Tíminn - 12.02.1984, Side 22

Tíminn - 12.02.1984, Side 22
22 SUNNUDAGUR 12. FEBRUAR 1984 Svona á að lifa af atóm- stríðið! Neðanjarðarbyrgi eru nú reist víða í Evrópu til nota í kjarnorkustríði. En koma þau að mikln gagni? ■ Skýlin rúma aðeins þriðja hvern borgara og örtröðin yrði efalaust ægileg á stund neyðarinnar. ■ „Hérna er draugaborgin okkaH' í rökkrinu glóa augun i herra Köhler, eins og á þau slái fosfórbjarma, það glóir á rendur á kuldalegu steinsteypuloftinu. í grængulri birtu liggur leiðin eftir löngum og eyðilegum göngum og gengið er niður tröppur, dýpra niður. Línur eru málaðar á veggina, þær liggja yfir dyr þar sem £ér inn í þyottaklefa með óbrjótanlegum málmspeglum á vegg. í öðrum skálum eru kojur úr málmi með ábreiðum á. „Skýlisvörð- ur“ er ritað með sjálflýsandi stöfum á stáldyr einar. „Hér getum við hýst 1447 manns,“ segir fylgdarmaður okkar, skýlisvörðurinn Wilhelm Köhler. Hann er viðbúinn sjálfum dómsdeginum. „Við höfum hér sekki undir lík. Þeim fylgir nokkuð af klórkalki, til þess að eyða lykf' ■ William Köhler, skýlisvörður, með poka þá sem ætlaðir eru undir lík. Þeim fylgir skammtur af klórkalki, til þess að eyða lykt. í skýlinu er pláss fyrir 1447 manns. Við erum staddir í undirheimum, - í opinberu öryggisskýli við Hachmann- platz, djúpt undir brautarstöðinni í Hamborg. Hér eru geymdir ýmsir bún- ingar, hvítar svuntur handa hjúkrunar- konum og gráar fyrir eldabuskur. Hér eru geigerteljarar og gasgrímur og 3000 rúllur af klósettpappír, hver með 400 blöðum, eins og það er svo nákvæmlega orðað í reglunum. Nokkrum kílómetr- um fjær undir brautarstöðinni við Reep- erbahn eru bleyjur og barnaleikföng í stórum hrúgum. Þarna eru líka ýmsar neyðarbirgðir í pappakössum og á kass- ana er letrað að þá megi engir snerta nema starfsmenn. Þá er hér feikna mikið magn af dömubindum. Dómsdagur Rétt eins og hér í Hamborg búa menn sig undir dómsdaginn alls staðar í Þýska- landi. í Aachen er búið að innrétta sprengjuhelda hvelfingu fyrir dýrgripi dómkirkjunnar og við Kudamm í Berlín eiga vegfarendur að leitað hælis í álíka skýli á stund neyðarinnar. Einnig hafa bílastæðin undir brautarstöðinni í Stutt- gart og háhýsi Shell í Frankfurt verið styrkt sérstaklega til sömu nota. Neðan- jarðarlestir hafa verið byggðar með það í huga að þær mætti nota „til sérstakra hluta“, ef kæmi til stríðs þar sem sýkla og efnavopn yrðu notuð. Sama á við um byggingar í Köln og Siemens-svæðið í Berlín. Þar má finna vökvaknúna hlera sem loka munu neðanjarðargöngunum þegar síðasta lestin er farin hjá. Verður þá komið upp þúsundum af kojum, sem nú eru geymdar á brautarstöðunum en verða fluttar ofan í jörðina á svipstundu. í Múnchen mun hið sögufræga „Blóma-loftavarnarskýli" við kjör- markaðinn og önnur skýli sem byggð voru í síðari heimsstyrjöldinni verða látin gegna hlutverki sínu að nýju. Þeir í Bremen gengu á undan með góðu fordæmi. Þar voru listamenn fengnir til þess að mála hina kuldalegu steinveggi. Rykþétta og vatnshelda málningin á veggjunum skyldi vera í róandi litum, grænum og heiðgulum, samkvæmt regl- unum. Þessir litir eru taldir hafa góð sálræn áhrif. „Við verðum áð hætta að hafa al- mannavarnirnar sem feimnismál11, sagði Friedrich Zimmermann, innanríkisráð- herra, nýlega. Ráðherrann sagði fyrir skömmu þegar byrjað var á miklu loft- varnaskýli við Wertheim am Main að því miður hefðu almannavarnirnar ekki verið“ byggðar upp af jafn mikilli mark- vísi og herinn.“. Meðan Reagan gerir ráð fyrir að atómstríðið verði háð í Evrópu og þeir í Bandaríkjunum leika sér með atómvopnin eins og teninga í spili, segir Zimmermann: „Enn er nóg eftir að starfa“. Byrgi undir íbúðarhúsum Til þessa hafa V-Þjóðverjar eytt ein- um milljarði marka í byggingu þessara skýla. Er það aðeins brot þess sem Bonn-stjórnin telur þörf á fleiri sveitar- félög gera ráð fyrir byrgjum undir skólum og skrifstofum Hans-Gúnter Kowalski í innanríkisráðuneytinu segir: „Það ætti að vera skylda að byrgi sé gert undir öllum nýjum íbúðarhúsum. í undirbúningi eru ný lög sem munu skylda alla karlmenn yfir 18 ára aldri til hjálparstarfa á ögurstundu. Þegar er hægt að hóa saman liði björgunar og aðstoðarfólks sem telur um 1.3 milljónir manna og er þar á meðal allt slökkvilið og Rauðakross lið auk fjölda tækni- fróðra manna. Enn er í ráði að verja brátt heilum milljarði marka í viðbót til almannavarnanna. Hefur stjórnardeild Zimmermans fyrir almannavarnirnar, sem staðsett er í Bad Godesberg, pantað 86 þúsund sjúkrarúm til nota í kjarn- orkustyrjöld. Almannavarnirnar hafa tíu miðstöðv- ar í V-Þýskalandi sem eru í stöðugu sambandi við flugflota hersins. í þessum miðstöðvum, sem grafnar eru djúpt niður í jörðina, á að vera hægt að lifa góðu lífi í 30 daga. Það hefur verið komið upp gríðarstórum Ijósskermum sem eiga að sýna ferðir óvinaflugvéla. En hvað skyldi nú gerast ef loftvarna- flauturnar, sem eru 67 þúsund talsins, taka að gella og skipa fólki að leita til loftvarnabyrgjanna? Þá myndu valdamennirnir í Bonn þegar leita skjóls í risaloftvarnabyrgi sínu í Ahrtal (hefðu þeir þá tíma til að komast þangað). En þar sem ekki er skjól fyrir nema 3% V-Þjóðverja í byrgjum landsins, þá mundu 97 af hverj- um hundrað standa úti í atómsprengju- regninu. Þeir myndu ryðjast að byrgjun- um sem lokuðust við fætur þeirra og ekki komast til annars en lesa á dyrunum, „Burt með fingurnar, - klemmið ykkur ekki“! En meðan dyrnar standa opnar mun skýlisvörðurinn standa á bak við skothelt gler og telja þá sem inn koma með því að styðja á hnapp fyrir hvern einn sem inn kemur. Þannig er fjöldinn talinn. Harðbannað er að taka heimilis- dýr með sér í skýlin.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.