Tíminn - 12.02.1984, Page 4
4
SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984
AFBROT I FRAMTIÐINNI
Er hugsanlegt að koma í veg i
dæpi með aðferðum læknisfr
íyrir
eðinnar?
■ „Afbrot eru spegilmynd þess þjóðfélags,'
sem þau eru framin í. E.t.v. mætti einnig orða
þetta svo að hvert þjóðfélag á skilið þau
afbrot, sem í því eru framin.
Það er Erlendur S. Baldursson afbrota-
fræðingur, sem svo kemstað orði erblm. innti
hann eftir því hvernig afbrotum væri háttað á
íslandi og hvernig þróun þeirra yrði í framtíð-
inni.
Erlendur er starfsmaður Skilorðseftirlits
ríkisins en það er stofnun á vegum Dómsmála
ráðuneytisins. Hann stundaði nám bæði hér
heima og í Noregi, þar sem hann lauk cand.
polit. prófi.
Að áliti Erlendar virðist þróun afbrota
vera með mjög líku sniði á íslandi og á
liinum Norðurlöndunum. „Þó þekkist
hið vopnaða rán lítið sem ekkcrt hér á
landi en þau eru töluvert algeng á
Norðurlöndunum. E.t.v. er þetta vegna
þess að aðstæður eru með nokkuð öðru
sniði hér, þó að ýmislegt sé sameiginlegt.
Stærð eða öliu heldur smæð samfélags
okkar settur nokkrar skorður t þessu
samhandi. í stærri samfélögunt getur sá
sem fremur vopnað rán falið sig auðveld-
legá í fjöldanum og líkurnar á því að
hann þekkist og náist eru miklu minni en
ef slíkt gerðist hér.
Aðspurður um þróun afbrota á íslandi
í framtíðinni taldi Erlendur að þess
mætti vænta að ofheldisbrotum fjölgaði.
„Við sjáum ýmislegt, sem bendir til þess
í dag. Sumar ken'ningar afbrotafræðinn-
ar ganga út frá því að afbrotum, þar sem
ofbeldi er beitt, fjölgi eftir því sem tengsl
borgaranna eru minni. Pctta verður oft
þegar borgir og bæir stækka þá hættir
fólk að þekkjast og tengsl þess rofna.
Við munum því miður eiga von á því að
slíkum brotum fjölgi í framtíðinni. ef
svo fer sem horfir. Þetta er þó háð
ýmsurn ólíkum atriðum, sem erfitt er að
segja fyrir um hvernig munu þróast. Það
má einnig gcra ráð fyrir því að í
framtíðinni muni hinum svokölluðu
hvítflibbábrotum fjölga á íslandi. Hvít-
flibbabrotin eru brot. sem í flestum
tilvikum eru tengd starfi því, sem hinn
brotlegi vinnur við. Afbrot eins og
tölvusvindl mundu vera dæmigerð hvít-
flibbabrot. Eitt einkenni þeirra er að
þolandinn. þ.e. sá sem stolið er frá, og
gerandinn, þ.e. þjófurinn. eru í litlu eða
engu sambandi hvorir við aðra. Þannig
er í svona tilfellum oft um að ræða
þjófnaði þar sem stolið er frá stórfyrir-
tæki eða hinu opinbera. í slíkum tilvik-
um þekkir afbrotamaðurinn ekki per-
sónulega þann eða þá sem hann stelur
frá. „Annað er það, sem vænta má að
einkenni afbrot framtíðarinnar" heldur
Erlendur áfram, „er að sum þeirra verða
mjög flókin eins og t.d. margs konar
tölvusvindl getur verið. Að upplýsa slík
brot getur einnig orðið mjög erfitt. Þeim
mun flóknara, sem samfélagið verður
þeim mun flóknari verða afbrotin“. segir
viðtalandi okkar og brosir í kampinn-.
„Þá má einnig bæta við að hvítflibba-
brot eins og afbrot tengd tölvum, hafa
vanalega í för með sér mikiu meira tjón
en t.d. hefðbundnirþjófnaðir. Upphæð-
imar eru einfaldlega miklu hærri. Máli
sínu til stuðnings dró Erlendur fram
tölur frá Danmörku. Þar kom í Ijós, að
árið 1971 nam tjón af völdum hefðbund-
inna þjófnaða um 500 milljónum
danskra króna á meöan tjón af völdum
hvítflibbabrota nam 15-20 milljörðum.
„Enn er að géta þess, að þegar verið
er að velta fyrir sér þróun afbrota. að
það er. þrátt fyrir allt. erfitt að mæla
afbrot, okkur vantar tommustokkinn.
Það er t.d. ekki nema hluti afbrota, sem
eru kærð. Aðstæður í samlélaginu geta
breyst þannig að kærum við ákveðnum
brotum fjölgar þó svo að raunveruleg
aukning afbrota á þessu sviði hafi ekki
orðið. Þannið væri hægt að ímynda sér
að í náinni framtíð yrði meira um að
ofbeldi gagnvart konum á íslandi yrði
kært vegna tilkomu kvennaathvarfsins
og allrar þeirrar umræðu. sem átt hefur
sér stað að undanförnu. Þetta þyrfti þó
ekki að þýða það að ofbeldi gegn konum
mundi raunverulega aukast.
Þjóðfélagiö á skilið þau afbrot sem framin eru:
Ofbeldisafbrot-
um mun fjölga
0 Eru glæpir að breytast með tilkomu tölv-
unnar og aukinnar tækniþekkingar? Taka þeir
þjófar, sem nú stela með kreditkortum eða
tölvusvindli við afþeim, sem nú stunda tösku-
eða vasaþjófnað?
Þessum og álíka spurningum veltir banda-
rískur rithöfundur Richard Connif fyrir sér í
grein, er birtist í Tímaritinu Science Digest
nú nýlega.
Víst er um það, að eftir því sem
tækninni fleygir fram, verða breytingar
á glæpum ekki síður en á heiðarlegu
atferli fólks. Hinn nýi glæpur, sem við
stöndum nú frammi fyrir, að áliti Connif,
er hinn svokallaði tölvuglæpur, þ.e.ýmiss
konar atbrot tengd tölvum og misnotkun
þeirra. Fræðimenn telja, að ýmislegt á
tölvuöld ýti bókstaflega undir glæpi.
Þannig er það hugsanlegt, að afstaða
manna til eignarréttarins breýtist þegar
um er að ræða „plastpeninga" í formi
mismunandi kreditkorta. Einnigerhugs-
anlegt, að tryggingar þær sem handhafar
slíkra korta hafa, geri þjófum auðveld-
ara með að réttlæta glæpi sína og friða
vonda samvisku. Það er jú ólíkt heiðar-
legra að stela frá tryggingafélagi en frá
einstakling eða hvað?
S.l. haust komst lögreglan í New York
á snoðir um sérstaka skóla, þar sem
mönnum voru kenndar mismunandi að-
ferðir við að stela og svindla með ýmiss
konar kredit- og visakortum, gegn til-
tölulega vægu gjaldi. „Nemendur" gátu
meðal annars lært, hvernig hentugast
væri að breyta kortum eða hreinlega búa
þau til. Við yfirheyrslur kom í Ijós að
einn hinna nýútskrifuðu nemenda skól-
ans hafði tekið út vörur á einum degi,
með fölsuðu korti, fyrir 9500 dali eða
sem samsvarar258þúsundum ísl. króna.
Einn af yfirmönnum lögreglunnar benti
á, skömmu eftir að skólahald þetta var
lagt niður, að svo virtist sem að glæpir af
þessu tagi væru ekki taldir eins alvarlegir'
eins og t.d. hin hefðbundnu rán eða
innbrot. Að stela með plastkorti væri
meira í ætt við fjárhættuspil eða að spila
í happdrætti. Einnig hefur verið bent á
að misnotkun kreditkorta væri skömm-
inni skárri en barsmíðar þær og meiðing-
ar, sem oft vildu fylgja gömlu góðu
ránunum. Afbrotafræðingar hafa þó
bent á að glæpir þeir, sem hér um ræðir,
komi varla í veg fyrir hin hefðbundnu
afbrot heldur bætist þeir einfaldlega við,
þannig að fjölbreytni og úrval muni
aukast á þessu sviði sem öðrum.
Ýmsar rannsóknir benda til þess, að
afbrotum og glæpum fjölgi stöðugt í
heiminum. 1 Bandaríkjunum kom t.d.
nýlega út skýrsla um tíðni og eðli glæpa
þar í landi og bar heiti hennar með sér
hvert málum þessum stefnir þar í landi.
Skýrslan heitir einfaldlega „Ameríka er
hrædd". Svo virðist sem reiði og hræðsla
meðal hinna löghlýðnu borgara fari vax-
andi í réttu hlutfalli við aukningu af-
brota. Afleiðingarnar eru svo þær að
fólk fer í auknum mæli að reyna að verja
sig sjálft, þar sem lögreglan virðist ekki
vera fær um það. Þannig hefur t.d.
byssueign landsmanna aukist til ntuna
upp á síðkastið. Menn reyna að koma
sér upp vörnunt með öllu hugsanlegu
móti.
Slíkt kemur svo að sjálfsögðu niður á
samskiptunt fólks og tortryggni í garð
náungans eykst. Menn þora varla að líta
fram í hvor annan af hættu við það að
augnatilliti yrði svarað með líkamsárás.
Tölva kemur
upp um glæpamann
En hvernig verður líf okkar þá í
þessum drungalega heimi framtíðarinn-
ar, sem hér er brugðið upp? Verða
heimili okkar e.t.v. einhvers konar kast-
alar eða skotvarnabyrgi, þar sem enginn
kemst inn nema hann kunni lykilorðið
eða hafi passa? Margt bendir til þess að
sjónvarpsaugu og tölvur komi í staðinn
fyrir hina þykku veggi kastalanna
forðum. Við sjáum reyndar nú þegar
byrjunina á slíku vélrænu eftirliti, þar
sem sjónvarpsmyndavélum hefur verið
komið upp á opinberum stöðum s.s. í
verslunum og á flugvöllum. Margir
kannast einnig við vopnaleit þá, sem
víða fer fram áður en stigið er upp í
Aðspurður um hin svokölluðu ung-
lingaafbrot í framtíðinni, taldi Erlendur
að margt benti til þess að þau ættu eftir
að aukast þar sem unglingar yrðu, að
sumu leyti. minni og minni þátttakendur
í því samfélagi. sem þeir búa í. Hér áður
fyrr þurfti samfélagið á unglingum aö
halda m.a. sem vinnuafli en nú er svo
komið að unglingar eiga erfitt með að fá
vinnu. Ef ekki verður rétt á málum
haldið getur það leitt til stórkostlegra
vandamála, þar á meðal til aukinna
afbrota, sérstaklega auðgunarbrota og
skemmdarverka. Þetta fer þó allt eftir
því hvernig við þessum málum verður
brugðist í framtíðinni " sagði Erlendur
að lokum. ,.Á meðan við höldum áfram
að sækjast eftir veraldlegum gæðum þá
verða alltaf einhverjir, sem fara aðrar
leiðir að því marki en hinn stóri hópur
löghlýðinna borgara".
. ./ —
■ Erlendur S. Baldursson afbrota-
fræðingur
Tímamynd Árni Sæberg
■ Með hjálp tölvuútbúnaðar, sem bandaríska geimferðastofnunin NASA
hefur látið útbúa, náðist þessi mynd út úr Ijosmynd af stórborginni Salt Lake
City. Hún er af manni, sem nauðgað hafði stúlku, skömmu áður en myndin
var tekin. Myndin leiddi til handtöku mannsins.
flugvél. í sumum borgum Bandaríkj-
anna, svo sem í Miami Beach, hefur
sjónvarpsmyndavélum verið komið upp
við -fjölfarnar götur, sem síðan senda
myndir þráðlaust til ákveðinnar stjórn-
stöðvar. Þar er svo hægt að fylgjast með
því sem fram fer á götum úti og „hafa
auga með fólki" ef svo má að orði
komast. Það er hald manna, að slík kerfi
verði víðar tekin í notkun í framtíðinni.
Hér kemur tölvan einnig til sögunnar
þar sem nú er hægt að tengja þær við
slíkar myndavélar en þær láta síðan vita
ef eitthvað óeðlilegt” kemur inn á
skjáinn. Tölvur og myndavélar verða
þannig hugsanlega látnar koma í staðinn
fyrir löggæslumenn og sterkbyggða dyra-
verði í framtíðinni. í Salt Lake City í
Bandaríkjunum leiddi slíkur tölvubún-
aður til handtöku manns, sem nauðgað
hafði stúlku þar í borg. Örfáum mínútum
eftir að atburðurinn hafði átt sér stað var
verið að taka ljósmyndir af borginni úr
flugvél í mikilli hæð. Með hjálp tölvu-
búnaðar, sem geimferðastofnun Banda-
ríkjanna NASA hefur þróað, tókst að
ná út úr Ijósmyndunum mynd af manni,
skammt frá þeim stað, sem glæpurinn
hafði verið framinn. Ljósmynd þessi
leiddi til handtöku manns, sem viður-
kenndi verknaðinn.
Sauðirnir skildir
frá höfrunum
Er huganlegt að þekking okkar á
manninum verði svo mikil í framtíðinni
að unnt verði að segja til um, hver sé
líklegur til afbrota og hver ekki? Er þessi
þekking e.t.v.nú þegar fyrir hendi?
Sarnoff Mednich, prófessor í sálar-
fræði við Suður Californíuháskólann,
hefur bent á að 5% afbrotamanna fremji
50% þeirra afbrota sem framin eru.