Tíminn - 01.02.1984, Blaðsíða 7

Tíminn - 01.02.1984, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1984 7 þess að neytendur hafa gert sífellt meiri kröfur um ormalausan fisk, meiri áhersla er því lögð a áð finna ormana og tæknin til þess hefur verið endurbætt, Enn nást þó ekki allir ormar úr þeim fiski sem hreinsaður er, Niðurstöður fræðilegra athugana hér við land á fjölda hringorma í fiski eru dregnar saman í skýrslu hringorma- nefndar frá febrúar 1982. (Sjá töflu). Ef aðeins er litið á niðurstöður án tillits til þeirra rannsókna sem að baki liggja, virðast 9% þorska hafa verið sýktir af „selormi" um 1937. Tvær kannanir voru gerðar á árinu 1973 og sýnir önnur könnunin 55% sýkingu, en hin gefur 72% sýkingartíðni. Samkvæmt niður- stöðum Erlings Haukssonar, líffræðings hringormanefndar, frá 1980-1981 var sýkingartíðni þá 71%. Hérerþó ekki öll sagan sögð, því aðferðirnar sem notaðar voru við gagnaöflun í ofangreindum rannsóknum voru mismunandi. Enginn munur kemur fram á annarri könnuninni frá 1973 og þeirri frá 1980-1981, en ekki er ólíklegt að þessar tvær kannanir séu einna sambærilegastar. Erlingur Hauksson slær þann varnagla í ofangreindri skýrslu, að mismunandi söfnun og úrvinnsla sýna gæti haft veru- leg áhrif á þær niðurstöður sem hér um ræðir, og hann telur ennfremur að jafnan eru taldir mestir sökudólgar hér við land, eru t.d. langalgengastir við vestan- og norðvestanvert landið (sjá mynd3). Selir eru ekki nema einn þáttur af mörgum sem gætu haft áhrif á tíðni hringorma í fiski. í skýrslu sinni frá hann beint til sela og það er þá fjölgun sela, sérstaklega útsela, hér við land sem gerir það að verkum að hann verður algengari í þorski og öðrum fisktegund- um." Hér fullyrðir líffræðingurinn miklu meira en tiltæk gögn gefa tilefni til og má búast við hækkun á hringormatíðni í aflanum, þar sem sóknin hefði aukist í þá þorska, sem að jafnaði eru sýktastir af hringormi. Á þennan hátt má vænta vegulegra breytinga á hringormasýkingu þorsks í afla, án þess að þær megi rekja á nokkurn hátt til sela. MYNO 2: Ur skýrslu Erlings Hauks- sonar febr. 1982, bls. 28: Prós- entuvis sýking aldursflokka þorsks af selormslirflum í fiskholdi. Svæð- askiptingin er sýnd á mynd 3. o merkin sýna sýkingu við Suðurland, en þar er fullorðinn þorskur mun minna sýktur en annars staðar við landið, þrátt fyrir mikinn f jölda sela, sjá svæði 7 á næstu mynd ■ og ☆ eru merki á Austur- og Norðaust- urlandi. Hringormasýking þar er svipuð og á öðrum hafsvæðum, þrátt fyrir að þar sé mun minna af sel, en annars staðar við landið (sjá næstu mynd). Heila linan sýnir prós- ent sýkingu aldursflokka af þorski á íslandsmiðum, en hringormasýking eykst með aldri upp í 4-5 ára en minnkar þá, líklega vegna gangna hringormalausra þorska frá Græn- landi. Ef enginn grænlenskur fiskur gengur til landsins og aðeins veiðist íslenskur, sýktur fiskur þá ætti hringormasýking að fylgja brotnu línunni. Það hversu mikill hringorm- ur er í afla íslenskra skipa er háð stærð þorskanna í aflanum og hvort fiskurinn er af íslenskum eða græn- lenskum uppruna. Á hvoru tveggja geta orðið sveiflur sem koma fram í breyttri hringormatiðni, án tillits til fjölda sela við landið. ERNDARRADS UM HRINGORMA OGSEU niðurstöðurnar bendi til þess að hring- ormasýking hafi aðeins lítillega aukist allra síðustu árin (sem þó verður að telja vafasamt, sbr. það sem að ofan er sagt). Öllu þessu er þó sleppt, þegar upplýsing- um er komið í fjölmiðla, en fullyrðingar um hina geysilegu aukningu á hring- ormasýkingu þorsks síendurteknar. Hið rétta er að ekki hafi verið færðar óyggj- andi sannanir fyrir aukningu hringorma í þorski, hins vegar er ljóst, að vandamál fiskiðnaðarins vegna hringormasýkingar fisks er gífurlegt. Þáttur sela í hringorma- sýkingu þorsks Talsmenn hringormanefndar fullyrða, að hringormasýking hafi aukist og að aukninguna megi rekja beint til fjölgun- ar sela. Á sama hátt og draga má í efa fullyrðingar um aukna hringormasýk- ingu, má véfengja fullyrðingar um auk- inn fjölda sela. Gögnin sem að baki liggja eru hvorki fullnægjandi né afger- andi. Þá fullyrðir formaður hringorma- nefndar, að beint samband sé á milli selafjölda og hringormatíðni á hverju svæði, hérlendis og erlendis. í þessu sambandi er fróðlegt að bera saman aðstæður við ísland annas vegar og við Grænland og Bretland hins vegar. Við Grænland er mikill selur en hringormur finnst þar vart í fiski. Hringormasýking þorsks við Bretland virðist miklu minni en hér við land, þótt selastofnar þar séu margfalt stærri. í grein, sem gefin var út árið 1977 af Alþjóðahafrannsóknaráð- inu og skrifuð er af tveimur skoskum vísindamönnum, kemur fram hve sel hefur fjölgað við Bretland. Um miðjan sjöunda áratuginn voru við Bretland um 20.000 útselir en um 18.000 landselir. Nálægt tíu árum síðar var talið að útselir væru orðnir 69.000 en landselir 15.000. Rannsóknir Hafrannsóknastofnunarinn- ar í Aberdeen sýna, að sýking þorsks af „selormi" er svipuð og hún var á sjöunda áratugnum, þrátt fyrir meira en þreföld- un á fjölda útsela. Skosku vísinda- mennirnir taka líka fram, að ekkert bendi til að hringormasýkingin skaði fiskinn eða valdi dauða hans. 1 greininni kemur fram, að mikil aukning hefur orðið á Anisakis hringormasýkingu í fiski í kring urn Bretland. Sú sýking kemur sei ekkert við, vegna þess að selir eru ekki lokahýsla Anisakishringorma. Hér við land benda rannsóknir Erlings Haukssonar til þess að minnst hring- ormasýking í þorski sé við suðurströnd landsins, en annars staðar við landið er hún meiri og lítill sem enginn munur á milli landshluta (sjá mynd 2). Þetta er svo þrátt fyrir það, að selir eru mjög misalgengir við strendur landsins og mun algengari við suðurströnd en við norður- og austurströndina. Utselir, sem MYND 3: Útbreiðsla landsels og utsels við strendur landsins. (Erlingur Hauksson, nóv. 1980) febrúar 1982 nefnir Erlingur Hauksson aðra þætti sem þarna gætu haft áhrif s.s. hafstrauma og gerð strandarinnar. Síðan segir orðrétt á bls. 16: „Millihýslarþurfa að vera fyrir hendi helst í miklu magni. Þeir þurfa að safna í sig lirfum hringormanna vegna fæðu- vals síns og vera sjálfir mikilvæg fæða fyrir aðra millihýsla og lokahýsla. Fæðu- val þeirra tegunda, sem taka þátt í hringrásinni, gegnir því lykilhlutverki í hringrásinni." Sami maður og þetta skrifaði var í útvarpsfréttum 3. des. sl. spurður hver væri ástæðan fyrir því að hringormur breiddist út og svaraði þá orðrétt: ..Þetta er hinn s.k. selormur sem er í þessum fisktegundum og það má rekja hefur gleymt því sem hann hafði áður ritað. Rannsóknir Erlings Haukssonar benda til þess að hringormasýking þorsks vaxi eftir því sem hann eldist og nái hámarki um 5 ára aldur, en eftir það dragi jafnvel úr henni (sjá mynd 5). Er þetta talið stafa af því að hringormalaus þorskur gengur frá Grænlandi og bland- ast hinum sýkta íslenska stofni. Göngur þorsks frá Grænlandi eru bæði misstórar og stopular. Ljóst er, að bregðist slíkar göngur, þannig að hærra hlutfall veiðist af íslenskum fiski en áður, þá eykst hringormasýking í aflanum. Hið sama gæti gerst ef breyting verður á stærð veiddra fiska. Ef meira veiðist af 4-5 ára fiski en minna af 7-8 ára fiski en áður, Hringormar og vöxtur fiska í Morgunblaðinu 9. des. sl. er haft orðrétt eftir formanni hringormanefnd- ar: „Það getur dregið úr vexti fiska að sýkjast stöðugt af selormum, en þeir hringormar, sem þrífast í innyflum, hafa meiri áhrif á vöxtinn samkvæmt rann- sóknum". Ekki er Náttúruverndarráði kunnugt um neinar rannsóknir, sem benda til þess að „selormur dragi úr vexti fiska. E.t.v. er formaður hringormanefndar hér að vitna til margra áratuga gamalla athugana á allt öðrum hringormi (Con- tracoecum aduncum) en hér um ræðir, og er ekki vitað til þess að sá ormur sé til vandræða hér. „Vísindalegar rannsóknir“ Formaður hringormanefndar hefur tekið það fram í fjölmiðlum að mikið vísindastarf hafi verið unnið hérlendis áður en aðgerðirnar hófust til fækkunar sel og að allir hefðu getað fylgst með þeim rannsóknum. Hvað þessi atriði varðar skal bent á eftirfarandi: Hring- ormanefnd var skipuð í ágúst 1979 og í nóvember sama ár skilaði líffræðingur nefndarinnar skýrslu: „Staða rannsókna varðandi hringormanvandamálið í árs- lok 1979 og áætlanir um frekari rann- sóknir". Lokakafli skýrslunnar hefst á eftirfarandi hátt (bls. 9, leturbreytingar Náttúruverndarráðs): „Eins og fram hef- ur kpmið hér að framan, eru rannsóknir varðandi hringormavandamálið yfir- gripsmiklar og munu krefjast mikils tíma, en slíkt er nú yfirleitt einkennandi fyrir vistfræðilegar rannsóknir. Vegna fyrirhugaðra aðgerða til fækkunar sel, er vert að hafa það í huga að öll mál sem varða sel og selarannsóknir verða í brennipunkti. Selir eru þau sjávarspen- dýr sem allur almenningur kemst í hvað nánasta snertingu við, úti í náttúrunni eða í sædýrasöfnum. Allar aðgerðir gagnvart sel sem ekki eru studdar vís- indalegum rökum af niðurstöðum rann- sókna á líffræði íslenskra sela, munu því væntalega hljóta talsverða gagnrýni Náttúrvendarráðs, náttúruverndarsam- taka og jafnvel þorra almennings í landinu. Þetta gerir það að verkum að nauðsynlegt er að stunda alhliða líffræði- rannsóknir á selastofnunum hér við land, svo mögulegt sé að veita haldbær svör við gagnrýni andstæðinga aðgerð- anna.“ Þessi tilvitnun sýnir glögglega, að þegar á árinu 1979 var búið að ákveða að fækka selum. Selarannsóknir þær. sem hringormanefnd hefur staðið fyrir hófust í sama mánuði og ofangreindri skýrslu var lokið. Má því nánast halda, að rannsóknirnar hafi verið aukaatriði. Nokkrar skýrslur hafa verið settar saman á vegum hringormanefndar um þær rannsóknir sem gerðar hafa verið. Furðu vekur hversu mikil tregða er í dreifingu skýrslnanna. Náttúruverndar- ráð hefur þó fengið aðgang að skýrslun- um, en ýmsar rannsóknastofnanir hins vegar ekki. Óheimilt er að vitna til þessara skýrslna nema með leyfi höfund- ar, starfsmanns nefndarinnar. Það leyfi fékkst til þess að vinna þá grein, sem hér er birt, en ein skýrsla var þó undanþegin. Spurningar hljóta að vakna. Hvað er verið að fela? Er eðlilegt að nefnd, sem skipuð er af opinberum aðilum, geti neitað landsmönnum um aðgang að rannsóknum á náttúru landsins, rann- sóknum sem hún byggir umdeildar að- gerðir á, aðgerðir á náttúrinni sem koma öllum landsmönnum við? Ný lög og auknar rannsóknir Náttúruverndarráð vill ítreka þá skoðun sína, að brýna nauðsyn ber til að sett verði hið fyrsta lög um selveiðar við ísland, er tryggi fullnægjandi stjórnun þessara vciða. Ráðið telur rétt í því sambandi, að sjávarútvegsráðuneytið hafi yfirumsjón mála er selveiðar varða. Þá er eðlilegt að Hafrannsóknastofnun annist rannsóknir á selum aðöðru jöfnu, en fylgist að öðrurn kosti náið með rannsóknuin. er aðrir kunna að hafa með höndum. Hyggilegt væri að koma á fót sérstakri nefnd er væri til aðstoðar sjávarútvegsráðuneytinu um allt er varð- ar stjórnun og skipulag selveiða, en í slíkri nefnd ætti m.a. að sitja fulltrúar náttúruverndarráðs, Hafrannsókna- stofnunar og hagsmunaaðila. Ofangreint fyrirkomulag mundi stuðla að því að selveiðar yrðu undir ströngu eftirliti. Jafnframt tryggði það ítarlega umfjöllun um þessi mál bæði frá fræði- legu sjónarmiði og frá sjónarmiði nátt- úruverndar, en á hvort tveggja hefur verulega skort frá því að hringorma- nefnd hóf afskipti sín af selveiðum. Náttúruverndarráð vill að lokum taka það fram, að það er að sjálfsögðu ekki andvígt skynsamlegri nýtingu sela hér við land. Hins vegar vill ráðið enn vara við ótímabærum og hæpnum aðgerðum til fækkunar sela. Eins og fram hefur komið hér að framan er þörf miklu meiri rannsókna á fjölmörgum atriðum, er snerta hringormavandamálið. Þegarhaft er í huga hversu gífurlegir hagsmunir eru hér í húfi verður það og að teljast nauðsynlegt að veita miklu fjármagni til hnitmiðaðra rannsókna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.