Tíminn - 29.01.1984, Page 14

Tíminn - 29.01.1984, Page 14
14 „Fyrir þessa grein fer ég í tugthúsiðy” - sagði ég við setjarann bak viö lás og slá, - tilfinning sem er nokkur lífsreynsla. En þessi vist mín þarna varö til þess m.a. aö ég kynntist séra Bjarna Jónssyni og uröum við mcstu mátar. Það var einn morguninn er ég sat í klefa mínum og var aö lesa blöö aö Jón Sigtryggsson, yfirfangavöröur kemur inn til mín, lokar vandlega á eftir sér og segir: „Hefðir þú nokkuð á móti því aö hann séra Bjarni liti inn til þín?" „Hann séra Bjarni?" segi ég. „Hvers vegna vill hann tala viö mig?" „Ja, það er nú þannig," scgir Jón, „aö liann séra Bjarni er prestur stofnunar- innar og kcmur hér alltaf einu sinni i mánuöi og líturtil fanganna. Nú vildi ég spyrja þig hvort þú heföir nokkuö á móti aö hann iiti til þín, því þegar þeir sátu hér í vetur sem leiö, kommúnistarnir í dreifibréfsmálinu, þá vildu þcir ekki tala viö hann.“ Ég sagöi aö mér vreri þaö hin mesta ámegja að tala viö séra Bjarna og svo bciö ég afskaplega spenntur og hugsaði meö mér: „Hvað ætlar séra Bjarni að segja viö mig? Lítur hann á mig sem forhertan glæpamann?" Ekki hafði ég gert mér svariö í hugarlund, þegar séra Bjarni vindur sér inn úr dyrunum, hress og brosmildur, heilsar mér meö virktum og segir: „Það er nú mikill léttir aö koma inn til'þín. Þetta er nú allt þannig vaxiö. En ég get ekki að því gert aö ég vorkcnni alltaf þessum strákagreyjum sem álpast suöur meö sjó á ball, drekka sig fulla og stcla svo kannske frakka." Séra Bjarni stóö svo við hjá mér um stund og við spjölluöum saman og aö lokum sagði hánn: „Má ekki bjóöa þér brjóstsykur?" „Jú, þakka þér fyrir, ég hef alltaf veriö niikiö fyrir sætindi," svara ég. „Þá dró séra Bjarni upp kramarhús mcö brjóstr sykri og skildi eftir hjá mér. Síöar kom Itann aftur, rétt fyrir jólin, og þá hundum viö þaö fastmælum að við skyldum hittast, þegar ég væri orðinn laus og liðugur. Sagði hann mér aö koma til sín í morgunkaffi og þaö geröi ég. Þctta varð ein sú skemmtilegasta stund sem ég hef lifað. því Bjarni var frábær maður og frásagnarlist hans cinstök. Sátum við á spjalli allt til hádegis og sagði hann mér margt frá liðnum árum æfi sinnar, skólaárum og starfsæfi. Voru ávallt góð kynni með okkur sr. Bjarna vftir þetta. Um áramótin 1942-194? hvarf ég frá Þjóðólfi. Ég var skráður einkaeigandj blaðsins, en hafði notiö stuðnings lítils hóps manna sem var ansi sundurleitur. Þó var þaö svo að cr blaöið hafði komiö út í eitt ár, þá vildu þcir endilega fara í framboð. Þar átti m.a. aðild að Árni Jónsson frá Múla. sem bolað hafði vcrið frá sctu á lista Sjálfstæðisflokksins við scinni kosningarnar 1942. Þaðhafði hins vegar aldrei verið i mínum huga aö blaðið yröi flokksblað. Ég var sjálfur ekki í neinum flokki, hafði sagt mig úr Framsóknarflokknum vorið 1941 og er svona var komiö haföi ég ekki áhuga á því að vera viö blaðið lengur. Komst það því formlega í eigu þeirra manna sem stutt höfðu viö bakið á mér og sjálfur yfirgaf ég blaðiö. En svo gerðist það fyrri hluta ársins 1943 að Stefán Pjetursson, ritstjóri Al- þýðublaðsins, hringdi til mín og spurði hvort ég væri ekki til í að koma til starfa á Alþýðublaðinu. Ragnar Jóhannesson var þá að láta þar af störfum til þess að taka við skólastjórastöðu á Akranesi. Ég sagði að það gæti náttúrulega ekki gengið, þar sem ég væri ekki í Alþýðufl- okknum og ætlaði mér ekki að ganga í neinn flokk. Á þessum tíma gerðust þess ekki dæmi að aðrir menn störfuðu við blöðin en flokksmenn. En Stefán tók létt á þessu og sagði að þctta væri þannig starf að þarna skiptu pólitískar skoðanir engu niáli, fréttaskrif og annað slíkt. En samt yrði hann að ætlast til að ég skrifaði leiðara ef hann væri forfallaður. Sagði hann að leiðarar þyrftu nú ekki endilega SUNNUDAGUR 29. JANUAR 1983 ■ „Ég hafði aldrei hugsað mér að fara að skipta mér opinberlega af stjórnmálum, en fyrst ég hafði sagt „A“, gat ég ekki skorast undan að segja líka „B“. (Timamynd G.E) alltaf að vcra flokkspólitískir og auk þess vissi hann að ég væri Alþýðuflokks- mönnum sammála um margt. Það varð úr að ég réðst til Alþýðublaðsins og starfaði þar til ársloka 1944og líkaði mér þaö ágætlega. Stefán Pjetursson erágæt- is maður, mjög vcl menntaður og marg- fróður. Urðu kynni mín af honum hin ánægjulegustu. Starfi mínu á Alþýðu- blaðinu sagði ég síðan upp frá og með áramótum 1944-45 af því að ég hafði ákveðið að fara að gefa út bækur. Ég hafði dálítið kynnst bókaútgáfu, þar sem ég var um skeiö hjálparkokkur hjá Guðjóni Guðjónssyni, sem þá gaf talsvcrt út og vann að hinu sama hjá Gunnari Einarssyni, þáforstjóra Isafold- ar. Einnig um skeið hjá Pálma H. Jónssyni, scm var með bókaútgáfu norður á Akureyri. Þannig hafði ég talsverða nasasjón af þessu og blaða- mennskan kom mér einnig að talsverðu gagni. En ef til vill réð það úrslitum að tveir góðir vinir mínir hvöttu mig mjög til þes að snúa mér að þessu og veittu mér nokkurn stuðning í upphafi, skrifuðu til dæmis upp á fyrsta víxilinn scm ég fékk, og cftir þaö hefég haldið mig við þennan leist. löunn er stofnuð 1945, en fyrst í stað voru þetta tvö forlagsnöín sem ég var með, - Iðunnarútgáfan og Draupnisút- gáfan. Var sú verkaskipting höfð á að Draupnisútgáían gaf út þýddar bækur, cn Iðunnarútgáfan íslenskar bækur. Nokkrum árum síðar felldi ég niður Draupnisútgáfunafnið og gaf út á nafni Iðunnar.eingöngu. Þótt undarlcgt megi virðast, þá var það ekki ég scm gaf út fyrstu bókina sem var á mínum snærum, heldur keypti ég lítiö upplag af þýddri skáldsögu af Guð- jóni Ó og næsta bókin varð svo saga sem birst hafði scm framhaldssaga í Tíma- num, - „Kona manns”, eftir Mobcrg. Svo var mál með vexti að hlaðið hafði látið prcnta af sögunni 1800 cintök og eitt sinn þegar ég ko'm í Eddu-húsið, reyndust þeir vera í hálfgerðum vand- ræðum með hvað þeir ættu að gera við þétta. Var mér boðin sagan til kaups og er ckki að orðlengja það að ég lýsti mig þegar fúsan til kaupanna og viðskiptin voru gerö á staðnum. Ég fór nú niður í prentsalinn og spurði hvort búið væri að leggja af „satsinn" og reyndist svo vera. En ég sctti nú þessi 1800 eintök á markað og þau seldust upp á einum og hálfum degi. Það er hraðasta sala á bók sem ég veit um. Ekki hafði ég þó auglýst bókina ncma með einni fremur lítilli tvídálka auglýsingu í Morgunblaðinu. Það var allt og sumt. En ég lét setja bókina að nýju og kom hún aftur á markað fyrir jólin 1945 og seldist upp á skömmum tíma. Fyrir þessi jól gaf ég líka út einhverjar barna- og unglinga- bækur, cn strax á næsta ári kvað talsvert mcira að útgáfunni. Nú skipti mestu máli fyrir tnig að rcyna að koma sem fyrst sæmilega tryggum fótum undir bokaútgáfu. því ég var enn fátækur, var í húsnæðishraki og hafði engan samastað fyrir útgáfuna. Taldi ég að mestu möguleikar mínir mundu liggja í því að láta þýða bækur og sneinma hitti ég á ýmsar erlendar bækur sem gengu mjög vel, ekki síst bók Thor Heyerdal, „Á Kon-Tiki yfir Kyrra- Húsakynni Iðunnar á horni Bræðraborgarstígs og Öldugötu haf". Ekki hafði égNþó miklar vonir um bókina í byrjun. því ég hafði fregnir af að annar væri búinn að tryggja sér þýðingarréttinn. En um vorið kemur til mín Jón Eyþórsson sem ráðinn hafði vcrið til að þýða bókina. Hann átti við mig smáerindi sem hann lauk, en þegar hann er að fara, snýr hann sér skyndilega við í dyrunum og segir: „Ekki má bjóða þér þýðingu á „Á Kon-Tiki yfir Kyrra- tiafi.““? Sagði hann að sá er fyrst hafði tryggt sér útgáfuréttinn væri orðinn af- huga útgáfunni og fannst Jóni það leitt vegna forstjóra Gyldendal, semm átti réttinn ytra og hafði góðfúslega veitt útgáfuleyfi hér. Hafði Jón þegar vakið máls á þessu við tvo stóra útgefendur, sem báðir höfðu fúlsað við því. Ég bað Jón að skjótast eftir bókinni, kvaðst mundu lesa hana um kvöldið og lafa hann svo vita morguninn eftir. Þetta gerði ég og sagði við Jón um morguninn: „Haltu áfram að þýða,-éggef út." Þctta varð mikil sölubók. Um 1950 var forlagið farið að vaxa verulega og' það ár gerist allmcrkur viðburður. því þá kom út fyrsta bókin af „Öldinni okkar", en senn áttu fleiri bækur af því tagi eftir að koma út. Salan á bókinni varð strax mjög mikil og varð ég strax að láta endurprenta hana. Varð hún það vinsæl að senn var farið að spyrja hví ekki væri gerð samskonar bók um 19. öldina. Varð það því úr að Gils Guðmundsson, höfundurinn að „Öld- inni okkar", tók að sér að rita aðra bók sem nefndist „Öldin sem leið". Þá sögðu menn sem svo: „Nú er buið að gera 19. öldinni skil og þá þarf að skrifa um 18. öldina". Var sá ágæti maður Jón Helga- son fenginn til þess verks og kom þá upp vandamál. Hvað átti að kalla bókina? Mönnum fannst að halda þyrfti ákveð- inni línu scm mörkuð hafði verið með því að kalla bækurnar „Öldin" þetta eða hitt. Var hægt að segja „Öldin átjánda”? Lengi velti ég þessu fyrir mér og á endanum hringdi ég til Vilmundar Jóns- sonar og spurði hann álits. „Ég veit nú ekki", svaraði Vilmundur, en lofaði að hugsa um þetta og hringja síðan til mín. Skömmu síðar hringdi hann og sagði: „Mér finnst þetta fara vel í munni". Þetta réð úrslitum og nú finnst mér ekkert nafn vera eðlilegra. „Aldirnar" eru nú orðnar tólf talsins og kom sú síðasta út fyrir síðustu jól. Já, þessar bækur hafa alla tíð selst jafnt og þétt og seljast allt árið. Er þó brátt hálfur fjórði áratugur frá því er fyrsta bókin kom út. Þessar bækur hafa verið verulegur þáttur í þessu forlagi og hafa þær verið endur- prentaðar eftir þörfum. Margur eignast líklega eina bók á einhvern hátt og tínir svo smám saman inn f safnið. Ymsir kennarar hafa sagt að þrátt fyrir það að lengi vel var engar kennslubækur að hafa um tuttugustu öldina, þá hafi þeir orðið þess varir að nemendur í mennta- skólum reyndust betur að sér um atburði á tuttugustu öld en þeir áttu von á, er þeir fyrst komu í skólann. Reyndust þeir þá hafa lesið um þetta í „Öldinni", þótt þarna sé ekki um beina sagnfræði að ræða. heldur fréttablað. Nei, ég veit ekki nákvæmlega hve margir titlar hafa komið út hjá forlaginu, en þeir eru verulega á annað þúsund. Með endurprentunum yrði talan mun hærri. I bókaútgáfu hafa ^kipst á skin og skúrir, ekki er því að neita. Þannig var árið 1951 mesta áíallaárið sem ég man eftir, þar sem salan brást þá alveg. Bækur höfðu verið ein allra mesta gjafa- varan í vöruskortinum eftir stríðið, en um þetta Ieyti jókst frambóð á margs- konar öðrum varningi mjög mikið og komu þau umskipti niður á bóksölunni. Að liðnu þessu ári hurfu ýmis forlög af sjónarsviðinu, svo sem „Prentsmiðja Austurlands" og Bókaútgáfa Pálma H. Jónssonar o.fl. Árið 1952 var einnig dræmt söluár, en úr því tók að glaðna til. Nýliðið ár var líka áfallaár í bókaút- gáfu. Það er enginn vafi á því að bókin á í vök að verjast um þessar mundir, þótt hún muni ekki hverfa og bókin er og verður nauðsyn. En það þrengir að henni og vafalaust á myndbandavæðing- in þar drjúgan hlut að máii. Þetta á ekki síst við um sérstakar tegundir Boka, ef svo má segja. Þótt bókin muni halda velli er víst að hlutur hennar minnkar frá því sem var. Já, þú spyrð mig um afskipti mín af stjórnmálum og „Þjóðvarnarflokkinn". Nú, tildrögin að þeim atburðum voru fyrst og frcmst andstaðan gegn herstöðv- unum og aðildinni að Nato, sem var mjög á dagskrá eftir að herinn kom hér að nýju árið 1951. Ég var þá og er enn, - ég dreg síst dul á það -, mjög andsnúinn þessu hvoru tveggja. Sumarið 1952 komu svo menn að máli við mig og höfðu orð á því að nú þyrfti að taka í árina. Þa var starfsemi „Þjóð- varnarfélagsins", sem gaf út blaðið „Þjóðvörn". lokið. og þótti mönnum að nauðsyn bæri til að haldið yrði á þcssum málum öllum af aðila, sem óhaður væri hernaðarbandalögunum báðum. Kalda stríðið var komið í algleyming, þar s Morgunblaðið fylgdi Bandaríkjunum að málum en Þjóðviljinn Sovétríkjunum og vildum við hvorugra taglhnýtingar vera. Byrjað var að gefa út „Frjálsa þjóð" haustið 1952, en ég hafði ekki aðstöðu til þess að helga mig þessum málefnum alfarið, vegna anna við útgáfuna. Þó tók ég að mér ritstjórn blaðsins í fyrstu ásamt Bergi Sigurbjörnssyni og gegndi því starfi fram á sumarið 1953 með aðstoð góðra manna. Á útmánuðum árið 1953 komu upp raddir um að rétt væri að bjóða fram og taka þátt í kosningum þeim sem þá stóðu fyrir dyrum. Ég hafði um margra ára skeið verið því afhuga með öllu að skipa mér undir merki stjórnmálaflokks, en þar sem ég hafði sagt „A" - þar sem var aðild mín að blaðinu,- þá átti égekki létt með að skorast undan. Var „Þjóðvarnar- flokkurinn" formlega stofnaður í mars 1953 og dróst ég á að heita formaður hans. En um leið lagði ég áherslu á að Gils Guðmundsson tæki efsta sætið á listanum í Reykjavík og varð það úr. Þegar við buðum fram 1953 vissum við lítið um okkar fylgismenn, en við vissum að blaðið var mikið lesið. Við komum þó fram framboðum nokkuð víða um land og fór svo að við fengum mann kjörinn í Reykjavík og einn uppbótar- mann. Það vakti athygli hve mörg at- kvæði við fengum á „landslista", en þá var kostur á að kjósa svonefndan lands- lista, þarsem flokkar höfðu ekki sérstakt framboð. Landslisti var yfirleitt sáralítið kosinn, svo þetta sýndi að við áttum víða mjög ákveðna stuðningsmenn. Nú, þetta skapaði talsverðan ótta meðal gömlu flokkanna og átti sinn þátt í því að Framsóknarflokkurinn og Al- þýðuflokkurinn gerðu rneð sér kosninga- bandalag, sem við kölluðum „hræðslu- bandalag", og festist það nafn við þetta bandalag. Einnig átti þetta sinn þátt í því að Sósíalistaflokkurinn og Mál- fundafélag jafnaðarmanna mynduðu saman Alþýðubandalagið. Framsókn- arflokkurinn og Alþýðuflokkurinn lýstu því nú þegar yfir að stefnan væri að láta Iterinn fara, en allir vita nú hvernig það fór. En þetta varð til þess að „Þjóðvarnar- flokkurinn" missti fótfestuna og varð þá saga hans brátt öll. Flokkurinn tapaði manninum í Reykjavík við kosningarnar 1956 og fékk ekki mann kjörinn aftur, þótt hann starfaði að nafninu til þar til 1961-1962. Þetta var á margan hátt skemmtilegur tími, en varð til þess að ég vanrækti nokkuð útgáfumálin í fáein ár og gaf þá minna út en áður. Eftir 1957 fór ég hins vegar að auka útgáfuna jafnt og þétt. Ég keypti „Hlaðbúð" af Ragnari Jónssyni hæstaréttarlögmanni og tók þar m.a. við útgáfunni á „Vísnabókinni", sem Símon Jóh. Ágústsson hafði tekið saman á sínum tíma. Ragnar Jónsson þekkti ég vel frá fyrri tíð, þar sem hann var rannsóknardómari í „landráðamálinu", sem ég sagði nokkuð frá áður, en þá eignaðist ég marga mæta menn að vinum. Nú, en fyrst þú spyrð hvort ég hafi ekki haft einhver áhugaefni auk útgáfu- starfanna og þjóðfrclsismálanna, þá er því til að svara að eg hef alltaf haft ákaflega gaman af útiveru oggönguferð- um. Ég lagði talsverða stund á þetta ungur, en lagði það svo mikið til niður um skeið vegna annríkisins í kringum útgáfuna. Eiginlega tók ég mér aldrei frí í mjög mörg ár, ekki fyrr en eftir 1960. Þá tók ég þráðinn upp að nýju, fór í ferðalög og langar göngur. Félagar mínir í þessum ferðum voru oft þeir Þórhallur Vilmundarson og Halldór Sigfússon. Hér í grennd Reykjavíkur eru margar afbragðs gönguleiðir, eins og Eysteinn Jónsson hefur reyndar oft bent á, til dæmis ofan við Hafnarfjörð, á Trölla- dyngjusvæðinu og Hengilssvæðinu. Á allra síðustu árum hef ég haft mikið yndi af trjárækt sem ég fæst við í kring um sumarbústað okkar hjónanna austur í Hrunamannahreppi. Mér þótti sem ég þyrfti að gera eitthvað fyrir umhverfið þarna í kringum bústaðinn og fékk til góðan garðyrkjumann sem lagði á ráðin og byrjaði á að setja þarna niður lítið belti af viðju og síðar bættust við ösp og birki. En sjálfur hófst ég ekki handa fyrr en sumarið 1980. Við þetta hef ég unað mér ákaflega vel síðustu fjögur árin og hef verið minnugur þeirraórða ritningar- innar að sá sem kemur á elleftu stundu í víngarðinn, nrun hljóta sömu iaun og þeir sem komu að morgni."

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.