Tíminn - 16.02.1984, Blaðsíða 11
fiþróttir
umsjón: Samúel Orn Erlingsson
Svíi fékk
lyfjaleyfi
■ Sænski ísknattlciks leikmaðurinn
Pcter 'Gradin, sem haldinn er astma,
hefur fengið leyfi læknayfirvalda á
Olympíuleikunum í Sarajevo, til að nota
lyfið Vetolin. Lyf þetta er á svörtum lista,
en án þess getur Gratin ekki verið.
Gratin er cin aðaldriffjöður sænska
landsliðsins í ísknattleik á OL.
-BL
Ajax á eftir
ungum Dana
■ Hollenska stórliðið Ajax hefur nú
mikinn áhuga á því að fá í sínar raðir
danska unglingalandsliðsmanninn Hen-
rik Larsen. Larscn mun leika með fc-
lögum sínum í danska landsliðinu í
úrslitum Evrópukeppni unglingalands-
liða sent fram fer í Sovctríkjunum í maí
í vor. Forráðantenn Ajax sáu til kappans
er hann lék á unglingamóti í Amsterdam
fyrir sköinmu.
-BL
Deildakeppnin í borðtennis:
Víkingar
lögðu KR
■ Víkingar gerðu sér lítið fyrir og
lögðu KR-inga að velli í 1. dcildarkeppn-
inni í borðtennis á dögunum. KR-ingar
höfðu þá ekki tapað leik í áraraðir, eða
frá 1977.
Úrslitin urðu annars þessi:
KR-B-Víkingur-A . .
KR-B-Vikingur-B . .
Víkingur-A-Örninn-A
KR-A-Víkingur-A . .
Víkingur-B-KR-A . .
Örnmn-A-KR-B . . .
Vtkingur-A-KR-B . .
Örninn-A-KR-A . . .
Staðan í 1. deild er nú þessi
2-6
6-1
5- 5
2-6
0-6
6- 4
6-1
0-6
KR-A
Víkingur-A
Örninn-A . .
KR-B . . . .
Víkingur-B .
7 6 0 1 38-11 12 stig
.7 5 1 1 35-16 11 stig
.5 3 11 23-19 7 stig
.7 1 0 6 19-37 2 stig
6 0 0 6 4-36 0 stig
KR-ingum nægir jafntefli úr síðasta
leik sínum í deildinni til að tryggja sér
íslandsmeistaratitilinn, yrði það þá i 9.
sinn í röð sem þeim tekst að vinna í 1.
deild karla.
Um síðustu helgi fóru fram 5 leikir í
1. dcild kvenna og urðu úrslit þeiw sem
hér segir:
Örninn-A-Víkingur..............3-0
Örninn-B-UMSB-B................1-3
Örninn-A-UMSB-C................3-0
Víkingur-UMSB-A................0-3
Örninn-B-Víkingur..............3-2
Staðan í 1. deild kvenna er nú sú, að
A-lið UMSB er með 12 stig, en A-lið
Arnarins fylgir fast á eftir með 10 stig.
-BL.
FH-Þór Ve.
í bikarnum
■ Dregið hefur verið í bikarkeppni HS!
eftirtalin lió drógust saman:
Þór Ve.-FH
Breiðablik-KR
Keflavík-KA
Afturelding-Grótta
Haukar-Valur
HK/Fram-Stjarnan
Reynir Sandg.-Þróttur
Akranes-Víkingur
Athyglisverðasti lcikurinn er vafalaust
leikur efsta liðsins í I. deild og efsta
liðsins Í2. dcild, leikur Pórs,Vestmanna-
eyjum og FH, sem lcikinn vcrður í
Vestmannaeyjum.
-BL
Ellert B. Schram, formaður KSI:
EKKERT JÍKVBHD
í landsliðsþjálfaramálum - ræðum
við Barnwell í dag - ekki verður
ráðinn landsliðsþjálfari í fast starf
■ „Þetta eru bara þreifingar, þegar
góður maður kentur til landsins eins og
við höldum að þessi maður sé, þá viljum
við tala við hann og heyra í honum
hljóðið“, sagði Ellert B. Scliram formað-
ur Knattspyrnusambands íslands í sam-
tali við Tímann í gær. Ellert var inntur
eftir því hvort KSÍ mundi hefja viðræður
við John Barnwell, Englending sem er
fyrrum framkvæmdastjóri hjá Wolves í
1. dcildinni ensku, og síðan hjá AEK í
Aþenu í Grikklandi, en hann kom til
landsins á vegum Knattspyrnufélagsins
Vais í gær. Ellert sagði einnig að Valur
réði Barnwell sem þjálfara algerlega
óháð því hvort Knattspyrnusamband
Islands mundi ráða hann eða ekki.
„Við ætlum að tala við Barnwell á
morgun (í dag -innsk-) en það er allt
óbundið og með öllum fyrirvörum. Við
erum að athuga okkar gang og leita
okkur að manni til að stýra landsliðinu,"
sagði Ellert.
- Hefur verið rætt frekar um það
innan stjórnar KSI hvernig starfi lands-
liðsþjálfara verði háttað í framtíðinni,
og eins til hve langs tíma hann yrði
ráðinn?
„Það sem hefur legið fyrir er það að
við höfum ekki hugsað okkur að ráða
mann uppá sömu býti og undanfarin ár,
það er ekki mann sem er á föstum
launum og í föstu starfi hjá KSÍ, heldur
ætlum við að taka mann sem hefur það
verkefni að stýra liðinu í þeim leikjum
sem eru á dagskrá."
- Nú er keppni að hefjast í undan-
keppni HM í sumar, hefur ekkert flogið
fyrir að ráða landsliðsþjálfara eða stjóm-
anda til lengri tíma, þannig að undirbún-
ingstími sé lengri og starfið um leið
markvissara?
„Ef við horfumst bara í augu við þá
staðreynd, að að minnsta kosti helming-
urinn af þeim mönnum sem koma til
greina í landslið leika erlendis, og það
hve keppnistímabilið hjá okkur er áskip-
að, þá gefst afar takmarkaður tími til
landsliðsæfinga. Þegar þetta tvennt fer
saman þykir okkur það óskynsamlegt,
bæði fjárhagslega og stjórnunarlega að
vera með mann á föstum launum yfir
lengri tíma sem ekki gæti komið því í
■ Ellert B. Schram.
kring að halda uppi samæfingum eða líta
á menn sem hér koma til greina í
landslið. Þess vegna höldum við að það
sé betri kostur fyrir okkur að semja við
einhvern mann, hvort sem hann er
útlendingur eða íslendingur og jafnvel
hvort það er einn eða fleiri, til þess að
taka að sér þjálfun og val á landsliðinu
fyrir þessa leiki upp á þau býti að það sé
samið um að annast verði um undirbún-
ing þessara leikja, en ekki verið öllum
stundum í starfi, því maðurinn getur
fyrirsjáanlega lítið aðhafst milli leikja.“
- Vcrður þannig maður ráðinn til
lengri tíma en sumarsins, og verður hann
með fleiri lið en A-landsliðið, t.d. u-21
landsliðið?
„Það sem liggur fyrir núna, er að
Jóhannes Atlason Iandsliðsþjálfari hefur
ákveðið að hætta, og við höfum verið að
leita að manni, þeim besta sem völ er á,
einum eða fleiri. Ef við gerum samning
við einhvern eða einhverja, þá reynum
við að fá viðkomandi til að taka að sér
Iiðið í þessari HM keppni, sem stendur
í tvö ár, og þá bæði A-landsliðið og 21
ársliðið. Það hangir allt á sömu spýtunni.
Hvort það tekst er annað mál, en þetta
hangir allt á sömu spýtunni."
- Það er þá allt opið enn varðandi
ráðningu landsliðsþjálfara, og hvort það
verður útlendingur eða íslendingur?
„Já. Við höfum tekið okkur góðan
tíma í þetta , því fyrsti leikur er ekki fyrr
en 20. júní. Við höfum viljað átta okkur
-á hvaða menn eru raunverulega hér í
landinu hjá félögunum, og hverjir gefa
kost á sér. Við höfum viljað sjá hverjir
gætu verið heppilegir í þetta, og eins
hvort hægt væri að kalla menn hingað
heim, sem þekkja til hér. Þettahefurallt
verið í athugun og við höfum ekkert
viljað rasa um ráð fram. Nú gerist það
að Valsmenn hafa gert þessum manni
boð, John Barnwell, um að koma og
starfa hjá þeim. Þetta er þekktur maður
með mikla reynslu, og hefur getið sér
gott orð. Við viljum athuga þennan
möguleika eins og alla aðra.“
- Hefur þessi Barnwell náð góðum
árangri, nú skilst mér að hann hafi verið
rekinn frá þessum tveimur félögum sem
hann hefur þjálfað fyrir?
„Já hann var hjá Wolverhampton, og
stóð sig mjög vel þar. Hann var látinn
fara þaðan, ég held að liðið hafi nú ekki
verið fallið þegar hann var látinn fara,
en það stefndi sjálfsagt í það. Hins vegar
hefur hann fengið eftir því sem mér er
sagt, bestu meðmæli. Hann kemur sem
sagt vel til greina, hann hefur mikla
reynslu í 1. deildinni í Englandi, hefur
bestu meðmæli sem völ er á frá sínu
heimalandi, hvað sem líður hans árangri
með liði sínu. Ég þekki satt að segja ekki
hvað gerðist í Grikklandi, en þetta er nú
„hasarbisness" að vera framkvæmda-
stjóri hjá svona liðum og þeir hafa nú
margir fokið þó þeir teljist góðir.“
- Er það skilyrði að verðandi lands-
liðsþjálfari verði 1. deildarþjálfari?
„Nei, það er ekkert skilyrði?
- Er það dæmi yfirstíganlegt hjá Val
að greiða þessum manni, John Barnwell,
ef þið ráðið hann ekki, og er það
yfirstíganlegt hjá ykkur að fá þennan
mann, ef Valur ræður hann ekki?
„Ef Valur ræður hann ekki tel ég
ólíklegt að við ræðum nánar við hann.
Það liggur bara fyrir að ef Valur er að
bera víurnar í hann, og þeir semja alveg
sjálfstætt við manninn, þá er hann kandi-
dat eins og aðrir. Valur ræður þennan
mann alveg sjálfstætt, það hefur ekki hin
minnstu áhrif þar á hvort við ráðum
hann eða ekki, ekki svo ég viti til,“ sagði
Ellert B. Schram.
-SÖE
1
4
■ m
»**■
tl 'II
lÍIBÍ
Hörður Sigmarsson náði ekki að skora þama þrátt fyrir góða tilburði.
Tímamynd Ámi Sæberg.
UVERP00L
mfeuums?
— í sumar í boði
ad svo verði
■ Miklar líkur eru á að enska sfórliðið
Liverpool komi hingað til lands í sumar,
og leiki hér einn eða tvo leiki við KR.
Samkvæmt upplýsingum sem Tíminn
fékk hjá Gunnari Guðmundssyni hjá
knattspymudeild KR, standa nú við-
ræður yfir um þetta og hefur Liverpool
gefið KR upp einn æskilegan leikdag 12.
ágúst.
„Þessar urmræður eru komnar nokk-
uð langt, en samningar hafa þó ekki
tekist. Þeir hafa gefið grænt Ijós á 12.
ágúst. og úr því það er þá tel ég miklar
líkur á að jjeir komi“, sagði Gunnar.
KR - Ifkur á
Liverpool kemur hingað í tilefni 85
ára afmælis KR. Þá eru 20 ár liðin frá því
bæði liðin léku fyrst í Evrópukeppni.
Málið hefur vcrið í deiglunni í nokkurn
tíma, KR skrifaði Liverpool bréf í
fyrravor, og þá gat Liverpool ckki svarað
fyrr en að hausti. Málið hefur síðan
verið rætt breflega, og komst skriður á
það, þegar Hólmbert Friðjónsson þjálf-
ari KR, Steinþór Guðbjartsson fram-
kvæmdastjóri KR og Sigþór Sigurjóns-
son liðsstjóri KR fóru til Liverpool og
dvöldust þar og fylgdust með æfingum
hjá liðinu í nokkurn tíma á dögunum.
-SÖE
Meistararnir
unnu Walsall
■ Englandsmcistarar Liverpool unnu í
fyrradag lið Walsall í undanúrslitum
mjólkurbikarsins með tveimur mörkum
gegn engu. Er Liverpool þar með komið
í úrslit keppninnar fjórða árið í röð.
Livcrpool réð gangi leiksins og átti
sigurinn fyllilega skilið. Á 14. mínútu
tók Liverpool forystu með marki ian
Rush, er þetta 31. mark Rush í vetur.
Hann skallaði í markið af stuttu færi eftir
fyrirgjöf frá David Hodgson. Á 50.
mínútu skoraði Ronnie Whelan annað
mark fyrir Liverpool 2-0. Þótt leikmenn
Walsall gerðu harða hríð að marki
Liverpool undir lok leiksins þá tókst
þeim ekki að skora og sigur Liverpool
var í höfn.
í úrslitunum leikur Liverpool við
Everton eða Aston Villa.
Leikur Liverpool og Walsall var annar
leikur Iiðanna í undanúrslitum. í fyrri
leiknum varð jafntefli 2-2. Áhorfendur
á síðari leiknum sem leikinn var á
heimavelli Walsall voru 22 þúsund. sem
er met í sögu félagsins. -BL.
Enskur sigur
í dansi
■ Enska parið Jayne I orvill og Crist-
oper Dean unnu glæsilegan sigur í
ísdansi á OL í Sarajevo í gær. Þau fengu
12 sinnum hæstu einkunn, en sú einkunr.
hefur aldrei áður verið gefin á OL. í
öðru sæti varð sovéskt par og sömuleiðis
í þriðja sæti. _jj|
MEÐAL
■ í efri röð b-lið TBR sem sigraði í 1. deild. Talið frá vinstri: Jóhann, Indriði, Wang, Inga, Þórdís og Sigfús. í neðri röð
a-lið TBR sem hafnaði í 2. sæti. Talið frá vinstri: Broddi, Þorsteinn, Guðmundur, Kristín B., Kristín M. og Haraldur.
B-lið TBR var
sterkast
Deildakeppnin
í badminton:
og A-liðið var
í öðru sæti
■ Deildakeppni Badmintonsam-
bands íslands fór .fram um síðustu
helgi. í 1. deild léku 6 lið, úrslit urðu
þau að b-lið TBR bar sigur úr býtum.
Liðið vann alla sína leiki og hlaut 10
stig af 10 mögulegum. I öðru sæti varð
a-lið TBR með 8 stig, ÍA-a varð í 3.
sæti með 6 stig, c-lið TBR varð í fjórða
sæti með 4 stig, a-lið KR varð i 5. sæti
með 2 stig og 6. sæti urðu Valsarar,
sem fengu ekkert stig og falla því í 2.
deild.
í b-liði TBR léku eftirtaldír leik-
menn: Þórdís Edwald, Inga Kjartans-
dóttir, Wang Junjie, Jóhann Kjartans-
son, Sigfús Ægir Árnason og Indriði
Björnsson. í a-lið TBR léku: Kristín
Magnúsdóttir, Kristín B. Kristjáns-
dóttir, Broddi Kristjánsson, Þorsteinn
P. Hængsson, Guðmundur Adolfsson,
Pétur Hjálmtýsson og Haraldur
Kornelíusson.
í 2. deild léku 9 lið í tveim riðlum.
Efst í hvorum riðli urðu e-lið TBR og
b-lið IA. Þáu léku því til úrslita um
hvort liðið kæmist í 1. deild að ári. í
þeirri viðureign varð jafntefli og verða
liðin því að leika annan leik um 1.
deildar sætið. Röð næstu liða í 2. deild
varð þessi: 3. KR-b, TBR-d, 5. Víking-
ur, 6. Selfoss, 7. BH (Badmintonfélag
Hafnarfj.) 8. TBV (Vestmannaeyj-
um).
-BL.
sigruðu Hauka 28-25
■ Möguleikar Þróttara að komast
í úrslitakeppnina um Islandsmeist-
aratitilinn í handknattleik hafa auk-
ist, eftir sigur Þróttar á Haukum úr
Hafnarfirði í gærkvöldi. Þróttararnir
sigruðu með þriggja marka mun
28-25. Haukarnir voru aðeins yfír í
byrjun. Svo komust Þróttarar yfir og
áttu Haukarnir þá aðeins eftir að
jafna undir lok fyrri hálfleiks. Staðan
var jöfn í hálfleik 12-12.
Það voru Ingimar Haraldsson og
Sigurjón Sigurðsson úr Haukum sem
skoruðu fyrstu mörkin í gærkvöldi.
Birgir Sigurðsson minnkaði muninn
en Gísli Óskarsson bætti við tveimur
í viðbót fyrir Þróttara. En Hafnfirð-
ingarnir voru ekki af baki dottnir og
það voru Snorri Leifsson og Ingimar
Haraldsson sem komu þeim yfir aftur.
Gísli og Jens brutu vonir Haukanna
niður með. mörkum sínum. Eftir
þetta komust þeir ekki yfir, einungis
jafnt nokkrum sinnum. Eins og áður
var sagt var staðan jöfn í hálfleik,
12-12.
I upphafi síðari hálfleiks var
leikurinn áfram jafn þrátt fyrir að
Þróttarar væru yftr allan hálfleikinn.
Minnkuðu Haukarnir muninn mcst
niður í eitt mark. Mesti munur var
fjögur mörk, 26-22. Leikurinn end-
aði með þriggja marka sigri Þróttara.
28-25. Það var Sigurjón Sigurðsson
sem minnkaði muninn um eitt mark
með marki beint úr aukakasti eftir að
lciktíma lauk.
Með sigri í þessum leik hafa Þrótt-
arar tryggt sér góða möguleika til að
leika í úrslitakeppninni en þeir eru
nú með 13 stig. Síðasti leikur þeirra
verður við Stjörnuna í Laugardals-
höllinni á sunnudagskvöld. Stjarnan
STAÐAN
Haukar-Þróttur
FH ........ 13 13 0 0 383
Valur .... 13 9 1 3 291-
Vikingur .13 7 0 6 305-
Þróttur ... 13 5 3 5 282-
Stjarnan.. 13 6 1 6 265-
KR ........ 13 5 2 6 177-:
Haukar ... 13 2 1 10 232-:
KA ........ 13 0 2 10 232
239 26
260 19
282 14
300 13
294 13
235 12
325 5
325 2
er með jafn mörg stig eða 13. KR
hefur I? og 'á einn leik eftir, á
Aknreyri við KA. Ef Stjarnan og
Þronu. .„ia jafntefli, Valur vinnur
Víking og KR sigrar KA eru fjögur
lið jöfn með 14 stig.
Besti mtiðiir leiksins í gærkvöldi
var Páll Ólafsson. Skoraði Páll 10
mörk. Konráð Jónsson og Gísli Ósk-
arsson stóðu sig einnig ágætlega. Páll
Björgvinsson var traustur að venju,
enda stjórnar hann öllum leik liðsins.
Hjá Haukum voru Hörður Sigmars-
son og Ingimar Haraldsson bestu
menn.
Mörk Haukaskoruðu: HörðurSig-
marsson 7(3), Ingimar Haraldsson 5,
Sigurjón Sigurðsson 3, Snorri Leifs-
son 3, Guðmundur Haraldsson 2,
Pétur Guðnason 2, Sigurgeir Mart-
einsson 1, Jón Hauksson 1 og Jón
Örn Stefánsson 1.
Mörk Þróttara skoruðu: Páll
Ólafsson 10(4), Konráð Jónsson 7,
Gísli Óskarsson 6(2), Lárus Lárus-
son 2, Birgir Sigurðsson 1, Jens
Jensson 1 og Páll Björgvinsson 1.
Leikinn dæmdu Þórður Sigurðsson
og Þorsteinn Einarsson. -BH.
Jeppesen
lenti í
bílslysi
■ Danski landsliðsmaðurinn hér á
árum áður, Bjame Jeppesen, sem er
íslenskum handknattleiksmönnum að
góðu kunnur, lenti í alvarlegu bílslysi
fyrir skömntu. Lenti bifreið Jeppesens í
samstuði við annan bíl og ökumaður
þess bílsfórst. Jeppesen slapp lítt meidd-
ur en fékk taugaáfall.
-BL.
Klaus Allofs
Til Diisseldorf?
- framkvæmdastjórinn
vill fá hann
Frá Gislu Á. Gunnlaugssyni íþrnttafrétta-
manni Tímans í V-Þýskalandi:
■ Talið er nú hugsanlegt, að Klaus
Allofs, einn sterkasti leikmaður 1 FC
Köln, geti vcrið á förum frá liðinu, og
jafnvel til liðs Atla Eðvaldssonar, Fort-
una Dússeldorf.
Vitað er, að forseti Dússeldorniðsins
vill gjarnan fá þennan týnda son heim á
ný. þrátt fyrir að Kremer þjálfari sé ekki
sérlega upprifinn af hugmyndinni.
Flestir höfðu reiknað með því, að
Köln yrði í hópi efstu liða í Búndeslíg-
unni í ár, eins og undanfarin ár, en allt
hcfur gengið á afturfótunum hjá liðinu í
vetur. Michels þjálfari var látinn taka
pokann sinn snemrna í haust og fram-
kvæmdastjórinn Löhr gcrður að þjálf-
ara, en allt kom fyrir ekki, uns Köln
lagði Fortuna Dússeldorf að velli nú á
dögunum. Enn á liðið því fjarlægan
möguleika á aö ná UEFA sæti, þó hann
sé frekar í minna lagi.
GÁG/SÖE
„Við áttum
skilið að
vinna
U
■ „Það er ekki rétt að ég hafi sagt að
Kaflvíkingar hafi átt skilið að vinna“,
sagði Gunnar Þorvarðarson körfubolta-
kappi í Njarðvík í samtali við Tímann
eftir helgina, vegna ummæla scm höfð
voru cftir honum í laugardagsblaöi Tím-
ans cftir leik Njarðvíkinga og Keflvík-
inga á föstudag. „Égsagði að baráttunn-
ar vcgna hafi Keflvíkingar átt skilið að
vinna, en við vorum betri og þess vegna
áttum auðvitað við skiliö aö vinna“,
sagði Gunnar.
Tóp/SÖE
ÍR vanní
kvennakörfu
-hefur yfirburðastöðu
í deildinni
■ ÍR vann Hauka í 1. deild kvenna í
körfuknattleik á mánudagskvöld. Loka-
tölurnar 42-37, eftir að IR var yfir allan
tímann. Stigahæstar hjá ÍR voru Auður
Rafnsdóttir og Thelma Björnsdóttir með
10 stig hvor. Hjá Haukum skoruðu
Sólcy Indriðadóttir mest 10 stig en
Svanhildur skoraði 9.
Tveir lcikir aðrir áttu að vera um
síðustu helgi í kvennakörfunni. Snæfell
átti að leika við KRog Njarðvík. Sökum
erfiðleika varðandi færð og yfirstandandi
prófa hjá sumurn leikmönnum Snæfells
gaf Snæfell leikina.
Staðan í kvennadeildinni er því þessi:
ÍR .......... 15 13 2 729-601 26
ÍS........... 13 9 4 586-517 18
Haukar........ 13 7 6 592-443 14
Njarðvík...... 14 6 8 462-532 12
KR........... 13 3 10 407-547 6
Snæfell....... 13 3 10 344-443 6
-BL/SÖE