Tíminn - 12.02.1984, Blaðsíða 6

Tíminn - 12.02.1984, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984 ■ Það voru hressir krakkar, sem hittust í Álftamýrarskólanum sl. helgi, þrátt fyrir snjóskafla og slæma færð. Hér voru á ferðinni íslenskir skiftinemar, sem dvalist hafa í ýmsum löndum Suður-Ame- ríku og svo hópur ungmenna, sem þangað eru að fara á næstunni. Þeir krakkar, sem nú eru að undirbúa sig undir hið langa ferðalag út, komu ásamt foreldrum sínum og auðvitað voru fulltrúar AFS til staðar en öll skipulagning skiftinemastarfsins hvílir á þeirra herðum. Það var skemmtileg stemmning meðal þessara ungu fullhuga, sem feta í fótspor víkinganna, forfeðra sinna. Þau, sem nýkomin eru heim, sögðu hinum frá þeim löndum er þau kynntust og ævintýrum, sem þau lentu í. Krakkarnir, sem nú eru á leiðinni út, fylgdust auðvitað spennt með en af og til brá fyrir ahyggjusvip á andlitum foreldranna, sem brátt sjá á eftir börnum sínum út í hinn stóra heim. Það var ekki laust við að gleðin og lífskrafturinn, sem fylgdi þessu unga fólki, hrifi lúinn blaðasnáp, sem fyrir löngu var búinn að tapa trúnni á ungu kynslóð- ina. Hér voru samankomin, að því er best varð séð, hinir ágætustu full- trúar íslands. ■ Islenskir skiptinemar, sem nú er á förum til eins árs dvalar í Suður-Ameríku. Talið frá vinstri: Lóa Þórhallsdóttir, Brynja Helgadóttir, Þorvaldur Birgisson, Þrándur Ulfarsson og Þór Eiríksson. Islendingar gera strand högg í Suður-Ameríku — Skiptinemar teknir t»lí Alþjoðleg fræðsla og samskipti Við báðum Jóhönnu Karvelsdóttur framkvæmdastjóra AFS á íslandi að segja okkur svolítið frá samtökunum og starfseminni. Rétt er að geta þess, fyrir þá sem áhuga hafa á að afla sér frekari upplýsinga um AFS, að skrifstofa sam- takanna er til húsa að Hverfisgötu 39, Reykjavík en þar hefur Jóhanna aðstöðu ásamt öðrum starfsmanni samtakanna Margréti Gunnarsdóttur. AFS eru alþjóðleg samtök, sem starfa í yfir 60 þjóðlöndum í öllum heimsálfum. Aðalviðfangsefni samtakanna eru nem- endaskipti unglinga á aldrinum 16 til 18 ára, en AFS hefur nú í auknum mæli einnig lagt áherslu á kennaraskipti milli landa, skipti á ungu verkafólki o.fl. Samtökin eru algjörlega óháð pólitísk- um og trúarlegum flokkum og félögum, svo og hvers konar hagsmunasamtökum. Markmið samtakanna er að auka skiln- ing milli þjóða heims og fólks af ólíku þjóðerni og með ólíkan bakgrunn. Einn- ig að víkka sjóndeildarhring ungs fólks og bæta menntun þess. Þannig vilja samtökin stuðla að varanlegum heims- friði. Á sl. ári sendi AFS á íslandi 31 nema til sumardvalar erlendis og 52 nema til ársdvalar. Áætlað er að um 60 ungmenni fari utan til ársdvalar skólaárið 1984- 1985. Hér á landi dveljast nú 15 erlendir ársnemar en samtökin hafa átt í nokkr- um erfiðleikum með að fá íslenskar fjölskyldur til að taka sl íka nema til sín. Á förum til f jarlægra landa Það leyndi sér ekki tilhlökkunin hjá þeim Lóu Þórhallsdóttur, Þór Eiríks- syni, Þrándi Úlfarssyni, Þorvaldi Birgis- syni og Brynju Helgadóttur en þau eru öll á leiðinni til Suður-Ameríku, nú á næstunni. Auk þeirra fer Ásdís Ár- mannsdóttir frá Stöðvarfirði en hún var ekki komin í bæinn og því ekki með í þetta skipti. Það skildi engan undra þó að nokkur tilhlökkun lægi í loftinu því kominn suður undir miðbaug jarðarinn- ar eða jafnvel svolítið sunnar. Blm. Helgartímans fékk tækifæri til að spjalla örlítið við hina verðandi heimshornaflakkara. Aðspurð um það hvort þau kynnu eitthvað í spænsku eða portúgölsku, helstu opinberu tungumál- unum þar syðra, sögðu þau að svo væri ekki, „kannski pínu pons“. Þau eru þó farin að undirbúa málanámið. „Við Lóa erum í Námsflokkum Reykjavíkur", sagði Þorvaldur, „við höfum þar ágætis kennara em er spænskumælandi og orð- inn all-góður í íslensku. Þór hefur einnig byrjað spænskunám, 2 tíma á viku auk þess sem hann er kominn í samband við bréfaskóla, sem hann ætlar að skrifast á við og halda áfram að læra málið á þann hátt. „Annars lærir maður mest þegar maður fer að kynnast fólkinu og búa með því“, bætti Þór við. Öll eru krakk- arnir í framhaldsnámi. Þrándur er í MR., Lóa og Þorvaldur eru í Fjölbraut- arskólanum í Breiðholti, Þór stundar ■ Suður-Ameríkuf arar, sem nýkomnir eru heim á kaldan klakann eftir eins árs dvöl þar syðra. Talið frá hægri: Edda Huld Sigurðardóttir, Benjamín Sigursteinsson, Sigfríður Gunnlaugsdóttir og Hörður Ragnarsson. hvern dreymir ekki um að ferðast til fjarlægra landa t.d. til hinna fornu menningarlanda Suður-Ameríku. Reyndar verða sum krakkanna að bíða í nokkrar vikur eftir því að gengið verði frá öllum pappírum, sem betra er að hafa í lagi. Það verður ekki hægt að hlaupa heim til pabba eða mömmu, svona í hendings kasti, þegar maður er ■- Krakkarnir fylgdust spennt með en af og til brá fyrir áhyggjusvip á andlitum foreidranna, sem brátt sjá á eftir bömum sínum út í hinn stóra heim. - *|

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.