Tíminn - 13.03.1984, Side 3

Tíminn - 13.03.1984, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 13. MARS 1984 fréttir ÓLÍKLEGT AÐ ÞORSKKVÓTINN VERÐI AUKINN A NÆSTUNNI — þrátt fyrir skoðanir sjómanna um aukna þorskgengd við landið ■ Þótt það sjónarmið hafi komið fram hjá sjómönnum að undanförnu að mun meiri þorskur sé nú í sjónum en áxtiað var í haust, m.a. hefur komið fram sú skoðun Guðjóns Kristjánssonar for- manns Farmanna- og fiskimannasam- bands Islands, að um 300 þúsund tonn af þorski séu við Vestfirði nú, þá er ekki líklegt að þorskveiðikvótinn verði auk- inn á næstunni, samkvæmt því sem Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð- herra upplýsti Tímann í gær, enda segir ráðherra að ekkert liggi fyrir enn sem sé sönnun þess að þorskstofninn sé stærri en áætlað hefur verið. „Að mati fiskifræðinga í haust. þá var talið að heildarþorskstofninn væri á milli 11 og 1200 þúsund tonn, en í þeirri stærð er stofninn talinn mjög veikur," sagði Halldór Ásgrímsson er Tíminn ræddi þetta mál við hann í gær, „en hins vegar þá liggur það alveg Ijóst fyrir, að þegar þorskstofninn cr þó þetta stór, þá eru alltaf líkur á því að það komi töluverðar aflahrotur. Við skulum vona að þorsk- stofninn sé stærri en hann var talinn vera sl. haust, en á þessu stigi liggja ekki fyrir neinar niðurstöður þess efnis." Halldór sagði að áfram yrði haldið að vinna að mati á þorskstofninum, og sagðist hann vonast eftir því að niður- stöður lægju snemma fyrir, þannig að hægt væri að endurskoða fyrri ákvarðan- ir. „Það er hins vcgar engin ástæða til þess," sagði Halldór, „að gefa á þessu stigi miklar vonir um að stofninn sé stærri en spáð hafði verið." Halldór sagðist hafa lagt áherslu á það við Hafrannsóknarstofnun að allt yrði gert til þess að flýta því að niðurstöður um athugun á stofnstærðinni lægju fyrir sem fyrst. Venjulega hefði slíkt mat legið fyrir á miðju ári, en Halldór sagðist telja það of seint, og sagðist hann því gera sér vonir um að einhver niðurstaða um þetta efni lægi fyrir í næsta mánuði. -AB. Þ 'ú ekur með sólskinsbros á vör í sólskinsbílnum 8 ^ IINGVAR HELGASON HF. Il| Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560. Ríkisábyrgð fyrir Arnarflug í athugun ■ Fjármálaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um ríkisábyrgð á láni fyrir Arnarflug. Nemur ríkisábyrgðin 1.5 millj. dollara. Arnarflug hefur átt við örðugleika að etja undanfarið og síðustu tvö árin hefur rekstrargrundvöllur fyrir- tækisins verið slæmur. Fjármálaráðherra kvað forráðamenn Arnarflugs telja að hægt verði að snúa dæminu við á næstu árum og vonaðist hann til að þeir gætu sett ábyrgð fyrir ríkisábyrgðinni á næstu mánuðum. Stefán Benediktsson kvað nauðsyn- legt að nefndarmenn í fjárhags- og viðskiptanefnd efri deildar fengju rekstr- aráætlun Arnarflugs til að gera upp við sig hvort ríkisábyrgð væri gerleg. Hann taldi eðlilegt að félagið fengi ábyrgðina ef rekstraráætlunin gæfi tilefni til að ætla að það gæti unnið sig út úr erfiðleikunum á næstu tveim árum. Ekið á dreng í Keflavík ■ Ekið var á 10 ára gamlan dreng á reiðhjóli í Keflavík í gær. Hann var fluttur á sjúkrahús og voru meiðsl hans ekki fullkönnuð þegar blaðið ræddi við Keflavíkurlögregluna í gær, en ljóst er að hann mun hafa brotnað á vinstra herðablaði. -JGK Sunny þýðir sólríkur og þess vegna köllum við hjá Ingvari Helgasyni hf. Nissan Sunny sólskinsbíl- inn. Sólskinsbíllinn á líka ríkulega skilið syo fál- legt nafn. Ekki bara af því að hann er óumdeilan- lega mjög fallegur bíll, heldur líka vegna þess að hann er tæknilega einhver fullkomnasti bíll sem almenningur á völ á að eignast. Sólskinsbíllinn er framhjóladrifinn, 5-gíra með 1500 cc ohc vél sem vakið hefur mikla undrun og aðdáun fyrir snerpu (84 hestöfl) og sparneytni (4,8 1 á hundraðið á 90 km hraða). Bíllinn er með fullkominni sjálfstæðri gorma- fjöðrun á öllum hjólum og 17,5 cm undir lægsta punkt, sem gerir bæði skíðaferðirnar og sumar- ferðalögin skemmtileg og pottþétt. Láttu þitt eigið ímyndunarafl ráða ferðinni við að velja þér bíl nákvæmlega samkvæmt þínum eigin óskum því að sólskinsbíllinri er til í 14 gerðum. Við tökum allar gerðir eldri bíla upp í nýja. SÓLSKINSBÍLLINN Lokun símstöðvarinnar á Selfossi: Brestur í öryggis- netinu á Suðurlandi? ■ Er öryggismálum á Suðurlandi stefnt í voða vegna lokunar símstöðvarinnar á Selfossi? Fyrirspurn um þetta efni var beint til Guðjóns Petersen forstjóra Almannavarna á fundi sem FÍB hélt á Selfossi um helgina. „Fyrirspurnin kom fram vegna þessað stöðin er orðin alsjálfvirk og ekki lengur um handvirka afgreiðslu að ræða," sagði Guðjón í samtali við Tímann. „Það er sem sagt ekki um minnkun á þjónustu að ræða. Ég talaði við póst- og símamála- stjóra vegna þessa rriáls, og hann sagði að það væri ekkert mál að fá símstöðina opnaða ef til náttúruhamfara eða ann- arra stóratburða kæmi. Sú hefur líka orðið reyndin á annars staðar þar sem ástand er eins.“ „Síðan er hins að geta að Almanna- varnir hafa sitt eigið fjarskiptakerfi á svæðinu, svo að ekki þurfi að treysta á yfirhlaðið símakerfi í neyðartilvikum. Hér er um að ræða þéttriðið net FM stöðva, það cru 11 stöðvar í Árnessýslu, 11 í Rangárvallasýslu og sami fjöldi eða fleiri í Vestur-Skaftafellssýslu. Einnig höfum við þrjár endurvarpsstöðvar sem hafa sjálfstæða rafgeyma ef rafmagn bregst.“ Guðjón vildi einnig koma á framfæri ábendingu um notkun bíla í neyðartil- vikum. „Ef hús skaddast eða hrynja þá er bíllinn næsta skjól. Þar er hiti og rafmagn óháð rafkerfi byggðanna, og þar er hægt að fylgjast með tilkynningum ■ Frá fundi FÍB á Selfossi á sunnudag. Tímamynd: G.E. í útvarpi. Siðan eru þeir náttúrlega um. komin 90 ár frá því það gerðist síðast. flutningstæki í neyðartilvikum." „Það getur enginn svarað því. Suður- pað má segja að þetta geti orðið hvenær Að lokunt var Guðjón spurður að því landið er svæði sem leysir út orku að sem er,“ hvenær von væri á Suðurlandsskjálftan- meðaltali á 50 ára fresti, og það eru -ÁDJ IMISSAN SUNNY:

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.