Tíminn - 01.02.1984, Blaðsíða 16
dropar
Topparnir í
Búnaðarbankanum
■ Ekkert vard af þeim fundi
sem Drupar sögðu frá í gær að
til hefði staðið að halda í
bankaráði Búnaðarbankans,
þar scm taka átli ákvörðun um
eftirmann Magnúsar hcitins
Jónssonar frá Mel í banka-
stjórastóli. Kom það til af því
að Stefán Valgeirsson, formað-
ur, ákvað að fresta fundinum
af óþekktum orsökum. Hvað
sem öðru líður mun nú nokkuð
Ijóst orðið að Lárus Jónsson
alþingismaður hlýtur vegtyll-
una.
Hins vegar var nýverið hald-
inn fundur í stjórn stofnlána-
deildar landbúnaðarins. en eft-
ir á að taka ákvörðun um hver
verður ráðinn deildarstjóri
þeirrar deildar, eftirað fyrrver-
andi forstöðumaður hennar
var ráðinn bankastjóri við
Búnaðarbankann. Voru lagðar
fram umsóknir þeirra 15 aðila
sem sækja um stöðuna, en
ákvörðun frestað.
Stjórn stofnlánadeildar
skipa bankaráð Búnaðarbank-
ans, auk þeirra Ásgeirs Bjarna-
sonar frá Búnaðarfélaginu og
Inga Tryggvasonar frá Stéttar-
sambandi bænda, alls sjö
menn. Samkvæmt heimildum
Dropa er líklegt að fulltrúar
sjálfstæðismanna komi til með
að styðja Magnús Sigsteinsson
frá Blikastöðum í stöðuna, en
hann er annar tveggja umsækj-
enda sem óskuðu nafnleyndar.
Framsóknarmenn í stjórninni
eru þrír og þurfa því ekki nema
einn fulltrúa til, til að ná
meirihluta um cinn umsækj-
enda, en óvíst er að það takist.
Ekki síst fyrir þær sakir að
Stefán Valgeirsson hefur verið
nokkuð sérlundaður undan-
farnar vikur eftir að gengið var
framhjá honum í ráðningu
bankastjóra Búnaðarbankans.
„Get klippt tærn-
ar á mér sjálfur"
■ Jón G. Sólnes bæjarfulltrúi
á Akureyri hefur undanfarið
vakið verulega athygli á sér
vegna yfirlýsinga í sambandi
við hin „mjúku“-mál þegar
þau ber á góma í bæjastjórn
Akureyrar. Islendingur á Ak-
ureyri segir frá umræðu á
síðasta fundi um nýlega skýrslu
um könnun á högum aldraðra
á Akureyri. Jón sagði að
skýrslan væri „150 þúsund
króna sóun", og það væri „yfir-
borðsmennska að búa ti) svona
plagg.“
Nánar verður sagt frá Kvik-
myndahátíðinni og þeim mynd-
um sem þar verða sýndar í
Tímanum á fimmtudag.
- GSH.
Taldi Jón að Félagsmála-
stofnun vissi fullvel hvaða full-
orðnir einstaklingar þyrftu á
aðstoð að halda. „Það þarf
enga könnun til þess að sjá
hvort ég get klippt neglurnar
og tærnar á mér sjálfur", sagði
hann.
Krummi ...
Mér finnst að Akureyringar
ættu að lyfta umræðunni á
ofurlítið hærra plan_!
— Sumitomo fallid frá skilyrði um að raforkuverð verði óbreytt alla framtíð
■ Nú er búist við því að sam-
komulag um að japanska fyrir-
tækið Sumitomo kaupi 15 til
20% af þeim 45% sem Elkem á
í Járnblendiverksmiðjunni á
Grundartanga um miðjan þenn-
an mánuð þegar stóriðjunefnd-
in, fulltrúar Elkein og fulltrúar
Sumitomo hittast að ináli í
Japan, en Tíminn hefur heimild-
ir fyrir því að bjartsýni gæti nú
meðal Norðmannanna og Islend-
inganna, þar sem Japanirnir
munu hafa fallið frá því skilyrði
að loforð yrði gefið um óbreytt
raforkuverö í fraintíðinni, en
samningar strönduðu á því fyrr í
vetur. Nú munu Japanirnir vera
til viðræðu um að hækkun raf-
orkuverösins verði á cinhvern
hátt liundin hatnandi afkomu fyrir-
tækisins, samkvæmt þeim upp-
iýsingum sem Tíminn afiaði sér í
gær.
„Eg fylgist nákvæmlega með
öllum viðræðum um þessi mál, og
við bindum vissar vonir við að
samningar við Japanina geti
náðst, en það er ot' snemmt að
fullyrða neitt um málið núna,“
sagði Sverrir Hermannsson iðn-
aðarráðherra er Tíminn spurði
hann um þetta mál í gær.
„Við miðum við það að geta
gengið frá óskuldbindandi
bráðabirgðasamkomulagi við
Japanina nú í febrúar, þegar við
hittum þá í Japan,“ sagði Gunn-
ar G. Schram, einn nefndar-
manna í sforiðjunefnderTíminn
ræddi við hann í gær. „Þetta er
náttúrlega að mestu leyti á milli
Norðmannanna og Japananna“,
sagði Gunnar, „og það er aðal-
málið að samkomulag náist
þeirra í millum, en við viljum
auðvitað fylgjast með þeim
samningum, þar sem við höfum
hagsmuna að gæta sem aðilar að
verksmiðjunnni, og þurfum því
að sjá til þess að samkomulagið
verði í samræmi við okkar hags-
rnuni."
Gunnar sagði að eitt aðal-
umræðuefnið á fundunum með
Japönum yrði hækkun raforku-
verðsins.
- AB.
Hafnarfjarðarhöfn í froststillunni.
Tímamynd Ámi Sæberg.
Opið virka daga
9-19
laugardaga 10-16
HEDDf
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 5rl & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
abriel
y.
HÖGGDEYFAR
Qjvarahlutir SS
Hamarshöfða 1
SAMVINNU
TRYGGINGAR
8c ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
Ritstjorn 86300 —Auglysingar 18300— Afgreidsla og askrift 86300 - Kvoidsimar 86387 og 86306
Miðvikudagur 1. febrúar 1984
UTCGSBANKÍNNl
TEKUR YFIR ÖLL
BANKAVIDSKIPn
ÞORMÖDS RAMMA
■ Eins og greint var frá í
haust, þá óskaði Lands-
banki íslands eftir því að
Útvegsbanki íslands yfir-
tæki öll bankaviðskipti við
Þormóð ramma á Siglufírði,
og hcfur samkomulag þar
að lútandi nú tekist fyrir
miiligöngu Seðlabankans og
mun Útvegsbanki Islands
annast öll bankaviðskipti
Þormóðs ramma frá og með
deginum i dag.
Einar Sveinsson einn stjórn-
armanna í þriggja manna bráða-
birgðastjórn fyrirtækisins upp-
lýsti Tímann unt þetta í gær, og
greindi hann jafnframt frá því að
núverandi framkvæmdastjóri
Þorðmóðs ramma, Sæmundur
Árelíusson, léti nú að eigin ósk
af störlum, og myndi hann, þ.e.
Einar taka að sér starf fram-
kvæmdastjóra Þormóðs ramma
til bráðbirgða.
Einar sagði að eðlilegt fram-
hald á tilfærslum milli þessara
banka hefði verið talið að Út-
vegsbankinn yfirtæki þessi við-
skipti. Sagðist hann jafnframt
reikna með að þetta hefði ein-
hverja einföldun í för með sér,
þar sem' Landsbankinn hefði
ekki einu sinni útibú á Siglufirði.
Einar sagði að það hcfði verið
frumskilyrði að hægt væri að
koma bankaviðskiptum fyrir-
tækisins í eðlilegt horf á nýjan
leik, en það hefðu þau ekki verið
síðan sl. haust. því Landsbank-
inn hefði ekki lánað fyrirtækinu.
Einar sagði að undanfarið hefði
Útvcgsbankinn veitt Þormóði
ramma afurðalán, sem hefði
hjálpað til þess að halda fyrirtæk-
inu gangandi.
Aðspurður um afkomu fyrir-
tækisins sl. ár, sagði Einar: „Ég
get nú ekki gefið upp neinar
tölur þessa stundina, því það er
verið að gera upp árið. Það er þó
Ijóst að skiptastaðan er mjög
neikvæð - óneitanlega verða
skuldirnar mjög háar.“
- AB.
Kvikmynda-
hátíðin 1984
35 erlendar
kvikmyndir
■ Kvikmyndir eftir bandarísku
leikstjórana John Waters og
John Cassavetes og myndir eftir
spænska leikstjóra verða megin-
uppistaðan á Kvikinyndahátíð
1984 sem haldin vcrður 4.-12,
febrúar n.k AIls verða 35 erl-
endar kvikmyndir sýndar á há-
tíðinni, m.a. síðasta mynd þýska
leikstjórans Reiner Werner
Fassbinder, og 15 íslenskar kvik-
myndir en hátíðin verður opnuð
með sýningu á nýrri kvikmynd
eftir Hrafn Gunnlaugsson,
Hrafninn flýgur.
Margir erlendir kvikmynda-
leikstjórar og framleiðendur
munu koma hingað til lands og
halda fyrirlestra í sambandi við
Kvikmyndahátíðina og má þar
nefna John Waters, sem er
þekktur fyrir „neðanjarðar-
myndir" sínar og prófessor Al
Milgren sem er forstöðumaður
Kvikmyndastofnunar Minnes-
ota-fylkis og hefur sérhæft sig í
myndum óháðra framleiðenda,
en þeir Waters og Cassavetes
teljast til slíkra. Þá koma einnig
blaðamenn frá erlendum kvik-
myndatímaritum til að kynna sér
íslenska kvikmyndagerð og má
þar geta Peter Cowie, ritstjóra
International Film Guide.
Búist við að Japanir kaupi 15-20% í Járnblendiverksmiðjunni:
HÆKKRR RAFORKUVERD MB BATN-
ANM AFKOMU FYRIRTÆKISINS?