Tíminn - 13.03.1984, Page 5
ÞRIÐJUDAGÍIR 13. M\ftS 1984
fréttir
I
■ Hellisey VE-503 var smíðuð í Þýskalandi árið 1956, stálskip 75 lestir að stærð, og hafði verið í eigu Hraðfrystistöðvarinnar
í Vestmannaeyjum í eitt ár. Tímamynd: Jón Bjömsson.
mjög illa farinn, alblóðugur á fótum og
höndum og greinilega örmagna. Hann
var aðeins klæddur þunnri peysu, skyrtu
og gallabuxum. Honum tókst í fyrstu
ekki að gera sig skiljanlegan en ég hafði
strax samband við lögregluna og meðan
beðið var eftir henni reyndi ég að spjalla
við Guðlaug. Ég skildi eitt og eitt orð og
náði meðal annars nafninu á bátnum,
sem dugði mér til að átta mig á hvernig
komið var,“ sagði Atli.
Víðtæk leit
Víðtæk leit hófst um leið og vitað var
hvað átt hafði sér stað. Leitarmenn frá
Björgunarfélagi Vestmannaeyja, Hjálp-
arsveit skáta og lögreglunni auk nem-
enda Stýrimannaskólans gengu fjörur og
leituðu í Nýja hrauninu til að ganga úr
skugga um hvort fleiri skipverjar hefðu
komist í land. Einnig leituðu margir
bátar í grennd við þann stað sem talið
var að Hellisey hefði sokkið. Fljótlega
fannst olíubrák á sjónum og einnig brak
sem talið er vera úr Hellisey. Klukkan
10 í gærmorgun fannst flak skipsins á
dýptarmælum leitarskipa. Að sögn
Kristins Sigurðssonar, formanns Björg-
unarfélags Vestmannaeyja, liggur það á
99 metra dýpi sunnan á Leddinu. Hann
sagði það vafalaust að þar lægi flakið því
sífellt væri að koma upp brak og loftból-
ur yfir staðnum. Þá maraði eitthvað í
sjónum á 20 metra dýpi og er talið að
það sé trollið, sem enn sé fast við skipið.
Ekkert fannst í landi þrátt fyrir ítar-
lega leit. Allar fjörur á austanverðri
eynni voru gengnar og hraunið
fínkempt, að sögn Kristins. Þá fóru
björgunarsveitarmenn á slöngubátum
meðfram Heimaey. Leit var haldið
áfram fram í myrkur og til stóð að hefja
hana að nýju um leið og birti í dag.
■ „Það er óskiljanlegt hvernig maðurinn hefur farið að þessu“, sagði Atli Elíasson,
en Guðlaugur bankaði upp á hjá honum kl. 7 í gærmorgun, og varð þá fyrst uppvíst
að sjóslys hefði orðið. Tímamyndir Róbert.
Eyjum. Hann var mjög þrekaður eftir
þetta einstæða afrek auk þess sem hann
var illa farinn á höndum og fótum eftir
gönguna yfir hraunið. Ekki tókst að ná
af honum tali í gær, en í samtali við
Tímann í gærkvöld, sagði Friðþór Guð-
laugsson, faðir hans, að honum liði vel
miðað við aðstæður. Hann kvað Guð-
laug hafa greint frá því hvernig slysið átti
sér stað, en samkvæmt fyrirmælum út-
gerðarinnar yrði ekki greint frá fram-
burði hans opinberlega fyrr cn að aflokn-
um sjóprófum.
Sigurður Einarsson, forstjóri Hrað-
frystistöðvarinnar, sem gerði út Hellis-
eyna, sagði að sjópróf vegna slyssins
færu fram í Eyjum jafnskjótt og heilsa
Guðlaugs leyfði.
Hellisey VE 503 var 75 tonna stálbát-
ur, smíðaður árið 1956. Hann hefur
verið í eigu Hraðfrystistöðvarinnar í eitt
ár og var hann keyptur þangað frá
Stykkishólmi.
-Sjó
Sökk fyrirvaralaust
Ekki liggur fyrir hvernig slysið átti sér
stað og verður ekkert um það fullyrt fyrr
en sjópróf verða haldin. Þó telja menn
sýnt að trollið hafi festst í botni og
hnykkur verið svo mikill að skipið hafi
farið á hliðina og síðan sokkið.
Gott veður var þegar slysið átti sér
stað og lítill sjór þannig að því getur ekki
hafa verið um að kenna. En eins og áður
sagði, er hraunbotn í Leddinu, og er
svæðið frægt fyrir það að sjómenn missa
á því veiðarfæri sín. Talið er að nafnið á
því sé til komið vegna þess að franskir
fiskimenn sem fiskuðu á íslandsmiðum
á liðnum öldum, höfðu blýsökkur,
„ledd“ sem gjarnan festust í botninum
og týndust.
Líðan Guðlaugs
eftir atvikum góð
Guðlaugur, sem var stýrimaður á
Helliseynni, liggur nú á Sjúkrahúsinu í
„Slík er öll
mín frekja”
— Helgi Hóseason heldur áfram
baráttu sinni fyrir ad fá skírn
sína ógilta
■ Helgi Hóseasson lætur hvergi deigan
síga í baráttu sinni fyrir að fá skírn sína
ógilta. í gærmorgun hitti Ijnsmyndari
Tímans Helga, þar sem hann bauð til
kaups yfirlýsingu sína um skjalafals
„ríkisstjórnar íslenskra óþokka" á per-
sónuheimild hans í þjóðskrá og kirkju-
bók. Krafa Helga er að í þjóðskrá verði
skráð; „Helgi Hóseasson ónýtti skírnar-
sáttmála sinn í Dómkirkjunni í Reykja-
vík 16. október 1966.“ „Slík er öll inín
frekja“, segir Helgi í yfirlýsingu sinni.
Þá segir í yfirlýsingu Helga: „Kryssl-
ingar véluðu mig barn, svo til blautan úr
móðurkviði og annað sinn þrettán ára,
til að viðurkenna að lygasaga um aftur-
geinginn galdrara annars vegar og
jákvæð, algeing siðfræði hins vegar,
væru öhjákvæmilega eitt og hið sama.
Slík höfuð forheimskun á mér er stór
reísivcrður og endemlega lúalegur
glæpur; fyrir hann ákæri ég hið seka
samfélag." -b
Björgunarsveitin á
Keflavíkurflugvelli:
Hefur bjargað
200 mannslífum
■ Jolly Green Giant-björgunarsveit-
irnar á Keflavíkurflugvelli hafa nú bjarg-
að 200 mannslífum síðan þær komu til
landsins í nóvember 1971. Því 200asta
var bjargað þann 8. mars, þegar 93 ára
gamall bóndi var fluttur frá Laugarholti
í Sjaldfannardal.
Gamli maðurinn þjáðist af lungna-
bólgu og hjartaáfalli. Til að leiðbeina
þyrlunni kveiktu nágrannarogfjölskylda
mannsins bál. Þyrlan lenti síðan á
Reykjavíkurflugvelli og var sjúklingur-
inn fluttur á Landspítalann.
Björgunarsveitin hefur flogið meira
en 250 ferðir á þeim tólf árum sem hún
hefur haft aðsetur hér á landi, og
bjargað 200 mannslífum. Af þessum 200
eru 125 íslendingar, 21 Bandaríkjamað-
ur, 18 Færeyingar, 8 Vestur-Þjóðverjar,
7 Sovétmenn, 6 Danir, 5 Bretar og
Grænlendingar, 2 Finnar og 1 frá Kan-
ada, Póllandi og Austur-Þýskalandi.
Flestum var bjargað árið 1973, 45, en
þar af voru 33 vegna Vcstmannaeyja-
gossins. Næstflestum var bjargað 1975,
Hagfræðideild Seðlabankans:
26. Af landi hefur 107 verið bjargað, 14
úr lofti og 79 af sjó. -ÁDJ
■ Áhöfnin sem bjargaði 201). mannslíf-
inu. Mynd: Jeff Wood.
■ Hinn aldni baráttumaður Helgi Hós-
easson er enn að. Tímamynd Sverrir.
Nýr forstöðu-
maður ráðinn
■ Eiríkur Guðnason viðskiptafræð-
ingur hefur verið ráðinn í starf for-
stöðuinanns hagfræðideildar Seðla-
bankans frá 1. mars 1984. Tekur hann
við því starfi af Bjarna Braga Jónssyni
hagfræðingi, sem nýlega var ráðinn
aðstoðarbankastjóri við bankann.
Eiríkur er fæddur 3. apríl 1945.
Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Laugarvatni 1965 og við-
skiptafræðiprófi frá Háskóla íslands
1970. Eiríkur hefur síðan starfað við
hagfræðideild Seðlabankans, einkum
að peningamálúm og hefur haft með
höndum forstöðu á því sviði frá 1977.
Rocky Horror
í Klúbbnum
■ Helgina 15. 16. og 17. mars verður
Rocky-Horror helgi í Klúbbnum. 20
manna dans- og söngvahópur verður
með sérsamið atriði sem byggt er á
bíómyndinni Rocky Horror Picture-
show. Um undirleikinn sér hljómsveitin
Toppmenn. í fréttatilkynningu segir að
þarna sé á ferðinni mjög vandað og
mikið verk sem kosúið ..hafi óhemju
vinnu.
Að söngleiknum loknum munu Topp-
menn leika fyrir dansi.