heimilt samkvæmt reglum ríkisstjórnar og Alþingis! Það er auðvitað fjarri lagi. Heimild þings og stjórnar er aðeins leyfi ráðherrum til handa að spyrja samvisku sína, hvort réttmætt sé eins og allt er í pottinn búið að notfæra sér þetta og hygla sjálfum sér á þennan hátt. En þeir virðast gleyma að biðja samviskuna um heimild, blessaðir, eða leggja hana að minnsta kosti ekki fram, þegar þeir sækja um tollfríðindin. Það er auðvitað samviskuheimildin sem ræður úrslitum um þetta hjá hverjum sæmilegum manni. Og sem betur fer er það ekki dæmalaust að menn leiti álits samviskunn- ar í málum af þessu tagi og hafni fé sem þeim hefur verið veitt af opinberri hálfu. Þetta hefur meira að segja komið fyrir ráðherra. Oft var þörf að leita heimildar samviskunnar, en nú var það lífsnauðsyn. Þessir hlutir ráða miklu meiri úrslitum í stjórnarstarfi en skammsýnir og sérgóðir menn gera sér grein fyrir. En ferst ríkisstjórnin í gjástykki eldsumbrotanna eða kemst hún upp á sigurbakkann? Það er mergurinn málsins, og hér er um svo mikið að tefla fyrir þjóðina, að allir góðir menn hljóta að biðja henni fararheilla. En tíminn er orðinn naumur, svo að ekki sé meira sagt. Bandormurinn nýi En furður þessara vetrarvikna eru ekki bundnar við ríkisstjórnina eina. Fyrir nokkrum dögum fæddist sá bandorm- ur sem skaut mér meiri óhugnaði í brjóst en flest annað á þessum köldu og dimmu dögum. Þessi bandormur er sam- kræking tveggja stærstu blaða landsins á hægri væng, höfuð borgarinnar og samvinnuhreyfingarinnar í sjónvarpsfyrirtæki. Það er auðvitað engin furða þótt tvö stórblöð auki við sig með þessum hætti. En hvaða erindi á höfuðborgin í slík samtök - eða þá samvinnuhreyfingin? Satt að segja hafði ég síst af öllu búist við því, að þeirerkifjendur, Morgunblaðið ogSÍS, tækju höndum saman í einni fram-fram-fylkingu og áróðursvæðingu á sama sjónvarpskapli. Það er satt að segja kraftaverki líkast, ef samvinnumenn þykjast allt í einu geta gengið þurrum fótum yfir það djúp sem staðfest hefur verið milli sjónarmiða samvinnu og einkagróða. Auðvitað kom í Ijós að ekki voru allir stjórnendur samvinnuhreyfingarinnar á einu máli um þetta þjóðþrifafyrirtæki, og munu nokkur átök hafa orðið um þetta. Mér þótti t.a.m. afar vænt um það, er ég sá í blöðum, að varaformaður SÍS, Finnur Kristjánsson, fyrrum kaupfélags- stjóri á Húsavík og einhver gagnvandaðasti samvinnumaður, sem ég þekki, hafði ekki getað fellt sig við þetta og greitt atkvæði gegn því. En mér finnst satt að segja, að stjórnarmenn SÍS og bandormsfeður skuldi samvinnumönnum í landinu ofurlitla skýringu á líffræði ormsins, og það sé til heldur mikils mælst að ætla þeim að sporðrenna honum með bestu lyst. A.K. Andrés p! Kristjánsson m J skrifar

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.