Tíminn - 01.02.1984, Síða 1

Tíminn - 01.02.1984, Síða 1
FJÖLBREYTTARA OG BETRA BLAÐ! Miðvikudagur 1. febrúar 1984 27. tölublað - 68. árgangur Siðumúta 15-Pósthotf 370 Reykjavík- Rjtstjórn 86300- Augtýsingar 18300- Afgreiðsta og askrift 86300 - Kvötdsimar 86387 og 86306 Álviðræðufundurinri eftir viku: BLÖNDUVIRKJUN A FULLA FERD EF VIÐUNANDI RAF- ORKUVERDSHÆKKUN NÆST! — gegn vilyrði um 50% stækkun álversins í Straumsvík ■ _ Undirbúningur fyrir næsta ál- viðræðufund. sem verður í Zúr- ich þann 8. og 9. þessa mánaðar, er nú í fullum gangi, og sam- kvæmt heimildum Tímans þá mun íslenska stóriðjunefndin fara með það veganesti út að leggja megináherslu á hækkun raforkuverðsins í viðræðunum, og þá gegn vilyrði fyrir 50% stækkun álversins í Straumsvík. Það liggur Ijóst fyrir, að ef samið verður um stækkun álvers- ins, þá verður að flýta Blöndu- virkjun á nýjan leik, og þá mun ríkisstjórnin leggja höfuðáherslu á að ef tekið verður viðbótarlán vegna virkjunarframkvæmda við Blöndu, þá verði raforkusalan til ÍSAL að standa undir því láni. Um þetta mun ríkja algjör samstaða í ríkisstjórninni, sam- kvæmt þeim upplýsingum sem Tíminn aflaði sér í gær. Eiga menn allt eins von á því að viðræðurnar í Zúrich beri þann árangur að samkomulag náist um stækkun álversins og þá jafnframt um viðunandi raforku- verð, en heimildarmenn Tímans telja að ekki sé aðgengilegt að semja um lægra raforkuverð en 18 mills KWH. Það ræðst því eftir viðræðurn- ar þann 8. og 9. þessa mánaðar hvort framkvæmdir við Blöndu fara á fulla ferð, en eins og kunnugt er var framkvæmdum við Blöndu frestað um eitt ár, við afgreiðslu fjárlaga og láns- fjáráætlun nú í haust. Tíminn spurði forsætisráð- herra Steingrím Hermannsson í gær, hvort það væri alvarlega til skoðunar hjá ríkisstjórninni að flýta Blönduvirkjun á nýjan leik, og sagði hann þá: „Ef viðræðurn- ar á næstunni leiða til þess að viðunandi raforkuverð fæst fyrir stækkun álvers og ákveðið verð- ur að ráðast í stækkun suðurfrá, þá er það vissulega til athugunar að flýta framkvæmdum við Blöndu, enda ráðgerum við að raforkuverðið stæði undir þeim lánum sem taka yrði til slíkrar virkjunar." -AB Óveðrið á suðvesturlandi: Tjón ríkisins nálægt ÍO millj. ■ „Tjón það sem þegar Itefur verið metið, vcgna skemmda sem urðu í flóðunum miklu á suðvesturlandi þann 4. og 5. janúar er metið á um 4.7-5 milljónir króna, en enn er eftir að meta tjónið á Akranesi, þar sem það varð hvað mest, og einnig er eftir að mcta tjónið á Eiöinu í Vestmanna- eyjum," sagði Matthías Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingaráðherra er Timinn ræddi við hann í gær. „og það sem liggur nú á er aö hefja viðgerðir á þessúfn skemmd- um.*‘ Matthías sagði að jafnframt þyrfti að gcra áætlun um upp- byggingu vitanna tveggja sem gjöreyðilögðust í ílóðunum, en það voru vitarnir Miðskersviti í Borgarfirði og vitinn á Breið- dalsvík. en ekki lægi sú áætlun fyrir nú, enda ekki búið aö ákveða hvort þeir verða staö- settir á sama stað og þeir voru. Matthías sagði að bætur þcssar yrðu að koma úr ríkis- sjóði, þar sent Viðlagatrygging bætir aðeins hús og þau rnann- virki sem eru brunatryggö. Að- spurður hvort hann teldi að tjónið í heild, sem ríkissjóöur vröi að bæta, næði 10 milljón- um króna. svaraði trygginga- ráðherra: „Ég vona að það verði ekki svo mikið, en þaö verður ekki mikiö undir þvt, því vafalaust verður um nokk- ,urra milljón króna tjón á Akra- ftesi að ræða, þegar öll kurl verða komin til grafar." Matthías sagðist vonast til þess að mjög fljótlega yrði hafist handa við uppbyggingu þess scm skemmdist i tlóðun- um, og sagði hann að fjármála- ráðherra hefði í viðræðum við sig, eftir ríkisstjórnarfundinn í gær, sagt honurn að honum væri Ijós hin brýna þörf á að hefja viðgerðir hið fyrsta. -AB Eimskip kaupir sjálft hluta- bréf rík- isins í fyrir- tækinu ■ Hlutabréf ríkisins í Eim- skipafclagi íslands verða seld nú á næstu dögum, samkvæmt því sem Albert Guðmundsson fjármálaráðherra upplýsti Tímann í gær, og cr Eim- skipafélag íslands sjálft kaup- andi, en það mun síðan ætla að endurselja hlutabrcfin. „Ég ætla næstu daga að ganga frá sölu á hlutabréfum ríkisins í Eimskipafélagi íslands," sagði Albert Guð- mundsson, „en það hefur kom- ið fram velvilji í ríkisstjórninni um að þessi bréf verði seld. Ég tel tilboð það sem gert hefur verið í bréfin vera aðgengilegt, og það kemur frá Eintskipafé- laginu sjálfu, sem síðan hyggst selja bréfin til íélagsmanna sinna og starfsmanna." „Ég lít svo á að þaö sé engin ástæða fyrir ríkið að ciga Itlut í Eim- skipj" sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra er Tíminn ræddi þetta mál við hann í gær. - AB. ■ Þrjátíu og níu ára gömul kona fannst látin í húsi við Njáls- götu um kl. 19.011 í gærkvöldi. Ekki er enn vitað um dánarorsök hennar né með hvaða hætti dauða hennar bar að höndum en tveir menn, sem voru í íbúðinni voru handteknir. Mennirnirvoru báðir ölvaðir og hafði ekki verið hægt að taka af þeim marktæka skýrslu þegar síðast var vitað í gærkvöldi. Annar mannanna sem hand- tekinn var tilkynnti lögreglunni í Reykjavík atburðinn. Rann- sóknarlögregla ríkisins fékk mál- ið til rannsóknar og í samtaii við Tímann sagði Þórir Oddsson vararannsóknarlögreglustjóri að dauðsfallið væri grunsamlegt en meira væri ekki hægt að segja að svo stöddu. RLR vann að vettvangsrannsókn í gærkvöldi og verður rannsókn haldið áfram í dag. -GSH

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.