Tíminn - 01.02.1984, Blaðsíða 9

Tíminn - 01.02.1984, Blaðsíða 9
lílíííl STUTTGART LAGÐIHSV FRAMlfNGMIM IÐK umsjón: Samuel Öm Erlingsson Bournemouth og Crystal Palace féllu út - úr ensku bikarkeppninni í gær ■ í gxrkvöld voru þrír leikir í cnsku bikarkcppninni í knaltspyrnu. Wesl Ham sló Cryslal Palacc úl með 2-0 sigri á Upton Park, Middlesborough sló Bournemouth úl 2-0 á Ayrcsome Park í Middlesborough, og Everton og Gilling- ham skildu jöfn öðru sinni á Goodisun Park, og leika því þriðja sinni á mánu- dag, þá á Priestfield Sladiuin í GiUing- ham. » Þar með er draumurinn búinn í bikarkeppninni hjá þriðjudeildarliði Bournemouth, sem sló Manchester United út i þriðju umferð. Svo er reyndar einnig með Oxford United sem sló Man Utd út úr mjólkurbikarnuin, en Oxford er enn í hikarkeppninni. -SÖE Wednesday sló Coventiy út ■ Sheffield Wednesday, eitt toppliða 2. deildar, sló i fyrrakvöld 1. deildarlið Coventry út úr ensku bikarkeppninni. Leikið var á Hillsborough í Sheffield. Sheffield sigraði 3-2. Coventry náði þó tvisvar forystunni í ieiknum, fyrst með marki Terry Gibson. en Peter Shirtliff jafnaði. Þá skoraðiGibson aftur fyrir Coventry fyrir hálfleik, en Gary Bannist er jafnaði á 76. mínútu. Mel Sterland skoraði svo sigurmark Wednes- day úr vítaspyrnu finim mínútum síðar. -SÖE Maradona skoraði tvö ■ Diego Maradona hefndi meiðslanna sem hann hlaut í haust gegn Atletieo de Bilbao um síðustu hclgi, er Barcelona lék síðari leik sinn í spönsku meistara- keppninni í knattspyrnu gegn Atlctico í Bilbao. Maradona skoraði tvö mörk Barcelona í leiknum, og þau dugðu, því Barcelona vann 2-1. Bilbao er eftir sem áður á toppnum á Spáni með 30 stig, Real Madrid hefur 29 stig, og Barcelona og Atletico de Madi id hafa 26 stig hvort. -SÖE Ólympíueldurinn tendraður ■ Óiymptucldurinn var tendraður í Ólympíu í Grikklandí á sunnudag. Hlaupið var með hann til Aþcnu, og þaðan var flogið með hann til Dubrovnik í Júgóslavíu. Þaðan er nú hiaupið með eldinn, áleiðis til Sarajevo. þar sem vetrarólympíuleikarnir verða settir við hátíðlega athöfn 8. febrúar. -SÖE Neðstu liðin skildu jöfn - í annarri deild kaiia í handbolta ■ Neðstu liðin i annarri dcild karla i handbolta, Fylkir úr Árbæ og Rcynir frá Sandgerði skildu jöfn í hörkuleik á föstudagskvöld. ÍJrslitin urðu 21-21. Reynir var yfir framan af, en Fylkir náði að jafna um miðjan síðari hálflcik, og stðan var jafnt á flestum tölum. Fylkir skoraði jöfnunarmarkið rétt íyrir leiks- lok, svo ekki var tími fyrir Reyni að komast yftr á ný. Gunnar Baldursson var markahæstur Fylkismanna mcð 7 mörk, cn Einar Einarsson skoraði 5. Danícl Einarsson skoraði mest Reynismanna, 6 mörk og Snorri Jóhannesson skoraði 5. Staðan í deildinni er nú þessi: Þór V .... 10 10 0 0 225-168 20 Fram .... 10 8 1 1 218-182 17 Breiðablik .11 8 0 3 235-204 16 Grótta .... 11 6 1 4 240-222 13 HK ...... 11 3 0 8 197-223 6 ÍR....... 11 3 0 8 187-207 6 Fylkir... 11 1 3 7 208-228 5 Reynir .... 11 1 1 10 226-270 3 -SÖE ísland í öðru sæti - í 3. deild Evrópukeppninnar í borðtennis á Möltu ■ íslcnska landsliðið í borðtennis lcnti í öðru sæti í 3. dcild Evrópukeppninnar í borðtennis, en keppni í deildinni lauk á Möltu um helgina. íslcnska liðið tapaði t úrslitaieikdeild- arinnar fyrir Búlgörum 0-7, en ísland hafði áður sigrað Jersey 4-3 og Möltu 4-3. - Búlgarir eru firnasterkir í borð- , tennis. léku í 1. deild fyrir tveimur árum, en gátu ekki tekið þátt í EM í fyrra .vegna þcss að þá skorti ferðafé. Þeir voru því felldir niður í 3. dcild. Árangur íslenska liðsins er góður, liðið varð í 4. sæti í deildinni fyrir tveimur áruin, og í þriðja sæti í fyrra. Nú varð liöiö aðeins einu sæti frá 2. deildarsætinu, og ef sami uppgangur verður, er ekkert nema 2. deildarsæti sem bíður að ári. -SÖE ÍR EITT A TOPPNUM f KVENNADEILDINNI — í körfubolta eftir sigur á fS - Haukar lágu fyrir KR ■ ÍR er nú búið að koma sér vel fyrir á toppi fyrstu deildar kvenna í körfu- knattleik, eftir sigur á aðalkeppinautn- um, ÍS um helgina. IS hafði áður tapað fyrir Haukum, svo nú skilja ijögur stig liðin. Þá töpuðu Haukar, sem enn áttu möguleika á íslandsmeistaratitlinum fyr- ir helgina fyrir KR, þannig að þeirra möguleiki er nú ijarlægur. IR hefur því góðar vonir um titilinn. Efstu liö deildarinnar ÍR og ÍS mættust á sunnudagskvöld. Var leikurinn mjög jafn og spennandi allan tímann og úrslit réðust ekki fyrr en á síðustu mínútu. ÍR stúlkurnar höfðu betur 56-52, eftir að staðan í hálfleik var 34-27 ÍS í vil. Stigahæstar hjá ÍR voru Emilía Sigurðar- dóttir með 21 stig og Thelma Björnsdótt- ir með 12. Hjá ÍS skoraði Þórunn Rafnar 17 stig og Kolbrún Leifsdóttir 9. KR vann Hauka KR vann Hauka á sunnudag með 41 stigi gegn 38. Staðan í hálfleik var 25-22 KR í vil. Stigahæstar hjá KR voru Gunnhildur Gunnarsdóttir með 13 og Erna Jónsdótt- ir með 12. Hjá Haukum skoraði Sóley Indriðadóttir 16 stig og þær Svanhildur Guðlaugsdóttir og Anna Guðmunds- dóttir skoruðu 8 stig hvor. Staðan í 1. deild kvenna í körfuknatt- leik er nú þessi: ÍR............ 13 11 2 636-510 22 ÍS ........... 12 8 4 550-485 16 Haukar....... 11 6 5 494-362 12 Njarðvík..... 12 5 7 409-478 10 Snæfell ...... 11 3 8 344-439 6 KR ........... 11 2 9 366-486 4 -BL/SÖE Ólafur og Guðrún best ■ Ólafur Harðarson og Guðrún H Rristjánsdóttir fóru með sigur af hólmi á fyrsta bikarmótinu í alpa- greinum skíðaíþrótta á vetrinum, en það var haldið í Bláfjöllum á sunnudag. Keppni í stórsvigi var frestað, þar sem ófært var í Bláfjöll á laugardag. Ólafur hlaut samanlagðan tíma 99,25 sekúndur. Annar varð Tryggvi Þorsteinsson Reykjavík á 99,36 og þriðji Árni Grétar Árna- son Húsavík á 99,49. Guðrún hlaut besta tímann í kvennaflokki, rann skeiðið á 119,26 sekúndum, önnur varð Ásta Ásmundsdóttir Akureyri á 119,29 sek. og þriðja Signe Við- arsdóttir Akureyri á 121,58 sek. Notuð voru í fyrsta skipti ný og mjög fullkomin tímatökutæki á mótinu, sem Skíðadeild Ármanns hefur fest kaup á. Ármenningar sáu um framkvæmd mótsins sem haldið var á vegum Skíðaráðs Reykjavíkur. -SÖE - Frá Gísla Á Gunnlaugssyni íþróttafrétta- manni Tímans í V-Þýskalandi: ■ Í frábærlega vel leiknum, og óhugn- anlega spennándi leik lagði Stuttgart, lið Ásgeirs Sigurvinssonar, V-Þýskalands- meistara Hamburger SportVerein í gær- kvöld í framlengdum leik 4-3 Eftir að staðan var 2-2 eftir venjulegan leik- tíma var framlengt, og þá var Stuttgart sterkara,,þrátt fyrir veikindi lykilmanna í liðinu. Ásgeir Sigurvinsson átti stórgóð- an leik, lagði upp tvö mörk og dreifði spili Stuttgart mjög vel. Það leit illa út fyrir Stuttgart í upphafi, Kelsch og Karl Heins Förster urðu að spila leikinn, þrátt fyrir veikindi undan- farna daga, því Bernd Förster liggur í flensu, og Niedermayer er meiddur síð- an um helgina. - En þrátt fyrir þetta, tókst Stuttgart að komast 1-0 yfir á fyrstu mínútu leiksins, Reichert fékk þá bolt- ann á miðjum vallarhelmingi HSV, lék inn á vítateig og skaut í slána og inn 1-0. HSV náði síðan undirtökum í leiknum og sótti án afláts. Rolff náði að jafna á 34. mínútu, og þannig var staðan í hálfleik. í upphafi síðari hálfleiks slæmdi Karl Heins Förster hendi í boltann í eigin ^vítateig, HSV fékk víti, en Kaltz skaut hátt yfir, fyrsta vítaspyrna hans sem klikkar í vetur. Á 57. mínútu kom Hartwig Hamborg í 2-1, og var þá búist við að Stuttgart væri búið að vera. En það var öðru nær, Stuttgart tók leikinn alveg í sínar hendur, en það bar þó ekki árangur fyrr en fjórum mínútum fyrir leikslok. Þá lék Ásgeir upp vinstra megin, stakk af þrjá varnarmenn HSV, og lagði boltann laglega á höfuð Reic- herts, sem skoraði með föstum skalla. í framlengingu átti Stuttgart allan leikinn. Allgöwer skoraði þegar á 93. mín. eftir góðan undirbúning Ásgeirs. Jakobs jafnaði fyrir HSV 3-3 a 102. mínútu með skalla eftir aukaspyrnu Kaltz, en í síðari hálfleik framlengingar- innar tryggði Buchwald Stuttgart sigur 4-3 með góðu skoti eftir undirbúning nýs leikmanns, Zietsch. Stuttgart varð fyrir áfalli í þessum hluta leiksins, þegar Corneliusson varð að fara útaf, en fyrir hann kom áhugamaður Lorch að nafni og stóð sig vel. 35 þúsund áhorfendur sáu þennan frábæra leik í Hamborg. Tveir aðrir leikir voru í bikarkeppn- inni þýsku í gær, Bayern Munchen vann Bayer Uerdingen 1-0 í lélegum leik. Pflugler skoraði sigurmark Bayern á 56. mínútu. - Þá rétt marði Werder Bremen annarrar deildarlið Aachen 1-0 eftir framlengingu. Mayer skoraði í upphafi framlengingarinnar eftir undirbúning Völlers. Aachen var óheppið að skora ekki mörgmörk í leiknum, liðið klúðraði hreint ótrúlega dauðafærum.-GÁG/SÖE Hörkukeppni í þrístökki - á Meistaramótinu í atrennuiausum stökkum ■ Mikil keppni var í þrístökki karla, á Meistaramóti íslands í atrennulausum stökkum um helgina. Keppt var í ÍR húsinu. I þrístökki börðust þrír um sigurinn, Einar Gunnarssonar Breiðabliki, Stefán Þór Stefánsson ÍR og Guðmundur Nikulásson HSK. Fór svo að lokum að þeir Stefán og Einar settu persónuleg met, og sigraði Einar öllum að óvörum. Úrslit í mótinu urðu þessi: Hástökk án atrennu karlar: 1. Unnar Garðarsson HSK 2. Guðmundur Nikulásson HSK 3. Garðar Viihjálmsson UIA 3. Stefán Þór Stefánsson ÍR Langstökk án atrennu karlar: 1. Unnar Garðarsson HSK 2. Guðmundur Nikulásson HSK 3. Sigsteinn Sigurðsson UMFA Þrístökk án atrennu kariar: 1. Einar Gunnarsson UBK 2. Stefán Þór Stefánsson ÍR 3. Guðmundur Nikulásson HSK Hástökk án atrennu konur: 1. Koibrún Rut Stephens KR 2. Helga Halldórsdóttir KR 3. Bryndís Hólm ÍR Langstökk án atrennu konur: 1. Helga Halldórsdóttir KR 2. Kolbrún Rut Stephens KR 3. Bryndís Hólm ÍR Þrístökk án atrennu konur: 1. Kolbrún Rut Stephens KR 2. Helga Halldórsdóttir KR 3. Birgitta Guðjónsdóttir HSK 1,63 m 1,59 m 1,55 m 1,55 m 3,16 m 3,13 m 3,11 m 9.54 m 9.48 m 9,23 m 1,40 m 1,30 m 1,25 m 2.55 m 2,53 m 2.48 m 7,97 m 7,76 m 7.49 m Ingóifur vann ■ Ingólfur Jónsson Skíðafélagi Reykjavíkur varð sigurvegari í Toyota-skíðagöngunni sem fram fór á Miklatúni umsl helgi. Ingólfur varð 17 sekúndum á undan Halldóri Matthíassyni, þeim gamalgróna garpi, er 10 kílómetrarnir voru að baki. Guðbjörg Haraldsdóttir skíðafélagi Reykjavíkur sigraði í kvennaflokki með nokkrum yfirburðum, en einnig var keppt í öldungaflokki. Ingólfur hlaut tímann 28,13 mínútur, en Halldór Matthíasson SR varð annar á 28,30. Þriðji varð Róbert Gunnarsson frá Ólafsfirði á 29,42 mín. Guðbjörg hljóp 5 kílómetrana á 16,53 mínútum, önnur varð Sigurbjörg Helgadóttir SR á 19,41 mínútu, og aðrir keppendur voru nærri 10 mínútum á eftir Tryggvi Halldórsson SR sigraði í öldungaflokki á 18,50 mínúlum, en þar voru gengnir 5 kílómetrar. - SÖE. Dregið á Englandi - Brigtiton fékk útileik við Watford ■ Dregið var í fimmtu umferð cnsku hikarkeppninnar í fyrradag. Það sem markverðast þótti var að Bríghton fékk útileik við Watford, en Shrewsbury leikur gegn annaðhvort Evcrton eða Gillingham úti. Drátturínn fór þannig: Birmingham West Ham, Blackburn-Southampton, Derby/Tclford-Tottenham/Norwich, Everton/Gillingham-Shrewsbury, Huddersfield/Notts C-Middlesbro Oxford-Sheffieid Wed, WB A/Scunthorpc-Plymouth, Watford-Bríghton. Fátt er annað um þctta að segja, þar cð svo mikið er eftir af leikjum í fjórðu umferð. _ gQj- GETRAUNALEIKUR Umsjón: Jón Ólafsson 22. leikvika Staðan í eftitu deildunum ó Englandi eftir leiki á laugar- ;dag. l.deild; Liverpool.... 24 14 6 4 40-19 48 Man.Utd.... 24 13 7 4 44-27 46 West Ham 24 13 4 7 38-24 43 NottFor 23 13 3 7 44-29 42 QPR 23 12 3 8 40-22 39 Southampt 23 11 6 6 28-21 39 Luton 24 12 2 10 41-36 38 Coventry 24 10 8 6 33-28 38 Aston V 24 10 6 8 37-38 36 Norwich 25 9 8 8 30-29 35 Arsenal —.. 24 10 4 10 41-34 34 Tottenh 24 9 6 9 38-40 33 Watford 24 9 4 11 40-41 31 Everton 24 8 7 9 25-32 30 SunderL 23 8 6 9 25-32 30 WBA 24 9 3 12 28-36 30 Ipswich — 24 8 5 11 33-33 29 Leicester.... 25 7 8 10 38-43 29 Binningh .„,„.„„24 7 4 13 22-29 25 Notts C 24 5 5 14 32-48 20 Stoke 24 3 8 13 21-44 17 Wolves 24 4 5 15 21-52 17 2. deild: Chelsea 27 14 9 4 56-31 51 Sheff.Wed. . 25 15 6 5 49-24 51 Man. City.... 25 14 5 6 43-27 47 Newcastle „ 24 14 3 7 47-35 45 Grimsby 25 12 9 4 37-26 45 Blackbum „ 25 12 9 4 35-30 45 Charlton 25 12 7 6 34-31 43 Carlisle 25 11 9 5 29-18 42 Huddersf. 25 10 9 6 36-31 39 25 9 6 10 41-38 33 Poitsm. 25 9 5 11 41-32 32 Middlesb 25 8 8 9 28-27 32 Shrewsb. 24 8 8 8 30-31 32 Barasley 24 8 5 11 34-33 29 Oldham 25 8 4 13 29-45 28 Leeds 23 7 6 10 30-35 27 Cardiff 23 8 2 13 28-34 26 C.Palace 24 7 5 12 26-33 26 Fulham 25 5 8 12 27-37 23 Derby 25 6 5 14 22-47 23 Swansea..... 25 3 5 17 22-50 14 Cambridge. 25 2 7 16 20-49 13 Doddi datt í drullu- dý... ■ Hæ hæ. Eru ekki allir í stuði, búnir að meika það gott undanfarið, hressir á því og filingurinn í lagi. Er ekki pústið enn í lagi eða réttara í kei-inu. OK? Hver er svo að kvarta yfir málfarinu á Rás tvö. Mig finnst þetta sé gott íslenska. Ég ekki sjá neina athugavert við þetta málfar- ina. Bull búið í bili og Bjarni Bommsa búinn að vera. Ég held að Guðjón Ben Sigurðsson sendi- ferðabílstjórinn svifafljóti sé einn albesti tipparinn sem hefur komið fram hér í Getraunaleiknum í lengri tíma. Gaui þarf ekki að hugsa sig um. Það Uggur við að hann sé búinn að svara áður en maður segir honum hvaða leik hann fái. Áfram Guðjón, nú meikarðu það. Óli Haralds, bassi og Jón Þór eru enn að gaufast með sökum þess að ítvígang hefur þeirra leikjum verið frestað. Reglur Get- raunaleiksins eru jú þær að ef leikjum er frestað fá menn bara að vera áfram með án þess að það telji. Sanngjarnt? Ekki það? Jæja mér er alveg sama, því svona er þetta og svona verður þetta. íslendingar eru alveg sérstakir. Nú hefur gripið um sig hin mesta guðhræðsla í aldaraðir held ég. Nú má ekki lengur horfa á Davíð Allen því hann guðlastar, eða svo halda nöldujseggir lesendasíðanna fram statt og stöðugt. Ég held að það sé í lagi að gera grín að prestum og öðrum kirkjunnar þjónum, alveg eins og stjórnmálamönnum, ýtustjórum eða blaðburðabörnum, tónlist- armönnum, trésmiðum eða pípulagninga- mönnum. Prestar held ég að taki þetta ekkert nærri sér. Ég hef meira að segja Eiríkur Wolves - Jónsson, Southampton safnvörður (3) Setjum heimasigur á þetta. heyrt því fleygt að prestar landsins hittist alltaf á mánudögum heima hjá einum þeirra með kók og poppkorn til að horfa á Dave Allen. Síðan þegar eitthvert presta- grín kemur þá segir einn kannski: „Ár... Svona ert þú stundum". Ég ætla að vona að ég verði nú ekki kærður fyrir guðlast. Segi ég svo rabbi mínu næstum lokið í bih enheld örlítið áfram. Þættinum bárust tvær stökur. Þær eru svona: Doddi datt í drulludý og meiddi sig í fótnum (?) Hann varð aldrei upp frá því jafngóður í fótnum. Og hin: Vetur, sumar, vor og haust, vildi ég draga ýsu. Sigurbára Sigurðardóttir, hárgreiðslumær Ætli Leicester merji Leicester- Birmingham þetta ekki, svona 3-2. Helgi Blackburn- Hilmarsson, Sheff. Wed. nemi (2) Wednesday er óstöðvandi þessa dagana. Það er ekki vandalaust, að yrkja góða bögu. SæUr- -Jól. 11 með 11 rétta. Þegar saman fer í ensku knattspyrnunni umferð í bikarkeppninni og illsku veður undrar engan, að úrslit séu nokkuð á annan veg en reiknað skyldi með. Svo var einnig á laugardag, er varpa varð hlutkesti um 2 leiki, Huddersfield - Notts County (2) og Middlesboro - Bournemouth (1) og um þverbak keyrði, er Liverpool og Ipswich töpuðu fyrir rétt sæmilegum 2. deildarlið- um. Enda kom enginn seðill fram með 12 réttum, en 11 seðlar reyndust vera með 11 rétta og vinningurinn fyrir hverja röð, og 147 raðir með 10 rétta og vinningurinn fyrir hverja röð kr. 1.093,- Páll Andrésson Ipswich- stýrímaður Coventry Jafntefli er nú líklegasta niðurstaðan held ég. Guðbjörn Arsenal-OPR Guðbjörnsson, hetjutenór Arsenal er nú gamla uppáhaldsliðið okkar að Helguvíkinni. Treysti þeim til að bregð- ast ei vonum mínum sem eru miklar. Magnús Ólafsson, A. Villa—Luton t útlitsteiknari i i | Villa er það sterkt á heimavelli og þeir sigra ' þetta. Ég held með Aston Villa rakara. i Carl Möller, Everton - tónlistarm. Notts County Mér áskotnaðist Everton-búningurinn þeg- ar ég var i Lúdó í gamla daga. Auðvitað aðdáandi sem gaf mér hann. Því styð ég við bakið á Everton. Heimasigur Þetta er ekki spurning. Liverpool vélin höktir ekki núna. Watfard vinnur þetta vona ég barasta. Jónas Guðmundsson, prentari Nott. Forest- Tottenham Ólafur Watford- Haraldsson, WBA bassi (2) JónÞór Víglundsson, nemi Suderland- Liverpool STAÐAN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.